Morgunblaðið - 14.09.1976, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
ÓLYMPÍUMEISTAR-
ARNIR TÖPUÐU
- í landskeppni Finna og
Svía í frjálsum íþróttum
FINNAR unnu öruggan sigur yfir Svlum I landskeppni I frjáls-
um íþróttum sem nýlega fór fram I Helsinki. Slfk keppni milli
þessara tveggja þjóða fer að jafnaði fram árlega og er talin einn
merkasti Iþróttaviðburðurinn I viðkomandilöndum, einkum þó I
Finnlandi, þar sem áhugi á frjálsum fþróttum er glfurlega
mikill. Þannig var einnig nú: Uppselt var löngu fyrirfram á
landskeppnina, og fólk var mætt á leikvanginn löngu áður en
keppnin hófst og undi sér þar vel unz úrslit fengust I slðustu
greininni.
1 karlakeppninni sigruðu Finnar með 223 stigum gegn 187,
eftir að Svlar höfðu haft forystu að loknum fyrri degi keppninn-
ar 104—101. Var gífurlega mikil stemmning á áhorfendapöllun-
um, þegar Finnar sigruðu I hverri geininni af annarri seinni
daginn og náðu forystu sinni. 1 kvennakeppninni hlutu Finnar
91 stig gegn 66 stigum Svíþjóðar. Þá var einnig keppt í unglinga-
flokki pilta og stúlkna. 1 piltaflokknum sigraði Finnland 107 —
92 en f stúlknaflokknum unnu þær sænsku sigur 92—64.
1 keppninni beindist eðlilega athygli áhorfenda mjög að þeim
tveimur Ólympfusigurvegurum, er þarna voru meðal keppenda:
Lasse Viren frá Finnlandi og Anders Gárderud frá Svfþjóð. En
báðir hittu fyrir sér ofjarla I keppninni, Gárderud varð að láta
sér nægja fjórða sætið I sinni grein, 3000 metra hindrunar-
hlaupi, hljóp á 8:42,29 mln. og Lasse Viren varð að láta I minni
pokann fyrir ungum landa sfnum f 10.000 metra hlaupinu. Sá
heitir Martti Vainio og hljóp á 28:30,58 mfn. Viren varð annar á
28:46,21 mfn. og þriðji f hlaupinu varð svo Haakan Spiik, einnig
frá Finnlandi á 28:56,90 mfn. Fylgdust Finnarnir að fyrstu 8000
metrana, en þá tók Vainio forystuna og tókst Viren ekki, þrátt
fyrir góðan endasprett að hlaupa hann uppi.
Tvö finnsk met voru sett f keppninni. Hannu Polvi kastaði
sleggju 73,08 metra og er það jafnframt nýtt Norðurlandamet.
Voru öll köst Polvi yfir 70 metra f keppninni. Þá setti Hannele
Parkkonen nýtt finnskt met f 400 metra grindahlaupi kvenna,
sem hún hljóp á 60.06 sek.
Sigurvegarar f einstökum greinum f landskeppninni urðu: 110
metra grindahlaup: Arto Bryggare, Finnlandi, 14,06 sek.
100 metra hlaup: Christer Carpenborg, Svfþjóð, 10,49 sek.
400 metra hlaup: Michael Fredriksson, Svfþjóð 46,27 sek.
Sleggjukast: Hannu Polvi, Finnlandi, 73,08 metrar.
1500 metra hlaup: Ari Paunonen, Finnlandi, 3:48,13 mfn.
Langstökk: Ulf Jarfelt, Svfþjóð, 7,80 metrar.
Hástökk: Rune Almén, Svfþjóð, 2,15 metrar.
Kúluvarp: Reijo Staalberg, Finnlandi, 20,57 metrar.
10.000 metra hlaup: Martti Vainio, Finnlandi, 28:30,58 mín.
4x100 metra boðhlaup: Sveit Svfþjóðar 40,29 sek.
400 metra grindahlaup: Gert Möller, Svfþjóð, 51,76 sek.
200 metra hlaup: Thorsten Johansson, Svfþjóð, 21,11 sek.
