Morgunblaðið - 11.07.1976, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULÍ 1976
Jimmy Carter
■
4
t
degi, 14. júlí, er forsetaefnið
verður kjörið og síðan vara-
forsetaefnið daginn eftir og
þann dag munu báðir flytja
ræður, þar sem þeir taka
formlega við útnefningu. Þar
með lýkur forkosningarbar-
áttunni og flokkurinn gengur
sameinaður í aðalkosninga-
baráttuna, að sigra andstæð-
inginn.
í grundvallaratriðum er
stefnuskrá demókrata lýst
sem hún boði ró, styrk, þolin-
mæði og vilja til samvinnu
um lausn mála milli hinna
fjölþættu og ólíku hópa inn-
an flokksins. Lagt er til að
samþykkt verði lög, sem miði
að því að minnka atvinnu-
leysi í landinu niður í 3%
innan 4 ára. Að skattakerfið
verði endurskoðað frá grunni
og komið i veg fyrir að ýmsir
aðilar geti komið sér undan
skattgreiðslum. Að þeim sem
minna mega sín verði tryggð-
ar lágmarkstekjur og gert
verði nýtt almannatrygginga-
kerfi, sem alríkisstjórnin fjár-
magni að miklu leyti Á sviði
utanrikismála er hvatt til
samvinnu við Sovétríkin á
sama tíma og Bandarikin
haldi sterkum herafla. Að
dregið verði úr framlögum til
varnarmála um 5—7 millj-
arða dollara á ári og að fallið
verði frá aðstoð við einræðis-
ríki Lýst er yfir stuðningi við
ísrael, Japan og S-Kóreu og
þvi að haldið verði áfram að
vinna að bættum samskipt-
um við Kína. Þá er þvi lýst
yfir að hernaðaröryggi
Evrópu sé grundvallarskilyrði
i vörnum Bandarikjanna og
NATO lífsnauðsynlegur
hlekkur og að Bandaríkin eigi
áfram að hafa bandarisk her-
lið á vegum NATO í Evrópu
til að tryggja nægilegan styrk
til að koma i veg fyrir hugs-
anlegar árásaraðgerðir. Þó er
hvatt til nákvæmrar endur-
skoðunar og endurskipulagn-
ingar NATO og að hinir
evrópsku bandamenn verði
hvattir til að auka sína hlut-
deild í bandalaginu.
Allt útlit er því fyrir að
þetta flokksþing demókrata
verði hið friðsamlegasta um
árabil og eining ríki um for-
setaefnið, varaforsetaefnið,
stefnuskrána og höfuðmark-
miðið, að koma demókrata til
valda í Hvíta húsinu næstu 4
ár
Aðeins fbrmsatriði
að útnef na Carter
GERT er rá8 fyrir að um 20
þúsund manns muni sækja
flokksþing bandaríska
demókrataflokksins, sem
hefst F Madison Square
Guarden ráðstefnumiðstöð-
inni á morgun, mánudag-
inn 12. júlí. Af öllum þess-
um fjölda er gert ráð fyrir
að um helmingur, eð rúm-
lega 10 þúsund manns
verði starfsmenn fjölmiðla,
en þessi fjöldi hefur allur
fengið úthlutað blaða-
mannaskírteinum. Hér er
um að ræða fréttamenn,
Ijósmyndara, kvikmynda-
tökumenn og aðra tækni
menn, en sjónvarpað verð-
ur beint fá þinginu í öllum
stærstu sjónvarpsstöðvum
Bandaríkjanna, auk út-
varpssendinga um allan
heim.
Um 5000 fulltrúar frá öll-
um fylkjum Bandaríkjanna,
Puerto Rico, Guam, Jóm-
frúareyjum, Panamasvæðinu
og víðar sitja þingið og ráða
yfir alls 3008 atkvæðum.
Sendinefndirnar eru misjafn-
lega stórar, eftir fólksfjölda
og fjölda skráðra demókrata í
hverju fylki Stærstu sendi-
nefndirnar eru frá New York
og Kaliforníu, hin fyrrnefnda
telur 400 fulltrúa og Kali-
fornia 392 Þá sitja þingið
einnig um 5000 fulltrúar án
atkvæðisréttar þeirra á meðal
helztu forystumenn demó-
krata í öllum fylkjum landsins
og leiðandí stjórnmálamenn
flokksins, svo sem þing-
menn, fylkisstjórar aðstoðar-
fylkisstjórar o.s.frv
Þetta er þriðja skiptið í
sögu flokksins, að hann held-
ur þing sitt i New York Síð-
asta þingið var haldið 1 924
og tók 14 daga áður en full-
trúar komu sér saman um
forsetaefni sitt, sem var John
W Davis, sem tapaði fyrir
Calvin Coolidge þáverandi
forseta Fyrsta þingið var
haldið 1868, þegar Horatio
Saymour varð fyrir valinu
sem forsetaefni, en hann tap-
aði fyrir Ulysses S. Grant
Gert er ráð fyrir að miklu
meiri eining ríki á þessu
flokksþingi en var á þingun-
um i Chicago 1968 og
Miami Beach 1972, einkum
vegna þess að flokkurinn er
ekki lengur klofinn vegna
Vietnamstríðsins og einnig
að Jimmy Carter hefur á sl 6
mánuðum tryggt sér útnefn-
íngu flokksins svo að það er
aðeins formsatriði að hann
verði samþykktur Þrátt fyrir
tilraunir ýmissa til að stöðva
hann var sigur hans aldrei i
hættu þó svo að hann tapaði
undir lokin nokkrum sinnum
fyrir Morris Udall, Jerry
Brown og Frank Church.
Carter þarf 1 505 atkvæði til
að hljóta útnefningu við
fyrstu atkvæðagreiðslu og
það mun hann fá nema ör-
lögin grípí á einhvern stór-
brotinn hátt fram í Eina mál-
ið, sem leysa þarf á þinginu,
er raunverulfega að velja
varaforsetaefnið, en að því
hefur Carter einbeitt sér und-
anfarnar þrjár vikur og 3. júlí
byrjaði hann viðræður við
hugsanleg varaforsetaefni
með því að eiga langan fund
með Edmond Muskie.
Val forsetaefnis og varafor-
setaefnis er hins vegar að-
eins hluti af starfi flokks-
þingsins Auk þess samþykk-
ir þingið stefnuskrá flokksins
fyrir næstu 4 ár, sem birt er
bandarísku þjóðinni sem
ábending um hverju eiga
megi von á næstu 4 ár, ef
demókrati verður kjörinn for-
seti Stefnuskrárnefnd
flokksins hefur þegar sam-
þykkt einróma uppkast að
20 þúsund orða skjali, sem
lagt verður fyrir þingheim og
er ekki gert ráð fyrir neinum
verulegum breytingum á því,
því að það túlkar i megin-
dráttum stefnu og markmið
Jimmy Carters. Auk þess er í
yfirlýsingunni farið mjög bil
beggja og engar róttækar
breytingar boðaðar. Mið-
punktur þingsins er á þriðja
Unnið að undirbúningi í Madison Square Garden í New York.
Flokksþing
demókrata
hefst á
morgun í
New York