Morgunblaðið - 21.07.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.07.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JULl 1976 3 99 Ekki hægt að líkja þessu við sumarið í fyrra...” VEÐUR var i gær hagstætt til hey- þurrkunar um mestan hluta lands- ins og voru bændur önnum kafnir við heyskap. Um helgina var einn- ig þurrkur um verulegan hluta landsins og meðal annars á Suður- landi, en bændur þar voru orðnir langeygir eftir þurrki. Síðdegis í gær fór að þykkna upp á Suður- landi en spáð er vestlægri átt og má gera ráð fyrir að þurrkur hald- ist eitthvað áfram á austanverðu landinu en vestantil má búast við úrkomu. Morgunblaðið ræddi í gær’við bændur og ráðunauta búnaðarsambandsins á nokkrum stöðum á landinu um heyskapar- horfur og fara samtölin hér á eftir. Bjarni Arason, ráðunautur i Borg- arnesi sagði að þar um slóðir væri nú komið nóg gras en heyskapur hefði gengið stirðlega vegna þurrk- leysis. í fyrradag var góður þurrkur og náðu menn þá upp töluverðu af heyjum. — Ég sé ekki að það sé ástæða til neinnar svartsýni og ástandið er ekki slæmt. Sennilega eru bændur hér í sýslu búnir að ná i hlöðu um fjórðungi af þeim heyjum, sem þeir þurfa til vetrarins, sagði Bjarni að lokum KAL í TÚNUM Á VESTFJÖRÐUM — Grasspretta i innanverðu Djúpi er með betra móti nú en nokkuð ber á kalskellum i túnum hér um slóðir og það sama gildir um Vestfirði i heild, sagði Jón Guðjónsson, Laugarbóli í Nauteyrarhreppi i ísa- fjarðardjúpi í samtali við Mbl i gær Þurrkur hefur verið lítill fram eftir þessum mánuði en hér hefur verið þurrkur um helgina Sláttur byrjaði hér lítilsháttar i sl. viku og mest um helgina en við hirðum lítið i vothey, sagði Jón og bætti við að ekki væri ástæða til annars en bjartsýni með- an veður héldist skikkanlegt. ALLIR Á KAFI í HEYSKAP Við ræddum við húsfreyjuna á Staðarbakka i Miðfirði, Ásdisi Magnúsdóttur — Hér eru ailir á kafi í heyskap Þetta er góður dagur og hefur bjargað miklu en hinqað til hefur verið heldur litill þurrkur, sagði Ásdis. Spretta i Miðfirði er að sögn Ásdisar ágæt en eins og hún orðaði það þá er allt undir veðrinu komið, hvort tekst að afla nægjan- legra og góðra heyja. — Þetta hefur verið daufur þurrk- ur fyrr en i dag, sagði Sigurjón Tobiasson, bóndi i Geldingaholti í Skagafirði, þegar við ræddum við hann í gær og spurðum hvernig viðraði til heyskapar. — Hér var góður þurrkur um miðjan mánuðinn og þá náðu menn töluverðu, en almennt má segja að menn séu komnir vel á veg með heyskap og allmargir eru að Ijúka túnaslætti Spretta er ágæt og ég væri ekki hissa þó menn væru hálfn- aðir með heyskapinn, sagði Sigur- jón. Ævar Hjartarson ráðunautur varð fyrir svörum hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, þegar við leituðum frétta af heyskaparhorfum i Eyjafirði. — Otlitið er heldur gott Hér var góður þurrkur um helgina og ef svo verður áfram, Ijúka margir heyskap i þess- ari viku, sagði Ævar og tók fram að útlit væri fyrir ágætan heyfeng. TÚN í ÞINGEYJARSÝSLU HAFA BRUNNIÐ VEGNA ________ÞURRKA_________ — Þurrlend tún hér í Þingeyjar- sýslum hafa skemmst töluvert vegna Rætt við bændur og ráðunauta um heyskapar- horfur bruna og er ástæðan úrkomuleysi og miklir hitar. Mest er þetta áber- andi i Mývatnssveit og Aðaldal. Skaðinn er vissulega mestur á þeim túnum, sem ekki var búið að slá áður en þau brunnu en þar sem búið var að slá kemur þetta niður