Morgunblaðið - 14.09.1976, Page 21

Morgunblaðið - 14.09.1976, Page 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976 21 Auðveldur dagur hjá mér SIGURÐUR Dagsson, markvörður Vals, hlaut á sunnudaginn sinn þriðja bikarmeistaratitil, og f öll skiptin þrjú höfðu Akur- nesingar verið mótherjarnir f úrslitaleiknum. — Þetta var fremur auðveldur leikur fyrir mig sagði Sigurður — Það var aðeins skotið úr aukaspyrnunni snemma f leiknum sem var erfitt, og þá höfðum við heppnina með okkur að þeir skoruðu ekki. Hvort þetta er auðveldasti bikarúrslitaleikurinn minn? Um það er erfitt að segja, Hinir tveir voru heldur ekki erfiðir. Þegar Sigurður var spurður að þvf hvort hann ætlaði sér að leggja skóna á hilluna eftir þetta keppnistfmabil, en þvf hefur verið fleygt sagði hann: — Um það vil ég ekkert segja á þessu stigi málsins. Eins og er hef ég fengið meira en nóg af knattspyrnu, en það getur vel verið að ég láti freistast næsta vor. 1 það minnsta vil ég enga yfirlýsingu gefa um að ég sé hættur, þótt það væri sjálfsagt réttast að gera það nú, og enda feril sinn með tangarhaldi á tveimur bikurum. Gerum hvað við getum til að fá Yuri aftur — Þetta var miklu auðveldari leikur en ég átti von á sagði Ingi Björn Albertsson, fyrirliði Valsliðsins, scm á sunnudaginn tók við öðrum eftirsóttasta verðlaunagrip íslenzku knattspyrnunnar: Bikar bikarkeppni KSl. Fyrir nokkrum dögum hafði Ingi Björn tekið við Islandsbikarnum, þannig að hlutverk hans sem fyrir- liða Vals hlýtur að vera ánægjulegt. — Skagamenn spiluðu vel í fyrri hálfleik, og þá var þetta allt f járnum. Þeir sóttu þá heldur meira og við vorum heppnir að þeir skoruðu ekki í upphafi leiksins. En eftir að við Valsmenn náðum að átta okkur og jafna okkur á þeirri spennu sem fylgir slíkum leik, þá var aldrei neinn vafi á því hvort liðið væri betra. og í seinni hálfleiknum áttum við fremur auðveldan dag. Mér fannst leikurinn f heild mjög skemmtilegur, og hvað eftir annað sköpuðust spennandi andartök uppi við mörkin — sérstaklega við mark Skagamanna. Um mörkin tvö sem Hermann skoraði og réðu úrslitum f leiknum. sagði Ingi Björn: — Það var mjög vel að þessum mörkum staðið hjá Hermanni, sérstaklega því seinna. en hann sneri á tvo varnarmenn Akur- nesinga áður en hann sendi knöttinn í markið. Ingi Björn var að þvf spurður hvort Valsmenn myndu leggja áherzlu á að fá sovézka þjálfarann til sfn aftur næsta suraar: — Já á þvf er enginn vafi að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að svo megi verða, sagði Ingi Björn. Hermann Gunnarsson — tvö falleg mörk hans réðu úrslitum. Dýrlegustu mörkin mín — ÞAÐ var stórkostlegt að skora þessi mörk, sagði Hermann Gunnarsson, sem gerði út um bikarúrslitaieikinn á sunnudaginn með tveimur mörkum f fyrri hálfleik, sem bæði voru skoruð á mjög svipaðan hátt — með föstum skotum af stuttu færi, eftir hornspyrnur. — Ég held að þetta séu dýrlegustu mörk sem ég hef nokkru sinni skorað, sagði Hermann, en hann hefur áður skorað í bikarúrslitaleik. Það var árið 1965, er