Morgunblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. AC.ÚST 1976
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreíðsla
Auglýsingar
Áskriftargjald 1000.00
í lausasölu 50
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen.
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjórn Guðmundsson.
Bjórn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, simi 10100
Aðalstræti 6, simi 22480
kr. á mánuði innanlands.
00 kr. eintakið.
Samstjórn Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokksins
hefur nú setið að völdum ! hart
nær tvö ár. Rétt þykir í örfáum
orðum að minna á undanfara
þessarar stjórnar, þær forsend-
ur sem leiddu til stjórnarsam-
starfsins og þann árangur, sem
eftir stjórnina liggur
Svo sem kunnugt er gliðnaði
vinstri stjórnin sundur vegna
öngþveitis í efnahagsmálum og
innbyrðis sundurþykkju
Minnsti stjórnarflokkurinn,
Samtök frjálslyndra og vínstri
manna, var sá hlekkurinn, sem
fyrst brast, en ..málmþreytu"
gætti í þeim öllum. Fyrir-
hyggjulítil stjórn efnahags-
mála, að viðbættri erlendri
verðbólgu og versnandi við-
skiptakjörum er kom fram á
árið 1974, hafði leitt þjóðina
fram á brún efnahagslegs
gjaldþrots Gjaldeyrisvarasjóð-
ur þjóðarinnar var þurrausinn
eftir margra ára góðæri, erlend-
ar skuldir teknar að hlaðast
upp, ríkissjóður rekinn með
vaxandi halla, verðbólga komin
yfir 50% á ársgrundvelli,
rekstrarstaða atvinnugreina
þjóðarbúsins verri en um árabil
—- og við blasti hugsanlegt
atvinnuleysi, sam alþjóðlegur
kreppuvottur gerði að stað-
reynd í flestum nágrannaríkj-
um okkar
Að loknum kosningum á ár-
inu 1 974 var á ný reynd mynd-
un vinstristjórnar. Vilji til mynd-
unar slikrar stjórnar, eftir það
sem á undan var gengið, mun
þó hafa verið takmarkaður,
jafnvel í Alþýðubandalaginu,
enda á orði haft i Tímanum, að
einn helzti forvigismaður þess
hefði brugðið sér i laxveiði
meðan á stjórnarmyndunarvið-
ræðum stóð. Úrslit nýlega af-
staðinna Alþingiskosninga, þar
sem Sjálfstæðisflokkurinn vann
verulega á, bentu heldur ekki
til þess að slik stjórnarmyndun
væri í samræmi við þjóðarvilja.
Tilraunin fór þvi út um þúfur
Ástand efnahagsmála krafð-
ist þess hins vegar að mynduð
yrði þá þegar ábyrg ríkisstjórn,
er tækist á við vandann á þeim
vettvangi, sem og önnur nær-
tæk verkefni: útfærslu fisk-
veiðilandhelginnar, að tryggja
atvinnuöryggi í landinu og
bæta fyrir vanrækslu liðínna
ára varðandi virkjun og nýtingu
innlendra orkugjafa.
Sjálfstæðisflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn eru ólíkir
um margt og höfðu elt grátt
silfur saman um langan aldur.
Engu að síður var ekki öðru
stjórnarsamstarfi til að dreifa,
eins og á stóð, og flokkarnir
öxluðu þá ábyrgð sem þjóðín
hafði lagt á þeirra herðar við
kjörorðið sumarið 1974. Hin
nýja ríkisstjórn tók hins vegar
við erfiðu búi og risavöxnum
vandamálum, sem þegar í önd-
verðu var sýnt að taka mundi
mörg ár að leysa eða greiða úr.
