Morgunblaðið - 14.09.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
11 slasast
í árekstri
MJÖG harður árekstur varð á
Keflavlkurveginum nálægt
Stapanum aðfaranótt s.l. Iaug-
ardags. Þar rákust saman tveir
fólksbflar með þeim afleiðing-
um, að 11 manns, sem í bflnum
voru, þurfti að flytja á sjúkra-
hús til aðgerða. Langflestir
höfðu hlotið minniháttar
meiðsli, en piltur og stúlka
liggja enn á sjúkrahúsinu I
Keflavík. Pilturinn ökkla-
brotnaði en stúlkan hlaut höf-
uðhögg. Bflarnir eru taldir
ónýtir.
r
I gæzluvarðhald
fyrir lyfjastuldi
ÞRlTUGUR maður situr nú i
15 daga gæzluvarðhaldi i
Keflavik fyrir síendurtekna
lyfjastuldi úr bátum. Var mað-
urinn siðast handtekinn að-
faranótt s.l. föstudags, eftir að
hann hafði bortizt inn í bát i
Grindavíkurhöfn og haft á
brott með sér morfin og önnur
deyfilyf úr lyf jakassa skipsins.
Laust prestakall
BISKUPINN yfir Islandi
hefur auglýst Reykhólapresta-
kall I Barðastrandarprófast-
dæmi laust til umsóknar með
umsóknarfresti til 1. október
nk.
Eldur laus í bílskúr
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur
var f gærkvöldi kallað að Ás-
garði 2. Þar var töluverður eld-
ur laus í bílskúr, en gaskútar
voru geymdir í skúrnum auk
þess sem fólksbíll var þar inni
til viðgerðar. Verulegar
skemmdir urðu á bílnum og
skúrinn brann mikið að innan.
Slökkvilið fékk tilkynningu
um eldinn kl. 21.14 og tók um
30 mínútur að komast fyrir
hann.
Ráðist á 77 ára
gamlan vaktmann
AÐFARANÓTT s.l. sunnudags
réðst drukkinn sjómaður á 77
ára gamlan vaktmann um borð
f m.s. Fjallfossi, þar sem skip-
ið lá í Reykjavfkurhöfn. Barði
maðurinn vaktmanninn I höf-
uðið með tómatsósuflösku. Það
varð vaktmanninum til bjarg-
ar, að hann var með þykka
ullarhúfu á höfði. Hlaut vakt-
maðurinn samt áverka en eftir
að gert hafði verið að meiðsl-
um hans fór hann til vinnu á
ný. Árásarmaðurinn var flutt-
ur f fangageymslu lögreglunn-
Alvarlegt vinnuslys
ALVARLEGT vinnuslys varð í
Sænsk-fslenzka frystihúsinu
s.l. föstudagskvöld. 17 ára pilt-
ur, sem var að vinna við is-
framleiðslu, missti jafnvægið
og rak hægri fótinn niður í
snigil, sem er i gólfi ísgeymsl-
unnar. Tók af allar fimm tærn-
ar á hægri fætinum. Var pilt-
urinn strax fluttur á Borgar-
spítalann, þar sém hann liggur
•
Fyrirlestur um höf-
unda Egils sögu
FYRIRLESTUR verður flult-
ur f dag á vegum Háskóla Is-
lands um höfund Egilssögu.
Dr. phil. Sveinn Bergsveinsson
prófessor heldur fyrirlestur f
boði heimspekideildar og
nefnist hann Atriði sem benda
á tvo höfurda að Egils sögu.
Fyrirlesturinn verður fluttur I
dag, þriðjudag, kl. 17.15 I stofu
422 I Arnagarði. Öllum er
heimill aðgangu .
Frétl fi HSskólalslands.
Yfir 40 ung-
menni tengd
hassmálinu
tsveizla.
Ljósm. Friðþjófur.
RANNSÓKN hins um-
fangsmikla fíkniefnamáls,
sem Fíkniefnadómstóllinn
hefur haft til meðferðar að
undanförnu, er vel á veg
komin, að sögn Arnars
Guðmundssonar fulltrúa
við dómstólinn.
Tveir ungir menn sitja i gæzlu-
varðhaldi vegna rannsóknar máls-
ins, og þar af hefur annar setið
inni i rúman mánuð. Hinn hefur
setið inni mun skemur. Sá fyrr-
nefndi kærði siðasta varðhaldsúr-
skurð til hæstaréttar, en hann
hefur ekki enn kveðið á um rétt-
mæti gæzluvarðhaldsúrskurðar-
ins.