Valur sigraði Akranes 5:3 f úrslitum. — Leikurinn var mjög svipaður og ég átti von á, sérstaklega til að byrja með sagði Hermann. — Þá var þetta dæmigerður úrslitaleikur, mikil spenna og mistök tíð. Völlurinn bauð reynd- ar ekki upp á mikil tilþrif, en hann var sérstaklega slæmur og erfiður yfirferðar. Hermann sagði að það hefði komið sér á óvænt hversu mjög Akurnesingar misstu móðinn f seinni hálfleiknum. — Þeir börðust vel í fyrri hálfleiknum og áttu þá meira I leiknum en við. Eftir að við gerðum mörkin var sem þeir féllu alveg saman, og seinni hálfleikurinn var því auðveldur fyrir okkur. Hermann sagði að þjálfari Vaismanna-ætti stærstan þáttinn f veigengni liðsins f sumar. — Þessi leikur sannaði enn einu sinni, að Valur hefur yfir bezta þjálfaranum á Islandi að ráða um þessar mundir, sagði hann. — Það er líka stórkostlegt hvað ungu strákarnir f liðinu hafa staðið sig vel i suraar, sagði Ilermann, — það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að leika með þeim. TVÖ MÖRK HERMANNS Á 8 MÍNUTUM FÆRÐU VAL BIKARMEISTARATITILINN alsmenn innsigla sigur sinn í leiknum á sunnudaginn með marki sem Kristinn Björnsson skoraði. Björn Lárusson (nr. 3) nær ekki til knattarins og bak við hann er Einar Guðleifsson markvörður Skagamanna, rækilega ár leik. VIKINGSHJATRUIN GAT EKKI EINU SINNI BJARGAÐ AKURNESINGUM SÚ hjátrú að það lið sem slær Víking út í bikarkeppni Knattspyrnusambands íslands, hreppi bikarinnn að lokum leið undir lok á sunnudaginn, er Valsmenn, íslandsmeistararnir i knattspyrnu 1976, urðu einnig bikarmeistarar með því að sigra Akurnesinga með þremur mörkum gegn engu. En nú hlýtur það að liggja fyrir að sú trú skapist að Akurnesingar geti ekki unnið þessa keppni. Þetta var í áttunda sinn sem þeir léku til úrslita i keppninni, og jafnframt áttundi úrslitaleikurinn sem þeir tapa. Eftir að Valsmenn höfðu skorað tvö mörk í fyrri hálfleik þessa leiks, var sem allur vindur væri úr Skagamönnum, — barátta var nánast ekki til i liðinu, og það sætti sig við áttunda bikarúrslitatap sitt. Allt fram að þessum mörkum höfðu Akurnesingar þó verið öllu betri í leiknum og kom það áhangendum liðsins mjög á óvænt, hversu algjörlega það brotnaði við mótlætið. Slikt hefur ekki verið háttur Akurnesinga til þessa. Sigur Valsmanna var því miklu fyrirhafnarminni, en efni stóðu til. Þrátt fyrir að veður væri ekki skemmtilegt er leikurinn á sunnudaginn hófst voru áhorf- endur 4250 talsins, og stemning á áhorf- endapöllunum mun skemmtilegri en oftast áður Setti hópur áhangenda Vals sinn svip á leikinn, en þeir voru með húfur í litum félagsins og veifuðu fánum með Valslit- unum Virtist þó a.m k í fyrstu að Skaga- menn ættu fleiri í stúkunni sem voru á þeirra bandi. Laugardalsvöllurinn gat tæplega verið verri eftir hina miklu rigningu á sunnudags- nóttina og framan af degi. Stórir hlutar vallarins voru eitt eðjusvað og voru leikmenn sannarlega ekki öfundisverðir að þurfa að leika við slík skilyrði Verður ekki annað séð en að sú viðgerð sem gerð var á