Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. AGOST 1976 11 Skeifan kynnir Onasse sófasettið. Onasse, sófasettió sem faríS hefur sicjurfór um Evrópu. Frábœr hönnun og fagvinna býöur þá hvíU sem sóst er eftir. Selt gegn póstkröfu. Onasse sófasettió fæst hjá okkur. Sháln SMinJU\ŒGI6 SÍMI 44544^.KJÖRGARÐI SlMI 16975 Hærra verð fyrir fiskúrgang YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur nú ákveðið nýtt lágmarksverð á fiskbeinum, fiskslðgi og heilum fiski til mjöl- vinnslu. Hæsta verð, sem greitt verður fyrir þetta hráefni, verður nú kr. 8.80 en lægsta kr. 3.15. Gildir verðið frá 1. ágúst s.l. til 31. desember n.k. í frétt frá Verðlagsráði sjávar- útvegsins segir að verðinu sé tví- skipt, eftir því hvort selt er beint frá skipum eða frá vinnslustöðv- um. Þegar selt er frá fiskvinnslu- stöðvum til fiskimjölsverksmiðja greiðist sem hér segir: Fiskbein og heill fiskur, annar en sild, loðna, karfi og steinbítur hvert kg kr. 7.00. Karfabein og heill karfi, hvert kg kr. 8.00. Steinbítsbein og heill steinbit- ur, hvert kg 4.70 kr. Fiskslóg, hvert kg kr. 3.15. Þegar heill fiskur er seldur beint frá fiskiskipum til fiski- mjölsverksmiðja: Fiskur annar en síld, loðna, karfi og steinbitur, hvert kg kr. 6.37. Karfi, hvert kg. kr. 8.00. Stein- bitur, hvert kg. kr. 4.28. Þá segir að verðið sé uppsegjan- legt frá og með 1. október og síðan með viku fyrirvara. Verðið er miðað við að seljendur skili framangreindu hráefni i verk- smiðjuþró. Karfabeinum skal haldið aðskildum. Verðið var ákveðið af odda- manni og fulltrúum seljenda gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda. í nefndinni áttu sæti: Ólafur Davíðsson, oddamaður nefndar- innar, Ágúst Einarsson og Tryggvi Helgason af hálfu selj- enda og Gunnar Ólafson og Jónas Jónsson af hálfu kaupenda. WS2Þ* Jón Böðvarsson. — Ljósmynd: Brynjólfur. Karl prins á Reykjavíkurflugvelli á sunnudag. Á myndinni er hann að ræða við Kenneth East sendiherra Breta á tslandi. Að baki prinsinum er Brian Holt ræðismaður (með gleraugu) Karl prins fékk 43 laxa í Hofsá KARL rfkisarfi Breta kom til Reykjavfkur frá Vopnafirði á sunnu- dag, en þar eystra hafði hann verið að laxveiðum I Hofsá frá þvi á mánudag. svo sem kunnugt er af fréttum. Samtals veiddi prinsinn 43 laxa, þvf að sfðasta daginn fékk hann 10 laxa. Samkvæmt upplýsingum Gunnars Valdimarssonar, bónda á Teigi f Vopnafirði, mun Karl prins ekki hafa farið með mikið af laxi með sér heim, en ekki kvaðst hann þó viss um nema hann hafi farið með lax til þess að gefa forseta Islands, en prinsinn heimsótti forsetann að Bessa- stöðum á sunnudag. Karl Bretaprins lét mjög vel af dvölinni í Vopnafirði, en þetta er annað sumarið, sem hann stundar laxveiðar i Hofsá. Hann mun hafa haft á orði við þá veiðimenn, sem stunduðu veiðar þar með honum, að hann myndi koma í Hofsá ár hvert svo lengi sem hann yrði fær um að fara gangandi í Fossdal Þangað er ekki bilfært alla leið og ganga veiðimennirnir i Hofsá þangað. Allan tímann á meðan prinsinn dvaldist við Hofsá var þar hið ágætasta veður og hiti um og innan við 20 stig. Leiðrétting vegna kolmunnagreinar: „Áhugi á kolmunna- veiðum vaknaði þegar síldin hvarf’’ Rætt við Svein Sveinbjörnsson , fiskifræðing Framkvæmdir hefjast senn við hús FEF Fjársöfnun stendur yfir Nýr skóla- meistari Menntamálaráðuneytið hefur sett Jón Böðvarsson, menntaskóla- kennara, skólameistara við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja i Kefla- vík um eins árs skeið frá 1. ágúst 1976 að telja. FÉLAG einstæðra foreldra hefur nýverið gengið frá kaupum á hús- eigninni Skeljanesi 6 f Reykja- vík, eins og frá hefur verið sagt í Morgunblaðinu. A næstunni munu hefjast viðgerðir og endur- bætur á húsinu og I þvf skyni hefur FEF leitað til allmargra fyrirtækja og einstaklinga