Morgunblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 1976 Eiríkur Guðmundsson frá Dröngum—Minning Fæddur 7. janúar 1895. Dáinn 25. júní 1976. l'pp til þín faðir fórna eg hóndum. til födurhjartans hendir allt frá heimsku, synd og hrekkjabrögðum. í heiminum er dimmt og kalt. en hollt og gott að halla sér. minn herra (iuó að hrjósti þér. M.J. Eiríkur var borinn og barn- fæddur að Dröngum í Árnes- hreppi í Strandarsýslu, sonur merkishjónanna Guðmundar Pétrussonar bónda á Dröngum og konu hans Önnu Jakobínu Eiríks- dóttur frá Haugum í Miðfirði. Guðmundur og Jakobfna eignuð- ust fjögur hraust og mannvænleg börn; Steinunni, gift Jóni Lýðs- syni hreppstjóra á Skriðnesenni og er hún ein eftir á lífi af þeim systkinunum; Önnu, sem var seinni kona Sigurjóns Sigurðsson- ar kaupfélagsstjóra og síðar bankafulltrúi í Reykjavík; Finn- boga, kvongaður Guðrúnu Diö- reksdóttur, og Eirík, sem var yngstur þeirra systkinanna. Auk þess ólu þau hjónin upp þrjú fóst- urbörn. Mér er það fyllilega ljóst, að saga Eiríks, þessa dugmikla at- hafnamanns, verður ekki sögð í stuttri minningargrein, það getur aldrei orðið nema fátæklegt hrafl um litríkan bændahöfðingja sem Eiríkur var. Eitt er víst að Eiríkur verður ekki gelymdur af sveit- ungum sínum sem urðu honum samferða, eða öðrum þeim er kynntsut honum náið, slíkur var eldmóður hans í starfi, kjarkur hans og karlmennska, einbeittur áhugi hans á þjóðmálum, ást hans á sögu lands og þjóðar, karl- mannslund hans og hjálpfýsi við þá sem minna máttu sín. Hann var maóur raunsær og gerði sér ljósa grein fyrir kostum landsins og göllum þess, enda hagaði hann bústörfum sínum jafnan eftir því. Hann trúði á framtfð íslenska bóndans og átti þá ósk heitasta að hann mætti verða um ókomna framtíð bústólpi og búlandstólpi. Hann var hetja í lund, tvíelfdur i starfi og trúr sinni stétt og um fram allt traustur heimilisfaðir. I þessu ljósi mun minningin um Eirík geymast meðal ættingja og vina meðan þeim endist aldur. Eiríkur var snemma tápmikill unglingur og röskur til allra verka, enda þurfti hann ungur að árum á því að halda því föður sinn missti hann fjórtán ára gam- all. Það var honum mikið áfall þvf hann elskaði og virti föður sinn. Eftir föðurmissinn vann hann móður sinni undir stjórn hennar og Finnboga bróður síns til ársins 1916 er hann gékk að eiga eftirlif- andi konu sína Karítas Ragnheiði Pétursdóttur frá Veiðileysu. Ungu hjónin hófu búskap fyrst í stað á hluta úr jörðinni Dröngum, eða til ársins 1925, að þau tóku við allri jörðinni þegar frú Jakobína brá búi og fluttist að Skriðnes- enni til Steinunnar dóttur sinnar. Þau Eiríkur og Ragnheiður voru mjög samhent og sýndu fljótt hvað í þeim bjó og hvers þai’ uu megnug, að þau hugs- uðu a stórt ug mundu ekki una við smátt, enda var nægilegt olnboga- rými fyrir ung og framsækin hjón á Dröngum, enda blómgaðist bú þeirra með hverju árinu sem leiö, þrátt fyrir erfiða tíma. Eirfkur var enda, sem fyrr segir, ham- hleypa til vinnu bæði á sjó og landi og Ragnheiður hagsýn bú- kona. Þau hljónin Eiríkur og Ragn- heiður eignuðust átta börn og eru sjö þeirra á lffi. Son sinn, Aðal- stein, misstu þau uppkominn. Hin eru. Guðmundur, kvongaður Val- gerði Jónsdóttur, Anna Agústa, gift Magnúsi Jónssyni, Anna Jakobína, gift Kára Þ. Kárasyni, Lilja Guðrún gift Friðbert Elí Gíslasyni, Elín gift Aðalsteini Arnólfssyni, Pétur kvongaður Svanhildi Guðmundsdóttur og Álfheiður gift Þóri Krístinssyni. Þetta var stór og fríðui in.pur, en það gefur auga leið, að ol i mun vinnudagur hjónanna hafa orðið langur og strangur til þess að geta fætt og klætt barnahópinn sinn meðan þau voru að vaxa úr grasi. því þá voru ekki styrkirnir frá því opinbera eíns og nú til dags, en það hafa kunnugir sagt mér, að aldrei hafi orðið búsvelta í Drangaheimilinu og segir það sína sögu um dugnað þeirra hjóna. Þegar börnin uxu upp og fóru að geta rétt foreldrum sfnum hjálparhönd hefur róðurinn að sjálfsögðu léttst, enda þótt ég sé ekki viss um að vinnudagurinn