Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1976 21 verða miklu fleiri tveggja her- bergja Ibúðir í næsta áfanga, þannig að íbúðarstærðir verða þá í meira samræmi við þörf- ina, sem þegar er fyrir hendi. VILL LÁTA RÝMA LEIGUHÚSNÆÐI BORGARINNAR I sambandi við nýlokna út- hlutun má geta þess, að 28 íbúð- um var úthlutað til ‘fólks, sem búið hefur í leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg. Sjálfur tel ég mjög þýðingarmikið að rýma leiguíbúðir borgarinnar og að- stoða það fólk, sem þar býr, við að eignast sinar eigin íbúðir. I leiguhúsnæði borgarinnar eiga engir að vera, nema þeir Geta ekki selt á frjálsum mark- aði vegna hagstæðra lánakjara t BÆKLINGI, sem stjórn Verkamannabústaða hefur gef- ið út varðandi byggingu hús- anna er eftirfarandi kafla að finna um greiðslur: „Sérhver umsækjandi, sem hlotið hefur fyrirheit um íbúð, dregnu eigin framlagi og láni Byggingasjóðs ríkisins. Lán þessi eru til 42 ára með 2 1/8% ársvöxtum og greiðast með jöfnum ársgreiðslum vaxta og afborgana. Lánið skal tryggt séð frásuðri. staða ákveður sem verkefni húsfélagsins. Óheimilt er að veðsetja íbúð í verkamannabústað nema til tryggingar lánum Bygginga- sjóðs ríkisins og Byggingasjóðs verkamanna. Ekki má leigja íbúð í verka- mannabústað nema með sam- þykki borgarráðs Reykjavíkur. Enginn, sem eignast hefur íbúð þeirra endurbóta, sem á sama tíma hafa verið gerðar, og draga frá hæfilega fyrningu, hvort tveggja samkvæmt mati dómkvaddra manna. Ef maður hefur átt ibúðina í 10 ár, má hann að auki njóta verðhækkunar, sem svarar helmingi af eftirstöðvum láns Byggingasjóðs verkamanna, enda greiði hann upp helming af eftirstöðvum lánsins, þegar sala fer fram. Hafi maður átt íbúðina í 20 ár, má hann njóta verðhækkunar á verði allrar íbúðarinnar, ef hann greiðir eftirstöðvar lánsins að fullu. borgarráð þá. neytt forkaups- réttar síns og krafizt þess á uppboðsþingi, að eignin verði lögð borgarsjóði út til eignar á því verði, sem hefur verið boðið í eignina, eða á söluveröi sam- kvæmt 3. mgr. ef það er lægra en hæsta boö. Söluverð þetta skal ákveðið áður en liðinn er sá frestur, sem uppboðshaldari hefur, samkvæmt uppboðsskil- málum, til samþykkis eða synj- unar á boði, enda veiti uppboðs- haldari borgarráði hæfilegan frest til þess að fá ákvörðun um söluverðiö. Að fengnu afsali samkvæmt þessu ákvæði skal afmá í veðmálabókum veðbönd og höft á eigninni, samkvæmt 36. gr. laga nr. 57 15. maí 1949 um nauðungaruppboð! Hafni Borgarráð forkaupsrétti að skal greiða 10% af áætluðu kostnaðarverði hennar innan fjögurra vikna frá úthlutun. Við sölu og afhendingu íbúð- arinnar greiðir umsækjandi "það, sem á vantar til að 20% af endanlegu kostnaðarverði séu greidd af hans hendi. Standi umsækjandi ekki í skilum með þessar greiðslur, fellur réttur hans til íbúðarinnar niður, en fé sem hann kann að hafa greitt samkvæmt framanrituðu, fær hann endurgreitt. Eftirstöðvar kaupverðs eru fjármagnaðar á eftirfarandi hátt: A. Byggingarsjóður ríkisins veitir hámarkslán samkvæmt A-lið 8. greinar laga nr. 30 frá 12. maí 1970 með almennum lánakjörum þess sjóðs. Fyrir fbúðir í húsum af B-gerð nemur lán þetta kr. 1.700.000,00, en fyrir íbúðir í húsum af A-gerð nemur lánið kr. 2.300.000,00. B. Byggingarsjóður verka- manna veitir lán, sem nemur verði hverrar íbúðar að frá- með 2. veðrétti í hlutaðeigandi íbúð. Kaupendur íbúða í verka- mannabústöðum geta ekki selt sínar íbúðir nú á frjálsum markaði meðal annars vegna hinna hagstæðu• lánakjara. Er kaupandi hefur gengið frá fullnaðargreiðslu