og óskað eftir nokkrum fjár- stuðningi þeirra. Hafa undir- tektir verið góðar. Húsið verður afhent FEF þann 15. okt. og er vonazt til að þá verði hægt að taka að minnsta kosti hluta hússins f gagnið fljótlega og sfðan eftir því hversu viðgerðum og breytingum miðar áfram. Tekið skal fram að velunnarar FEF geta lagt gjafir inn á Spari- sjóðsreikning 10265 í Vegamóta- útibúi Landsbankans eða haft samband við stjórn félagsins. Framlögin eru frádráttarbær 'frá skatti. Framhald á bls. 30 1 GREIN um kolmunna. sem birt- ist I blaðinu á sunnudaginn sl. urðu þau leiðu mistök, að hluti af samtali vað Svein Sveinbjörnsson fiskifræðing féll niður. Sveinn er, sem kunnugt er, leiðangursstjóri á Runólfi og stjórnar hann þeim athyglisverðu tilraunum sem ver- ið er að gera með veiðar á kol- munna hér við land. Mbl. hitti Svein að máli f Neskaupstað nú nýlega og spurði hann hvenær athygli manna hefði fyrst beinzt að kolmunna sem nytjafisk: — „Menn fóru ekki að hugsa um kolmunna sem nytjafisk fyrr en eftir að sildin yfirgaf okkur upp úr 1968 og svo lfka eftir að ljóst varð, að gengið hafði griðar- lega á fiskistofnana hér við land- ið. Það sem við erum að gera núna er aðallega fólgið i því að kanna hvort kolmunni sé sæmilega veið- anlegur hér á landgrunninu og hvaða veiðarfæri séu hentugust fyrir hann. Sú varpa sem við höf- um aðallega notað er stór Engels- sildarvarpa og hún hefur gefið ágæta raun. Við notuðum fyrst loðnu-flotvörpuna og fiskuðum Spærlingstroll framleidd hér — VIÐ framleiðum spærlings- troll og eigum mikið til af efni ( þau, sagði Ingólfur Téódórsson netagerðarmaður f Vestmanna- eyjum, er hann hringdi til blaðs- ins I gær vegna fréttar í blaðinu á sunnudag. Þar er sagt' að spærlingstroll séu ekki framleidd á tslandi, heldur flutt inn frá Danmörku. — Við verðum mjög fljótlega til með nokkur troll, sagði Ingólf- ur, annars eru þau framleidd eft- ir pöntun og afgreiðslufrestur er 10 dagar til hálfur mánuður. En það fer þó að sjálfsögðu nokkuð eftir þvi hve margar pantanir ber- ast. Verðið er nokkuð misjafnt, fer eftir stærð vörpunnar, en er um 800 þús. kr. fyrir báta með 600 hestafla vél. vel lika með henni, en aftur á móti virðist botnvarpa ekki vera eins hentug í þetta. Annars má segja að í þessum tilraunum ókk- ar fari saman könnun á veiði- Framhald á bls. 30 28611 Tjarnarból 3ja herb. 73 fm. íbúð á 1 hæð með suðursvölum. Verð 7.5 millj. Vesturgata 3ja herb. ibúð á 1. hæð í timbur- húsi. Verð 5.5. milj. Alfaskeið 4ra herb. 110 fm. jarðhæð. Mjög falleg ibúð. Verð 8.5 millj. Hjarðarhagi 4ra herb. 115 fm. íbúð á 3. hæð Góð oq sérlega vönduð ibúð með mikilli sameign. t.d. grænmetisgeymslu, frystiklefa o.fl. Verð um 1 1 millj. Hraunbraut Stórglæsileg neðri sérhæð 130 fm. Fæst einungis i skiptum fyrir einbýlishús í Kópavogi. Hraunbær 5 herb. 120 fm. ibúð á 3. hæð, ásamt einu herbergi í kjallara. Þessi ibúð er alveg í sérflokki. Verð 1 1.5 millj. Kleppsvegur 4ra — 5 herb. 1 20 fm. íbúð á 1. hæð. Góðar innréttingar. Mikil sameign. Verð um 1 1 millj. Brekkutangi Fokhelt raðhús kjallari og 2 hæð- ir, samtals 280 fm. Fæst í skipt- um fyrir 3ja — 4ra herb ibúð. Fagrabrekka 200 fm. mjög fallegt raðhús, ásamt bilskúr. Húsið er á tveim hæðum, og er að mestu leyti frágengið. Lóð frágengm Verð 1 7 millj. Fasteignasalan Bankastræti 6 Hús og eignir Lúðvík Gizurarson hrl. kvöldsími 1 767 7. Diabolus In Musica syngur sitt síðasta 1 KVÖLD mun Diabolus In Musica koma fram í siðasta skipti opinberlega þar sem hljómsveitin er nú að hætta störfum. Á tónleik- unum munu Diabolus kynna nýja breiðskífu sem væntanleg er á markað innan skamms. Tónleik- arnir verða haldnir i Norræna húsinu og hefjast þeir kl. 21.00 og eru allir velkomnir á meðan hús- rúm leyfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.