Morgunblaðið - 14.09.1976, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
17
HDrðmrl
MIKLAR VAMMIR UM LAUG-
ARDALSVðLLINN OG HRÓS
UM ÍSLENZKA LANDSLIÐIÐ
LAUGARDALSVÖLLURINN fær
ekki háa einkunn hjá blaðamönn
um þeirra hollenzku blaða, er
sendu sina menn til þess að fylgj-
ast með viðureign íslands og Hol-
lands I heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu i siðustu viku. Er
vellinum íikt við kviksyndi úr kvik-
myndaheiminum, og sagt, að
þakka hefði mátt fyrir að leik-
mennirnir 22, sem þurftu að vera
á velli þessum allan leikinn, hafi
ekki horfið ofan i jörðina. Er völl-
urinn talin aðalástæða þess, að
Hollendingar sigruðu aðeins 1—0
í leiknum, en fyrirfram höfðu blöð-
in mikið rætt um landsleikinn við
Íslendinga og gert þvi skóna, að
hollenzka liðið myndi vinna auð-
veldan stórsigur.
Gera blöðin mikið úr þeim um-
mælum f ramkvæmdastjóra hol-
lenzka landsliðsins. að furðulegt
sé. að FIFA skuli samþykkja að
leikur i heimsmeistarakeppninni
fari fram á slikum velli.
Að slepptum skrifunum um
Laugardalsvóllinn er það einkum
tvennt, sem kemur fram hjá hol-
lenzku blaðamönnunum. Annars
vegar gagnrýni á hollenzka lands-
liðið fyrir slaka frammistöðu i
leiknum, og hins vegar hrós um
islenzka landsliðið. — Allan
seinni hálfleikinn beið maður með
öndina i hálsinum. Það gat varla
farið hjá þvi, að þeir skoruðu.
önnur eins tækifæri og þeir áttu,
skrifar einn blaðamannanna. Segir
sami blaðamaður. að það hafi tvi-
mælalaust forðað Hollendingum
frá jafntefli eða tapi i þessum leik,
að islendingarnir hafi greinilega
vanmetið eigin getu, og borið of
mikla virðingu fyrir andstæðing-
um sinum.
— Það er furðulegt. að meira
en helmingur islenzku leikmann-
anna i þessum leik voru algjörir
áhugamenn, segja blöðin, — þeir
urðu meira að segja að taka sér
taunalaus leyfi úr vinnunni til þess
að geta verið með i leiknum. Það
fór ekki hjá þvi, að maður hristi
höfuðið, þegar þessir leikmenn
voru að leika leikmennina okkar
— sem margir eru meðal þeirra
launahæstu i heiminum — sundur
og saman.
— Það vakti gleði i herbúðum
hollenzka knattspyrnusambands-
ins, þegar það fréttist að Belgia
hefði unnið ísland „aðeins"
1—0, en það bros varð að grettu
eftir leikinn á íslandi. Eftir þann
leik er staðan enn jöfn. Og vist er,
að hollenzka knattspyrnulandslið-
inu er hollt að hafa það i huga, að
jafnvel heimaleikur okkar gegn ís-
lendingum er ekki fyrirfam unnin.
ísland er ekki sá markabrunnur.
sem við héldum að við gætum
ausið vel upp úr og átt til góða i
baráttunni við Belgiumenn og
Norður-íra, segja blöðin.
ÍA á möguleika gegn Trabzonspor
neska lið, er óhætt að slá þv(
föstu, að það er skipað mjög góð-
um leikmönnum, og árangur liðs-
ins I tyrknesku knattspyrnunni
hefur verið mjög athyglisverður.
Geta má þess og, að I liðinu eru
fimm leikmenn, sem leika með
tyrkneska landsliðinu, og voru
þrfr þeirra með f leiknum gegn
Finnlandi f s.l. mánuði, en þeim
leik töpuðu Tyrkir 1—2.
Þrátt fyrir að tyrkneska liðið sé
eingöngu skipað atvinnumönn-
um, verður að teljast líklegt, að
Akurnesingar hafi nokkra sigur-
möguleika gegn þeim, en til þess
verða þeir að ná góðum leik —
mun betri en gegn Val i úrslita-
leik bikarkeppninnar. Ólíklegt
verður einnig að teljast, að Skaga-
menn eigi tvo slíka slaka leiki í
röð. Þeir hafa oft magnazt eftir
mótlæti og verður að vona, að svo
verði einnig nú, og þeir nái að
„hefna harma sinna á Tyrkjum",
eins og fyrirliði Akranes-liðsins,
Jón Gunnlaugsson, segir í viðtali
við Morgunblaðið, sem birtist
annars staðar í blaðinu.
