Morgunblaðið - 07.08.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.08.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. ÁGUST 1976 7 Föstudagur 6. ágdst 197«. btgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.)og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltriii: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsíngastjórí: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhiks- inu vib Lindargötu, simar 183*9 — 183**. Skrifstofur f Aöalstræti 7, simi 265*0 — afgreiBslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. VerB f lausasölu kr. 5*.**. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuBi. BlaBaprent h.f. Efnahagsmálastefna Alþýðubandalagsins Þeir slitu kaupgjalds- vísitöluna [Si úr sambandi Engir þekkja betur til þeirra leiða og aðgerða, sem Alþýðubandalagið fer þegar það er í stjórnarað- stöðu, en fyrrum sam- starfsmenn þess I vinstri stjóminni. Það er því fróð- legt að kynna sér eftirfar- andi leiðara úr Timanum I gær, sem fjallar um efna- hagsmélastefnu Alþýðu- bandalagsins. Þar segir orðrétt: „Það er staðreynd, að viðskiptakjör þjóðarinnar versnuðu um 10% á árinu 1 974, miðað við næsta ár á undan, og á árinu 1975 versnuðu þau um 15% miðað við árið 1974. Hið stórfellda áfall, sem fylgdi þessu fyrir þjóðarbúið, hlaut að leiða til kjara- skerðingar. Vegna að- gerða núverandi ríkis- stjórnar hefur kjaraskerð- ingin orðið minni en ótt- ast mátti, eins og sést á þvf, að kaupmáttur ráð- stöfunartekna verka- manna var næstum hinn sami á árinu 1975 og 19^2, sem var annað valdaár vinstri stjórnar- innar. Þetta hefur hins vegar orsakað viðskipta- halla og erlenda skulda- söfnun, sem ráða verður bót á, þegar viðskiptaár- ferði fer batnandi. Þjóðviljinn * reynir oft með miklu offorsi að ráð- ast á rfkisstjórnina og kenna henni um kjara skerðinguna, sem hlotizt hefur af rýrnun viðskipta kjaranna á árinu 1974 og 1975. Þetta er þó býsna erfitt verk fyrir þá Þjóð- viljamenn, þvf að núver- andi rfkisstjórn hefur f stórum dráttum beitt sömu ef nahagsaðgerðum og vinstri stjórnin beitti og Alþýðubandalagið taldi þá góð og gild. Vinstri stjórnin bæði felldi gengið og sleit kaupgjaldsvfsitöl- una úr sambandi. Færasti blaðamaður Alþýðubanda- lagsins, Magnús Kjartans- son, varð Ifka að viður- kenna það á síðastliðnu sumri, að Alþýðubanda- lagið legði ekki bann á neinar sérstakar efna hagsaðgerðir. Honum fór- ust þá svo orð f Þjóðvilj- anum (3. ágúst):" Alþýðubanda- lagið útilokar enga hag- stjórnarað- l gerð ef . . . . „„Ekkert er nýtt undir sólinni sfzt af öllu hag- stjórnaraðgerðir. Ekki er kunnugt um, að neinn stjórnmálaflokkur á ís- landi telji einhverja hag- stjórnaraðferð bannhelga f sjálfri sér, hitt skiptir öllu máli f hvaða tilgangi þeim er beitt". Efnahagsstefnu Alþýðu- bandalagsins verður sennilega ekki betur lýst f fáum orðum. Samkvæmt þessu telur Alþýðubanda- lagið enga sérstaka efna- hagsaðgerð bannhelga. Undir þetta falla að sjálf- sögðu gengisfelling, kaup- binding og aðrar efna- hagsaðgerðir. Afstaðan til aðgerðanna fer eingöngu eftir þvf „f hvaða tilgangi þeim er beitt", eða enn nánara sagt, eftir þvf hvort Alþýðubandalagið er f stjórn eða ekki". Gengislækkun, kaupbinding, grunnkaups- lækkun o.s.frv. Enn segir 1 leiðara Tlm- ans — orðrétt: „í samræmi við þetta hafa líka vinnubrögð Al þýðubandalagsins verið. Meðan það sat I vinstri stjórninni, tók það þátt I gengisfellingunni 1972, og var meðmælt gengis fellingu um 'sumarið 1974. Það tók þátt I kaupbindingu og tillögum um grunnkaupslækkun vorið 1974. Þetta var nauðsynlegt þá vegna efnahagsástandsins og var það þó ekki orðið eins erfitt og slðar varð. Nú telja ritstjórar Þjóðviljans slikar aðgerðir núverandi rlkisstjórnar óhæfar, þótt tilgangurinn með þeim hafi verið hinn sami og hjá vinstri stjórninni og rökin fyrir þeim hafi verið