og yfirtöku lána fær hann afsal fyrir íbúð- inni. 1 afsali verður tekið fram, að íbúðin sé háð ákvæðum laga um verkamannabústaði, eins og þau eru á hverjum tima. Enn- fremur verður í afsali kveðið á um skyldur íbúðareigenda til þátttöku í húsfélagi, sem annist sameiginlegt viðhald húsanna, sameiginlegar greiðslðir og ann- að, er stjórn verkamannabú- Hér sjást byggingarframkvæmdirnar á mismunandi stigi f Seljahverfi. til að úthluta, sérstaklega hvað varðar tveggja og einnig þriggja herbergja íbúðir. Miðað við þetta gefur það auga leið, að stjórn verkamannabústaða var mjög mikill vandi á höndum, að vega og meta aðstæður umsækj- enda. Stjórnin kynnti sér að- stæður allra eftir því sem tök voru á samkvæmt þeim gögn- um, sem fylgdu umsóknum þeirra.“ Magnús L. Sveinsson sagði að stór hluti umsækjenda hefði átt persónuleg viðtöl við einstaka stjórnarmenn og gefið ítarlegri upplýsingar um húsnæðisað- stöðu og persónulega hagi en umsóknirnar gáfu til kynna. Þá fóru stjórnarmenn einnig heim til nokkurra umsækjenda til að kynna sér nánar húsnæðisað- stöðu fólksins. 160—200 ÍBtJÐIR ÁRLEGA Þannig var gífurleg vinna lögð í að meta aðstæður allra umsækjenda og er stjórninni fullljóst, að þó nokkur hluti þeirra, sem ekki fengu úthlutað eru í sama rétti og þeir sem úthlutað var, en að sjálfsögðu er ekki hægt að úthluta fleiri íbúðum en byggðar eru. Eina vonin fyrir þetta fólk, er að framkvæmdum verður hald- ið áfram, og í framtiðinni er hugmyndin að úthluta 160—200 íbúðum árlega. Það sem hafa alls enga möguleika á að eignast eigin íbúðir,“ sagði Magnús. Þá gat hann þess, að borgar- stjóri myndi afhenda fyrstu íbúðina 19. ágúst n.k. en 80 ibúðir verða tilbúnar á þeim tima. íbúðir stjórnar verka- mannabústaða eru af tveimur húsgerðum, gerð A og gerð B. Fyrst verður lokið við gerð B og verða siðustu ibúðirnar af þeirri gerð afhentar um mán- aðamótin september — október n.k. I húsgerð A verða 184 íbúð- ir og verða þær afhentar full- frágengnar á timabilinu nóv- ember n.k. til nóvember 1977. Að lokum sagði Magnús: „Ég legg áherzlu á þýðingu þessara framkvæmda og tel að hið opin- bera eigi að efla þessar fram- kvæmdir, eftir því sem frekast er hægt. Með því verður fólki, sem ekki hefur bolmagn til að kaupa íbúð á almennum mark- aði tryggt á fljótvirkan hátt var- anlegt húsnæði, sem er frum- þörf hvers manns." Eins og áður er getið, þá sat úthlutunarnefndin yfir skýrsl- um í 200 tíma auk þess sem fólk var heimsótt og átt við það per- sónuleg viðtöl. Var þetta því ekki lítið starf, sem úthlutunar- nefndin hefur unnið, en með * Magnúsi L. Sveinssyni í úthlut- unarnefnd voru þeir: Gunnar Helgason, Hilmar Guðlaugsson, Sigfús Bjarnason, Páll R. Magn- ússon, Guðjón Jónsson og Guð- mundur J. Guðmundsson. — þ.ó. Ljósm. Mbl.: Friðþjófur. íbúðinni, er íbúðareigenda frjálst að selja hana, enda greiði hann að fullu áhvílandi Ián úr Byggingarsjóði verka- manna. í verkamannabústað, má selja hana, nema borgarráð hafi áður hafnaó forkaupsrétti. Söluverö slíkrar ibúðar má ekki vera hærra en kaupverð hennar að viðbættri verðhækkun, sem samkvæmt vísitölu byggingar- kostnaðar hefur orðið á kostn- aðarverði íbúðarinnar, nema þess hluta, er svarar til láns úr Byggingasjóði verkamanna og eftir stendur, þegar forkaups- réttar er neytt. Enn fremur skal bæta við virðingarverði Þá segir ennfremur.: „Nú er íbúð, sem keypt hefur verið samkvæmt 3. mgr. seld á nauð- ungaruppboði samkvæmt lög- um nr. 57 25. maí 1949, um nauðungaruppboð, og getur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.