hafi styttst til muna. Sjálfsagt á fjölskyldan sameiginlegan heið- urinn af því er sú stund rann upp, að Drangaheimilið var talið með efnuðustu og myndarlegustu heimilum í Árneshreþpi. Á bak við það liggur mikil hetjusaga, sem ekki þarf skýringar við. Drangar munu hafa verið talin allgóð bújörð, þar er geysilega mikill trjáreki, dágott æðarvarp, selalagnir og kjarngott beitiland, en jörðin var mannfrek og erfiðir aðdrættir og þá að sjálfsögðu einnig erfitt að koma afurðum búsins frá sér. Það er löng leið frá Dröngum til Norðurfjarðar, hvort heldur farið er á sjó eða landi, en á Norðurfirði hafði Eiríkur aðal- viðskipti sín. Hann varð því að kaupa og flytja heim á hausnótt- um matarforða og aðrar nauðsynj- ar til vetrarins og slátrið í slátur- tiðinni. Þetta allt flutti hann á opnum báti og er ekki ólíklegt að stundum hafi Eiríkur orðið að stíga krappan dans við ægisdætur því oft gerast veður válynd norð- ur þar þegar haustar að, en alltaf sigldi Eiríkur skipi sinu heilu í höfn, færandi varninginn heim. Ég spurði Eirík einu sinni að því hvort þetta hefðu ekki verið hálf- gerðar glæfraferðir. Svarið var stutt". „Við strandamenn erum góðir sjómenn." Ég held að Eirík- ur hafi ekki kunnað að hræðast meðan hann var í fullu fjöri og þó var hann maður gætinn að hverju sem hann gekk. Þau Drangahjónin voru rómað- ir gestgjafar og oft var gestkvæmt hjá þeim á sumrin og margt um manninn. Öfgalaust má segja að oft á tíðum hafi þau slegið upp veislu fyrir gesti sína og leitt þá að hlöðnu matborði með gómsæt- um íslenskum mat og stundum mun brjóstbirta hafa fylgt með, en þó í hófi. Þegar staðið var upp frá borðum gekk Eiríkur að orgel- inu og byrjaði að spila og vildi helst fá alla gestina til að taka lagið. Eirikur spilaði vel, var músíkalskur og hafði fallega söngrödd. Auk þess sem hann var hrókur alls fagnaðar var hann ræðinn og hafði frá mörgu að segja. Ég undraðist oft hvað hann var fróður um ýmsa menn úti i heimi, sem sett höfðu svip á sam- tíð sína. Óhætt mun að fullyrða að margir, karlar og konur, hafa átt og eiga bjartar og fagrar minning- ar um gleðistundirnar hjá Drangahjónunum og börnum þeirra, enda urðu þau hjónin vin- amörg. En tímarnir breytast og ekkert stendur í stað. Sú stund rann upp að börnin fóru að tínast á brott úr föðurgarði eins og algengt er,og í sama mund hófst fólksflóttinn úr sveitunum til kaupstaðanna og skildi eftir sig djúp spor, sem seint munu gróa og mun vafalitið verða talinn dapur kafli á blöðum sögunnar. Árið 1947 voru þau hjónin orðin svo liðfá að þau ákváðu að bregða búi og fluttust suður og settust að á Akranesi, en Eirikur festi ekki rætur þar, hug- urinn var heima á Dröngum, þar sem hann hafði alið allan sinn aldur. Hvernig gat hann sætt sig við að æskuheimilið hans, Drang- ar, stæði í eyði og grotnaði niður? Snorri sagði — „Ut vil ek“, en Eiríkur sagði: Heim að Dröngum Góður drengur, glaólyndur, hlýr og siðfágaður er genginn. — Erling Lang-Jensen var danskur að ætt, fæddur í Kvislemark, þar sem faðir hans var kennari. Hann var yngstur af átta systkinuqi en af þeim hafa látist þrír bræður á s.l. einu og hálfu ári. Ellefu ára gamall var hann sendur á „Sorö Akademi" og þaðan útskrifaðist hann stúdent átján ára gamall. Frá Sorö fór hann til Haderslev sem lærlingur í apóteki, síðan til náms í lyfjafræði við háskólann í Kaupmannahöfn og lauk þar prófi árið 1935. Ári seinna kom hann til islands og starfaði í nokkra mánuði í lyfjabúðinni Ið- unni en var lengst af í Laugavegs Apóteki eða tæp þrjú ár. Frá ár- inu 1939 — 1961 vann hann í apóteki í Kaupmannahöfn, þar til hann varð apótekari í Ruds- Vedby á Sjálandi. Erling var mjög vinsæll og vel vil ég. Það varð því úr, að árið 1950 fluttust þau hjónin aftur norður að Dröngum og bjuggu þar til ársins 1953. Á þessum ár- um mun Eirikur hafa sannfærst um, að bú, að hans skapi yrði ekki rekið á Dröngum af fárra manna höndum, svo og hitt að ekkert barna hans mundi verða til þess að taka við jörðinni þegar kraftar