Margt hefur áunnizt í stjórn-
arsamvinnunni á liðnum tveim-
ur árum Fiskveiðilandhelgin
var færð út i 200 sjómílur og
erfitt og hættulegt þorskastríð
leitt farsællega til lykta með
sigursamningum, eftir að land-
helgisgæzlan hafði verulega
styrkt samningsaðstöðu okkar í
hörðum átökum. Réttur okkar
til veiðistjórnunar innan 200
sjómílna er nú viðurkenndur af
öllum, þ.á m. helzta andstæð-
ingi okkar á þessu sviði, Stóra-
Bretlandi. í árslok, er sex mán-
aða samningar við Breta renna
út, má segja, að réttur okkar sé
algjör. til þeirra ráðstafana, er
við teljum þörf á. Fiskverndar-
sjónarmiðum hefur verið fylgt
eftir með löggjöf um nýtingu
fiskveiðilandhelginnar og
margháttuðum • reglugerðum
um friðunarsvæði, veiðarfæri
og veiðisókn. Híns vegar hefur
orðið, vegna viðblasandi efna-
hagslegra staðreynda, að meta
fiskverndunaraðgerðir frá fleiru
en einu sjónarhorni. Verulegi
fjármagni hefur og verið varið
til fiskleitar og tilraunavinnslu.
Rannsóknir og framkvæmdir
á sviði orkumála, á sviði vatns-
aflsvirkjana, tengingar orku-
svæða og jarðvarmanýtingar
hafa ekki í annan tíma verið
meiri, þrátt fyrir erfiða stöðu í
ríkisfjármálum. Hitaveita i ná-
grannabæjum Reykjavíkur, á
Reykjanesi, byggðalína norður,
og virkjunarframkvæmdir i öll-
um landsfjórðungum tala sínu
málí i því efni.
Margháttuðum aðgerðum
hefur verið beitt á sviði efna-
hagsmála og ríkisfjármála og
horfur eru á að hallalaus ríkis-
búskapur náist á þessu ári — í
fyrsta skipti um árabil.
Þjóðin sýndi hug sinn til
vestræns varnarsamstarfs á
ótvíræðan hátt, bæði í Alþingis-
kosningunum 1974 og í al-
mennri undirskriftasöfnun. Nú-
verandi ríkisstjórn hefur tryggt
framgang þjóðarviljans í þessu
efni meðfarsælum hætti.
Þrátt fyrir innflutt og heima-
tilbúin vandamál á sviði efna-
hags- og atvinnumála hefur
tekizt að tryggja atvinnuöryggi
um land allt. Þannig hefur full
atvinna verið hér til staðar á
sama tima og víðtækt atvinnu-
leysi herjar á flestar þjóðir
Vestur- og Norður-Evrópu. Þó
ekki væri nema þessi árangur
einn af núverandi stjórnarsam-
starfi þá væri hann bæði um-
tals- og þakkarverður við þær
aðstæður sem ríkisstjórnin hef-
ur þurft að starfa við.
Siðustu mánuði hafa batn-
andi viðskiptakjör leitt til veru-
lega minni viðskiptahalla þjóð-
arinnar út á við en á liðnum
misserum og árum. Nauðsyn-
legt er að nýta hærra afurða-
verð nú til að ná enn betri
árangri á þeim vettvangi sem
og að grynnka á erlendri
skuldasöfnun. Hærra afurða-
verð hlýtur að renna fyrst um
sinn til að greiða umframeyðslu
okkar á liðnum árum.
Erfiðlegar hefur gengið að
ráða niðurlögum verðbólgunn-
ar, þó einnig þar hafi nokk*ur
árangur náðst, einkum á síð-
ustu mánuðum liðins árs. En
fulla atvinnu hefur þjóðin að
nokkru leyti keypt með hóflegri
verðbólguhömlum en víða er-
lendis. Enginn vafi er þó á því,
að baráttan gegn verðbólgunni
hlýtur að verða eitt höfuðvið-
fangsefni stjórnvalda i næstu
framtíð, ef þau þekkja sinn
vitjunartíma. Áframhaldandi
aðhald í samneyzlu er og óhjá-
kvæmilegt sem og að leiðrétta
skattalöggjöf okkar til sam-
ræmis við réttlætiskennd þjóð-
arinnar.
Menn hafa að sjálfsögðu
mismunandi skoðanir á og af-
stöðu til núverandi rikisstjórn-
ar. Enginn sanngjarn maður
getur þó annað en viðurkennt
að henni hafi um flest vel til
tekizt, miðað við aðstæður í
þjóðarbúinu og viðskiptakjör út
á við Haldi stjórnin jafn vel á
spilum siðara helming kjörtima-
bils síns þarf hún ekki að kvíða
dómi þjóðarinnar.