Laugardals- vellinum í vor hafi misheppnazt að mestu og ð völlurinn sé jafnvel í enn verra ástandi nú en oftast áður, þrátt fyrir að mun minna hafi verið leikið á honum í sumar en undanfarin sumur Má mikið vera ef ekki þarf að gera mjög gagngerar endurbætur á vellinum að loknu keppnistímabilinu í haust Skagamenn ágengari Greinilegt var í upphafi leiksins á sunnu- daginn að leikmenn beggja liða voru þrúg- aðir af taugaspennu og seinir að komast í gang. Bauð leikurinn ekki upp á mikil tilþrif til að byrja með eða allt fram á 1 0. mínútu er fyrsta hættulega tækifærið bauðst Það áttu Skagamenn. Dæmd var aukaspyrna á Vals- menn rétt utan vítateigs Árni Sveinsson tók spyrnuna og skaut hörkuskoti á Valsmarkið Sigurður Dagsson náði að verja, en missti knöttinn frá sér fyrir fætur Péturs Péturs- sonar er kom aðvífandi En Pétri varð fóta- skortur i drullunni í þá mund að hann ætlaði að spyrna knettinum Karl Þórðarson var einnig í færi við knöttinn, en var andartaki of seinn að átta sig og Valsmönnum tókst að bjarga á elleftu stund'u Fimm mínútum síðar áttu Valsmenn sitt fyrsta góða tækifæri, er Bergsveinn Alfons- son átti hörkuskot að Akranesmarkinu af stuttu færi, en þá bjargaði Einar Guðleifsson glæsilega Yfirleitt voru Skagamenn atkvæðameiri fyrsta hálftímann í leiknum Þeir voru ákveðnari á knöttinn og spiluðu betur, án þess -þó að fá opin færi, enda Valsvörnin jafnan vel á verði og barðist af hörku Höfðu áhangendur Akranesliðsins í stúkunni það á orði að mark lægi i loftinu, er veður skip- uðust skyndilega í lofti fyrir Akurnesinga. Tvö mörk Hermanns Það var „gamli maðurinn'' í framlínu Vals- liðsins, Hermann Gunnarsson, sem gerði allar bikarvonir Akurnesinga að engu á 7 mínútum í fyrri hálfleik er hann skoraði tvö mörk, bæði með nákvæmlega sama hætti. Dæmdar voru hornspyrnur á Akurnesinga, þeim mistókst að hreinsa og knötturinn barst til Hermanns sem var illa gætt innan víta- teigsins. Þegar Hermann skoraði fyrra mark sitt fékk hann knöttinn í góðu færi og skoraði með föstu skoti úti við stöng, en þegar hann gerði seinna mark sitt þurfti hann að snúa á tvo varnarleikmenn Skagamanna, áður en hann sendi knöttinn með svipuðu skoti og i fyrra skiptið í markið Misstu móðinn Við þessi tvö mörk Valsmanna urðu algjör þáttaskil í leiknum. Akurnesingar misstu hreinlega móðinn og hættu að berjast. Allan seinni hálfleikinn voru þeir í vörn og Vals- menn fengu hvað eftir annað tækifæri til þess að bæta fleiri mörkum við T.d. á 9. mínutu hálfleiksins er Jón Gunnlaugsson bjargaði skoti Inga Björns á línu, en þá átti Ingi Björn hægan leik að senda knöttinn á Hermann eða Kristin sem báðir voru fríir innan markteigs Skagamanna, en reyndi þess í stað að skjóta sjálfuur Á 1 1. mínutu komst Ingi Björn einn innfyrir vörn Akurnes- inga, en Einar Guðleifsson bjargaði vel með úthlaupi Fleiri tækifæri þessum lík áttu Vals- menn í leiknum, en samt sem áður var það Texti: Steinar J. Lúðvíksson Myndir: Friðþjófur Helgason ekki fyrr en á 39 mínútu að Kristinn Björns- son