Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1976 15 Sovézku stúlkurnar sau um 10. sigur Sovétríkjanna í landskeppni við Bandaríkin t.d. kominn með þrjú högg á Knút þegar kom að 9. holu. Þá lék hann á 7 höggum, en Knútur á 4, þann- ig að aftur voru þeir orðnir jafnir. Ómar ö. Jónsson ungur kylfingur frá Akranesi blandaði sér einnig í þá baráttu og var hann t.d. kom- inn með forystu á 13. holu, en Kjartan kominn í þriðja sæti. Aldrei varð þó munurinn mikill og er kapparnir byrjuðu á 18. brautinni var Kjartan með eitt högg á Knút og þrjú högg á Ómar. Er hér var komið sögu var spennan orðin mikil og hafði það greinilega sln áhrif á spila- mennsku þeirra þremenning- anna. Léku þeir 18. holu vægast sagt illa. Knútur lauk sinni keppni og lék brautina á 6 högg- um. Kjartan lék „upp á öryggið" og hefði hæglega átt að geta leikið holuna á 5 höggum, en hann missti nokkurra sentimetra ,,pútt“ eins og Knútur og fór því líka á 6 höggum. Ómar átti nú möguleika á að para holuna og fá þannig bráðabana við Knút um annað sætið, en einnig hann fór á taugum og lék á 6 höggum. Kjartan sigraði í flokknum á 336 höggum, Knútur varð annar á 337 höggum og Ómar þriðji á 339 höggum. 1 fjórða sæti varð Jón Þ. Ulafsson á 341 höggi, Þórhallur Pálsson fimmti á 343 höggum og i sjötta sæti varð Gísli Sigurðsson á 348 höggum, en hann hafði foryst- una framan af keppninni. Jafnt í 2. flokki I 2. flokki var mikil spenna eft- ir að Gunnari Finnbjörnssyni var visað úr keppninni vegna óstund- visi. Georg V. Hannah og Sigurð- ur Þ. Guðmundsson luku báðir 72 holum á 366 höggum, en Georg hafði vinninginn á 1. braut í bráðabana. Einar Guðlaugsson og Garðar Halldórsson urðu siðan jafnir í þriðja sæti á 367 höggum. Einar vann I bráðabana, sömu- leiðis á 1. braut. Fimmti varð síð- an Lárus Anórsson á 372 höggum-. Öruggur, óvæntur sigur Kristínar Kristin Pálsdóttir vann öruggan sigur í meistaraflokki kvenna. Notaði hún 8 höggum minna en Jafcobina Guðlaugsdóttir, sem varð i öðru sæti. Var fyrirfram búizt við að Jakobína myndi sigra og ekki minnkuðu líkurnar á sigri hennar eftir að Jakobina hafði leikið á 84 höggum i sveitakeppn- inni og hefði margur karlmaður- inn mátt vera stoltur af því skori. En í keppninni ímeistaraflokki náði Jakobina sér ekki á strik fyrr en síðasta daginn, en þá var mun- urinn orðinn of mikill til að ná fyrsta sætinu. Kristin var vel að sigri sínum komin, hún lék alla keppnisdag- ana af öryggi og varði þvi Islands- meistaratitil sinn frá því í fyrra með sóma, en þá var Jakobina ekki meðal þátttakenda. Kristín lék samtals á 352 höggum, en hún keppir fyrir GK. Jakobína Guð- laugsdóttir GV lék á 360 höggum og í þriðja sæti varð Hanna Aðal- steinsdóttir GK á 373 höggum. Stalla hennar úr GK, Jóhanna Ingólfsdóttir, varð síðan fjórða á 373 höggum og fimmta varð Krist- ín Þorvaldsdóttir NK á 388 högg- um. í 1. flokki kvenna sigraði Agústa Dúa Jónsdóttir GR á 404 höggum, Karolína Guðmundsdótt- ir, sú kunna skíðakona frá Akur- eyri, varð í 2. sæti á 414 höggum og í þriðja sæti varð Lilja Eiríks- dóttir úr GR á 420 höggum. Kappar úr öðrum íþróttagreinum í þriðja flokki karla var 31 keppandi skráður til leiks, en að- eins 25 þeirra luku keppni. Sex hættu af ýmsum ástæðum, aðal- lega vegna þess að þeir