Hálfnað kjörtímabil
éStót. THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER
Hræðsla við jarðskjálfta
grípur um sig í Tokyo
Næturmynd frá Tokyo
TOKYO — Þráfaldlega hefur því
verið spáð, að miklar og alvarlegar
jarðhræringar verði í höfuðborg
Japans innan tíðar. Ef þeir spá
dómar reynast á rökum reistir,
hvernig fer þá fyrir borgarbúum,
sem eru 12 milljónir talsins? Eru
líkur til þess, að meirihluti þeirra
komist lífs af? Á þessari öld hefur
Tokyo verið endurbyggð tvívegis.
Í fyrra skiptið lögðu jarðskjálftar
hana i rúst, og i siðara skiptið var
hún endurbyggð eftir að hafa orð
ið illa úti i sprengjuregni síðari
heimsstyrjaldarinnar. Eins og sak
ir standa er mjög erfitt að koma
þar við slysavörnum eða vinna
raunhæft hjálparstarf.
„Stóri skjálftinn" gæti komið
hvenær sem er að áliti Kozo Kim-
ura jarðskjálftafræðings, en hann
starfaði til skamms tíma við jarð-
skjálftadeild veðurfræðistofnunar
innar i Japan. Kimura er jafnvel
svo sannfærður um, að hans sé
ekki langt að bíða, að hann hefur
flutzt búferlum langt frá höfuð-
borginni. Sumum kann að virðast
þetta tiltæki hans harla sérvizku-
legt, en hann er hins vegar ekki
einn um þá skoðun, að snarpur
jarðskjálfti geti orðið í Tokyo inn-
an tiðar, heldur er það samdóma
álit flestra jarðskjálftafræðinga.
,, Jarðskjálftinn mun hafa
ómældar hörmungar i för með
sér," segir Kimura. ,,Afleiðíngarn
ar verða ekki einungis þær, að hús
og stórbyggingar hrynja unnvörp
um, heldur mun vatnsveita og
orkuveitukerfi að líkindum fara úr
skorðum og þungamiðja þessarar
stórborgar bresta gersamlega."
Þegar jarðskjálftarnir miklu
urðu i Tokyo árið 1923, létu
140.000 manns lífið. Á þeim
eftir Mark
Murray
tima, sem siðan er liðinn, hefur
ibúafjöldi borgarinnar rúmlega
þrefaldast, og tíu sinnum fleiri en
þá búa að meðaltali á hverjum
ferkilómetra Þá er umferð á göt-
um borgarinnar fjögurþúsundfalt
meiri en árið 1923.
Samkvæmt opinberum áætlun-
um myndi a.m.k. hálf milljón
manna láta lifið í Tokyo og
grennd, ef mikill jarðskjálfti riði
þar yfir. Þykja þessar áætlanir
bera vott um talsverða bjartsýni,
og Keihachiro Shimizu prófessor i
Chiba, telur að allt að því 10
milljónir manna gætu látið lifið í
jarðskjálftum á þessu svæði.
Slysavarnaráð ríkisins telur, að
um 30.000 eldar muni brjótast út
samtimis, ef jarðskjálfti verður á
matmálstíma.
Hinn griðarlegi vöxtur Tokyo-
borgar hefur magnað stórlega þau
vandamál, sem af jarðskjálfta
kynnu að hljótast. Jarðskorpan,
sem borgTn stendur á, hefur aldrei
verið álitin sérlega traust, og ekki
hefur það bætt úr skák, að lagðar
hafa verið griðarmiklar neðanjarð
arbrautir og stór verzlunarhverfi
hafa verið reist neðanjarðar. Sum
helztu verzlunarhverfi borgarinnar
standa á landssvæðum, sem ræst
hafa verið fram.
Borgarstjórn Tokyo telur, að
jarðskjálfti, sem upptök eigi í
námunda við Tokyo, myndi leggja
i rúst öll mannvirki i tveggja kíló
metra radíus, áður en eldarnir
myndu brjótast út. Að sjálfsögðu
myndi algert öngþveiti skapast á
götum borgarinnar, en um þær
fara daglega um 2.5 milljónir öku-
tækja.
