Morgunblaðið - 10.08.1976, Side 32

Morgunblaðið - 10.08.1976, Side 32
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGUST 1976 á skrið aftur Valur kominn BARATTAN um lslandsmeistaratignina ætlar að verða gffurlega hörð. Það eru Reykjavíkurfélögin Valur og Fram, sem berjast um bikarinn, en Akurnesingar eru nánast úr leik eftir 1:3 tapið gegn Val á Akranesi á laugardaginn, Þetta var hörkuleikur og mikið um tækifæri við mörkin. Hefði þetta vafalaust orðið einn af beztu leikjum sumarsins ef aðstæður hefðu verið betri, en þær voru vægast sagt ömurlegar. Rok og rigning var allan leiktfmann og völlurinn gljúpur og háll og fyrir framan bæði mörkin var forarsvað. Bæði liðin áttu mýmörg tækifæri en Valsmönnum með Inga Björn Albertsson f broddi fylkingar gékk betur að nýta þau og það skipti sköpum. Valsmenn voru betri aðilinn í Þannig var fyrri hálfleikur, leiknum fyrstu 20 mínúturnar. fjörugur, skemmtilégur og mikið Strax á 3. mínútu reyndi Albert Guðmundsson langskot að mark- inu en boltinn smaug rétt yfir. Á 7. mínútu átti Hermann Gunnars- son skot af 30 metra færi á markið en boltinn fór í stöngina. Tveimur mínútum síðar var Hermann aft- ur á ferðinni með sannkallað þrumuskot af 20 metra færi, en boltinn smaug yfir slána. Eftir þennan sprett Valsmanna fóru Skagamenn að verða meira áberandi á vellinum og á 20. mín- útu fengu þeir dauðafæri, sem þó ekki nýttist. Karl Þórðarson gaf góða sendingu á Pétur Pétursson hægra megin. Pétur lék upp að endamörkum og gaf boltann inn í markteiginn til Árna Sveinssonar en skot Árna fór í Kristinn Björnsson og ekkert varð úr. Ekki er gott að segja hvert boltinn hefði lent ef ekki hefði verið svona mikil drulla fyrir framan mörkin. Skagamenn fengu annað dauðafæri á 24. mínútu en það nýttist ekki heldur. Teitur átti þá mjög góða sendingu inn fyrir Valsvörnina, Pétur Pétursson náði boltanum og skaut á markið úr mjög þröngri aðstöðu. Sig- urður Dagsson varði skotið en hélt ekki boltanum. Pétur náði að skjóta aftur á markið, en í þetta skipti var Grímur Sæmundsson mættur á marklínuna og náði að skjóta boltanum burtu. Þremur mínútum síðar hafði fjörið færzt yfir völlann og Þröst- ur Stefánsson bjargaði á mark- línu skoti Alberts Guðmundsson- ar. Á 28. mínútu gaf Ingi Björn góða sendingu á Guðmund Þor- björnsson frían á markteig en hann náði ekki að drepa boltann niður og ekkert varð úr. Á 32. mínútu gaf Atli Eðvaldsson góða sendingu inn i teiginn þar sem ingi Björn var í mjög góðu færi, en skallaði boltann rétt framhjá. um tækifæri, en engin mörk. En þau komu í seinni hálfleik. Það fyrsta kom á 5. mínútu s.h. Krist- inn Björnsson átti mesta heiður- inn af því. Hann brauzt skemmti- lega í gegn vinstra megin og sendi boltann fyrir á Inga Björn þar sem hann stóð í markteignum. Ingi leík aðeins til hliðar og sendi síðan