voru óánægðir með árangur sinn. Sigurvegari varð Hrólfur Hjalta- son úr GR á 369 höggum. Annar varð síðan Jón Carlsson, einnig úr GR, á 376 höggum og þriðji, á aðeins einu höggi meira, varð þriðji - GR-maðurinn, Sigurður Agúst Jensson. Bæði Sigurður og Jón hafa mikið verið í öðrum íþróttum, Sigurður i badminton hjá TBR og Jón í handbolta hjá Val. Þeir félagarnir voru þó ekki þeir einu í landsmótinu að þessu sinni sem komnir eru í golfið úr öðrum íþróttagreinum. Nefna má t.d. Berg Guðnason og Karl Jó- hannsson, en mjög mikið er um það að menn hefji golfæfingar til að halda sér í einhverri æfingu þegar þeir verða „of gamlir" til að keppa í öðrum greinum. I 4. sæti I 1. flokki varð Björn Karlsson úr GK á 386 höggum og Jóhann Einarsson úr NK varð fimmti á 387 höggum. Einn dagur hjá öldungunum Öldungakeppni landsmótsins fór fram siðasta miðvikudag og sigurvegari þar varð Ólafur Ágúst Ölafsson GR með 76 högg. Pétur Auðunsson, einnig úr GR, varð annar á 81 höggi og þriðji varð Ragnar Magnússon NK á 83 högg- um. í flokki öldunga var einnig keppt með forgjöf og sigraði þar Astráður Þórðarson GR á 65 högg- um nettó, eða 84—12. Annar varð Ölafur Ágúst Ólafsson á 65 högg- um og þriðji sá mikli trimmari, Hjalti Þórarinsson læknir. Lék hann á 90 höggum, en hefur 24 i forgjöf, þannig að nettóárangur hans var 66 högg. GR vann sveitakeppnina Eins og frá hefur verið skýrt sigraði sveit GR i sveitakeppn- inni, sem fór fram fyrsta dag landsmótsins að venju. Sveit GR kom inn á 305 höggum, GK var á 319, GA á 320, GS á 323, NK á 332 og lestina rak sveit Vestmanney- inga á 347 höggum. SOVÉZKU stúlkurnar settu tvö ný heimsmet f landskeppni Bandarfkjanna og Sovétríkjanna í frjálsum íþróttum um helgina. Sigruðu Sovétmenn samanlagt í keppninni 211—157 og byggðist sá sigur eingöngu á þvf aðsovézku stúlkurnar unnu tvöfalt f öllum greinunum nema f langstökki, enda sigruðu Sovétrfkin f stúlknakeppninni með 104 stig- um gegn aðeins 42. 1 karlakeppn- inni var um jafnari baráttu að ræða en Bandarfkin sigruðu, 115—107. Heimsmetin voru sett í 3000 metra hlaupi þar sem Ludmilla Bragina hljóp vegalengdina á 8:27,12. Tók hún metið frá norsku stúlkunni Grétu Waits, sem hljóp vegalengdinga á 8:45,4 fyrr í ár, en ekki er oft keppt í þessari grein. 1 4x400 metra boðhlaupi settu Sovétstúlkurnar einnig heimsmet, hlupu á 3:29,06. I sveit- EFTIR fjögurra daga keppní á Ólympfuleikum fatlaðra f Tor- onto f Kanada höfðu Hollending- ar hlotið flest gullverðlaun, eða samtals 21, en Bandarfkjamenn voru f öðru sæti, höfðu hlotið 20 gullverðlaun. Bandarfkjamenn höfðu hlotið flest verðlaun f keppninni, eða samtals 48. Stjórnmál eru ekki látin af- LAUDAÁ BATAVEGI KAPPAKSTURSKAPP- INN Niki Lauda er nú úr allri lífshættu og farinn að gera æfingar til endurhæf- inni voru Svetlana Styrkina, Inta Kilmovicha, Natalia Sokolova og Nadezhda Ilyina. Keppnin fór að þessu sinni fram í Maryland í Bandaríkjun- um og var þetta 10. sigur Sovét- ríkjanna í 14 ára sögu þessarar keppni. Einu sinni hefur orðið jafntefli og þrívegis hefur Banda- ríkjamönnum tekizt að sigra. Af helztu úrslitum má nefna að gullverðlaunahafarnir frá Montreal, Mac Wilkins og Edwin Moses, náðu báðir mjög góðum árangri i sínum greinum í þessari keppni. Wilkins kastaði kringl- unni 