Litið hefur farið fyrir skipulagn-
ingu bæja og borgarhverfa i Japan
og ægir þar öllu saman. í Tokyo
eru iðnaðar- og íbúðarhverfi sam-
tengd og tvinnuð á furðulegasta
hátt. í iðnaðarhéraðinu Keihin,
sem stendur við Tokyoflóa á milli
stórborganna Tokyo og Yoko-
hama, er aðeins steinsnar á milli
íbúðarhúsnæðis annars vegar og
verksmiðja, birgðastöðva og olíu
hreinsunarstöðva hins vegar.
Skipulagsmálaráðuneytið hefur þó
gert kunnugt, að heppilegra sé að
hafa gott bil á milli íbúðarhúsnæð
is og iðnfyrirtækja.
Fyrir tveimur árum var skýrt frá
þvf í opinberri skýrslu hver yrðu
afdrif fbúanna á þessu svæði, ef til
alvarlegra náttúruhamfara kæmi,
og voru það ófagrar lýsingar. Var
því spáð, að sprengingar í olíu
geymum myndu granda þeim
flestum, en þeir sem eftir lifðu,
myndu fljótlega !átast af völdum
eiturgass og annarra eiturefna,
sem dreifast myndu yfir svæðið.
Úthverfin við Tokyo austan
verða, sem eru afar þéttbýl,
standa verst að vigi, ef jarðskjálfti
verður, en þau eru mörg undir
sjávarmáli. Varnaraðgerðir beinast
nú mjög að þvi að treysta flóð-
garða til að reyna að koma í veg
fyrir að sjávarföll færi landið í kaf.
Rikisstjórnin hefur mjög ein-
dregið hvatt fólk til þess að geyma
matvæli og lyfjabirgðir á hand
hægum stöðum til að gripa til, ef
til jarðskjálfta kæmi. Hefur fólk
almennt orðið við þeirri beiðni, að
því er talið er. Mjög brýnt er að
útbúa skýli og byrgi fyrir fó!k, ef
önnur óhöpp fylgja i kjölfar jarð-
skjálftans, svo sem eldar, flóð og
annað þess háttar. Gert hefur ver-
ið ráð fyrir, að fólk geti leitað
hælis á ýmsum opnum svæðum i
borginni, en það er álitamál, hvort
þau reynast fullnægjandi sem slík,
ef mikil skelfing og ringulreið
skapast.
íbúar Sumida Ward, sem er eitt
af austustu úthverfum Tokyo, þar
sem flóðahættan er mest, eiga
samkvæmt nýjustu áætlunum að
leita skjóls á opnu svæði fyrir
framan keisarahöllina. Þurfa þeir
því að fara um 7 km vegalengd, og
getur ferðin tekið nokkrar klukku-
stundir fyrir börn og lasburða fólk,
enda þótt allt sé með felldu.
Menn binda nú vonir við, að
manntjóni verði helzt afstýrt með
góðu og traustu viðvörunarkerfi
gegn jarðskjálftun.
Veðurfræðistofnunin hefur
ákveðið að setja upp 20 hárnæma
jarðskjálftamæla víðs vegar um
landið. Þegar hafa fjórir verið sett-
ir upp og hafa sannað gildi sitt
með þvi að segja nákvæmlega fyr-
ir um jarðhræringar.
Jarðskjáíftamælar þessir eru
bandariskir að gerð og voru upp-
haflega notaðir til að mæla jarð-
hræringar vegna kjarnorkuspreng
inga neðanjarðar. Þeir sýna hinar
minnstu hreyfingar á jarðskorp-
unni.
Á hinn bóginn lætur almenning-
ur sér ekki nægja nýjustu tækni
og vísindi i þessum efnum. Hann
leitar trausts í alls konar forspám
og fyrirboðum, eftir því sem
hræðslan magnast.
Hiroyoshi Mukihara er 75 ára
að aldri og hefur alla ævi reynt að
segja fyrir um jarðhræringar
Hann segist sjá sérkennilegan
regnboga 5—24 klukkustundum
fyrir jarðskjálfta. Siðasta spá hans
skeikaði aðeins um 20 minútur,
en þá sagði hann með dags fyrir-
vara fyrir um nokkuð snarpan
jarðskjálfta íTokyo.
Framhald á bls. 25