Morgunblaðið - 07.08.1976, Page 1
171.tbl.63. árg.
LAUGARDAGUR 7. ÁGUST 1976.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Viðbúnaður
í S-Afríku
Jóhannesarborg, 6. ágúst. Reuter.
ÓEIRÐIR blökkumanna í Soweto mögnuðust f dag og
lögreglunni í Suður-Afrfku var skipað að vera við öllu
búin.
Unglingar grýttu strætisvagna, bifreiðar og járn-
brautalestir eða kveiktu í þeim. Lögreglumenn í bryn-
vörðum bflum beittu táragasi til að dreifa hópum óeirða-
seggja sem æddu um göturnar.
Skothljóð heyrðust á nokkrum
svæðum en lögreglan kveðst
aðeins skjóta yfir höfuð óeirða-
Sp
rengju-
hótun
Róm. 6. ágúsl. AP.
SPRENGJLIHÓTUN varð til
þess að fresta varð í kvöld
fundi öldungadeildar ftalska
þingsins um traustsyfirlýs-
ingu á minnihlutastjórn kristi-
legra demókrata.
Ókunnir ménn hringdu í
kommiinistaf Inkkinn og dag-
blað og sögðu að sprengjuárás
yrði gerð á öldungadeildina.
Engin sprengja fannst. Annar
fundur var boðaður og trausts-
yfirlýsingin samþykkt.
Framhald á bls. 18
Stonehouse
dæmdur
í sjö ára
fangelsi
London, 6. ágúst. Reuter.
JOHN Stonehouse, fyrrverandi
ráðherra, sem reyndi að láta líta
út fyrir, að hann hefði drukknað,
og byrja nýtt líf í Ástralfu, var
dæmdur f sjö ára fangelsi í dag
fyrir fjársvik, þjófnað og sam-
særi.
Réttarhöldin hafa staðið í 68
daga f Old Bailey og Stonehouse
var fundinn sekur f öllum ákæru-
atriðum sem voru 14. Hann var
sekur fundinn um að hafa rænt
frá eigin fyrirtækjum og komið
undan fjármunum til Ástralíu
undir fölskum nöfnum.
Sheila Buckley, fyrrverandi rit-
Framhald á bls. 26
seggja og segir að aðeins tveir
blökkumenn hafi fallið fyrir kúl-
um hennar. Alls hafa þrír beðið
bana samkvæmt opinberum töl-
um og 30 særzt.
Sjö hafa beðið bana samkvæmt
óopinberum tölum og meðal ann-
ars troðizt undir og dottið úr
strætisvögnum og járnbrautar-
lestum.
Aðallega hefur verið ráðizt á
samgöngutæki til. að neyða
blökkumenn að halda kyrru fyrir
heima hjá sér. En fjórir af hverj-
urti fimm verkamönnum mættu til
vinnu í dag þótt mikið væri um
fjarvistir í gær.
Um 500 stúdentar söfnuðust
saman i Orlando-hverfi og reyndu
að ganga til Jóhannesarborgar en
lögreglan dreifði hópnum. Öttazt
var að ástandið versnaði þegar
verkamenn kæmu heim ur vinnu
með vikulaunin.
Strætisvagnaferðum til Soweto
var hætt í dag vegna skemmdar-
verka á strætisvögnum og verka-
menn fá aðeins far að bæjarmörk-
Framhald á bls. 18
Sigri hrósandi blökkumenn I bænum Katlehong I Suður-Afrfku hjá vörubil sem þeir kveiktu f og rændu
úr lýsi.
Sættir takast með
Kenya og Uganda
Nairobi, 6. ágúsl. Reuter.
FULLTRÚAR frá Kenya og Ug-
anda samþykktu f dag að binda
enda á strfðsástandið sem ríkt
Flugvélamóðurskip Rússa, Kiev, á siglingu um 160 km vestur af
Suðureyjum. Myndin var tekin úr Nimrod-þotu sem brezki land-
varnarráðherrann Roy Mason flaug i til að skoða skipið.
hefur milli landanna síðan Isra-
elsmenn réðust á Entcbbc-
flugvöll og taka að nýju upp eðli-
leg samskipti.
En á það er lögð áherzla í sam-
eiginlegri yfirlýsingu sem undir-
rituð var að loknum þriggja daga
viðræðum að hún sé háð sam-
þykki forseta Kenya og Uganda.
