Morgunblaðið - 10.08.1976, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 10.08.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1976 7 Tekjuskattur/ Söluskattur Halldór Ásgrlmsson al- þingismaður ritar sl. sunnudag hugleiðingu um skattamál I dagblaðið Tlmann. Þar kemur m.a. fram andstaða við algjöra niðurfellingu tekjuskatta. Rétt þykir að þetta sjónar- mið fái inni I stökum steinum, þar sem gagn- stæðu sjónarmiði hefur áður verið léð hér rum: „Ef tekjuskattur væri lagður niður þyrfti að afla annarra tekna að upphæð 10 milljarða ef rlkisbú- skapurinn á að vera I svip- Halldór Ásgrímsson alþingismaður aðri mynd og hallalaus. Þetta samsvarar u.þ.b. 8 söluskattsstigum. Við síðustu Ijárlagagerð var tekjuskattur einstakl- inga áætlaður sem hér segir: Tekjuskattur 10.050 millj. -5- Barnabætur 3.300 millj. + Afsláttur til greiðslu út- svars 950 millj. millj. Nettótekjur 5.800 millj. Tekjur af hverju sölu- skattsstigi var áætlað 1200—1250 millj. Ætti þvl að vera Ijóst að 8 sölu- skattsstig þarf tii að bæta tekjuskattinn, ef barna- bætur og endurgr. á úst- vari hinna lægst launuðu á að vera I svipaðri mynd. Einnig er Ijóst að við hækkun á söluskatti (eða annarra óbeinna skatta) úr 20% I 28% skapast mikið þjóðfélagslegt mis- rétti. Þeir aðilar. sem hefðu áður engan eða lltinn tekjuskatt greitt, þyrftu nú að taka á sig auknar byrðar með hækkuðum söluskatti." Verðbólgan er sökudólgur Halldór Ásgrlmsson segir ennfremur: „Breytingar á skatta- lögum er höfuðforsenda þess að meira jafnrétti rlki við álagningu skatta. Mis- réttið hefur lengi verið fyrir hendi. en það hefur magnazt með aukinni verðbólgu. Verðbólgan eykur mis- réttið á þessu sviði sem öðru. Skattfrjáls sölu- hagnaður verður meiri o.s.frv. Verðbólgan er því aðalbölvaldurinn ekki skattalögin sjálf. Verðbólgan hefur skapað gifurlegt misrétti I fstenzku þjóðfélagi, sem aðeins verður lagfært með þvl að draga úr henni og þeim óæskilegu áhrif- um sem henni fylgja. Of langt mál er að rekja beinar tíllögur til úrbóta á skattalöggjöf inni. Endur- skoðun skattalaganna hefur tekið allt of langan tlma og smærri mál eins og t.d. sérsköttun hjóna hafa tafið fyrir mikilvæg- um lagfæringum. Loforð um ný skattalög hafa ekki staðizt og rlkisstjórnin verður að leggja fram frumvarp um breytingar á skattalögum á hausti kcmanda." Listrænt slys Sá skemmtilegi og morgunglaði útvarps- maður, Jón Múli Árnason, ritar af og til hugleiðingar I Þjóðviljann. Hér á eftir fer brot af brosum hans I þvl blaði sl. sunnudag: „ Og nú telja margir að listrænt slys hafi orðið I höfuðborginni, og velllðan fulganna á Litlu Tjörninni I hættu vegna gos- brunnsins sem sendiherra Kana gaf okkur, — og ýmislegt bendir til að hugarjafnvægi Sannra is- lendinga sé úr sögunni hvern dag, frá 10 að morgni til miðnættis, meðan gosið stendur. Frægur Istendingur hefur ákveðið að hefna sln á New York með þvl sem hann nefnir svo skemmti- lega „himinmigu" og ætlar henni stað á við- kvæmum bletti Frelsis- styttunnar sem Frakkar gáfu Bandarlkjamönnum um árið. islendingurinn Jón Múli Árnason, hinn morgunglaði útvarpsmað- ur. ætlar að gefa New York- urum þetta með vissum skilyrðum sem hann setur fram I bréfi til forystu- þjóðar Nató á íslandi. Þar er vlða einkar smekklega komist að orði og fyndnin andrlk! (Þjóðvilji — laugard. 31. júll 1976). Ég hef alltaf verið svag fyrir gosbrunnum og fór að skoða „þessa sprænu" sem er „eins og illa gerður þverbiti I fallegt landslag". Vatnssúlurnar teygðu sig um 10 metra I loft upp og glitruðu I kvöldsólinni, — sú hæsta I miðið og frá henni regn- bogi sem sveif undan norðan andvara suður að Þorfinni karlsefni og leystist þar I sundur yfir Vinlandsfaranum, en annar bogi tók við I staðinn hjá Ambassadors- súlunni og hélt slðan sömu leið og svo hver af öðrum, — allir gjörðir af meistara höndum. Þetta þótti mér fallegt og ætla að fara bráðum aftur þegar gosið verður Ijós- flætt að neðan I kvöld- húminu, þótt ég öfundi auðvitað endurnar og litlu ungana þeirra sem geta synt þarna fram og aftur og leikið sér I úðanum gulum, rauðum, grænum og bláum og látið sér llða vel." ÚTSALA okkar vinsæla sumarútsala erhafin. \YUirnfln iTTTTi v/Laugalæk kjóladeild, sími 33755 Klapparstíg 27, kápudeild, sími 25275. VANTAR ÞIG VINNU ' ^ VANTAR ÞIG FÓLK 0 ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUG- LÝSIR í MORGUNBLAÐINU Nýjasta nýtt frá Farís Simca 1100 Nýjasta nýtt frá París SiMCA 1100 LX Þetta er nýjasta gerðin af hinum vinsælu Simca 1100 bílum frá Chrysler France. Allur frágangur er samkvæmt nýjustu frönsku tískunni. Simca 1100 GLS og Simca 1100 LE til afgreiðslu strax. Hafið samband við okkur. Sími 84366 - 84491 Ifökull hf. ÁRMÚLA 36.REYKJAVÍK Kópal línan Sumar’76 Kópal Dyrotex Málningin, sem hlotið hefur viðurkenningu þeirra sem reynt hafa. Kópal Dyrotex er framleidd hjá okkur í Kópavogi. Framleiðslan er byggð á reynslu okkar og þekkingu á íslenzkum aðstæðum. Kópal Dyrotex er akryl málning til málunar utanhúss, — málning með viðurkennt veðrunarþol. Hressið upp á útlitið með Kópal Dyrotex. Kynnið yður Kópal litabókina og athugið hina mörgu fallegu liti, sem hægt er að velja. Veldu litina strax, og málaðu svo einn góðan veðurdag. málninghlf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.