Morgunblaðið - 14.09.1976, Page 1
40 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
112. tbl. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Washington 13. september — Reuter
FORD Bandarfkjaforseti fyrir-
skipaði f dag sendinefnd Banda-
rfkjanna hjá Sameinuðu þjóðun-
um að beita neitunarvaldi gegn
umsókn Vietnams um aðild að
samtökunum, að sögn William
Ekki ákveðið
um framhalds-
fund Hafréttar-
ráðstefnunnar
Ekki hefur enn verið ákveð-
ið um framhaldsfund Haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna f New York. Að sögn
Eyjólfs Konráðs Jónssonar,
eins fulltrúa tslands á ráð-
stefnunni, var haldinn fundur
f almennu nefndinni f gær, en
ekkert ákveðið með fram-
haldsfund. Verður það Ifklega
látið bfða til föstudags. Sagði
Eyjólfur, að starfað væri f hóp-
um og öll vinna færi fram á
bak við tjöldin, en Iftið væri
um formlega fundi. Um mál-
Framhald á bls. 26
Scrantons, sendiherra Bandarfkj-
anna hjá S.Þ.
Búizt er við, að umsóknin verði
lögð fyrir öryggisráðið á morgun.
Scranton sagði, að Ford hefði fyr-
irskipað beitingu neitunarvalds
vegna þess að Vfetnamar hafi
sýnt tregðu á að afhenda lista yfir
nöfn þeirra hundruð Bandarfkja-
manna, sem enn eru týndir eftir
Vietnamstrfðið.
I fyrra beittu Bandaríkin einn-
ig neitunarvaldi gegn umsóknum
Norður- og Suður-Vietnams, sitt í
hvoru lagi, áður en ríkin samein-
Framhald á bls. 26
Króatarnir fara
fyrir rétt í USA
□----------------------------□
Sjá grein um
^ flugránið á bls. 25. ^
KRÓATÍSKU þjóðernissinnarnir
fimm, sem rændu Trans World
Airlines 727 farþegaþotu á föstu-
dagskvöld, — að þvf er virðist
óvopnaðir, — og flugu henni til
Keflavfkur og Parfsar, þar sem
þeir gáfust upp á sunnudag, eiga f
Framhald á bls. 26
Ford:
Neitunarvald
gegn S.Þ.-um-
sókn Víetnams
AP símamynd.
Flugránið — Dick Carey, t.v., flugstjóri Boeing 727 þotunnar, sem rænt var í
Bandaríkjunum af króatískum þjóðernissinnum, sýnir Bill Hoard, flugstjóra
Boeing 707 þotunnar, sem send var til að fylgja henni yfir hafið, hluta af
sprengjum flugræningjanna. Reyndust sprengjurnar ekki vera annað en leir og
vírar og hættulausar með öllu. Á bls. 25 er grein með myndum um flugránið.
KYNÞAtTAÓEIRÐIRNAR — Lögreglumenn berja kynblending
með kylfum í Höfðaborg f siðustu viku.
Bilbao 13. september — Reuter
LÖGREGLAN skaut og
særði 1 dag 6 menn, sem
tóku þátt í mótmælaað-
gerðum f hafnarborginni
Bilbao á Norður-Spáni.
Tveir voru særðir í út-
hverfinu Sestao og 4 í
Basauri, þegar lögreglan
réðst gegn andófsmönnum,
sem köstuðu grjóti og
gerðu götuvígi úr bflum og
öskutunnum.
Táragasský lágu yfir
götuvígjunum og lögregl-
an skaut gúmmfkúlum.
Margar verksmiðjur, verzl-
anir og skrifstofur voru
lokaðar í dag í Baskahéruð-
unum, þar sem starfsfólk
lagði niður vinnu f mót-
mælaskyni við að lögregl-
an skaut til bana 24 ára
gamlan þjóðernissinna f
sfðustu viku.
í kvöld urðu fleiri árekstrar
milli lögreglu og andófsmanna,
sem skáru göt á hjólbarða strætis-
vagna og lokuðu þannig götum.
Kissinger er á leiðinni
Washington, Jóhannesarborg
13. september — Reuter. NTB.