í yfirlýsingunni segir að sam-
komulag hafi tekizt um fjögur
meginatriði:
# að þegar í stað verði látið af
hótunum um valdbeitingu.
0 að stríðsástandi skuli Ijúka.
0 að herlið á landamærunum
verði kvatt burtu.
# að bæði löndin hætti að birta
John Stonehouse
Brottflutningi frá
Tal Zaatar hætt
Beirút, 6. ágúst. Reuter. AP.
ALÞJÓÐA Rauði krossinn hætti í kvöld brottflutningi um 1.000
særðra frá flóttamannahúðunum Tal Zaatar þar sem bflalest sem var
send inn f búðirnar til að sækja særða varð fyrir skotárás frá
leyniskyttum.
Rauði krossinn sagði f tilkynningu að eina lausnin á vanda fólksins í
búðunum væri alger brottflutningur allra fbúanna. Talsmaður Rauða
krossins sagði að deiluaðilar yrðu að skipuleggja slfkan brottflutning
sem v^eri Rauða krossinum ofviða.
veriö beðinn að hætta daglegum
birgðaflutningum sínum með
Framhald á bls. 26
fjandsamlegan áróður á prenti
eða f útvarpi.
Idi Amin forseti sagði seinna aó
hann mundi biðja Kenyastjórn að
hafa milligöngu í tilraunum til að
koma samskiptum Uganda og
Bretlands í eðlilegt horf. Hann
kvaðst þess fullviss að Kenyatta
Kenyaforseti mundi ekki bregð-
ast þar sem hann væri góður vin-
ur Breta og mikils virtur í Afríku.
Amin sagði ennfremur að
Henry Kissinger væri eini þrösk-
uldurinn f vegi fyrir góðum sam-
skiptum Bandarfkjanna og Ug-
anda. Hann taldi að ef Kissinger
segði af sér kæmust samskiptin í
lag og sagði að Mobutu Zairefor-
seta og William Tolbert Líberíu
forseta yrði falið að miðla málum.
„Uganda á marga vini f Banda-
rfkjunum og hefur keypt mikið af
þeim, meðal annars flugvélar,"
sagði hann að sögn Ugandaút-
varpsins er það sagði frá fundi
hans og fyrrverandi sendiherra
Uganda í London, Frederick
Kiiragura Isingoma.
Sagt er að á fundi fulltrúa
stjórna Kenya og Uganda hafi
verið samþykkt sameiginleg
greinargerð um skyldur hvors
lands um sig samkvæmt alþjóða-
lögum einkum hvað snertir bætur
fyrir manntjón eða eignatjón.
Framhald á bls. 18
Svissneskur bílstjóri og fjórir
flóttamenn særðust í árásinni sem
leyniskytturnar gerðu á bílalest-
ina en líðan þeirra er ekki talin
alvarleg. Umsátur hægrimanna
um búðirnar hefur staðið i sex
vikur og Rauði krossinn hefur
flutt 408 burtu síðustu þrjá daga.
Um 200 flóttamenn úr búðun-
um ruddust út á knattspyrnuvöll
þar sem hinir særðu voru færðir i
bila Rauða krossins og grátbændu
starfsmenn hans að fá að koma
i með. Þrátt fyrir árásina frá leyni-
skyttunum á bílana á knatt-
spyrnuvellinum voru 74 fluttir
burtu í dag.
Skotbardagar geisuðu annars
staðar i Beirút í dag og þar með
virðist vopnahlé sem átti að hefj-
ast í gær, hið 54. síðan borgara-
stríðið hófst fyrir 16 mánuðum,
dæmt til að fara út um þúfur.
Sprengjur lentu 100—200 metr-
um frá flugvél Rauða krossins á
Beirútflugvelli sem hefur verið
lokaður áætlunarflugvélum siðan
f júní. Rauði krossinn hefur ekki
Færeyingar
í 200 mílur
Frá Jogvan Arge,
ÞórshOfn í Fa'revjum i gær
LÖGÞING Færeyja hefur ein-
róma samþykkt frumvarp land-
stjórnarinnar um útfa*rslu fa>r-
eysku fiskveiðilögsögunnar í
200 mílur eigi síóar en 1. janú-
ar 1977.
I umræðum Lögþingsins um
frumvarpið voru skiptar skoð-
anir um þann hag sem Færey-
ingar hefðu af útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar en samkomu-
lag um að útfærslan væri nauð-
synleg vegna þróunarinnar í
heiminum.
Framhald á bls. 26