Morgunblaðið - 14.09.1976, Page 26

Morgunblaðið - 14.09.1976, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976 Fiskverð stöðugt á Bandaríkja- markaði STÖÐUGT og gott fiskverð er enn á Bandarfkjamarkaði, en þó hafa kanadfsk flök heldur lækkað vestra. Flök skandinavfskra fram- leiðenda eru I stöðugu og góðu verði og einnig er blokkarverð mjög traust, eftir þvl sem bezt verður séð. Má raunar heyra á sumum forsvarsmönnum fsl. sölu- samtakanna, sem selja á þennan markað, að þeir telji fiskverðið orðið svo hátt, að frekari hækkun þess geti orðið tvfbent með tilliti til verðsamanburðar við aðrar fæðutegundir á markaðinum, svo sem kjöt og fuglakjöt. Thatcher varar enn við Sovét Sydney 13. september — AP MARGARET Thatcher, leiðtogi brezka íhaldsflokksins, ítrekaði I dag í Sydney í Ástralíu þá skoðun sína, að Vesturlöndum kynni að stafa ógn af flotaumsvifum Sovét- ríkjanna á Indlandshafi. Hún sagði að menn yrðu að skoða varnarmál á alþjóðlegum grund- velli, þar sem vestræn ríki yrðu að mynda bandalög með Banda- ríkjunum gegn „ógnun“ Sovét- ríkjanna. Hún sagði að á meðan NATO-rfkin yrðu að reiða sig á skip sin til öflunar nauðsynja gætu Sovétríkin fengið flestar nauðsynjar sínar með flutningum á landi. Tókíó 11. sept. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 30 manns hafa látizt og tuttugu er saknað f flóðum og skriðum sem fylgt hafa í kjölfar fellibylsins Fran, sem sagður er sá mesti sem farið hefur yfir Japan á þessu ári. Japanska olíuskipið Ryoyo Maru, sem er 52 þús. tonn, brotn- aði í tvennt í ólgusjó, en allir munu hafa komizt af. — Fjölbrauta- skóli Framhald af bls. 2 ar, formanns samstarfsnefndar sveitarfélaga á Suðurnesjum, og einnig flutti Guðmundur Arn- laugsson rektor Menntaskólans við Hamrahlið ávarp. Kennt verður eftir svonefndu áfangakerfi, svipað og er í M.H. og er þetta fyrsti fjölbrautaskól- inn, sem tekur iðnnámið að öllu leyti inn sem eina námsbraut. Að sögn Ingólfs Halldórssonar aðstð- arskólastjóra er með þessu hægt að hafa nokkur áhrif á hvaða námsbrautir eru I boði og með því hægt að mæta helztu þörfum sveitarfélaganna á Suðurnesjum, en Ingólfur taldi það mjög þýð- ingarmikið að samstaða skyldi nást milli allra sveitarfélaganna um að reka skólann, en hann vissi ekki dæmis slíks annars staðar. — Viðskiptamál Framhald af bls. 2 sem snertu Sameinuðu þjóðirnar og löndin gætu hugsanlega átt samleið í. Síðast en ekki sízt hefði að sjálfsögðu verið rætt um land- helgismálið. Að loknum þessum opinberu heimsóknum kvaðst Einar hafa tekið sér 10 daga sumarleyfi á vegum Alþýðuorlofs, en heim kom hann sl. laugardag. — Með hagla- byssu Framhafd af bfs. 2 ins með haglabyssuna og fóru þeir að sækja liðsauka, en á sama tima fór byssumaðurinn um borð i bát sinn og var hann sofandi þar, þegar lögreglan kom um borð og handtók hann. Var byssan þá hlaðin við hlið hans. Réttarhöld stóðu yfir i þessu máli í gærdag og fram á nótt, en þá lá atburðurinn ekki enn ljós fyrir. Maðurinn er í gæzluvarð- haldi hjá lögreglunni á Höfn í Hornafirði. — 94 skjálftar Framhald af hls. 40 eitt austur af Víti. Þá hefðu einn- ig myndazt nokkrar sprungur út frá borholunum og i Kröfluhlið- um. Axel kvaðst siðustu daga hafa verið við mælingar á eðlisviðnámi eða rafleiðni undir virkjunar- svæðinu en þessar mælingar mið- uðu að því að kanna, hvort ein- hverjar breytingar hefðu orðið á hita, vatnsrennsli og grunnvatni, sem aftur gætu gefið til kynna hvert stefndi. Axel kvaðst hins vegar ekki hafa lokið við að vinna úr þessum athugunum og niður- stöður lægju þannig ekki fyrir. — Nýtt frystihús Framhald af bls. 3 ið og síðan i kaffidrykkju i Fé- lagsheimilinu Skrúð. Þar var framkvæmdum lýst af Kaupfé- lagsstjóranum, Gísla Jónatans- syni, sem einnig er framkvæmda- stjóri frystihússins. Margir tóku til máls, bæði aðkomu- og heima- menn, og árnuðu Fáskrúðsfirð- ingum og fyrirtækinu heilla á þessum timamótum. 