Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1976 31 KGB myrðir and- ófsmenn í stað þess að handtaka þá segir Amalrik í viðtali við Dagens Nyheter Stokkhólmi — 9. ágúst — Reuter. ANDREI Amalrik segir í vid- taii, sem birtist í dag f sænska blaðinu Dagens Nyheter, að sovézka leyniþjónustan KGB hafi breytt um aðferðir gegn sovézkum andófsmönnum að undanförnu. Greinilegt sé, að KGB fari nú orðið varlega þeg- ar um sé að ræða andófsmenn, sem þekktir eru á Vesturlönd- um KGB beiti ekki lengur fjöldahandtökum gegn venju- legum andófsmönnum, heldur færist í vöxt að þeir séu hrein- lega myrtir, ýmist með því að þeim sé byrlað eitur, ekið á þá og látið Ifta svo út að um um- ferðarslys hafi verið að ræða, eða kveikt í hfbýlum þeirra. í viðtalinu ásakar Amalrik rfkisstjórnir á Vesturlöndum um að láta sér afdrif sovézkra andófsmanna í léttu rúmi liggja, og láti þau undir höfuð leggjast að rækta tengsl við þá. ,,Vesturlandabúár samþykkja leikreglur Sovétmanna og láta þá ráða ferðinni mótþróalaust. Þeir líta á meðlimi sovézku mannréttindahreyfingarinnar sem varasama samsærismenn sem í mesta lagi sé hægt að hafa samúð með úr fjarlægð, en forðast beri að blanda sér beint í mál þeirra." SAYED Fahmi, innanrfkisráð- herra Egyptalands, segir, að Lfbýumenn hafi hugsanlega stað- ið að baki sprengjutilræði f vega- bréfaskrifstofu f Kafró á sunnu- daginn. Þar sprungu tvær sprengjur og særðust 14 manns. Nokkrir menn hafa verið hand- teknir vegna sprengjutilræðisins, og var einn þeirra staddur f skrif- stofunni þegar fyrri sprengjan sprakk. Þá hefur maður verið handtek- inn í Kaíró og er honum gefið að sök að hafa sýnt Mohammed Ali Haiham, fyrrverandi forsætisráð- herra Suður-Yemens, banatilræði s.l. föstudag. Fahmi segir, að til- ræðismaðurinn sé starfsmaður suður-yemensks flugfélags í Kaíró, en auk þess muni nokkrir Veikin dularfulla: 27 eru látnir — enn óvíst um orsökina Flladelfíu —9. ágúst —Reuter. UMFANGSMIKIL rannsókn fer nú fram á þvf hvað allir þátttak- endur f móti fyrrverandi her- manna, sem haldið var f Ffladel- ffu á dögunum hafa f sig látið meðan á mótinu stóð, hvar þeir hafi komið og hverja þeir hafí hitt á umræddum tfma. Þátttakendur voru um 10 þús- und. Alls hafa 155 manns tekið veikina dularfullu, og hafa 27 lát- izt af völdum hennar. Heilbrigðisyfirvöld telja víst, að sóttkveikjur eða veirur hafi ekki valdið sjúkdómnum, en grunur beinist nú einkum að náttúruleg- um eiturefnum og ólifrænum eit- urefnum. „Það, sem andspyrnu- hreyfingin er að gera í Sovét- ríkjunum, er ekki aðeins lög- legt og i samræmi við sovézku stjórnarskrána, heldur er það einnig til þess fallið að bæta sambúð austurs og vesturs", segir Amalrik. Hann neitar því að samband vestrænna fjöl- miðla og óbreyttra borgara í Sovétríkjunum hafi aukizt verulega á þvi ári, sem liðið er frá því að Helsinki-yfirlýsingin var samþykkt. Hann skorar á vestræna stjórnmálamenn og sendiráðsmenn að blanda ekki einungis geði við fulltrúa stjórnvalda í Sovétríkjunum, heldur einnig fulltrúa al- mennings. Hann segir: „Tökum 14. júlí — Bastilludaginn, sem er þjóð- hátíðardagur Frakka, sem dæmi: Þá ætti franska sendi- ráðið að bjóða nokkrum andófs- mönnum ásamt fulltrúum hins opinbera, sem skipta hundruð- um. Nærvera andófsmannanna væri eflaust meira í anda frönsku byltingarinnar en nær- vera hinna fjölmörgu KGB- njósnara, þekktra og óþekktra, sem venjulega flykkjast i slíkar möttökur." starfsmenn