bætti þriðja marki þeirra við með föstu skoti af alllöngu færi, eftir að knötturinn hafði um stund gengið mótherja á milli inni í vitateig Akurnesinga. Undirritaður hefur ekki séð Akurnesinga eins daufa i dálkinn og þeir voru allan seinni hálfleik þessa leiks. Það var tæpast að fyrir brygði samspili hjá liðinu, og tíðast var að þegar þeir náðu kenttinum væri hann sendur beint til Valsmanna. Það var því tiltölulega sjaldan sem knötturinn var á vallarhelmingi Vals i seinni hálfleik, og aldrei skapaðist hætta hjá Sigurði Dagssyni, Valsmarkverði, utan þess að Jón Alfreðsson átti skot í þverslá á síðustu sekúndum leiksins. Baráttuglatt Valslið Eftir að Valsmenn höfðu náð forystu í leiknum á sunnudaginn, náðist greinilega upp mjög góð stemmning i liði þeirra og hver einasti leikmaður liðsins barðist af miklum dugnaði Liðið virkaði mjög jafnt I leiknum, en ef nefna ætti einn leikmann öðrum fremri þá væri það sjálfsagt Berg- sveinn Alfonsson, Leikreynsla hans kom Valsmönnum að góðum notum þegar mest á reið svo og baráttukjarkur hans sem greini- lega smitaði út frá sér Þá átti Atli Eðvaldsson góðan leik að þessu sinni, svo og Kristinn Björnsson, sem tæpast hefur staðið sig betur isumar Ógleymdur er þá þáttur Hermanns Gunnarssonar, Mörkin hans tvö skiptu sköp- um fyrir Valsmenn og óvíst hvort aðrir hefðu skorað þau, þótt sllk færi hefðu boðizt. Þá er ekki að sökum að spyrja að sendingar Hermanns eru jafnan vandaðar og miða að ákveðnu marki Híns vegar tók Hermann lífinu ef til vill með helzt til mikilli ró stundum Skagamenn brotnuðu í heild átti Akranesliðið einn sinn slakasta leik i langan tima og áttu allir leikmenn þar nokkurn veginn jafnan hlut að máli. Vörnin var heldur óörugg og eftir að Valsmenn höfðu náð forystu sinni var varla til barátta i framlinunni, né heldur að hún nyti umtals- verðrar aðstoðar. Einna skástan leik hjá Akur- nesingum átti Einar Guðleifsson markvörður, sem ekki verður sakaður um mörkin þrjú og bjargaði stundum ágætlega Dómari i leiknum var Rafn Hjaltalin, og var frammistaða hans tæpast mikils hróss verð Lét hann einstaka leikmenn komast upp með alltof mikil bellibrögð og var auðséð að þeir gengu á lagið þegar engin athugasemd var gerð Þar var Dýri Guðmundsson, miðvörður Vals fremstur i flokki og meðhöndlaði hann andstæðinga sina öft heldur ómjúklega í STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 12. sept Úrslitaleikur Bikarkeppni KSÍ: Úrslit: Valur — Akranes 3—0 (2—0) Mörk Vals: Hermann Gunnarsson á 33. min og 40 mín og Kristinn Björnsson á 84 min LIÐ VALS: Sigurður Dagsson, Kristinn Björnsson, Bergsveinn Alfonsson, Vilhjálmur Kjartansson, Dýri Guðmundsson, Magnús Bergs, Ingi Björn Albertsson, Atli Eðvaldsson Hermann Gunnarsson, Guðmundur Þor- björnsson, Albert Guðmundsson, Grimur Sæmundsen (varamaður) og Halldór Einars- son (varamaður) LIÐ AKRANESS: Einar Guðleifsson, Andrés Ólafsson, Björn Lárusson, Þröstur Stefánsson, Jón Gunnlaugsson, Jóhannes Guðjónsson, Karl Þórðarson, Pétur Péturs- son, Teitur