66.20 og Moses hljóp 400 metra grindahlaup á 48.55 sek. Arni Robinson sigraði örugglega í langstökkinu á 7.80 m. Dwight Stones sem I siðustu viku setti heimsmet i hástökki, er hann stökk 2.32 metra, var langt frá sínu bezta að þessu sinni og varð aðeins i fjórða sæti á 2.18 m. Sig- skiptalaus á þessum Ólympíuleik- um fremur en aðal- ólympíuleikunum og nú hafa sex ríki hætt þátttöku í Toronto í mót- mælaskyni við það að íþróttafólk frá Suður-Afríku er þar meðal keppenda. Ríkin sex sem hættu við þátttöku eru: Kenya, Uganda, Jamaica, Indland, Kúba og Súd- an. Þá hafa Polverjar einnig hót- ingar eftir meiðslin sem hann hlaut í slysinu á hin- um hadtulegu kappakst- ursbrautum fyrir viku síð- an. Er búizt við að Lauda verði fluttur frá sjúkrahús- inu í Mannheim á annað sjúkrahús í Ludvigshafen í vikunni, en þar þarf hann m.a. að gangast undir plast- íska aðgerö á andliti. urvegari i greininni varð Seniuko og í öðru sæti varð Budalov, en báðir stukku þeir 2.21 m. Natalya Lebedeca hljóp 100 metra grindahlaupið á 13.09 og er það bezti árangur sem náðst hefur í þessari grein í landskeppni Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. I 200 metra hlaupi sigraði Tatn- ana Prorochenko á 23.00 sek. í kúluvarpi karla hafði enginn við heimsmethafanum Baryshnikov, sem varð þriðji í Montreal, hann varpaði kúlunni 21.15 m. I 800 metra hlaupi kvenna sigraði Tat- yana Providokhina á 1:57,00. 1 langstökki kvenna sigruðu Sovétstúlkurnar ekki tvöfalt. Lydia Alfeeva frá Sovétríkjunum sigraði með því að stökkva 6.48 metra, en Kathy Macmillan var eina bandariska stúlkan sem fékk silfurverðlaun, er hún stökk 6.42 metra. Kathy Macmillan fékk einnig silfur í þessari grein í Montreal. að því að hætta þátttöku í leikun- um, ef iþróttafólkið frá Suður- Afríku heldur áfram keppni. í liði Suður-Afríku sem keppir á leikunum eru samtals 38 íþróttamenn, og af þeim eru átta blökkumenn. Verður ekki annað séð en að vel hafi farið á með hvíta og blakka íþróttafólkinu frá þessu landi, og að jafn vel sé búið að blökkumönnunum og hinum hvitu. Alls taka 39 þjóðir þátt i þess- um Ólympíuleikum fatlaðra og eru keppendui rösklega 1.400 talsins. Munu leikarnir standa fram i vikuna. Á sunnudagskvöld- ið höfðu keppendur frá 31 þjóð unnið til verðlauna. Sem fyrr seg- ir voru Hollendingar í fyrsta sæti, en siðan komu Bandarikjamenn og þá Bretar, Vestur-Þjóðverjar, Pólverjar, Astralíubúar, Svíar, Kanadamenn, Austurríkismenn og Israelsmenn. TURISHCEVA HÆTT KEPPNI LUDMILA Turischeva, ein af ska'rustu finileika- stjörnum síðustu ára, lýsti því yfir á sunnudaginn að hún va'ri nú ha-tt keppni í fimleikum, en ætiaði sér að helga tíma sinn kennslu í feimleikum í framtíðinni. — Ólympiuleikarnir voru síðasta keppni niín, sagði Turishceva. í viðtali við sovézka fréttastofu á sunnudaginn. —Eg a'tla í framtíðinni að reyna að sameina háskólanám mitt þjálfun ungs fimleikafólks. Turisheeva er íþróttasálfra'ðingur að menut. Ilún varð þriðja í einstaklingskeppni í Montreal á eftir Nelli Kim og Nadiu Comaneci. 1 fiokkakeppni fékk hún gullverðlaun og í gólfa'fingum og á svifrá fékk hún silfurverðlaun í einstaklingskeppninni. ÚLYMPÍULEIKAR FATLAÐRA EKKI LAUSIR VIÐ MÓTMÆLAAÐGERÐIR -áij.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.