enn gildari en 1 974. Það er vissulega rétt, að Alþýðubandalagið telur enga efnahagsaðgerð bannhelga. Afstaðan fer eingöngu eftir þvl hvort það er I stjórn eða ekki." Eftir að hafa þann veg flett ofan af þeim efna- hagsaðgerðum, sem Al þýðubandalagið ýmist beitti eða vildi beita á vinstristjórnar árum, gerir Tlminn þvl skóna, að Al þýðubandalagið sé óðfúst I „sögulega málamiðlun", þ.e. að þýðest aðild að Nato að fyrirmynd Italskra kommúnista, sem og sam- starf til hægri, án mál- efnalegra skilyrða, aðeins ef stjórnaraðstaða sé I boði. Þeir tala e.t.v. af gamalli reynslu sem hér er vitnað til. A.m.k. undi Alþýðubandalagið sér dável I tveimur vinstri stjórnum, innan Nato, með varnarstöð á Miðnes- heiði I hnappagati stjórn- arsamvinnunnar! S. STEFÁNSSON & CO. HF i t' -J fc Krii iii nT.. ! . ■ ■ — ■ \ Æ Ær S-27544 ATHAFNAMENN Válstjórar, vélvirkjar og bifvélavirkjar vegna fyrirhugaðrar námsdvalar erlendis til nokkurra ára, er ákveðið að fyrirtæki mitt verði til leigu eða sölu frá og með mánaðamótum ágúst — september. Fyrirtækið annast viðgerðir og stillingar á olíu- kerfum í dieselvélar og möguleikar eru á mörgu fleira, svo sem viðgerðum á vélum. Innan tíðar flyzt reksturinn í nýtt og rúmgott húsnæði við Fjölnisgötu 2, Akureyri, sem er ca. 225 fm pláss á einni og hálfri hæð. Tilboðum og upplýsingum er svarað í fyrirtækinu til 20. þ.m. Dieselverkstæði Kristjáns Jóhannssonar, Kaldbaksgötu.9, Akureyri, símar 21814 og 22328. Box 556. VANTAR ÞIG VINNU (n VANTAR ÞIG FÓLK { ÞL' AUGI.YSIH UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUG- LÝSIR 1 MORGUNBLAÐINU BilAfAUtn iWeóáur á morgun GuðspjaU dagsins: Matt. 7:15—23. Gætið yður fyrir falsspá- mönnum, er koma til yðar f sauðaklæðum, en eru hið innra glefsandi vargar. [Litur dagsins: Grænn. Táknar vöxt, einkum vöxt hins andlega lífs. Laugarneskirkja. Messa kl. 11 árdegis. Sr. Garðar Svavarsson. Neskirkja. Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Guðmundur Ósk- ar Ólafsson. Dómkirkjan. Messa kl. 11 ár- degis. Sr. Óskar J. Þorláksson dómprófastur. Hallgrfmsprestakall. Messa kl. 11 árdegis, altarisganga Sr. Karl Sigurbjörnsson. Háteigskirkja. Messa kl. 11 árdegis. Sr. Jónas Gíslason lekt- or messar. Sr. Arngrímur Jóns- son. Dómkirkja Krists konungs Landakoti. Lágmessa kl. 8 ár- degis. Hámessa kl. 10.30 árdeg- is. Lágmessa kl. 2 siódegis. Kópavogskirkja. Guðsþjón- usta kl. 11 árdegis. Þorbergur Kristjánsson. Frfkirkjan Hafnarfiðri. Guðsþjónusta kl. 2 síðdegis. Safnaðarprestur. FUadelffukirkja. Safnaðar- guðsþjónusta kl. 14.00. Almenn guðsþjónusta kl. 20.00. Einar J. Gislason. Landspftalinn. Messa kl. 10 árdegis. Sr. Karl Sigurbjörns- son. Elliheimilið Grund. Messa kl. 10 árdegis. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Bústaðakirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólafur Skúlason. Grensáskirkja. Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Halldór S. Gröndal. Asprestakall. Guðsþjónusta kl. 11 árdegis að Norðurbrún 1. Dr. theol. sr. Jakob Jónsson messar. Sóknarnefnd. Fella- og Hólasókn. Guðs- þjónusta í Fellaskóla kl. 11 ár- degis. Sr. Hreinn Hjartarson. Bergþórshvolsprestakall. Messa i Akureyrarkirkju kl. 14.00. Sr. Páil Pálsson. Selfosskirkja. Messa kl. 10.30 árdegis. Sóknarprestur. Akraneskirkja. Messa kl. 10.30 árdegis. Sr. Björn Jóns- son. Keflavfkurprestakall. Guðs- þjónusta í Keflavikurkirkju kl. 2 e.h. Páll Þórðarson. Skálholtsprestakall. Messa á Torfastöðum kl. 2 e.h. og í Skál- holti kl. 5 e.h. Sóknarprestur. Lágfellskirkja. Guðsþjónusta kl. 2 síðdegis. Bjarni Sigurðs- son. Stórólfshvolskirkja. Guðs- þjónusta kl. 11 árdegis. Ath. breyttan messutima. Stefán Lárusson. f keifunni 11 Simar 81502 81510 EF ÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU ATGLYSINfíA- SÍMINN KR: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.