Morgunblaðið - 14.09.1976, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
Artsókn art leikjum 2. dcildar lirtsins Fulham hiTur aukizt jílfurh'Ka mikirt art undanförnu. Astærtan:
Marga fýsir art sjá þá tvo kappa srm á þcssari mvnd sjást leika listir sfnar, cn þcir cru Gcorge Bcst (t.v.)
oj; Rodncv Marsh (t.h.) Þcssi mynd cr úr leik Fulham virt Bristol Rovcrs, cn í þeim lcik skorarti Best
mark eftir 90 sckúndur ok fa-rrti þart Fulham sij>urinn.
Meistaramir taka forystu
- EN MIDDLESBROUGH FYLGIR FAST A EFTIR
LIVERPOOL, meistarar fyrra
árs, tóku forystu I ensku 1. deild-
ar keppninni I knattspyrnu á
laugardaginn er liðið vann mikil-
vægan sigur yfir Derby County á
útivelli. Hefur Liverpool nú hlot-
ið 8 stig út úr fimm fyrstu leikj-
um slnum, og verður ekki annað
sagt en að liðið hefji meistaratit-
ilsvörn sína bærilega. Liverpool
er þó ekki eina liðið um að hafa
náð svo góðum árangri, þar sem
Middlesbrough, liðið hans Jackie
Charlton, hefur einnig hlotið átta
stig — sigraði Sunderland með
tveimur mörkum gegn einu á
laugardaginn, og hefur ekki enn
tapað leik I keppninni. Marka-
hlutfall Middlesbrough er hins
vegar fvið lakara en Liverpool.
Gífurleg barátta var i leik
Derby og Liverpool á laugardag-
inn og leikurinn hin bezta
skemmtun fyrir fjölmarga
áhorfendur. Liverpool náði for-
ystu í leiknum þegar eftir tvær
mínútur, en leikmenn Derby létu
ekki þessa slæmu byrjun á sig fá,
léku vel og höfðu breytt stöðunni
í 2—1 sér í vil, þegar 24 mínútur
voru af leik. Voru það Charlie
George og Kevin Hector sem
mörkin skoruðu. í seinni hálf-
leiknum sýndi Liverpool sann-
kallaða meistaraknattspyrnu, og
náðu fjölmörgum hættulegum
sóknarlotum. Tókst tvívegis að
koma knettinum rétta boðleið í
mark Derby, og þar með varð sig-
urinn Liverpool-liðsins. Voru það
þeir John Toshack og Kevin
Keegan sem mörkin skoruðu.
Middlesbrough var einnig und-
ir um tfma í leik sínum víð Sund-
erland, sem fram fór i roki og
rigningu i Middlesbrough. Þótti
leikurinn nokkuð þófkenndur og
leiðinlegur, og það eina sem yljaði
áhorfendum voru mörkin þrjú
sem öll voru ágæt. Sigurmark
Middlesbrough í leiknum skoraði
hinn 19 ára Alan Willey á 12.
mínútu seinni hálfleiks og gátu
heimamenn verið ánægðir með að
hljóta bæði stigin í þessari viður-
eign.
Fyrir umferðina á laugardag-
inn var Aston Villa i forystu I 1.
deildinni og beindist því athygli
manna aó viðureign liðsins við
Queens Park Rangers sem fram
fór í Lundúnum. Hinn marksækni
leikmaður Villa, Andy Gray, skor-
aði fyrsta mark leiksins á 30. mín-
útu, en aðeins fimm mínútum síð-
ar hafði Q.P.R. jafnað,. Don
Givens átti mestan heiður að því
marki. Hann lék i gegnum vörn
Villa, og skaut siðan af allgóðu
f&ri á markið. Markvörður Villa
háifvarði skot hans, knötturinn
hrökk til Don Masson sem átti
auðvelt með að renna honum í
opið markið. Mikil barátta var I
leiknum eftir þetta, en sigurmark
Q.P.R. skoraði Dave Clement, eft-
ir mistök f vörn Aston Villa.
Ipswich sótti án afláts I leik
sínum við Leicester, en þrátt fyrir
sóknarþungann tókst liðinu
aldrei að brjóta á bak aftur dug-
mikla og ákveðna vörn gestanna,
þannig að jafntefli, 0:0, varð nið-
urstaða leiksins. Hefur Leicester
ekkert mark fengið á sig í þremur
útileikjum sínum í haust — þeim
hefur öllum lyktað með 0:0 jafn-
tefli.