Á blaðamannafundi, sem
haldinn var með forráðamönnum
lA og Trabzonspor f gær, kom
fram, að Brabzonspor er mjög
ungt félag, stofnað 1967, og lék
liðið sjö fyrstu ár sfn í 2. deildinni
í Tyrklandi. Þá tókst því að vinna
sig upp í fyrstu deild og strax á
fyrsta ári sínu í deildinni varð
félagið meistari og komst i urslit
bikarkeppninnar.
INGI BJÖRN Albertsson, fyrfr-
liði Islandsmeistara Vels, var val-
inn „Leikmaður Islandsmótsins
1976“ af blaðamönnum Morgun-
blaðsins. Eins og undanfarin ár
hafa blaðamenn blaðsins gefið
leikmönnum einkunn, eða stig,
fyrir frammistöðu þeirra f ein-
stökum leikjum f Islandsmótinu
og að mótslokum hlýtur sá um-
rædda tilnefningu sem flest stig
hefur að meðaltali fyrir a.m.k. tfu
leiki.
Ingi Björn Albertsson hlaut alls
42 stig í eikunnagjöf blaðsins í
sumar, fyrir þá 14 leiki sem hann
tók þátt f, eða 3.00 að meðaltali. í
öðru sæti urðu svo jafnir þeir
Ásgeir Elfasson, Fram, og Karl
Þórðarson, ÍA, sem báðir hlutu
2.875 stig að meðaltali fyrir leiki
sfna.
Morgunblaðið héífur haft þann
hátt á undanfarin ár að heiðra
leikmann þann, er hlýtur tilnefn-
ingu blaðamanna, svo og marka-
kóng islandsmótsins. Er Ingi
Björn fyrsti knattspyrnymaður-
inn sem hlýtur bæði verðlaun
blaðsins frá því að farið var að
veita þau, en tveir handknatt-
leiksmenn hafa unnið bæði „Leik-
manns“ verðlaunin og marka-
kóngsverðlaunin, þeir Geir Hall-
steinsson, FH, og Hörður Sig-
marsson, Haukum. Sjá grein um
1. deildar keppnina í sumar á bls.
22—23.
Ingi Björn Albertsson „Leikmaður tslandsmótsins 1976“
tekur við fslandsbikarnum úr hendi Ellerts B. Schram,
formanns KSf.
TYRKNESKT knattspyrnulið
leikur hérlendis f fyrsta sinn n.k.
miðvikudag, er Trabzonspor frá
borginni Trabzon f austurhluta
Tyrklands mætir Akurnesingum f
Evrópubikarkeppni meistarafiða
á Laugardalsveflinum. Þótt nán-
ast sé ekkert vitað um þetta tyrk-
LIÐ FRAM
FRAMARAR tefla fram sfnu
sterkasta liði f leik sfnum við
tékkneska liðið Slovan Bratis-
lava á Laugardalsvellinum f
kvöld, en um tfma feit út fyrír
að marksæknasti leikmaður
Fram, Kristinn Jörundsson,
gæti ekki verið með vegna
meiðsla. Verður lið Fram í
leiknum f kvöld þannig skip-
að:
Arni Stefánsson
Sfmon Kristjánsson
Trausti Haraldsson
Jón Pétursson
Agúst Guðmundsson
Gunnar Guðmundsson
Asgeir Elfasson
Eggert Steingrfmsson
Rúnar Gfslason
Kristinn Jörundsson.
Nánar er fjallað um leikinn
og tékknesku snillingana á bls.
19
Ingi Björn, Albertsson
leikmaður íslandsmótsins
VALS-
GLEÐI
KNATTSPYRNUMENN Vals unnu
það afrek á sunnudaginn, að
sigra í bikarkeppni KSÍ, og urðu
þeir þar með fyrstir íslenzkra liða
í 14 ár að sigra bæði í 1. deildar
keppninni og í bikarkeppninni.
Þarf engan að undra, þótt mikil
gleði væri ríkjandi í herbúðum
Valsmanna, enda hefur árangur
liðsins verið með afbrigðum góð-
ur í sumar. Þakka Valsmenn þjálf-
ara sínum, dr. Youri llitchev frá
Sovétríkjunum, verulega vel
gengni liðsins í sumar.
Meðfylgjandi myndir tók Frið-
þjófur i úrslitaleiknum á sunnu-
daginn. Sýnir sú efri knöttinn
hafna i marki Akurnesinga eftir
skot Hermanns Gunnarssonar,
sem ekki sést á myndinni, en
myndin hér til hliðar var tekin, er
Valsmenn höfðu tekið við hinum
eftirsótta verðlaunagrip úr hendi
Gísla Halldórssonar forseta ÍSÍ.
Má á myndinni m.a. sjá Sigurð
Dagsson, Bergsvein Alfonsson,
Inga Björn Albertsson, Atla Eð-
valdsson, Vilhjálm Kjartansson,
Grim Sæmundsen, Hermann
Gunnarsson, Guðmund Þor-
björnsson, Dýra Guðmundsson
og Kristinn Björnsson