LÖGREGLAN hóf í dag
fjöldahandtökur í
Alexandra, sem er út-
hverfi Jóhannesarborgar,
þar sem aðeins svertingjar
eru búsettir. 2.000 manns
voru færðir burt að sögn
fbúa f borgarhlutanum.
Þriggja daga verkfall
verkamanna í Soweto og
Alexandra hófst í dag. Allt
að 75% verkamanna tóku
þátt í verkfallinu.
Henry Kissinger utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna fór i dag til
Afríku, þar sem hann ætlar að
reyna að koma á viðræðum til að
binda enda á kynþáttastriðið, sem
nú geisar f suðurhluta álfunnar.
Hann heldur fyrsta fund sinn á
þriðjudag með forseta Tansaníu,
Júlíusi Nyere. Þvf næst heimsæk-
ir hann Zambfu og fer þaðan til
Suður-Afríku og jafnvel Ródesfu.
Forsætisráðherra Ródesfu hittir
John Vorster forsætisráðherra
Suður-Afríku á þriðjudag til að
undirbúa komu Kissingers. Kiss-
inger sagði, áður en''hann fór frá
Washington, að nú stæði hann
frammi fyrir erfiðasta verkefni
sínu síðan hann varð utanríkis-
ráðherra.
Lögreglan skaut á mótmælend-
ur i Soweto í dag, en þúsundir
fbúa hverfisins urðu við
hvattningum um að koma ekki til
vinnu f dag. Talsmaður lögregl-
unnar segir, að hún hafi skotið
yfir höfuð fólks og kastað táragasi
á það, þegar það hafði kveikt f
strætisvagni, sem átti að flytja
verkamenn inn f Jóhannesarborg.
Stór hluti þeirra 350.000 verka-
manna, sem daglega fara til vinnu
f Jóhannesarborg, var heima f
dag. Kom verkfall þeirra harðast
niður á fataverksmiðjum, kjör-
búðum og vöruhúsum, en allt upp
í 75% starfsfólks slfkra fyrir-
tækja kom ekki til vinnu.
í San Sebastian skaut Iögreglan
gúmmfkúlum til að dreifa mann-
fjölda eftir minningarathöfn um
manninn, sem skotinn var í sfð-
ustu viku.
Verkalýðsleiðtogar segja, að
verkföllin í dag séu þau mestu
síðan i marz, þegar efnt var til
svipaðra mótmæla vegna þess að 4
andófsmenn voru drepnir f
Baskabænum Vitoria.
Fjöldahandtökur í S-Afríku
Allt er sagt vera með kyrrum
kjörum í Höfðaborg, en um helg-
ina skutu vopnaðir hvítir borgar-
ar sjö svarta samborgara sína til
bana.
Það voru samtök svartra stúd-
enta f Soweto, sem hvöttu til verk-
fallsins. Dreifðu þeir flugritum,
þar sem verkamenn voru hvattir
til að fella niður vinnu f 3 daga til
að mótmæla morðum lögreglunn-
ar á börnum, og því, að launum
þeirra, sem gerðu verkfall fyrir 3
vikum, hefur verið haldið eftir.
Var fólk hvatt til að hafa verkfall-
ið friðsamlegt og halda sig ekki á
götum úti, svo að ekki kæmi til
innbyrðis átaka svartra eins og
varð f síðasta verkfalli.
Framhald á bls. 26
r
Atti að myrða
Ted Kennedy?
Springfield 13. september — Reuter.
TVEIR karlmenn og ein kona
komu fyrir rétt I dag, sökuð
um að hafa gert samsæri um
að myrða Edward Kennedy
öldungardeildarþingmann.
Kváðust þau öll vera saklaus
af ákærunni. Lögreglan kann-
ar nú hvort áætlun þeirra um
að skjóta Kennedy með riffli á
fundi Demókrataflokksins á
laugardag hafi verið alvarleg
eða hvort aðeins hafi verið um
innantómt tal að ræða. Einn
hinna ákærðu skýrði lögregl-
unni frá þvf að félagi sinn
hefði gert áætlun um að myrða
Kennedy, en konan, sem var
liandtekin með þeim, starfar á
veitingahúsi þvf, þar sem
demókratar ætluðu að halda
fund sinn.
Spánn:
Verkföll og andóf
í Baskahéruðunum