Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÍJST 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulitrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, simi 22480 Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. r Arangur í berklavörnum vísar veginn í annarri heilsugæzlu Dr Sigurður Sigurðsson, fyrrum landlæknir og berklayfirlæknir, ritar í nýlega útkomið læknablað itarlega og athyglisverða yfirlitsgrein um berklaveiki og berklavarnir á íslandi Morgunblaðið birtir lokakafla þessarar ritgerðar sl. laugardag og frásögn dr Sig- urðar um sama efni. Hér er sagt frá einum athyglisverðasta og lærdómsríkasta kaflanum í islenzkri heilbrigðisþjónustu; af einstaklingi, sem viðriðinn var um langan aldur og leiddi um sinn islenzkar berklavarnir í Evrópu, einkum norðan- og vestanverðri, svo og í N- Ameríku, hefur meira eða minna skipulögð barátta gegn berklaveikí í hartnær heila öld borið mikinn árangur, einkum á síðustu áratugum. Útbreiðsla og tíðni berklaveíki er hvergi minni en i þessum heimshlut- um ísland er í hópi þeirra landa, sem náð hafa hvað mestum árangri á þessum vett- vangi. Hinsvegar er útbreiðsla veikinnar enn allnokkur í Suð- ur- og Austur-Evrópu en þó langtum mest í Asíu og Afríku- rikjum Árið 1 974 er þann veg talið að allt að 20 milljónir manna væru með smitandi berkla í heiminum. Á sumum svæðum svokallaðra þróunar- landa er árleg tíðni sjúkdóms- ins, þ.e. nýir sjúklingar, 200 til 350 á hverja 100 þúsund ibúa, samkvæmt skráðum heimildum, og heildar fjöldi smitandi sjúklinga sennílega tvöfallt meiri, þ.e. um 400—700 miðað við hver 100 þúsund. Berklaveikin er því enn einn skæðasti smitsjúk- dómur veraldar Dr Sigurður Sigurðsson seg- ir réttilega að mjög mikilsverð- ur árangur hafi náðst í berkla- vörnum hér á landi, allt frá þvi að grundvöllur skipulegs við- náms var lagður með setningu berklalaganna 1903 Hann rekur í itarlegu máli efnisþætti berklavarnanna og árangur baráttunnar, skref fyrir skref, allt fram á okkar daga, þegar berklaveikin, hinn hvíti dauði, hefur verið nær sigraður þótt enn sé varðstöðu þörf Á tutt- uga ára tímabili, 1931—50, hafi berkladauðínn lækkað um liðlega 90%. Er það hraðari lækkun en skráð hefur verið í öðrum löndun á þessu fmabili Þessi árangur kostaði mikið starf, bæði í opínberri heil- brigðisþjónustu og almennum berklavarnarsamtökum, en einnig mikla fjármuni úr sam- eiginlegum sjóðum þjóðarinn- ar Þannig telur dr Sigurður að á árunum 1928 til 1932 hafi 7 5% af ríkisútgjöldum runnið til berklavarna — en það sam- svaraði nálægt fjórum og hálf- um milljarði í dag, miðað við fjárlög ársins í ár. Dr Sigurður fjallar og um félagslega þátttöku í sýklavörn- unum og rekur m a. forgöngu Oddfellow-reglunnar fyrir stofnun Heilsuhælisfélags, sem leiddi til byggingar Vífiísstaða- hælis, sem tók til starfa árið 1910 Einnig þátt Sambands íslenzkra berklasjúklínga í heildarbaráttunni, en sá félags- skapur vann það afrek að koma upp vinnuhæli fyrir berklasjúkl- inga að Reykjalundi árið 1 945. — Meginárangurinn hvílir þó á þeirri viðloðandi almannaskoð- un, sem náði til allrar þjóðar- innar, þann veg að hægt var að einangra smitbera og beita til- tækum læknisaðgerðum mun fyrr og með betri árangri en ella Athyglisvert er, að dr Sig- urður varar við þeim misskiln- ingi að fullnaðarsigur sé unn- inn á berklaveikinni Smitunar- og sýkingarhætta sé því miður enn fyrir hendi, þrátt fyrir allan hinn góða árangur i berkla- vörnum þjóðarinnar. Andvara- leysi geti því haft hinar alvar- legustu afleiðingar. Berklaveik- inni sé ekki útrýmt meðan til séu einstaklingar, sem smitazt hafa af berklaveiki. Smitunar- hætta minnki því miður ekki í sama hlutfalli og fækkun smit- bera, því jöfnum höndum auk- izt fjöldi þeirra, sem næmir séu fyrir veikinni. Samgöngutækni nútímans tengi saman svo til hvurn kima jarðar, einnig þá staði þar sem berklaveiki sé enn landlæg. Varúðar og varð- stöðu sé því enn þörf Sá árangur, sem við blasir í berklavörnum á íslandi, er I senn viðamikill og lærdómsrík- ur Það að fylgjast með heilsu- farslegu ástandi hvers og eins þjóðfélagsþegns, í svipaða veru og gert var af þeim, er önnuðustu berklavarnir, hlýtur að hafa ótvírætt gildi, einnig gagnvart öðrum skæðum nútímasjúkdómum eins og krabbameini og hjartasjúkdóm- um, svo dæmi séu nefnd Einnig þar hef ur almannaeftirlit þróazt vel á veg og heildarsam- tök komið til sögu um