Nýliðarnir i 1. deild, Bristol
City, lækkaði pínulítið flugið á
laugardaginn, en þá tapaði liðið á
útivelli fyrir Manchester City, —
slíkt er reyndar ekki til skammar,
þar sem lið Manchester City náði
tveggja marka forystu á tveimur
mínútum í fyrri hálfleik þessa
leiks. Denis Tueart og Peter
Barnes skoruðu mörkin. Þetta
reyndist nóg fyrir Manchester-
liðið, þvi þótt Bristol City ætti
góðar sóknarlotur í seinni hálf-
leiknum tókst þeim ekki að skora
nema eitt mark.
Jafntefli varð í viðureign New-
castle og Manchester United, sem
fram fór i ausandi vatnsveðri og
kuldagjósti. Þrátt fyrir þessi
slæmu skilyrðu mættu um 30.000
áhorfendur á völlinn, og ér ekki
að sökum að spyrja — Manchester
United dregur að sér fleiri áhorf-
endur en nokkurt annað lið. New-
castle náði forystu í leiknum á 13.
mínútu er Paul Cannell skoraði,
en Stuart Pearson jafnaði fyrir
United. Ian Greenhoff breytti svo
stöðunni í 2—1 fyrir United með
skoti af um 30 metra færi, en
þegar skammt var til leiksloka
komst Mick Burns inn í sendingu
milli varnarmanna United og
tókst að snúa á Alex Stepney,
markvörður Uníted, og senda
knöttinn í netið. Þótti jafntefli
eftir atvikum sanngjörn úrslit í
þessum leik.
Arsenal lék án hins fræga
markaskorara slns, Malcolms
MacDonald, á móti West Ham
United á laugardaginn, en það
kom þó ekki að sök. Á 29. mínútu
náði Arsenal forystu í leiknum
með marki Frank Stapleton.
Skömmu síðar munaði ekki nema
hársbreidd að Alan Taylor jafn-
aði fyrir West Ham, er hann átti
skot I þverslá, náði hann knettin-
um síðan aftur, en skaut þá i
stöng. í seinni hálfleik hafði svo
Arsenal góð tök á leiknum og
tókst að innsigla sigur sinn.
Tottenham Hotspur vann sinn
fyrsta heimaleik á þessu keppnis-
tímabili á laugardaginn, og var
það ekki slakara lið en Leeds
United sem var af velli lagt. Mark
Lundúnaliðsins skoraði Chris
Jones á 24. mínútu, eftir að Tott-
enham hafði fyrst átt skot í þver-
slá. Einn leikmanna Tottenham,
Keity Osgood, meiddist illa í
leiknum og var borinn útaf. John
Pratt sem kom inná fyrir hann
sem varamaður átti afbragðsleik
og kom vörn Leedsliðsins oft í
mikla bobba, án þess þó að honum
tækist að skora.
Likt og Tottenham vann Ever-
ton sinn fyrsta leik á heimavelli á
þessu keppnistímabili á laugar-
daginn, er liðið mætti Stoke.
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn,
og tókst þá hvorugu liðinu að
skora. 1 seinni hálfleik skoruðu
Everton-menn síðan tvö mörk á
fimm mínútum og var þar sami
maðurinn, George Telfer, að
verki i bæði skiptin. Komu mörk
hans á ö2. og 67. mínútu. Bob
Latchford skoraði svo þriðja mark
Everton. Stoke hafði ekki heppn-
ina með sér í þessum leik, þar sem
liðið misnotaði vítaspyrnu. Hún
var dæmd á Koger Kenyon, sem
brá Terrt Conroy illa, eftir að
hann var kominn í færi innan
vitateigs. Conroy tók sjálfur vita-
spyrnuna, en hitti ekki markið.
West Bromwich Albion vann
góðan sigur á útivelli á laugardag-
inn, og er greinilegt að liðið ætlar
að láta að sér kveða I 1. deildinni I
vetur. Tony Brown skoraði mark-
ið með skoti af um 30 metra færi á
60. minútu.
Coventry vann öruggan sigur i
leik sínum við Norwich, en
Norwich situr nú á botninum í
deildinni með 2 stig eftir 5 leiki.
Mick Ferguson skoraði fyrra
mark Coventry á 30. mínútu og í
seinni hálfleik jók Coventry for-
ystu sína með sjálfsmarki Duncan
Forbes.