800 metra hlaup: Ake Svensson, Svfþjóð, 1:48,34 mfn.
Kringlukast: Markku Tuokko, Finnlandi, 64,14 metrar.
3000 metra hindrunarhlaup: Tapio Kantanen, Finnlandi, 8:27,31
mfn.
Þrfstökk: Stefan von Gerich, Finnlandi, 15,95 metrar.
Spjótkast: Aimo Aho, Finnlandi, 85,98 metrar.
Stangarstökk: Antti Kalliomáki, Finnlandi, 13:48,93 mfn.
4x400 metra boðhlaup: Sveit Finnlands: 3:10,56 mfn.
KONUR:
Spjótkast: Arja Mustakallio, Finnlandi, 57,16 metrar.
400 metra grindahlaup: Hannele Parkkonen, Finnl., 60,06 sek.
200 metra hlaup: Pirjo Hággmann, Finnlandi, 23,42 mfn.
Kúluvarp: Ritva Metso, Finnlandi, 15,75 metrar.
1500 metra hlaup: Sinikka Tuynelá, Finnlandi, 4:13,91 mfn.
Hástökk: Anette Tánnander, Svfþjóð, 1,84 metrar.
4+400 metra boðhlaup: Sveit Finnlands 3:38,56 mfn.
100 metra grindahlaup: Ulla Lempiáinen, Finnlandi, 14,10 sek.
100 metra hlaup: Linda Haglund, Svfþjóð, 11,64 sek.
400 metra hlaup: Riitta Salin, Finnlandi 52,22 sek.
800 metra hlaup: Sinikka Tyynelá, Finnlandi 2:05,28 mfn.
3000 metra hlaup: Eva Gustafsson, Svíþjóð 9:18,75 mfn.
Kringlukast: Sinikka Riihelá, Finnlandi 51,02 metrar.
Langstökk: Leena Kiviranta, Finnlandi 5,93 metrar.
4X100 metra boðhlaup: sveit Finnlands 45,03 sek.
Finnski sleggjukastarinn Hannu Polvi bætir sig á hverju móti
um þessar mundir og setti Norðurlandamet f landskeppninni.
Fyrir leikinn við Svisslendinga f heimsmeistarakeppninni 1961 hétu fslenzku leikmennirnir þvf að láta
snoðklippa sig ef þeir sigruðu. Það féll þvf margur fagur lokkur að leiknum loknum, og auðvitað sáu
landsliðsmennirnir fyrir þvf að landsliðsnefndarformaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson sæti við sama borð
og þeir. Það er Gunnlaugur Hjálmarsson sem fylgist með klippingunni, en Axel Sigurðsson, núverandi
framkvæmdastjóri HSl hefur greinilega gaman af. Ef til vill væri rétt fyrir fslenzku landsliðsmennina að
stfga á stokk fyrir leikinn á Akranesi f kvöld?
Góðar sigurhorfur - en
ekkert má þó eftir gefa
I kvöld fer fram í íþrótta-
húsinu á Akranesi fyrri
landsleikur íslands og
Sviss í handknattleik, en
Svisslendingar komu til
landsins ' um helgina, og
munu auk leiksins á Akra-
nesi leika annan landsleik
vid Islendinga í förinni.
/
Islenzka
liöið
ÍSLENZKA LANDSLIÐIÐ sem
mætir Svisslendingum í lands-
leikjum á Akranesi i kvöld og í
Laugardalshöllinni á fimmtudag
inn verður þannig skipað:
Birgir Finnbogason, FH
Guðjón Erlendsson, Fram
Jens Einarsson, ÍR
Viðar Simonarson, FH
Geir Hallsteinsson, FH
Þórarinn Ragnarsson FH
Árni Indriðason, Gróttu
Þorbjörn Guðmundsson, Val
Bjarni Guðmundsson. Val
Ágúst Svavarsson, ÍR
ViggóSigurðsson, Vikingi
Björgvin Björgvinsson, Vikingi
Ólafur Einarsson. Víkingi
Magnús Guðmundsson, Vikingi
Þorbergur Aðalsteinsson, Vikingi
Fer sá fram í Laugardals-
höllinni á fimmtudaginn.