hans þyrtu. Þau hjónin kvöddu því jörðina sína í síðasta sinn. ekki sársaukalaust, og fluttust suður. Á næstu árum byggðu þau sér myndarlegt hús i Kópavogi, þar sem Eirríkur bjó til dánar- dægurs. Síðastliðið ár var heilsa hans þrotin og hann þráði hvíld. Eftir að Eirikur hafði verið kvaddur við fjölmenna athöfn í Fríkirkjunni hér i Reykjavík var kista hans flutt norður að Arnesi, þar sem hann var kvaddur af sveitungum sínum. sem fjöl- menntu við jarðarförina. Eiríkur var mikill og einlægur trúmaður, aldrei hálfvolgur þar frekar en á öðrum sviðum, og fagrar voru hugmyndir hans um framhaldslífiö í landi ka'rleikans. Nú þegar hann er hoffinn sjónum okkar í gegnum móðuna miklu, að fótskör sjálfrar lífsuppsprettunn- ar, kveðjum við hann meö hlýjum huga og biðjum góðan Guð að blessa og varðveita eftirlifandi konu hans, börn og barnabörn. Með þeirri bæn kveðjum við hjónin Eirík og þökkum honum allar góðu og glöðu samveru- stundirnar. Gott er að ylja sér við minning- una um góðan og mikilhæfan dreng. Jakob Jónasson. látinn. Fólk laðaðist að honum og bar traust til hans og ég veit aö hann var mjög vinsæll í Ruds- Vedby. Hér á Islandi eignaðist hann mikið af góðum vinum. Hingað sótti hann líka konu sína, Hrefnu Ásgeirs, sem lengi vann í Laugavegs Apóteki. Ég minnist þess þegar Hrefna frænka kom með hann heim til okkar í fyrsta sinn. Við systurnar vorum hálf feimnar við þennan útlenda mann en feiipnin fór fljótt af okk- ur því Erling talaði íslensku svo við hættum að hugsa urn hann sem útlending. Reyndar minnist ég þess ekki að hafa hitt dana sem talaði fslensku réttar en Erling. Ég tók líka eftir því að hann vissi meira en margur fslendingurinn um landið. Hann hafði ferðast mikið hér og meðal annars farið á hestum inn á öræfi. Hann dáði fegurð landsins og féll vel við fólkið og alltaf sagði hann heim og heima, þegar hann talaði um Island. Þegar Erling fór frá Íslandi tók hann með sér tvær konur sem hann elskaði, — Hrefnu sína sem Framhald á bls. 25 ATHYGLl skal vakin á því, aö afmælis- og minningar- greinar verða aö berast blað- inu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miövikudagsblaöi, að berast í sfðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vél- ritaðar og með góðu línubili. t Dóttir mín GUÐBJÖRG BJARNADÓTTIR Laugavegi 70, Reykjavík andaðist í Borgarsjúkrahúsinu i Reykjavik mánudaginn 9 þ m Bjarni Marteinsson frá Eskifirði + Eiginkona mín, móðir tengdamóðir og amma VILHELMÍNA HELGADÓTTIR Melgerði 30 andaðist á Landspítalanum að morgni 1 0 ágúst Fyrir hönd okkar allra Elias Pálsson + Eiginmaður mmn. SKÚLI KRISTMUNDSSON Safamýri 50 andaðist í Landakotsspítala 10 ágúst Birna Björnsdóttir + Faðir okkar JÓHANN KR. ÓLAFSSON trésmiður s lést að heimili sínu, Litla Skarði, 7 ágúst Útförin verður gerð frá Dómkirkjunni i Reykjavík laugardaginn 14 ágústkl 10.30 f.h. Gróa Jóhannsdóttir Rannveig Jóhannsdóttir Þórarinn Jóhannsson + Öllum þeim fjölmörgu er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför HALLDÓRU MAGNÚSDÓTTUR Staðarhóli, Aðaldal sendum við innilegt þakklæti Svandís Hannesdóttir Hólmfríður J. Hannesdóttir Höskuldur A. Sigurgeirsson Sigríður I. Hannesdóttir Garðar Guðmundsson María G. Hannesdóttir Hermann Hólmg^irsson Helga Þórarinsdóttir og barnabörn Ólafur Karlsson + Utför systur ukkar GUÐLAUGAR GUÐLAUGSDÓTTUR Laugavegi 28D fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1 2 ágúst kl 1 30 Sigurrós Guðlaugsdóttir Ingibjörg Gunnlaugsdóttir + Þökkum innilega auðsýnda vinsemd og hluttekningu við andlát og jarðarför GUÐMUNDAR Á JÓHANNSSONAR fyrrv. vélstjóra Smyrlahrauni 14, Hafnarfirði Þuríður Sigurðardóttir börn, tengdabörn og barnabörn + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og viharhug við andlát og útför KRISTÍNAR SIGURJÓNSDÓTTUR Bergstaðastræti 51 Ágústa Júlíusdóttir Bára Steingrimsdóttir Svavar Guðnason Kristín Halla Haraldsdóttir Hilmar Jónsson Minning—Erling Lang-Jensen i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.