Að sögn Arnars hafa um 70
manns verið yfirheyrðir vegna
rannsóknarinnar og þar af hafa
rúmlega 40 ungmenni tengzt mál-
inu á einn eða annan hátt. Ekki
mun hér vera um mjög mikið
magn að ræða, a.m.k. ef miðað er
við þau mál, sem upp hafa komið
á undanförnum mánuðum. Hins
vegar bjóst Arnar við þvi, að
magnið ætti eitthvað eftir að auk-
ast og fleiri aðilar ættu eftir að
tengjast því, áður en yfir lyki.
Kennsla í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja hefst
Skólinn settur á laugardag
w
1
dag
KENNSLA hefst í Fjölbrauta-
skólanum á Suðurnesjum f dag.
Skólinn var settur s.l. laugardag
og munu stunda i honum nám alls
um 230 nemendur f vetur.
Skólasetningin hófst á ávarpi
Gunnars Sveinssonar formanns
skólanefndar og síðan hélt skóla-
meistarinn, Jón Böðvarsson,
ræðu. Þar rakti hann undirbún-
ing að stofnun skólans, en að hon-
um standa öll sveitarfélögin á
Suðurnesjum. Nemendur eru alls
um 230 eins og áður sagði, og eru
58 á menntaskólabraut, 24 á upp-
eldis- og hjúkrunarbraut, 51 á við-
skiptabraut, i iðnnámi 62, 15 á
vélskólabraut og 19 á námskeiði
til undirbúnins í málmiðnaði.
Kennsla fer fram í húsnæði sem
Iðnskólinn I Keflavík hafði til
umráða, en nú er hann innlimað-
ur í Fjölbrautaskólann, er ein
braut hans. Hluti kennslunnar fer
fram í Gagnfræðaskólanum og
verkleg kennsla fer fram á þriðja
staðnum, meðan skólinn hefur
ekki sitt eigið húsnæði.
Að lokinni ræðu Jóns Böðvars-
sonar var samleikur á Pianó og
klarinett, Lára Rafnsdóttir lék á
pianó, og Óskar Ingólfsson á klari-
nett.
Þá var ávarp menntamálaráð-
herra, Vilhjálms Hjálmarssonar,
og síðar ávarp Haraldar Gislason-
Framhald á bls. 26
Sjómannasam-
bandið mótmæl-
ir bráðabirgða-
lögunum
FRAMKVÆMDASTJÖRN Sjó-
mannasambands Islands sam-
þykkti f gær á fundi sínum harð-
orð mótmæli gegn setningu
bráðabirgðalaganna um bindingu
launakjara fiskimanna. Bendir
stjórnin á f ályktun sinni, að ekk-
ert hafi legið fyrir um stöðvun
fiskiflotans og hafi lögin þvf ver-
ið sett að óþörfu og gjörsamlega
að tilefnislausu.
í fréttatilkynningu, sem Mbl.
barst í gær frá Sjómannasam-
bandi íslands, þar sem skýrt er
frá mótmælum framkvæmda-
stjórnarinnar segir m.a.: „Um leið
og framkvæmdastjórn Sjómanna-
sambandsins skorar á ríkisstjórn-
ina að afnema nú þegar þessi
ólánslög, vill hún jafnframt beina
því til samtaka sjómanna að
treysta áhrifamátt sinn á þann
hátt, að þau komi fram sem ein
órofa heild bæði við samninga svo
og í sókn og vörn varðandi önnur
mál, er sjómannastéttina varðar
sérstaklega."
Viðskiptamál voru
einkum á dagskrá
Hornafjörður:
Rásaði með hagla
byssu um bæinn
Skaut 15—18
særði mann og
mannvirki
skotum,
skemmdi
reglumenn, sem komu á vettvang,
viku af vegi vegna hótana manns-
Framhald á bls. 26
Einar Ágústsson utanríkis-
ráðherra kominn heim úr
heimsókn til Tékkósló-
vakíu og Ungverjalands.
EINAR Agústsson utanrikisráð-
herra er nýkominn heim úr boðs-
ferð til Tékkóslóvakfu og Ung-
verjalands, þar sem hann átti við-
ræður við helztu ráðamenn þess-
ara ríkja. Morgunblaðið hafði
samhand við utanrfkisráðherra f
gær og spurði hann nánar um
þessa för hans.