I Skotlandi bar það helzt til
tíðinda að Celtic tapaði leik sinum
við Dundee United. Lék Jóhannes
Eðvaldsson ekki þennan leik með
Celtic-liðinu. Þá varð Rangers að
gera sér að góðu jafntefli i leik
sínum við Kilmarnock. Eftir tvær
umferðir í skozku úrvaldsdeildar-
keppninni hefur Dundee United
forystuna — hefur unnið báða
leiki sína. Aberdeen er I öðru sæti
með 3 stig, Hearts, Kilmarnock,
Motherwell, Rangers og Ayr Uni-
ted eru með 2 stig og Celtic,
Hibernian, og Patrick Thistle eru
með 1 stig.
1. DEILD
Liverpool 5 2 0 0 4—1 2 0 1 5—4 8
Middlesbrough 5 .3 0 0 4—1 0 2 0 0—0 8
Manchester City 5 2 1 0 4—1 0 2 0 2—2 7
Aston Villa 5 2 0 0 9—2 1 0 2 3—4 6
Everton 5 1 1 1 4—3 1 1 0 5—1 6
Arsenal 5 0 1 1 0—1 2 1 0 7—3 6
Kristol City 5 1 1 0 5—2 1 1 1 2—2 6
Manchester United 5 0 1 1 4—5 1 2 0 4—2 5
Newcastle United 5 0 3 0 4—4 1 0 1 2—1 5
West Bromwich Albion 5 1 0 1 2—1 1 1 1 3—3 5
Leicester City 5 0 2 0 3—3 0 3 0 0—0 5
Ipswich Town 5 1 2 0 5—3 0 1 1 3—6 5
Stoke City 5 1 1 0 2—1 0 2 1 1—4 5
Tottenham Hotspur 5 1 1 1 1—2 1 0 1 4—5 5
Queens Park Rangers 5 2 0 1 3—5 0 1 1 2—3 5
Birmingham City 5 1 1 1 2—2 0 1 1 2—3 4
Coventry City 5 2 0 1 6—4 0 0 2 1—4 4
Leeds United 5 1 1 0 4—2 0 1 2 2—5 4
Derby County 5 0 2 1 2—3 0 1 1 2—4 3
Sunderland 5 0 2 0 2—2 0 1 2 2—6 3
West Ham United 5 1 1 1 1—2 0 0 2 1—6 3
Norwich City 5 1 0 1 2—3 0 0 3 0—5 2
2. DEILD
Blackpool 5 2 0 1 7—4 2 0 0 5—1 8
Kolton Wanderes 5 3 0 0 10—2 1 0 1 2—3 8
Oldham Athletic 5 2 1 0 6—2 1 1 0 3—2 8
Wolverhampton 5 1 1 0 3—0 1 2 0 5—3 7
Chelsea 5 1 1 0 3—2 2 0 1 4—5 7
Hereford United 4 2 0 0 4—0 0 1 1 4—5 5
Hull City 5 2 0 0 7—1 0 1 2 2—7 5
Sheffield Unitcd 5 1 2 0 6—3 0 1 1 1—3 5
Burnley 5 2 0 1 6—3 0 1 1 0—3 5
Luton Town 5 1 1 1 6—5 1 0 1 3—4 5
Millwall 5 1 1 0 3—0 1 0 2 5—8 5
Notts County 5 0 0 2 1—3 2 1 0 6—4 5
Fulham 5 1 2 0 3—2 0 1 1 2—4 5
Notthingham Forest 5 1 1 1 6—7 0 2 0 3—3 5
Bristol Rovers 5 1 1 1 2—4 1 0 1 2—2 5
Plymouth Argyle 5 1 0 2 7—5 0 2 0 4—4 4
Cardiff City 5 1 0 2 5—6 1 0 1 4—3 4
Charlton Atletic 5 1 1 1 5—6 0 1 1 1—4 4
Cariisle United 4 0 1 0 1 — 1 1 0 2 3—6 3
Blackburn Rovers 5 1 0 1 3—2 0 0 3 1—8 2
Southampton 5 0 1 1 2—3 0 1 2 0—6 2
Orient 5 0 1 1 2—3 0 0 3 0—6 1
Knattspyrnuúrsllt I
ENGLAND 1. DEILD:
Birmingham — W.B.A. 0—1
Coventry — Norwich 2—0
Derby — Liverpool 2—3
Everton—Stoke 3—0
Ipswirh—Leicester 0—0
Manchester City — Bristol City 2—1
Middlesbrough — Sunderland 2—1
Newcastle Manchester United 2—2
Q.P.R. — Aston Villa 2—1
Tottenham—Leeds 1—0
WestHam — Arsenal 0—2
ENGLAND 2. DEILD:
Blackpool — Millwall 4—2
Bolton — Hull 5—1
Bristol Rovers—Orient 1—0
Burnley — Southampton 2—0
Cardiff — Notts County 2—3
Fulham — Wolves 0—0
Notthingham — llereford 4—3