á seinni slætti, sagði Ari Teitsson, ráðunaut- ur hjá Búnaðarsambandi Suður- Þingeyinga, er við ræddum við hann i gær — Hér kom 10 daga sam- felldur þurrkakafli en fór að rigna á föstudagskvöldið í dag er góður þurrkur og allir önnum kafnir við heyskap. Heyskaparhorfur eru hins vegar ekki nógu góðar, þvi kal er viða i túnum i Bárðardal og Mý- vatnssveit og spretta er ekki góð og valda þvi kuldar i vor. Þetta er vissulega til óþæginda og gæti orðið til hreinna vandræða ef illa viðrar, sagði Ari Nær allir bændur i Þing- eyjarsýslum eru nú byrjaðir að slá eitthvað en sumir eru skammt á veg komnir SPRETTA EKKI EINS GÓÐ OG MENN ÁTTU VON Á — Hér rigndi ekki um helgina en góður þurrkur fyrir hey kom ekki fyrr en i dag, sagði Jón Atli Gunnlaugsson, ráðunautur á Egilsstöðum, er við ræddum við hann i gær. — Spretta hefur ekki verið eins góð og menn áttu von á og koma þar til kuldar i vor. Heyfengur ætti samt að verða i meðallagi og jafnvel betri ef vel viðrar áfram. Menn eru komnir vel á veg með heyskap hér uppi á Héraði en nokkru skemmra niðri á fjörðunum, sagði Jón að lokum EIGINLEGA FYRSTI ÞURRKADAGURINN — Þetta er eiginlega fyrsti þurrkdagurinn i sumar, ef litið er á meginhluta sýslunnar, sagði Egill Jónsson á Seljavöllum i Nesjahreppi i Austur-Skaftafellssýlu i gær, þegar við spurðum hann hvernig viðraði til heyskapar þar um slóðir. — Það hefur verið heldur betri tið hjá þeim i Lóninu, en spretta hefur alls staðar verið góð og hér er nóg gras. Það eru allir byrjaðir að slá, en sumir byrjuðu samt ekki fyrr en i gær og nú eru menn að hirða upp það sem þeir slógu fyrir um 10 dögum en þá gerði hann smá glennu, sagði Egill. Hann var spurður hvort menn væru bjartsýnir á heyskap i sumar og sagði hann að þar yrði það veðrið, sem réði ferðinni, en þessa stundina ættu menn von á áframhaldandi þurrki STAÐAN ER ALLTÖNNUR — Þetta eru búnir að vera fjórir mjög góðir dagar og á þeim hafa menn bjargað miklu, þvi það var hægt að slá það sem var sprottið úr sér, sagði Sigurður Sigmunds- son i Syðra-Lanqholti i Hrunamannahreppi. er við ræddum við hann i gær. — Nú er hann að þykkna upp en menn eru að hirða og víst er að eftir þessa daga er ekki hægt að líkja þessu sumri við sumarið í fyrra Grasið vantar ekki núna og ef hann gerir þurrk ætti heyfengur að geta orðið með ágætum, sagði Sigurður. Gunnar Sigurðsson i Seljatungu i Gaulverjabæjarhreppi, sagði að Framhald á bls. 25 Birgir Ingólfur Steinþór Guðlaugur Héraðsmót Sjálfstæðis- flokksins um helgina í Vík í Mýrdal, á Hellu og Flúðum UM næstu helgi verða haldin 3 héraðsmðt Sjáifstæðisflokksins: Vfk f Mýrdal, föstudaginn 23. júlí kl. 21 stundvislega. Ávörp flytja Steinþór Gestsson alþingis- maður og Guðlaugur Gislason al- þingismaður. Steypustyrkt- arjárni stolið TVEIMUR tonnum af 20 mm þykku steypustyrktarjárni var stolið af geymslusvæði Gamla kompanísins á Ártúnshöfða i s.l. viku. Þar sem hér er ekki um neina léttavöru að ræða, er vart annað hugsanlegt en að þjófarnir hafi notað vörubil við flutning á þýfinu. Tonnið af steypustyrktar- járninu kostar nú hátt í tvö hundruð þúsund krónur og er verðmæti þýfisins þvi yfir 300 þúsund krónur. Hellu á Rangárvöllum, laugar- daginn 24. júli kl. 21 stundvíslega. Ávörp flytja Birgir Isl. Gunnars- son borgarstjóri og Ingólfur Jóns- son alþipgismaður. Flúðum f Hrunamannahreppi, sunnudaginn 25. júli kl. 21. stund- vislega. Ávörp