Þórðarson, Jón Alfreðsson og Árni Sveinsson Vonbrígðin verða að brtna á — ÞAÐ er greinilegt að Víkingshjátrúin svokall- aða er ekki lengur til staðar, sagði Jón Gunn- laugsson, fyrirliði Akur- nesinga eftir leikinn á sunnudaginn, en Akur- nesingarnir voru að von- um ðhressir eftir tapið — sitt áttunda f bikurúr- slitakeppni KSl. — Við sögðum í fyrra, eftir ósigurinn þá, að við hefð- um betur sent B-liðið f úrslitaleikinn, sagði Jón Gunnlaugsson, — og ég er viss um að það hefði ekki farið verr þótt við hefðum gert það núna. Þetta á greinilega ekki að takast hjá okkur. — Það er auðvitað ekki nema von að menn missi svolitið móð- inn þegar þeir eru búnir að fá á sig tvö mörk, — það er erfitt að leika leik sem þennan við slíkar kringumstæður, sagði Jón, — það var rétt i byrjun seinni hálfleiks sem svolítið lif var i liðinu og barátta, en undir lok- in var ekkert slíkt til hjá okkur. Jón sagði að mörkin tvö sem Hermann skoraði hefði komið eftir mikil mistök í vörn Akur- nesinga. — Við vorum fimm á móti þeim þremur, þannig að þetta átti ekki að geta hent, sagði hann. Akurnesingar voru óánægðir með frammistöðu dómarans, Rafns Hjaltalins, í leiknum. — Hann sleppti t.d. tveimur horn- um sem við áttum I byrjun leiksins, og var yfirleitt mjög ónákvæmur, sagði Jón Aifreðs- son. — Við skulum bara vona að okkur takist að hefna harma okkur I þessum leik á Tyrkjun- um sem við eigum að leika við á miðvikudaginn, sagði Jón Gunnlaugsson, og harla óliklegt verður að teljast að Akurnes- ingar verði eins daufir i dálk- inn og óákveðnir í þeim leik sem ieiknum á sunnudaginn. Jón Gunnlaugsson f loftbardaga við Dýra Guðmundsson I leiknum & sunnudaginn. ÞÓR ÚR 3.1' Á TVEIMUR 1. DEILD ÁRUM Þetta eru mennirnir, sem komið hafa Þór úr 3. I 1. deild á tveimur árum. Neðri röð, talið frá vinstri: Douglas Reynoids þjálfari, óskar Gunnarsson, Sævar Jónatansson, Einar Sveinbjörnsson, Oddur óskarsson, Ragnar Þorvaldsson, Magnús Jónatansson, Samúel Jóhannsson, Aðalsteinn Sigurgeirsson, Árni Gunnarsson og Gunnar Austfjöró. Efri röó, talið frá vinstri; Helgi örlygsson, Þorbjörn Jensson, Baldvin Þ. Harðarson, Hiimar Bald- vinsson, Jón Lárusson, Sigurður Lárusson, Björn Víkingsson, Pétur Sigurðsson, Sig- tryggur Guðlaugsson, Árni Stefánsson, Einar Björnsson og Þóroddur Hjaltalín, formaður knattspyrnudeildar Þórs. Ljósm.Mbl. RAX. AKUREYRARLIÐIÐ Þór tryggði sér á laugardaginn rétt til að leika í 1. deild næsta ár. Þórsar- arnir unnu þá Þrótt, Reykjavfk, 2:0 f keppninni um lausa sætið I 1. deild og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. Frammistaða Þórs s.l. tvö ár er einkar athyglis- verð. Þegar Akureyri hætti að senda sameiginlegt lið I tslands- mótið undir merkjum tRA haust- ið 1974 hófu Þór og KA að leika f 3. deild og hefur Þór unnið sig upp f 1. deild á aðeins tveimur árum, sem er einsdæmi hérlend- is. Akureyringar fá nú á nýjan leik að sjá lið 1. deildar leika nyrðra og eru þeir vafalaust ánægðir með það. Morgunblaðið óskar Þórsurum til hamingju með 