Morgunblaðið - 11.08.1976, Page 16

Morgunblaðið - 11.08.1976, Page 16
16 MORC.UNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. AGÚST 1976 Hafnarfjörður: Menn gerðir ábyrgir fyrir brotum á banni gegn hundahaldi HEILBRIGÐISYFIRVÖLD Hafnarfjarðar hafa auglýst I fjöl- miðlum gildandi reglur um hundahald f Hafnarfirði, en f fréttatilkynningu frá þeim, sem Mbl. hefur borizt, segir, að það sé alvarleg staðreynd, að reglur, sem settar hafa verið um hundahald vfðs vegar um land, hafi verið brotnar. Á fundi heilbrigðisráðs Hafnarf jarðar fyrr f þessum mán- uði var eftirfarandi bókun gerð f þeirri von að menn sýni þann þegnskap að virða þær reglur, sem settar hafa verið, og taki þar með tillit til samborgara sinna: „6. júlf árið 1971 var staðfest af heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu ný samþykkt um hundahald i Hafnarfirði.sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafði áður lagt fram og samþykkt. í henni er m.a. kveðið svo á, að hundahald skuli bannað i lög- sagnarumdæmi Hafnarfjarðar. Undanþágur var þó hægt að veita blindu fólki til að hafa leiðsögu- hund, svo og hjálparsveitum að hafa leitarhunda með samþ. heil- brigðisnefndar. Ennfremur var veitt heimild til bæjarráðs að leyfa þeim einstaklingum, sem búsettir voru í kaupstaðnum 1. jan. 1971, og áttu þá hund, að hafa hundinn svo lengi, sem honum entist aldur til, þó með ströngum skilyrðum. Þegar samþ. sú, sem hér hefur verið nefnd var gerð, voru skráðir hundar samtals 22 og hefur þeim af eðlilegum orsökum fækkað. Hins vegar er það stað- reynd, að þrátt fyrir ábendingar um gildandi reglur f fjölmiðlum og með öðrum hætti, s.s. með ftar- legri greinargerð varðandi hunda- hald og vandamál því samfara, sem unnin var af héraðslæknum og heilbrigðisfulltrúum á höfuð- borgarasvæðinu á sl. ári, og beint var til ráðamanna og almennings, þá verður þrátt fyrir það ekki annað séð en að hundum hafi fjölgað undanfarið. Heilbrigðis- yfirvöld Hafnarfjarðar skora þvf á alla, sem eru með hund án leyf- is, að virða settar reglur, sem banna slíkt hundahald. Verði hins vegar ekki tekið tillit til aðvarana heilbrigðisyfirvalda á þann hátt, sem fullnægir gildandi samþ. um hundahald, fyrir júlflok á þessu ári, þá mun þess verða krafizt að viðkomandi yfirvöld sjái um að þeir, sem brotlegir gerast sæti ábyrgó að lögum.“ útséð væri um, að hægt yrði að útkljá málið með vopnavaldi, og Palestfnuarabar og Líbanar hefðu vopnabirgðir til að halda styrjöld- inni áfram I mörg ár, Chaoui sagði, að bezta leiðin til að binda enda á blóðbaðið í landinu væri sú, að Sýrlendingar hyrfu á brott með herlið sitt, og Líbanar yrðu látnir sjá um friðarsamninga sjálfir. — Bella Framhald af bls. 1 Löngueyju, og geisaði stormur- inn þar með 145 kílómetra hraða á klukkustund. Veru- lega hafði dregið úr vindhrað- anum þegar Bella kom yfir Vermont og Massachusettes i dag. Tré rifnuðu upp með rótum í Connecticut og Löngueyju. Flóðbylgjur skullu á nokkrum húsum og skemmdust þau nokkuð, en ekkert hús eyði- lagðist. Rafmagnslfnur slitn- uðu víða, en búizt er við að viðgerðum á þeim ljúki f dag. Þar sem vindhviðurnar urðu harðastar lágu trjástofnar þvert yfir aðalumferðaæðar, og olli það nokkrum töfum þegar fólk var að fara til vinnu í morgun. — 300 féllu Framhald af bls. 1 til. Árásin hefur mælzt vel fyrir f Rhódesfu, og er henni þar jafnvel líkt við árás ísraefsmanna á Ent- ebbe flugvöll í Uganda á dögun- um. Erlendir fréttamenn f Rhódesfu telja, að hér sé um að ræða mann- skæðustu átök við l^ndamærin frá því að skæruliðar reyndu að steypa stjórn Ian Smiths af stóli árað 1972. Öljósar fregnir hafa borizt af þvf, að 60 til 80 Frelimo-hermenn hafi gert