flytja Ingólfur Jónsson alþingismaður og Stein- þór Gestsson alþingismaður. Skemmtiatriði á héraðsmótun- um annast hljómsveitin Nætur- galar ásamt óperusöngvurunum Kristni Hallssyni og Magnúsi Jónssyni, Jörundi og Ágústi Atla- syni. Hljómsveitina skipa Skúli K. Gislason, Einar Hólm, Birgir Karlsson og Ágúst Atlason. Efnt verður til ókeypis happ- drættis og eru vinningar tvær sólarlandaferðir til Kanarieyja með Flugleiðum. Verður dregið i happdrættinu að héraðsmótunum loknum, þ.e. 18. ágúst n.k. Að loknu hverju héraðsmóti verður haldinn dansleikur til kl. 2 eftir miðnætti, þar sém Næturgal- ar og Ágúst Atlason syngja og leika fyrir dansi. Skattskrárnar að koma út: Nýir og brey ttir álagningarseðlar Rætt við Sigurbjörn Þorbjörnsson ríkisskattstjóra SKATTSKRAR fyrir árið 1976 eru f þann veginn að koma út um allt land og reyndar leit sú fyrsta dagsins Ijós f gær— f Vestmannaeyjum. Skattskráin f Reykjavfk verður lögð fram á föstudaginn og á Reykjanesi um helgina. Sfðan kemur hver skráin á fætur annarri þar til nfu hafa verið lagðar fram. Landsmenn fara þvf að fá hina árlegu álagningarseðla sfna, sem eru breyttir frá þvf sem verið hefur. I tilefni af þessu hafði Morg- unblaðið samband við Sigur- björn Þorbjörnsson rfkisskatt- stjóra og bað hann að gera grein fyrir nýju álagningar- seðlunum. Sigurbjörn Þorbjörnsson sagði, að núna hefði verið ákveðið, að sameina hina hefð- bundnu álagningarseðla, sem hingað til hefðu verið sendir árlega út á svipuðum tima og skattskrár hefðu verið lagðar fram, I Reykjavik og Seltjarnar- nesi með gjaldheimtu- og álagn- ingarseðli, en þetta væru einu staðnirnir á landinu, þar sem væri sameiginleg innheimta þinggjalda og þeirra gjalda, sem sveitarsjóðir innheimta. Hann sagði, að á þessum sam- eiginlega seðli fyrir gjaldheimt- una væri fyrst gerð grein fyrir greiðslustöðu við gjaldheimt- una með hliðsjón af álögóum gjöldum, fyrirframgreiðslu gjalda, ákvörðuðum barnabót- um og hluta persónuafsláttar til greiðslu útsvars. Síðan kæmi yfirlit um ákvarðanir barna- bóta og hvernig þeim væri ráð- stafað og þvi næst sundurliðun á þeim gjöldum, sem lögð hafa verið á viðkomandi samkvæmt skattskrá. Þá koma ýmsar upp- lýsingar fyrir framteljendur um stofn á útreikningi vissra gjalda og nýtingu persónuaf- sláttar til greiðslu útsvars. Enn- fremur hafa skýringar gjald- heimtu- og skattayfirvalda ver- ið prentaðar á seðlana til glöggvunar fyrir framteljend- ur. Sigurbjörn Þorbjörnsson sagði, að fyrir framteljendur í öðrum innheimtuumdæmum væri aftur á móti sendur út sameiginlegur þinggjalda- og álagningarseðill, sem væri frá- brugðinn gjaldheimtuseðlinum að því leyti að einungis kemur fram greiðslustaða við inn- heimtumann rikissjóðs. Þar koma sömu uppiýsingar fram um barnabætur. Ennfremur séraðskilið, álögð þinggjöld samkvæmt skattskrá og einung- is samtala þeirra kemur fram i greiðslustöóu við innheimtu- mann. Þá sagði Sigurbjörn, að hafi skattstjóri annast álagningu út- svara i sveitarfélaginu, þau reiknuð og rituð i tölvu Skýrsluvéla rikisins, þá komi fram hvaða gjöld hafi verið lögð á samkvæmt skattskrá til innheimtu hjá sveitarsjóði. Hafi svo verið gert er hægt að ljúka dæminu á þann hátt að fram kemur samtaia til inn- heimtu hjá sveitarsjóði óg hægt að gera fulla grein fyrir því hvernig barnabótum er ráðstaf- að.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.