Oldham—Blackburn Rovers 2—0
Plymouth—Chelsea 2—3
Sheffield Utd. — Carlisle 3—0
ENGLAND 3. DEILD:
Chester — Preston 0—0
Chesterfield — Wrexham 0—6
Crystal Palace — Bury 2—1
Grimsby — Brighton 2—0
Northampton — Reading 1—2
Portsmouth — Lincoln 1—1
Port Vale — Gillingham 1—2
Rotherham—Oxford 1—1
Swindon — Sheffield Wed. 5—2
Tranmere — Peterborough 2—0
Walsall — Shrewsbury 3—3
York — M ansfield 0—1
ENGLAND 4. DEILD:
Barnsley — Darlington 1—1
Boumemouth — Schunthorpe 2—2
Bradford — Stockport 3—3
Crewe — Cambridge 1—0
Exeter — Rochdale 2—1
Huddersfield — Swansea 2—2
Southport—Torquay 1—I
Watford—Colchester 2—1
Workington — Hartlepool 1—1
SKOTLAND — (JRVALSDEILD:
AyrUnited—Aberdeen 0—5
DundeeUtd.—Celtic 1—0
Hearts — Partick Thistle 0—0
Motherwell — Hibernian 2—2
Ranges — Kilmarnock 0—0
SKOTLAND 1. DEILD:
Airdrieonians—Clydebank 1—1
Arbroath—Hamilton 1—1
Dumbarton — Montrose 2—1
East Fife — Queen of the South 1—0
Falkirk — St. Mirren 2—0
Morton — Dundee 2—2
St. Johnstone — Raith Rovers 2—0
SKOTLAND 2. DEILD:
Alloa — Alhion Rovers 2—2
Brechin — Berwick Rangers 1 — 1
Clyde — East Stirling 2—2
Cowdenbeath — Forfar 0—0
Meadowbank — Stenhousemuir 1—2
Stirling Albion — Queens Park 0—3
Stranraer — Dunfermline 3—0
TYRKLAND 1. DEILD:
Trabzonspor — Samsunspor 2—0
Galatasaray—Orduspor 3—0
Adanaspor — Boluspor 1—1
Eskisehirspor — Fenerbache 1—0
Giresunspor — Yonguldakspor 1—0
Marsin Idmayurudu—Bursaspor 1—1
Altay — Goztepe l—o
Besiktas — Adana Demirspor 4—1
BELGÍA l.DEILD:
Beerschot — Lierse 6—2
FCMalinois — Winterslag 1—0
Courtrai — SC Briigge l—l
Charleroi—Beveren 2—1
Anderlecht—FCCiege l—1
Standard Liege — Molenbeek 0—0
Lokeren — Ostend l—0
FCBrúgge — Waregem 2—0
Beringen — Antwerpen 1—4
HOLLAND 1. DEILD:
AJax — Sparta 1—3
NAC — FcdenHaag 1—0
FCVVV —PSV 2—0
FCTwente — Haarlem 0—1
FC Utrecht — AZ 67 3—2
Telstar — Graffschap 2—1
Go Ahead Eagles — NEC 3—1
F ey enoord — Roda JC 0—2
Eindhoven — FCAmsterdam 3—0
PORTUGAL l.DEILD:
Benfica — Braga 2—2
Guimaraes — Sporting 1—3
Belenenses—Estoril 1—1
Boavista — Academico 4—1
Lexxoes — Porto 0—0
Portimonense — Atletico 3—0
BeiraMar—Montijo 4—1
Setubal—Varzim 7—1
TÉKKÓSLÓVAKlA l.DEILD:
Slavia Prag — Sparta Prag 1—1
Zbrojovka Brno — Zilina 3—0
Fryked Misted — Slovan Bratislava 1—2
Jednota Trencin — Banik Ostrava 2—0
Inter Bratislava — Bohemians Prag 2—0
Teplice — Kosice 4—1
Lukomotiva Kosice — Skoda Pilzen 1—0
Dukla Prag — Spartak Trnava 3—2
PÓLLAND 1. DEILD:
ArkaGdynia — WislaKrakow 1—0
GKSTychy — Stal Mielec 1—2
LKSLodz — OdraOpole 3—1
Zaglebie Sosnowiec—Slask Varsjá 2—1
LegiaVarsjá — WidzewLodz 4—1
Lech Poznan — Szombierki Bytom 1—2
Row Rybnik — Ruch Chorzow 4—2
Pogon Szczecin — GornikZabrze 3—0