1. deildarsætið. Leikurinn á laugardaginn fór fram á Kópavogsvelli. Töluverður vindur var á annað markið og höfðu Þórsarar vindinn I bakið f fyrri hálfleik. Sóttu þeir nær lát- laust og tókst að skapa sér mörg hættuleg tækifæri, enda vörn Þróttar ekki erfið viðureignar fyrir tengiliði og framlínumenn Þórs. Bæði mörk Þórs komu I fyrri hálfleik. Það fyrra kom á 15. minútu og skoraði Arni Gunnars- son markið beint úr hornspyrnu. Hann tók hornspyrnu hægra meg- in og skaut vel upp I vindinn. Rúnar Sverrisson markvörður Þróttar stökk upp og hugðist góma boltann og sömuleiðis tveir Þórsarar. Rúnar missti jafnvægið og datt áður en boltinn kom til hans og sigldi boltinn rakleitt í markið undan vindinum. Guðjón Finnbogason dómari lét markið standa en margir vallargesta og þar á meðal undirritaður gátu ekki betur séð en Magnús Jónatansson hrinti Rúnari í upp- stökkinu þannig að hann missti jafnvægið. Hefði því með réttu átt að dæma hindrun á Magnús og markið þar með ólöglegt. Þórsarar efldust mjög við mark- ið og bættu öðru við á 29. minútu og var mjög vel að því marki unnið af hálfu Þórsara. Aðal- steinn Sigurgeirsson tók innkast vinstra megin og sendi boltann til Sigurðar Lárussonar. Sigurður sendi boltann aftur á Aðalstein, hann lék upp að endamörkum og renndi boltanum aftur til Sigurð- ar, sem lagði hann fyrir sig og skoraði með föstu skoti rétt fyrir utan markteigshornið vinstra megin. I seinni hálfleik sóttu Þróttarar undan vindinum og voru meira með boltann. Aftur á móti tókst þeim ekki að skapa sér verulega góð tækifæri fyrr en liða tók að lokum leiksins, en þá voru Þórsar- ar greinilega orðnir úthaldslitlir. En eins og svo oft í sumar voru Þróttarar alveg heillum horfnir fyrir framan markiö og a.m.k. tvisvar tókst þeim að skjóta yfir markið i dauðafæri i markteign- um, fyrst Þorgeir Þorgeirsson og sfðan Þórður Hilmarsson. Mikil gleði varð að vonum í herbúðum Þórsara þegar leikur- inn var flautaður af. Tóku þeir m.a. þjálfara sinn, Bretann Reynolds, og tolleruðu hann. Þórsararnir voru vel að sigrinum komnir. Þeir léku oft á tíðum ágæta knattspyrnu og vörnin var traust þótt ekki reyndi mikið á hana. Og í markinu stóð hinn gamalkunni kappi Samúel Jóhannsson og átti hann skínandi leik. Þar eru hlutirnir afgreiddir æsingalaust. Uppistaðan f liðinu eru menn, sem menn muna eftir úr ÍBA-líðinu, svo sem Samúel, Sigurður Lárusson, Gunnar Aust- fjörð, Pétur Sigurðsson, Aðal- steinn Sigurgeirsson, Arni Gunn- arsson og bræðurnir Magnús og Sævar Jónatanssynir. Það kemur síðan í ljós næst sumar, hvernig þessir kappar standa sig í hinni hörðu baráttu 1. deildar. Um lið Þróttar þarf ekki að hafa mörg orð, þar var baráttan alveg i lágmarki og það var eins og menn væru búnir að sætta sig við fallið í 2. deild. Hins vegar er efniviðurinn nægur í liðinu og ef rétt er á spilunum haldið hjá Þrótti, þarf veran í 2. deild ekki að verða löng. Tveir Þróttarar voru bókaðir i leikaum, Halldór Bragason og Þórður Theódórsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.