Einar sagði að í upphafi þess-
arar ferðar hefði hann setið utan-
TUTTUGU og þriggja ára gamall
aðkomusjómaður á Hornafirði
rásaði þar um bæinn aðfaranótt
s.l. sunnudags með haglabyssu
sem hann skaut 15—18 skotum úr
á vegfaranda, hús og bíla. Mikil
mildi þykir að ekki hlauzt stór-
slys af, en högl úr einu skoti lentu
f baki, handlegg og læri manns,
sem ætlaði að stilla til friðar.
Slasaðist hann mun minna en ótt-
azt var f fyrstu, hlaut smávægileg
sár.
Sjómaðurinn var á dansleik á
Hornafirði á laugardagskvöld og
mun hann hafa haft áfengi um
hönd. Á dansleiknum lenti hann i
útistöðum við annan mann og i
reiðikasti fór hann um borð í bát
þann, sem hann er skipverji á og
náði þar í rússneska haglabyssu,
einhleypu, sem hann átti. Fór
hann upp í bæinn með byssuna
um nóttina og byrjaði að skjóta.
Skaut hann 15—18 skotum með
fyrrgreindum afleiðingum, en
einnig skaut hann 5 skotum á
nokkrar bílskúrshurðir, skotum
mun hann hafa beint að bflum og
fóru högl í hjólbarða tveggja bíla
og aurbretti annars bílsins. Lög--
Á annað þúsund
manns veiktust af
matareitrun 1975
A ANNAÐ þúsund manns
veiktust af matareitrun f
Reykjavfk á árinu 1975. Frá
þessu segir f skýrslu Heilbrigð-
ismálaráðs Reykjavfkur fyrir
árið 1975, sem nýlega er komin
út. Eftir kröfu heilbrigðiseftir-
litsins var á árinu eytt 810 kfló-
grömmum af kjöU’öru.
Á árinu var vitað um þrjár
matareitranir. Á fjölmennu
móti, sem haldið var í Laugar-
dalshöllinni, veiktust um 1.000
manns af um 1.300 þátttakend-
um. Af þeim urðu svo til allir
aðeins lítið veikir og enginn
alvarlega. Kjötréttur fram-
leiddur og seldur af veitinga-
húsi í borginni olli matareitr-
uninni.
Þá veiktust um 40 manns af
matareitrun hjá verklakafyrir-
tæki í borginni og samtímis I
fangageymslu lögreglunnar.
Sami kjötréttur olli sýkingunni
og var hann framleiddur og
seldur af öðru veitingahúsi, en
því sem áður var getið. Matar-
eitrun þessi var einnig væg og
gekk fljótt yfir hjá báðum þess-
um aðilum.
Loks veiktust um 30 manns af
taugaveikibróður, eftir að hafa
verið í fermingarveizlu hér í
borg. öll matlagningin fór fram
á heimili viðkomanda, sem er
farmaður, en hráefnið var
keypt erlendis og í því fannst
taugaveikibróðursýkillinn.
rikisráðherrafund Norðurlanda í
Kaupmannahöfn 19. og 20. ágúst
en að fundinum loknum hefði
hann farið í ferð þá til Tékkósló-
vakíu, sem til hafði staðið 1973,
en hann hafi þá verið kallaður
heim 19. maí vegna innrásar
brezka flotans í íslenzka land-
helgi. „Við komum til Tékkó-
slóvakíu 22. ágúst og átti ég þar
síðan viðræður við ýmsa ráð-
menn, svo sem utanríkisráðherr-
ann, Chnoupek, sem stóð að þessu
boði, en auk þess hitti ég bæði
forsætisráðherrann og forsetann.
Síðan var haldið til Bratislava 25.
ágúst og þaðan fórum við akandi
til Búdapest, þar sem ég hitti að
máli ungverska utanríkisráðherr-
ann Poja, auk forsætisráðherra og
forsetann. Auk þess ræddi ég í
báðum löndunum við háttsetta
menn i viðskiptaráðuneytinu og
ýmsa embættismenn."
Einar kvað viðræður sinar við
þessa menn hafa verið vinsamleg-
ar, enda engin veruleg vandamál
milli þessar þjóða. Viðræðurnar
hefðu aðallega verið viðskiptalegs
eðlis, en einnig hefði Helsinki-
sáttmálinn verið mikið til um-
ræðu auk ýmissa alþjóðamála,
Framhald á bls. 26
Forsætisráð-
herra í sumar-
leyfi erlendis
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning:
Geir Hallgrlmsson, forsætisráð-
herra, fór f gær til útlanda I stutt
sumarleyfi.
13. september 1976.
F orsætisráðuneytið.