árás á rhódesískar her- búðir í Inyangafjöllum s.l. fimmtudag og hafi þar verið beitt eldflaugum og stórskotaliði. Sög- ur fara ekki af mannfalli, en Rhódesíumenn segja, að Frelimo hafi ekki valdið meiriháttar óskunda. — Mjólkurbúðir Framhald af bls. 2 þjónustu við neytendur, þar sem stór svæði yrðu trúlega mjólkurlaus, eftirlit með mjólkurvörum versnaði og verð trúlega hækkaði. Þá bentu fundarmenn einn- ig á að þeir sem harkalegast yrðu fyrir barðinu á þessari lokun, væru gamalt fólk og lág- launafólk, sem byggi í gömlu bæjarhlutunum og hefði ekki bfl til umráða. Samþykkt var að hefja sam- eiginlega baráttu starfsstúlkna f mjólkurbúðum og áhugafólks úr hópi neytenda til að fá Mjólkursöluna til að halda rekstri búðanna áfram. Til að skipuleggja starfið var kosinn starfshópur, sem í eiga sæti 4 starfsstúlkur og 3 úr hópi neyt- enda. Nú hefur verið ákveðið að boða til opins fundar þeirra, sem leggja vilja lið baráttunni gegn lokun mjólkurbúða, og verður hann I Lindarbæ fimmtudagskvöldið 12. ágúst kl. 20.30. — 77 árgerðin Framhaldaf bls. 2 um 2,4 millj. kr. og gert væri ráð fyrir 6% hækkun f haust. Hins vegar fengju þeir nú Volvo 66 og Volvo 343. Fimm bílar af gerðinni Volvo 66 væru reyndar komnir til landsins og kostuðu 1500 þús., en fyrsti bíllinn af Volvo 343 kæmi til landsins í september. — Sá bill mun kosta um 1900 þús. kr. og nú þegar er hreint gífurleg eftir- spurn eftir þeim bfl, sagði Asgeir. Hann kvað Velti vera búinn að selja um 120 bfla það sem af væri árinu og væri það miklu meiri sala en þeir hefðu átt von á í upphafi árs. Halldór Kristinsson hjá Heklu kvað fyrirtækið eiga von á fyrstu bílunum af árgerð 1977 í október- nóvember, og vitað væri um 4% hækkun á bilunum þá. —Salan hjá okkur hefur gengið mjög vel og er orðinn 20% meiri en á sama tfma í fyrra og við gerum ráð fyrir að selja 320 til 330 bila á árinu. Hekla flytur einkum inn bíla frá Volkswagen eins og Golf, Passat og Audi, ennfremur verð- ur að sjálfsögðu haldið áfram að flytja inn gömlu góðu bjölluna, sagði Halldór. Þorbergur Guðmundsson hjá Sveini Egilssyni h.f. sagði, að fyrstu bílarnir frá Ford f Banda- rikjunum kæmu sennilega í sep- tember og ennfremur myndi 77 árgerðin af Escort og Granada koma til landsins f september frá Evrópu. Á hinn bóginn kæmi 1977 árgerðin af Cortinu ekki fyrr en í október til nóvember. Ekki kvað Þorbergur alveg séð hverjar hækkanir yrðu á bflunum en 5—8% væri nokkuð sennilegt. — Það verða ekki miklar breyt- ingar á Ford bílum, hvorki banda- rfskum né evrópskum, Þó er ein undantekning, en það er Cortina, sem kemur á markaðinn f breytt- um búningi. Sveinn Egilsson hefur flutt hátt f 500 bfla til landsins á þessu ári og hefur fyrirtækið vart getað annað eftirspurn af ýmsum ástæðu'm. — Afbragðsafli Framhald af bls. 28 afla. Afli dragnótabátanna var nokkuð jafn allan mánuðinn. I júlí voru gerðir út 156 (156) bátar til fiskveiða frá Vestfjörð- um, 114 (117) stunduðu veiðar með handfæri, 25 (18) réru með línu, 7 (11) með dragnót og 10 (10) með botnvörpu. Heildaraflinn i mánuðinum var nú 7.479 lestir, en var 5.114 lestir f júlímánuði f fyrra. Er heildarafl- inn á sumarvertíðinni þá orðinn 13.659 lestir, en var orðinn 11.790 lestir á sama tfma f fyrra. Af heildaraflanum í júlí var afli skuttogaranna 4.453 lestir. Er afli skuttogaranna á sumarvertíðinni þá orðinn 7.891 lest eða um 58% af heildaraflanum, sem borizt hefir á land. — Spinola Framhald af bls. 1 hann af forsetaembætti. Snemma árs 1975 var hann ákærður fyrir þátttöku í mis- heppnaðri stjórnarbyltingu hægri aflanna, og flúði þá land. Hann var sviptur hershöfð- ingjatign og skipun um hand- töku hans gefin út. Hann settist að