Búast má við að báðir lands-
leikirnir verði hinir tvfsýnustu og
bendir reynsla frá fyrri leikjum
þessara þjóða í það minnsta til
þess. 1 þau tvö skipti sem landslið
þessara þjóða hafa mætzt hafa
leikar farið svo að íslendingar
unnu fyrri leikinn 14—12, en
seinni leikurinn varð jafntefli,
21—21. Var fyrri leikurinn hinn
sögulegasti, en hann fór fram í
Þýzkalandi árið 1961. Skar sá
leikur úr um hvort landið kæmist
í úrslit heimsmeistarakeppn-
innar, en sá er tapaði mátti hins
vegar sitja eftir með sárt ennið.
Ekki leit vel út fyrir Islending-
um í þeim leik, þar sem Sviss-
lendingar höfðu 3ja marka
forystu í hálfleik. En í seinni hálf-
leiknum tókst íslenzka liðinu að
sýría hvað f því bjó og fór það með
sigur af hólmi. Kom þessi sigur
Islendinga þá mjög á óvart, en
íslenzka liðið átti eftir að láta enn
meira að sér kveða í þessari
keppni.
Handknattleikurinn hefur átt
mjög auknum vinsældum að
fagna í Sviss, og hafa Sviss-
lendingar tekið miklum framför-
um í íþróttinni. Þeir þykja leika
mjög léttan og skemmtilegan
handknattleik, „dálítið glannaleg-
an,“ sagði Birgir Björnsson, einn
af landsliðsnefndarmönnum HSl,
sem þekkir allvel til svissneska
liðsins. Hafa Svisslendingar
leikið allmarga landsleiki að und-
anförnu og hefur árangur þeirra í
þeim verið nokkuð misjafn,
beztur i leik gegn Ungverjum sem
Sviss tapaði naumlega 15—16 og f
leik gegn Austurríkismönnum
sem Svisslendingar unnu 18—13.
Landsleikina munu tveir þekkt-
ir sænskir dómarar dæma, þeir
Krister Broman og Ake Löfvenius
og hafa þeir báðir dæmt lands-
leiki hérlendis áður.
Svissneska
liðið
Leikmenn svissneska landsliSs-
ins eru eftirtaldir — tala ands-
leikja viSkomandi i sviga:
Urs Zeier (29)
Daniel Eckmann (45)
Edi Wickli (22)
Ernst Zullig (56)
Max Schár (31)
Peter Maag (19)
Konrad Affolter (3)
Robert Jehle (32)
JúrgTfuber (22)
Urs Graber (18)
Hans Huber (29)
Hansjörng Böni (8)
Gerhard Staudenmann (6)
Flugleiða-
menn sigruðu
Fyrir skömmu fór fram á
Grafarholtsvelli golfkeppni milli
flugfélaga á Skotlandi og Flug-
leiða. Þessi keppni nefnist SAGA-
JET GOLF TOURNAMENT og er
haldin árlega til skiptis f Skot-
landi og á Islandi.
I þessari fyrstu keppni, sem var
18 holu fjórleikur, sigruðu Flug-
leiðamenn alla keppinauta sína
glæsilega. Urðu úrslit í keppninni
þessi:
Lið nr. 1:
Ken Campell og Gordon Mason —
Sigurður Matthíasson og Rúnar
Kjærbo 2—1
Lið nr. 2:
Brian Flanagan, George
Sutherland — Jóhann Ö. Jósefs-
son, Gunnar Kvaran 3—2.
Lið nr. 3:
Ian Menzies, Robert Winyard —
Ólafur Ág. Þorsteinsson, Ólafur
Marteinsson 3—2.
Lið nr. 4.
Ian Macintyre, Reg Goddard —
Magnús Hjörleifsson og Gunnar
Finnbjörnsson 10—8.
Meðfylgjandi mynd var tekin
eftir keppnina og eru Flugleiða-
menn til vinstri, en Skotarnir til
hægri. Fyrirliði Flugleiðamanna,
Ólafur Ág. Þorsteinsson, heldur á
hinum veglega bikar, sem Flug-
leiðir hf. gáfu til keppninnar.