Morgunblaðið - 14.09.1976, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 14.09.1976, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976 11 Réttir eru ekki sizt mannamót. Þar hittast sveitungar ug rabba saman um hin fjölbreytilegustu málefni. Hér má m.a. sjá Jóhann Helgason í Leirhöfn, lengst til vinstri, og annar frá vinstri er Grímur Jónsson, ráðunautur í Ærlækjarseli. Það er nú kannski fullmikið sagt, að fé mitt sé með því afurðahæsta hér i Kelduhverfi Þetta hefur verið mjög jafnt hjá bændum hér á svæð- inu. í fyrra fékk ég að meðaltali 1 7,36 kg kjöts eftir hvern dilk, þannig að hver á skilar hjá mér 31 til 32 kílóum af kjöti Hvers vegna fé hér um slóðir er vænna, er fyrst og fremst vegna góðs afréttar og góðrar umhirðu. Ég get alveg hugsað það, að menn hér þurfi minni bú til að lifa af en víða annars staðar, þvi búfé okk- ar skilar góðum afurðum. Kúabú eru fá hér og að minum dómi væri æskilegt að þau væru fleiri. Við verðum að vera þess minnug- ir, að afréttur Keldhverfinga er nær ofsetinn og þvi er rétt að hafa kúa- búskap í hluta af sveitinni. Það er líka hagstæðara að auka mjólkur- framleiðsluna hér, þvi nú er ekki rekstargrundvöllur fyrir þann mjólkurbíl, sem ekur um sveitina Kjaramál eru þvi miður ekki i nógu góðu lagi. Bændur hafa aldrei fengið það, sem þeir hafa átt að fá i laun miðað við viðmiðunarstéttirnar. Menn lifa alltaf í voninni um að þetta batni eitthvað, en það gengur hægt Bændur sætta sig kannski frekar við þetta vegna þess að þeir eru eigin húsbændur og ekki öðrum háðir Fé dregið úr á átta stöðum ur, sem í sumar hefur verið i sveit i Lyngási i Kelduhverfi Ekki er Ármann með öllu ókunnur sveita- störfum, þvi hann hefur verið í sveit á sumrin síðan hann var 7 ára, og lengst af suður í Borgarfirði — Skemmtilegast við réttirnar er að draga lömbin Ég vildi helzt verða bóndi og þá með kindur, því kýrnar eru hundleiðinlegar, sagði Ármann og þar með var hann þotinn. Þurfa minni bú til að lifa af Samræður manna í réttum snúast öðru fremur um fallþunga dilkanna og menn velta því fyrir sér hvort meðalþunginn i ár verði betri en í fyrra Við tökum næst tali Ingólf Jónsson, bónda i Mörk í Keldu- hverfi. Réttarstjórinn i Tjarnarrétt er eins og áður sagði Haukur Jóhannesson i Framnesi, og hann var einnig gangnaforingi í hluta af leitum þeirra Keldhverfinga. Við ræddum við hann um smalamennskuna Það er alltaf ákveðin spenna, sem fylgir göngunum.Þetta eru tveggja daga göngur hjá okkur, og menn fara bæði gangandi og á hestum Meirihlutinn fer þó gangandi Hestum er samt alltaf að fjölga, bæði er þetta sportmennska og menn eru teknir að letjast við að ganga þetta og þykir betra að vera á hestum. Það er ef til vill of mikið sagt, að við drögum í sundur á hverjum bæ, en við stoppum á átta stöðum á leiðinni og þar draga þeir, sem næst búa, fé sitt úr hópnum Menn eru fegnir því að þurfa ekki að reka féð framhjá bæjunum og síðan heim aftur Réttardagur verður vissulega ekki eins mikill hátiðisdagur og áð- ur, þegar þessi háttur er hafður á Allir krakkar vilja komast ígöngur Eíns og fram kom hjá Hauki fylgir alltaf ákveðin spenna því að fara I göngur, og það hefur löngum verið draumur hvers barns i sveit á fá að fara i göngur, og færri hafa þar komizt að en vildu. Yngsti gangna- maðurinn i hópi þeirra Keldhverf- inga að þessu sinni var 12 ára stúlka, Ester Björk Tryggvadóttir frá Hóli — Þetta var i fyrsta skipti, sem ég fór á fjall og ég var á hesti. Ég hefði ekki viljað ganga, þvi það var erfitt þegar féð var orðið margt Allir krakkar vilja komast i göngur, þvi þetta er skemmtilegt — Ég vildi ekki skipta og búa i kaupstað Leiðinlegast er að vera fram i miðjan mai i skólanum, því þá get ég ekki verið heima við sauð- burðinn, sagði Ester og hélt áfram að segja vinkonu sinni frá ævintýr- um fjallferðarinnar Lánin hafa ekki fylgt auknum kostnaði Þó menn færu sér hægt við drátt- inn framan af var ekki lengur til setunnar boðið Okkur tókst þó að ná tali af einum af yngri bændunum i Kelduhverfi, Sturlu Sigtryggssyni á Keldunesi. Hann tók við búi af for- eldrum sinum fyrir sex árum en Sturla er 24 ára. — Það er erfitt fyrir ungt fólk að hefja búskap hér eins og annars staðar nema menn gangi inn i eldra bú. Fyrirgreiðsla til handa þeim, sem vilja hefja búskap er ekki nógu góð, þvi það þarf ekki litið fjármagn til að hefja búskap. Bændur hér eru margir orðnir fullorðnir, en fremur litið hefur verið um, að ungir bænd- ur tækju við — Landbúnaður á engu siður Framhald á bls. 26 Sturla Sigtryggsson í Keldunesi. Yngsti gangnamaðurinn, Ester Björk Tryggvadóttir (t.v ), ásamt vinkonu sinni, Kristjönu Sigurgeirsdóttur, 11 ára frá Ásbyrgi. Ármann Ingason var ekki á þeim buxunum að sleppa hrútunum. Ingólfur Jónsson í Mörk Réttarstjórinn, Haukur Jóhannsson á Framnesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.