f Brasilíu og hefur dvalizt þar síðan. Mario Soares forsætisráð- herra Portúgals hefur látið f ljósi þá skoðun, að Portúgalir eigi að láta hina misheppnuðu byltingartilraun hægri manna svo og samskonar aðgerðir vinstri manna, sem fóru út um þúfur í nóvember á sfðasta ári, falla í gleymskunnar dá. Aðrir herforingjar sem þátt tóku í byltingartilraun hægri manna árið 1975, eru nú frjálsir í Portúgal. — Skrímslið Framhald af bls. 1 þegar borið þann árangur að hún væri ekki lengur brandari heldur alvörumál. Þótt ekki tækist að finna Nessie með hinum fullkomnu tækjum leiðangursmanna segir Rines að tveir menn á báti hafi séð Nessie um miðjan sfðasta mánuð. Þeir sögðust hafa verið umkringdir af fimm kryppum svo Nessie virtist ekki vera ein á ferð. Dr. Rines segir rannsóknirn- ar hafa leitt i ljós að nokkur skrímsli séu í vatninu og þótt þau hafi ekki komið nógu nærri til þess að hægt væri að taka af þeim ljósmyndir hafi verið lagður grundvöllur að árang- ursríkri rannsókn f framtfð- inni. Tveir Skotar munu hafa dag- legt eftirlit með hlustunarstöð- inni. Ef eitthvað óvenjulegt gerist fara starfsmenn vísinda- stofnunarinnar í Boston til Loch Ness til að kanna málið. Jóhannes skoraði - en Celtic tapaði GLASGOW liðin tvö, Rangers og Celtic kepptu I gær f úrslita- keppni liðanna f borginni um „Glasgow Cup“. Rangers vann leikinn með þrem mörkum gegn einu. Jóhannes Edvaldsson skor- aði eina mark Celtic f leiknum. 1 keppninni, um „Glasgow Cup“ taka aðeins þátt félögin fimm f borginni, en þau eru auk Rangers og Celtic, Queenspark, Partick Thistle og Clyde. — Ylræktarver Framhald af bls. 28 ingar en einnnig aðrar blómplönt- ur fyrst f stað. Framleiðslan yrði flutt flugleiðis til HoIIands með vikulegum ferðum. Aætlað er að 20—30 manns mundu vinna við verið. Að sögn dr. Björns hefur stærð og gerð gróðurhúsanna f vérinu verið ákveðin, en eftir er að ákveða gerð hitalagna, þar 'sem þær verða að vera frábrugðnar þvf sem Hollendingarnir eru van- ir vegna aðstæðna hérlendis. Sagðist dr. Björn Búast við þvf að héðan færi verkfræðingur á næst- unni til að ganga frá þessu atriði. Hollenzka fyrirtækið Voskamp en Vrijland hefur samvinnu við blómasölufyrirtækið Moolenaar, sem er stór aðili á hollenzka blómamarkaðinum, en sá markað- ur er, sem kunnugt er einn sá stærsti sinnar tegundar í heimi. Fyrirtækið reisir árlega gróður- hús á um 400 hekturum lands. I samningsdrögum þeim sem nú liggja fyrir er ráðgert að Hollend- ingarnir annist markaðsmál og sölu afurða ylræktarversins, auk þess að reisa húsin og eiga fjórð- ung fyrirtækisins. Dr. Björn Sigurbjörnsson sagði að lokum að ef í byggingu ylrækt- arversins yrði ráðizt og vel tækist til með rekstur þess, gæti það orðið byrjun á stórfelldri hagnýt- ingu jarðvarma á tslandi til út- flutningsframleiðslu á þessu sviði. — Varað við Framhald af bls. 15 konur á þessu svæði séu komnar þrjá mánuði á leið. Italska stjórnin hefur sagt að hún muni ekki leggjast gegn fóstureyðingum á svæðinu þar sem lög heimili slíkt i tilfellum sem þessum. Kaþólska kirkján hefur harðlega gagnrýnt þessar hugmyndir og lýst eftir sjálfboða- liðum til að taka vansköpuð börn í fóstur. Stjórnin úthlutaði i dag 40.000 milljónum lfra í aðstoð til svæðis- ins. I Seveso hófu verkamenn búnir grfmum og hlffðarfötum brottflutning hættulegra eitur- efna úr svissnesku verksmiðjunni sem eitrið lak úr eftir sprengingu. — Tónlistarfólk Framhald af bls. 5 komu á óvart. „Xanties" eftir Atla Heimi Sveinsson sýndi okkur nútfmatónlistina í öllum sínum margbreytileik bæði I blæstri, hljómum, tali og söng og úr varð hrffandi og spennandi heild. Hér var leikið f dimmum sal við logandi kertaljós til þess að fram- kalla Ijóðræna og „mystiska stemmningu“, og það eina, sem að má finna, er, að textinn, sem lista- mennirnir flytja, heyrðist illa í hinum stóra sal. En þrátt fyrir þessa vöntun, var bæði tónlistin og flutningurinn frábær fulltrúi fyrir nýja norræna og islenzka tónlist.