boltann í netió með lausu en hnitmiðuðu skoti. Á 14. minútu kom mark númer tvö. Valur fékk innkast vinstra megin, boltinn barst til Inga Björns, sem lék sama leikinn og Kristinn skömmu áður, brauzt upp að endamörkum og renndi boltanum, fyrir markið á Hermann Gunnarsson, sem kom hlaupandi inn í eyðu og skoraði af öryggi. Menn hédu að þetta mark myndi slá Akurnesinga alveg út af laginu, en svo var ekki, og það liðu ekki nema tvær mínútur þar tíl þeir höfðu minnkað muninn í 2:1. Magnús Bergs tók mark- spyrnu, en mistókst illilega og sendi boltann beint til Teits Þórð- arsonar. Teitur gaf boltann út á hægri vænginn til Karls Þórðar- sonar. Hann gaf knöttinn áfram inn í vftateig þar sem Pétur Pét- ursson var í dauðafæri. Pétur skaut á markið, Sigurður varði meistaralega, en hélt ekki boltan- um og Karl Þórðarson kom aðvíf- andi og skoraði. Á 19. minútu voru Valsmenn í sókn og endaði lotan með skoti frá Atla Eðvaldssyni i þverslá. Bolt- inn datt niður á línuna og stöðvað- ist i drullunni. Þar sluppu Skaga- menn við skrekkinn. En þeir máttu sjá á eftir boltanum í netið á 33. minútu. Hermann fékk þá boltann inn í vítateig (ýmsir töldu hann rangstæðan) og skaut að markinu. Hörður Helgason markvörður hélt ekki boltanum, sem barst út i teiginn til Inga STAÐAN STAÐAN I 1. DEILD: Staðan f 2. deild: Valur 13 8 4 1 37:13 20 IBV 11 9 2 0 34:9 20 Fram 13 8 3 2 ?0:15 19 Þór 12 7 4 1 29:11 18 Breiðab 12 6 2 4 16:14 14 Armann 12 6 3 3 22:13 15 Akranes 12 5 4 3 16:16 14 Völs. 13 5 3 5 20:21 13 Vfk. 12 6 1 4 15:14 13 KA 13 4 3 5 21:25 12 KR 13 3 5 5 19:18 11 Isafj. 11 3 4 4 13:14 10 lBK 13 5 1 7 18:20 11 Haukar 12 3 2 7' 18:25 8 FH 12 1 4 7 7:20 6 Selfoss 12 2 3 7 18:32 7 Þróttur 12 1 2 9 7:25 4 Reynir 12 2 1 9 11:36 5 MARKIIÆSTIR I 1. DEILDINNI: Ingi Björn Albertsson Val 11 Guðmundur Þorbjörnsson Val 10 Hermann Gunnarsson Val 10 Jóhann Torfason KR 6 Teitur Þórðarson lA 6 Hinrik Þórhallsson UBK 5 Markahæstir f 2. deild: Jón Lárusson, Þór, 12 Örn Óskarsson, lBV, 11 Gunnar Blöndal, KA, 9 Tómas Pálsson, IBV, 9 Hreinn Elliðason, Völsungi, 7 Sumarliði Guðbjartsson, Sel- fossi, 7 Ingi Björn á auðum sjó og rétt Guðmundsson er lengst til vinstri, eftir að þessi mynd var tekin hafði hann skorað fyrir Val. Albert Guðmundur Þorbjörnsson nr. 10 og Jóhannes Guðjónsson nr. 6. Texti: Sigtryggur Sigtryggsson Myndir: Friðþjófur Helgason Björns. Ingi snéri sér í hálfhring og skaut síðan hnitmiðuðu skoti rakleitt í markið. Var Ingi rétt innan vítateigsins. Nokkru siðar munaði ekki miklu að Ingi skoraði sitt þriðja mark, í þetta skipti öfugu megin. Eftir upphlaup Skagamanna ætl- aði Ingi að senda boltann út fyrir endamörk en skotið var óná- kvæmt og fór i stöngina. Þá skall hurð nærri hælum þegar Jón Al- freðsson átti skot í stöng seint í leiknum og margir vildu meina að Eysteinn Guðmundsson