sendiráðs Suður- Yemens verða yfirheyrðir vegna málsins. Bifreiðarstjóri Haihams lét lífið þegar skotið var á bifreið- ina, og ráðherrann fyrrverandi særðist á armi og í andliti. Glæpa- maður í olíutunnu Miami, Flórfda — 9. ágúst — Reuter — AP. S.L. LAUGARDAG fannst lík í oliutunnu við strönd Miami, og hefur lögreglan staðfest að lík- ið sé af John Rosselli, airæmdum glæpafor- ingja. Rosselli hvarf 28. júlí s.l. I fyrra bar hann vitni fyrir þingnefnd, sem rannsakaði njósnastarf- semi, og viðurkenndi þá að CIA hefði falið hon- um og Sam Giancana að aðstoða við að ráða Fidel Castro, forsætisráðherra á Kúbu, af dögum. Giancana var myrtur i fyrra, en það mál hefur ekki upplýstst. Lögreglan í Miami segir, að fagmenn hafi greinilega myrt Rosselli, þvf að svo var um hnútana búið að ótrúlegt var að líkið fyndist nokkurn tfma. Göt höfðu verið stungin á tunnuna og hún var vafin þungum keðjum, pn sjómenn rákust á hana skammt undan ströndinni. Nordli kemur 27. ágúst EINS og Mbl. hefur áður skýrt frá hefur rikisstjórn íslands boðið Odvar Nordli, forsætisráðherra Norðmanna, í opinbera heimsókn til tslands. Mun hann koma til íslands ásamt konu sinni hinn 27. ágúst næstkomandi. Frá þessu var skýrt opinberlega í gær með fréttatilkynningu frá forsætis- ráðuneytinu. Kofinn brennur YFIRVÖLD á Seltjarnarnesi héldu á laugardagsmorgun fund um kofa þann á Seltjarnarnesi sem sagt var frá í Mbl. á laugar- daginn, en þar hefur verið svo mikill rottugangur að nágrannar höfðu verulegan ama af. Lögregl- an hafði eitrað fyrir rotturnar og dugði ekki meinna en 50 kg af rottueitri. Á faugardaginn gaf sfðan bæjarfógetinn út þann úr- skurð að kofinn skyldi brenndur af heilbrigðisástæðum og var það gert. —Eru þeir að fá ’ann? Framhald af bls. 2 langvinsælasti spúnninn Tobí. Drýgstu veiðistaðirnir hafa verið Klöppin og brúarsvæðið (Breiðan og Aldan). Frá síð- ustu mánaðamótum hafa franskir veiðimenn stundað ána og hafði veiði þeirra fram að laugardeginum verið mjög góð eða um 50 laxar og margir þeirra mjög vænir. ÞRASTALUNDUR. Þegar við félagarnir glugg- uðum í bókina i hléinu á laugar- daginn, fundum við Þrastar- lundarveiðina snyrtilega skráða í fjórum línum á öftustu síðu. Með öðrum orðum, þá höfðu aðeins f jórir laxar veiðzt. Sérstaklega var júlíveiðin dapurleg og er bókaður samtals einn lax, 13 punda, fyrir allan mánuðinn. Við höfðum hinsvegar heppnina með okkur og náðum tveimur löxum og var sá stærri þeirra 12 pundari, jafnframt sá fyrsti á flugu á svæðinu. Hinir fimm tóku allir spún. Það má því kannske segja að veiðin þarna sé heldur að lifna eftir frekar rólega byrjun. Stærstur hinna fáliðuðu Þrasta- lundarlaxa fram til þessa var 19 punda hængur sem veiddist 4. ágúst í Kúagili. í Þrastalundar- landi er eiginlega aðeins um einn veiðistað að ræða, Kúa- gilið, og höfðu allir laxarnir að einum undanskildum veiðzt þar. Á öðrum slóðum virðist laxinn hreinlega una sér betur við Alviðrubakka fljótsins, sem sézt bezt á þvl hve drjúgir staðir Breiðan og Aldan eru frá Alviðru, en aðeins einn lax hafði veiðzt á sömu stöðum hinum megin frá. Þess má geta að á laugardaginn veiddist grá- lúsugur lax I Soginu og má af því ætla að nokkur ganga hafi verið undanfarið. BLEIKJUVEIÐI I SOGINU. Ef marka má veiðibókina hefur bleikjuveiðin verið mjög treg I sumar. Hætt er þó við að ekki megi taka bókina of alvar- lega i þeim efnum, þar sem margir veiðimenn sýna ekki silungnum þann