“ Gagnrýnin í „Politiken“ er mjög á sömu leið. Ber hún yfir- skriftina „Unaður með flautu og flygli". Hollendingur reynir að lagfæra Perlu „ÞAÐ hefur ýmislegt komið á daginn, sem ekki var nógu vel gert úti I Hollandi og maður frá fyrirtækinu IHC Smit Engeering, er nú að reyna koma þessu heim og saman," sagði Halldór Jónsson stjórnarformaður Námunnar hf. þegar Morgunblaðið spurði hann hvort eitthvað hefði kornið út úr athugunum Hollendinganna á breytingum á Perlu, en sem kunnugt er hefur skipið vart komizt frá bryggju frá þvf það kom úr breytingunum vegna lélegrar vinnu og svika að sögn eigenda skipsins. Halldór sagði, að komið hefði i ljós, að ýmsir hlutir hefðu verið vitlaust settir saman og ynni nú Hollendingurinn að því að koma Ófært um Kaldadal og Uxahryggi VEGURINN um Uxahryggi er nú lokaður vegna vatnavaxta og rign- ingar undanfarinna daga og sama er að segja um leiðina yfir Kalda- dal. Ekki er vitað um skemmdir á öðrum vegum vegna tfðarfarsins að undanförnu. Reynt verður að gera við Uxahryggjaleið og Kaldadalsveg strax og hægt er en búast má við að það geti tekið nokkra daga. Frímerkjasýn- ing á næsta ári FÉLAG frfmerkjasafnara, Reykjavfk, hefur ákveðið að gangast fyrir frfmerkjasýningu f Reykjavfk á næsta ári í tilefni 20 ára afmælis félagsins, en félagið var stofnað 11. júnf 1957. Sýningin verður haldin í Álfta- mýrarskóla dagana 9.—12. júnf 1977 og hefur verið valið nafnið Frímex ’77 Þeir sem vilja koma efni á sýninguna eða afla sér annarra upplýsinga geta haft samband við formann sýningarnefndar, Guðmund Ingimundarson, Boga- hlfð 8, R. hlutunum rétt saman, aðrir hlutir hefðu verið vanstilltir og þar fram eftir götunum. Ekki vildi Halldór neitt tjá sig um, hvort Hollendingarnir væru tilbúnir að greiða skaðabætur vegna þessara frátafa skipsins, en sagði að hann vonaði að málið leystist sem fyrst. Enn í lífshættu eftir slys 84 ára gamall maður, sem varð fyrir bifreið á Snorrabraut f fyrradag, liggur enn Iffshættu- lega slasaður á gjörgæzludeild Borgarspftalans. Gamli maðurinn^gekk yfir göt- una á móts við útsölu ÁTVR, og varð þar fyrir bfl. Hlaut hann mikil meiðsli, mörg beinbrot og innvortis meiðsli. Slæmt skyggni var þegar atburðurinn gerðist, en það var síðdegis á mánudaginn. — Líbanon Framhald af bls. 1 væri litið. Ef flutningar fólks úr búðunum gætu farið fram, og þvf yrði komið í öruggt hæli f vestur- hfuta Beirút, er talið, að draga mundi úr áróðurshernaði í sam- bandi við flóttamannabúðirnar, og horfur á samningaviðræðum mundu verða betri. Síðustu tvo dagana hefur fólk verið flutt úr búðunum, og er það aðallega um að ræða gamalmenni, konur og börn. Hægri menn segja að um 2.700 manns hafi verið fluttir úr búðunum síðustu tvo sólarhringa, en hlutlausir aðilar telja, að sú tala sé of há. Utvarps- stöð, sem er á valdi hægri manna, greindi frá því í dag að foringi úr liði Palestjnuaraba hefði komizt út úr búðunum með 200 manns í dag, en ekki var sagt hvort þar var um að ræða skæruliða eða flóttamenn. Kamal Jumblatt, leiðtogi vinstri manna á Lfbanon, sagði i gær- kvöldi, að forsenda þess, að setzt yrði að samningaborði, væri að Sýrlendingar hyrfu brott með hersveitir sínar frá Libanon. Leiðtogi kommúnistaflokksins í Líbanon, Nicolas Chaoui, hvatti til þess í dag, að stjórnmálaleg lausn yrði fundin á deilu stríðs- aðila í landinu. Hann sagði, að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.