Morgunblaðið - 11.07.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULI 1976
13
Lilja Stefánsdóttir og blómarósirnar I Laugardal
„SPYRJUM EKKI
AÐRA UM KAUP".
í Glæsibæ hittum við tvær ungar
stúlkur, Ásgerði Sverrisdóttur og
Eddu Geirsdóttur. Ásgerður sagði
að kvenmenn og karlmenn færu
nokkuð í aðskilin störf en ef það
væru sömu störfin væri sama kaup-
ið Ásgerður sagðist ekki geta sagt
um þetta, ,,við spyrjum ekki aðra
hvað þeir eru með í kaup, en yfirleitt
held ég að hér ríki jafnrétti í launa-
málum."
„MÓRALLINN
BREYTZTÁ
BÁÐA VEGU."
Edda Svavarsdóttir vinnur í
Búnaðarbankanum og hefur látið
launamál töluvert til sín taka:
„Launamisrétti var geysimikið og
er til enn í dag, en þó er ástandið að
batna. Það hefur ekki skeð á einu
bretti að sé hugarfarsbreyting hjá
fólki. Kvenfólk sem vinnur núna t.d.
í bönkum hugsar meira um þetta
sem framtíðarvinnu en ekki íhlaupa-
vinnu og það hefur hjálpað því til að
fá hærri laun Þangað til fyrir stuttu
voru fáir kvenmenn sem sóttu um
hærri stöðurnar, en nú eru konurnar
farnar að sækja meira um þær og
einnig eru það fleiri konur sem fá
þær en áður "
Edda gerði m.a. könnun á ýmsum
báttum þessa máls árið 1970 og
kom þá í Ijós að meðalstarfsaldur
kvenna var hærri en karla og er það
athyglisvert því oft hefur það verið
notað sem rök gegn launabaráttu
kvenna að þær væru svo stopull
vinnukraftur.
STAÐREYND AÐ Á
ÍSLANDI RÍKIR
LAUNAMISRÉTTI."
Þetta sagði Lilja Sörladóttir, sem
vinnur hjá gatnamálastjóra, en þó
sagði hún að í stofnun eins og hún
vinnur við sé meiripartur starfsfólks-
ins verkfræðingar eða fólk menntað
á annan hátt og sagði hún að það
væri náttúrulega miklu sjaldgæfara
að konur væru vel menntaðar og því
væri oft erfitt að gera samanburð
Hins vegar var hún sannfærð um að
konum væri haldið niðri í launa-
flokkum meira en ástæða væri til
„KVENMENN
ERU EKKI
SÍÐRI VINNU-
KRAFTUR.2
í Tryggingastofnun ríkisins hittum
við hóp af ungum stúlkum Þær
sögðu það ekkert vafamál að þær
væru órétti beittar, og spurðum við
þá hvort þær hugsuðu sér ekki að
reyna að fá bót á sínum málum.
„Það þýðir ekkert, maður yrði
kominn á ellilífeyri áður en eitthvað
fengist upp úr því."
Þarna var líka staddur Friðrik Pét-
ursson fulltrúi og taldi hann þetta
alveg rétt sem stúlkurnar segðu.
„Karlmenn sækja hreinlega ekki
um þesi lægri launuðu störf, þeir
láta ekki bjóða sér það og þeir fáu
karlmenn, sem vinna hér, eru allir í
efstu stöðunum."
— Hvernig stendur á þessu, eru
kvenmenn síðri vinnukraftur en karl-
menn?
„Nei síður en svo, en svona er
þetta nú samt "
NÚMER EITT —
MEIRI MENNTUN
FYRIR KONUR
Vestur á Granda hittum við Stellu
Stefánsdóttur, sem vinnur hjá
B.Ú.R.
„Eins og þið vitið, er kaup i fisk-
vinnu með lægri launum, sem hægt
er að hafa, en þó held ég að ekki sé
misrétti í launum milli kynja í þess-
ari atvinnugrein. Annars vita nátt-
úrulega allir að konur eru víða illa
settar í launamálum, en það sem ég
held að þurfi fyrst og fremst að
gerast til að ástandið batni, er að
konur mennti sig betur. Það er að
vísu erfiðara fyrir konur að mennta
sig en karla, af ýmsum ástæðum, en
þetta verður að ske "
Stella hefur ekki látið sitja við
orðin tóm, því sjálf stundar hún nám
í öldungadeild menntaskólans í
Hamrahlíð, auk þess að vinna allan
daginn og oft um helgar líka
„Þetta er náttúrulega hálfgerður
þrældómur,” sagði Stella, „en ég
hefi geysilega gaman af þessu og
það hefur sýnt sig, að ef viljinn er
með, þá er allt hægt."
Frá vinstri: Friðrik Pétursson, Guðrun Bogadóttir, Magda-
lena Björgvinsdóttir, Þórhalla Magnúsdóttir oHanna
Svavarsdóttir.
JGLYSCSGASIMINN ER:
22480
2Bor0w»I»Iafci&
Sumarbústaður
Til sölu er nýsmíðaður 50 fm sumarbústaður.
(Einingahús). Sérlega vandaður nýkannaður af
byggingafræðingi. Upplýsingar í sima 99-
5826.
CASIO MEMORY-8S (h-si d
Verð kr. 6.400
memory-8R (y-sid
wr; ÉBI É3| Q
* d q W
c e ti
'AC ff§|
Verð kr. 4.300
'tMlÆUWty® KJARAN C=aiM
TRYGGVAGÖTU 8, REYKJAVÍK SflUI 24140
PÖSrKRCIFU
A^6JASIN6_
FRÍMERKI í STAÐ
FERÐAR í BÆINN
LEVÍS
GALLABUXUR
SNIÐ 522
Vinsamlegast sendið mér Levi's gallabuxur í þeirri stærð
sem merkt er við.—
MITTIS- MÁL 25 26 . 27 28 29 30 31 32 33 34 36
Q Q CÖ LL LU QC 34
36
W
NAFN:
HEIMIL1SF:
Levis 1 Levis
laugavegi 89-37
hafnarstræti 17
10353 12861 13303