hefði sleppt augljósri vítaspyrnu á Akranes, þegar Guðmunda Þor- björnssyni var brugðið innan vita- teigs. Eins og sjá má á upptalning- unni var mikið um tækifæri á báða bóga. Bæði liðin léku hina sæmilegustu knattspyrnu úti á vellinum og vafalaust hefði þetta orðið mjög góður leikur, ef að- stæður hefðu verið betri. Þessi sigur er Valsmönnum vafalaust mjög dýrmætur eftir hinn slæma kafla hjá liðinu að undanförnu og hann ætti að efla liðsandann. Bar- áttan við Fram verður vafalaust hörð. 1 stuttu máli: Akranesvöllur laugardaginn 8. ágúst, 1. deild, ÍA—Valur 1:3 (0:0). Mörk Vals: Ingi Björn Albertsson á 50. og 78. mínútu, Hermann Gunnarsson á 59. mínútu. Mark ÍA: Karl Þórðarson á 61. mínútu. Áhorfendur: 1150. Áminningar: Teitur Þórðarson IA og Grímur Sæmundsen bókað- ir. \ * ^ Uð vikunnar '*2 Einkunnagjöfln tA: Hörður Helgason 2 Andrés Ólafsson 2 Guðjón Þórðarson 3 Þröstur Stefánsson 2 Jón Gunnlaugsson 3 Jóhannes Guðjónsson 2 Karl Þórðarson 2 Pétur Pétursson 3 TeitUr Þórðarson 3 Jón Alfreðsson 2 Arni Sveinsson 3 DÖMARI: Eysteinn Guðmundsson VALUR: Sigurður Dagsson Kristinn Björnsson Grfmur Sæmundsen Vilhjálmur Kjartansson Dýri Guðmundsson Magnús Bergs Ingi Björn Albertsson Atli Eðvaldsson Hermann Gunnarsson Guðmundur Þorbjörnsson Albert Guðmundsson LIÐ FH Omar Karlsson Viðar Halldórsson Magnús Brynjólfsson Gunnar Bjarnason Jón Hinriksson Pálmi Sveinbjiirnsson Ólafur Ilanivalsson Ásgeir Arnbjörnsson Logi Ólafsson Leifur Helgason Helgi Ragnarsson Sigurður Kristinsson (vm.) DÓMARI: Valur Benediktsson BREIÐABLIK: Ólafur Hákonarson Gunnlaugur Helgason Bjarni Bjarnason Einar Þórhallsson llaraldur Erlendsson Gísli Sigurðsson Vignir Baldursson Hinrik Þórhallsson Þór Hreiðarsson Ileiðar Breiðfjörð Kormákur Bragason (vm.) Magnús Steinþórsson (vm.) Ólafur Friðriksson DÓMARI: Valur Benediktsson LIÐ FRAM Árni Stefánsson Agúst Guðmundsson Trausti Haraldsson Gunnar Guðmundsson Jón Pétursson Sigurbergur Sigsteinsson Eggert Steingrímsson Kristinn Jiirundsson Rúnar Gíslason Ásgeir Elíasson Pétur Ormslev Símon Kristjánsson (vm.) ÍBK: Þorsteinn Olafsson Lúðvík Gunnarsson Einar Óiafsson Einar Gunnarsson Guðni Kjartansson Ölafur Júlíusson Þörir Sigfússon Þórður Karlsson Ástráður Gunnarsson (vm.) Jón Ölafur Jónsson Guðjón Guðjónsson (vm.) Gunnar Jónsson Steinar Jóhannsson Sigurður Dagsson, Val Jón Gunnlaugsson, IA Einar Þórhallsson, UBK Viðar Halldórsson, FH Bjarni Bjarnason, UBK Asgeir Elfasson, Fram Ingi Björn Álbertsson, Val Jóhann Torfason, KR Hinrik Þórhallsson, UBK Arni Sveinsson, lA Olafur Danivalsson, FH. Körfuknattleiks- þjálfari Ungmennafélag Grindavíkur óskar eftir þjálfara fyrir 2. deildar lið sitt og ef til vill fleiri flokka. Aðeins reyndur maður kemur til greina. Uppl. í símum 92-8090 og 92-8390.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.