sóma sem hann á skilið I bókhaldinu hvað sem því nú veldur. Þær fáu bleikjur sem bókaðar hafa verið í sumar hafa verið ljómandi vænir fiskar, þetta 2—3 pund yfirleitt, annars er oft mjög góð silungsveiði í Sog- inu, einkum áður en að laxinn sýnir sig á vorin. Þess má að lokum geta að I fyrra sumar veiddust í Soginu 593 laxar og 1974 veiddust 526 stk. Veiðin hefur verið vaxandi ár frá ári undanfarin sumur eftir mörg mögur ár og illa meðferð sem einkum stóð i sambandi við virkjanirnar. gug. — Kartöflur Framhald af bls. 2 Uppskeruhorfur á kartöflum í ár eru nokkuð misjafnar eftir landshlutum. Búizt er við góðri uppskeru í Eyjafirði og í Hornafirði en á Suðurlandi urðu viða verulegir skaðar á kartöflugörðum i vor vegna hvassviðris og er ekki gert ráð fyrir að uppskera þar verði nema í meðallagi. Eðvald B. Malmquist, yfirmatsmaður garðávaxta, sagði i gær að gera mætti ráð fyrir að uppskeran í ár yrði um 80 til 90 þúsund tunnur, ef ekki brygði til hins verra með veðráttuna. Sagði hann að þessi uppskera ætti að nægja landsmönnum fram i marz eða april á næsta ári. Landsmenn neyta árlega um 120 þúsund tunna af kartöflum og má nefna að i fyrra var uppskera kartaflna mjög léleg eða aðeins 50 þúsund tunnur en árið áður varð metuppskera, 100 þúsund tunnur. Blaðamaður Mbl. ræddi í gær við nokkra kartöflubændur og leitaði frétta af uppskeruhorf- um í ár. Sævaldur Valdimars- son, Sigluvik á Svalbarðseyri, sagðist hafa byrjað að taka upp á sunnudag og mjög góðar horfur væru nú með kartöflu- uppskeruna. Hann bjóst við að menn færu sér þó hægt við að taka upp fyrstu dagana. Sagði Sævaldur að uppskeran væri nú þremúr vikum- til hálfum mánuði fyrr á ferðinni yfirleitt og þó talað hefði veið um met- uppskeru árið 1974, sagðist hann gera ráð fyrir milli 30 til 40% meiri uppskeru hjá kartöflubændum i Eyjafirði i ár. Almennt verður hafizt handa við að taka upp kartöflur í Eyjafirði í byrjun september. Tók Sævaldur fram að þá mætti gera ráð fyrir að kartöflurnar hefðu náð hámarks sprettu og tækju þá að springa og skemmast. Yngvi Markússon, Oddsparti i Þykkvabæ, sagði að erfitt væri að segja fyrir um hvernig upp- skera kartaflna í Þykkvabæ yrði i haust. Bæði er að veruleg- ar skemmdir urðu á garðlönd- um um Jónsmessuleytið vegna hvassviðris og siðustu dægur hefði verið mikið úrfelli þar, og ef ekki tekur að þorna má gera ráð fyrir að úrkoman dragi úr uppskerunni. — Annars vantar okkur aðallega sólina og það er öruggt að uppskeran hér í Þykkvabænum verður ekki meiri en i meðalári og ég gæti nefnt 35 þúsund tunnur. Hér verður ekki farið að taka upp fyrr en upp úr mánaðamótum ágúst—september, sagði Yngvi að lokum. — Vöruskipta- jöfnuður Framhald af bls. 32 fyrir 8.097,5 milljónir, en inn fyr- ir 8.082,3 milljónir króna í júní- mánuði. Þar af var útflutningur álmelmis fyrir 1.457 milljónir króna. Af innflutningnum frá áramótum eru skip fyrirferðar- mest eða að verðmæti 1.262,7 milljónir króna, flugvélar 46,5 milljónir og til raforkufram- kvæmda 204,4 milljónir króna. Þá nam innflutningur til íslenzka ál- félagsins h.f. 279,4 milljónum króna. Þá ber að geta þess, að við samanburð við utanríkisverzl- unartölur 1975 verður að hafa í huga, að meðalgengi erlends gjaldeyris í júní 1976 er talið vera 10,4% hærra en þaö var í sama mánuði 1975, og i janúar-júr' 1976 14,5% hærra. — Nytin Framhald af bls. 32 um í heild hafi la'kkað um 20 lítra á dag, sagði Sveinn Sig- mundsson, f