heil- brigðisþjónustu Miklu skiptir að slíkar heilbrigðisvarnir mæti skilningi og stuðningi almenn- ings í landinu, ekki síður en stjórnvalda, sem raunar taka jafnan nokkurt mið af sterku almenningsáliti í afstöðu sinni Fróðleiks- og varnaðarorð dr Sigurðar Sigurðssonar, fyrrum landlæknis og berklayfirlæknis, eiga því brýnt erindi til þjóðar- innar enn í dag, í fleirum en einum skilningi Heilsugæzla kann að kosta fjármuni, nú ekki síður en áður, en arðsemi hennar kemur fram í fleiri vinn- andi einstaklingum í þjóðfélag- inu og fegurra og betra mann- lífi Fyrstu íbúðir í verkamannabústöðum afhentar á næstunni: „Hið opinbera á að efla þessar fram- kvæmdir eins og frekast er hægt” — segir Magnús L. Sveinsson vara- form. stjórnar verkamannabústaða Þann 19. ágúst n.k. mun Birgir tsleifur Gunnarsson borgar- stjóri afhenda fyrstu fbúðina af 308, sem stjórn verkamannabú- staða hefur látið byggja f Seljahverfi í Breiðholti 2. Sfðan verða fbúðirnar afhentar hver á eftir annarri allt þangað til f nóvemb- er á næsta ári. Um leið hefur stjórn verkamannabústaða hafið undirbúning að byggingu næstu verkamannabústaða og f fram- tfðinni er áætlað að úthluta 160—200 fbúðum árlega. Magnús L. Sveinsson. 1025 SÓTTU UM 308 fBUÐIR Mjög mikil ásókn var í fbúð- irnar 308, en alls sóttu 1025 manns um þær. Því fengu 717 manns synjun' um íbúð. Othlut- unarnefndinni var því mikill vandi á höndum er til úthlutun- ar kom, og sátu nefndarmenn yfir 200 klukkustundir yfir skýrslum í beinum yfirlestri, auk þess sem þeir heimsóttu fólk og áttu persónuleg viðtöl við það. FYRSTU IBUÐIRNAR EFTIR AÐ LÖGUM UM VERKAMANNA- BUSTAÐI VAR BREYTT „Þetta eru fyrstu íbúðirnar, sem úthlutað er, eftir að lögum um verkamannabústaði var breytt árið 1970. 1 nýju lögun- um felst, að ríkinu er skylt að borga jafn háa upphæð og sveitafélaginu og á þessu ári greiðir Reykjavíkurborg um 120 millj. til framkvæmda vegna verkamannabústaða í Breiðholti 2,“ sagði Magnús L. Sveinsson formaður úthlutun- arnefndarinnar, þegar Mbl. ræddi við hann. I upphafi sam- talsins var Magnús spurður að hverjir það væru, sem hefðu rétt til að sækja um íbúðir f verkamannabústöðunum. Það kom fram, að þeir einir hafa rétt til þess, sem 1. Eíga lögheimili í Reykjavík. 2. Búa við ófullnægjandi húsnæðisað- stöðu og 3. Fara eigi yfir ákveð- ið tekju- og eignamark, sem breytist eftir vfsitölu hverju sinni. Að því er Magnús sagði, var f upphafi ákveðið að byggja 32 einstaklingsíbúðir (1.5 herb.) 32 tveggja herb. fbúðir, 138 þriggja herb. íbúðir og 106 fjög- urra herbergja íbúðir. 41% UMSÆKJENDA UNDIR 25 ÁRA ALDRI „Um 1.5 herb. fbúðirnar sóttu 157, eða 15.3% þeirra er sóttu um, um 2ja herb. sóttu 270 eða 26.4% umsækjenda, um 3ja herb. sóttu 359 eða 35.0% um- sækjenda og um 4ra herb. sóttu alls 239 eða 23.3% þeirra er sóttu um,“ sagði Magnús. Við athugun kom fram, að 41% allra umsækjenda voru undir 24 ára aldri og 37.5% voru á aldrinum 25—40 ára. Þá kom fram, að 217 eða 21.4% af umsækjendum voru einstæðir foreldrar, svo til allt einstæðar mæður, með frá einu til fimm börn eða samtals 383 börn. 28.6% umsækjenda reyndust búa inni á öðrum fjölskyldum, en 64.4% af þessu fólki er und- ir 25 ár aldri. Þetta reyndust vera allt frá því að vera barn- laus hjón og upp í að vera með 4 börn. Að því er Magnús sagði, þá voru alls 16.2% umsækjenda einstaklingar. Hins vegar var einstaklingsíbúðunum fyrst og fremst úthlutað til eldra fólks, eða um 70% til fólks sem er yfir 50 ára. Tveggja herb. fbúðum var á hinn bóginn mest úthlutað til einstærða foreldra með eitt barn og ungra hjóna með eitt barn, — en þrjár íbúðir fóru að vfsu til eldri barnlausra hjóna, sem hafa verið leigendur alla ævi. Hjón með eitt og tvö börn fengu þriggja herbergja íbúð- irnar og eins einstæðir foreldr- ar með 3 börn. Fjögurra her- bergja íbúðirnar fengu hjón með 2—4 börn og einstæðar mæður með 3 til 5 börn. Það kom lika f ljós, að 17.2% þeirra, er úthlutað var búa inni á öðr- um fjölskyldum og 26% íbúð- anna fóru til einstæðra for- eldra. 717 FENGU SYNJUN „Af þessu má sjá,“ sagði Magnús, „að tæplega 1/3 um- sækjenda fékk íbúð en 717 fengu synjun. Ég vil taka það skýrt fram, að stór hluti þeirra er í verulegri þörf fyrir úrlausn og um 200 þeirra sem ekki fá íbúð að þessu sinni eru f svip- aðri og ekki minni þörf, en þeir sem fengu úthlutað. Við höfðum alltof fáar fbúðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.