jósameistari í Laugardadum í Hraungerðis- hreppi í samtali við Mbl. í gær. Sveinn sagði að veðráttan væri nú með þeim haUti að kýrnar tylldu illa á beit og vart væri því um annað að ræða en hýsa þær að einhverju leyti og gefa þeim. — Á þessum tíma er ekki hægt að ná nytinni hjá kúnum upp sem nokkru nemur, þó ættu þær að rétta nokkuð við ef veðrið skánar. Magnús Sigurðsson í Birt- ingaholti í Hrunamannahreppi sagði að kýrnar hjá sér hefðu tapað nytinni verulega í rigningunum síðustu daga. — Þessi minnkun kemur nú fyrr en undanfarin ár og það er ekki gott útlit fyrir að hægt verði að ná upp nytinni á ný. Hjá mörgum bændum verða lítil not af háarsprettu, vegna þess hversu heyskapur hefur gengið stirðlega en háin hefur oft komið í góðar þarfir, þegar tið versnar á haustin. Bændur verða því margir hverjir fyrir tilfinnanlegu fjárhagstjóni af þessum sökum, sagði Magnús að lokum. —Milljón stolið Framhald af bls. 32 reglan véiina á Mallorka eftir aðeins tvo daga. Ingólfur Guðbrandsson sagði að almenningi stæði ógn af þeirri innbrota- og afbrotaöldu, sem nú virtist riða yfir íslenzkt þjóðfélag. Stórinnbrot væru framin og enginn virtist óhultur. „Nauðsyn ber til,“ sagði Ingólfur," að almenningur bindist samtökum um að hafa hendur í hári þessa óaldarlýðs. Og til þess að hvetja fólk til að vera vel á verði og í þvi skyni að reyna að fá þetta innbrot hjá Útsýn upplýst hef ég ákveðið að veita þeim sem kemur lög- r.eglunni á sporið þannig að þjóf- urinn náist, veruleg verðlaun, sólarlandaferð fyrir tvo eftir eig- in vali.“ — Veðrabreyting Frámhald af bls. 32 Samkvæmt upplýsingum Knúts Knudsens veðurfræðings var i gær ekki hægt að sjá fyrir neina breytingu á þessu veðurlagi. Áfram verður sem sagt vætutið á Vestur- og Suðurlandi og fyrir norðan og austan verður áfram sama bjartviðrið. Á Akureyri var í gær 15 stiga hiti, einnig á Sauð- árkróki og á Egilsstöðum. Þá var 17 stiga hiti á Vopnafirði. Reyk- víkingar urðu hins vegar að láta sér nægja 9 stig. — Stríðshætta Framhald af bls. 1 Samkvæmt skoðanakönnun í kvöldblaði i Aþenu mundu flestir íbúar höfuðborgarinnar styðja valdbeitingu í deilunni við Tyrki. Panayotis Lamrias, blaðafull- trúi grísku stjórnarinnar, sagði að Grikkir mundu einnig fara þess á leit við Alþjóðadómstólinn í Haag að hann kvæði upp úrskurð um mörk landgrunnsins á Eyjahafi. - Lá ósjálfbjarga Framhald af bls. 32 Að sögn Pálma hefur bróðir mannsins, sem einnig er á gam- als aldri, helzt samband við þennan gamla mann, sem hér um ræðir. En vegna lasleika hafði hann ekki komizt til hans alla siðustu viku. Það var svo síðdegis á laugardag, að komið var að manninum. Var þá rétt aðeins lífsmark með honum. Hann bærði aðeins -varirnar, eins og hann vildi segja eitt- hvað en hann gat ekki komið upp nokkru orði. Lögregla og sjúkralið voru þegar kvödd á vettvang og var gamli maður- inn fluttur undir eins á Landa- kotsspitala. Hann er mikið veik- ur, lamaður hægra megin eftir heilablóðfallið og með legusár á höfði og mjöðm, því hann hefur allan tímann legið i sömu stell- ingum. Mátti sjá á ummerkjum, að maðurinn hafði reynt að krafsa i kringum sig en ekkert getað hreyft sig úr stað. Þar sem maðurinn lá, hafði linoleum-gólfdúkur bráðnað. Maðurinn er enn rænulaus og talinn i lifshættu. 14 særðust í sprengjutilræði í Kaíró: Hugsanlegt að Líbýu- menn hafi verið að verki Kafró — 8. ágúst — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.