1 þessu nýja frystihúsi er vinnu- aðstaða fyrir um 100 manns eða 11% af öllum íbúum Fáskrúðs- fjarðar. Hátíðahöldum þessum lauk með fjölmennum dansleik um kvöldið. Hraðfrystihúsið gerir út skuttogarann Ljósafell og er nú einnig unnið að því að ná I annað skip til að tryggja rekstur hússins. — Albert. — Dagvistunar- gjöld Framhald af bls. 40 greiðir 60% af kostnaðinum við dagheimilin, en foreldrar þeirra barna, sem þar dveljast greiða 40%. Ríkið greiðir hins vegar 40% af kostnaði við leikskólana, en foreldrarnir 60%. Dagvistunargjöldin hækkuðu síðast í apríl, þá úr 10 þúsund i 11 þúsund krónur á dagheimilum, og úr 5 þúsund í 5.500 á leikskólum, en þar áður höfðu þau verið óbreytt i tæpt ár. — 150 milljónir Framhald af bls. 3 að er viðkemur þeim. Fundurinn benti á, að á tslandi væri bíll nauðsyn, en ekki lúxus og varaði því við þeirri þróun sem á sér stað í skattheimtu hér á landi á nýjum bifreiðum. Skattheimta ríkisins af bílum í formi tolla, inn- flutningsgjalds, bensíngjalds og annarra gjalda væri með því hæsta sem gerist í Evrópu og af- leíðing þessarar stefnu sé sú, að bílum sé haldið óeðlilega lengi I umferð. Þá vildi fundurinn vekja athygh á könnun Ingimars Hanssonar sem áður er greint frá, og hvetur alla hlutaðeigandi aðila til sam- stillts átaks i þeim málum, sem Ingimar víkur að í skýrslu sinni. Fundurinn skoraði einnig á rikisstjórnina að hraða lagasetn- ingu um frjálsa verðmyndun, þar sem ástæða sé til að ætla, að slikt kerfi yrði til hagsbóta fyrir neyt- endur. Þá var gerð grein fyrir stöðu vörubifreiðainnflutnings, þar sem fram kemur, að mjög litill innflutningur nýrra vörubifreiða s.l. áratug hefur leitt af sér, að fjöldi þeirra stendur nánast í stað meðan aldur bilaflotans hækkar stöðugt, m.a. vegna innflutnings notaðra bila. I þessu sambandi má geta þess, að 57% vörubifreiða eru nú eldri en 10 ára, en eðlileg- ur endingartimi slíkra bifreiða er talinn vera 7—10 ár. Formaður Bilgreinasamband- ins er Geir Þorsteinsson og fram- kvæmdastjóri er Július S. Ölafs- son. — Ford Framhald af bls. 1. uðust. Aðildarumsóknir þurfa að fá samþykki öryggisráðsins, en í þvi eiga 15 þjóðir sæti, þar af 5 fastasæti og hafa neitunarvald um aðildarumsókn áður en þær fara fyrir allsherjarþingið. Bandaríkin beittu einnig neit- unarvaldi gegn umsókn Angóla fyrr á þessu ári, á þeirri forsendu, að kúbanskir hermenn væru I landinu. Scranton sagði, að tvö atriði væru höfð til viðmiðunar við afgreiðslu aðildarumsókna, að landið sé friðsamlegt og virði mannréttindi. Scranton sagði, að fátt sýndi betur virðingarleysi fyrir mann- réttindum en tregða Víetnama við að gefa upplýsingar um týndu hermennina. Fyrir 10 dögum gáfu Víetnamar Bandarikjastjórn upplýsingar um 12 týnda hermenn, en bandarískir embættismenn segja að enn hafi ekki verið gerð grein fyrir að minnsta kosti 550 mönnun. Ford forseti krafðist þess I siðustu viku að fullkomin grein yrði gerð fyrir þessum mönnum, ef löndin tvö ættu að taka upp eðlileg sam- skipti. — Staldrað við í Tjarnarrétt Framhald af bls 11 framtíð fyrir sér en aðrir atvinnuveg- ir í þessu landi en það má ýmsu breyta Staðan nú er erfið hvað snertir fjármálin, og þá sérstaklega lánafyrirgreiðsluna. Það þarf að koma til hærri prósentutala á lánum til bygginga, því þau hafa ekki fylgt sívaxandi kostnaði Hér er gott að búa og ég get ekki meint, að beiti- lönd séu ofsetin, og því ætti að vera hægt að auka við búskap hér, sagði Sturla að lokum Fénu fækkaði nú óðum í almenn- ingnum, en umræður um dansleik kvöldsins, réttarballið, urðu að sama skapi háværari Þú mætir á ballið? var spurning, sem barst á milli við- staddra En vel að merkja, þá voru þessar umræður einkum bundnar við yngri kynslóðina, en þeir eldri skiptust eins og áður sagði aðallega á skoðunum um hvernig féð væri, þegar það kæmi af fjalli. Sumir töldu það mjög rýrt, en flestir voru þó þeirrar skoðunar, að þetta héngi i meðallagi Menn nefndu þurrkana, sem ástæðu Atvik úr siðustu smala- mennsku urðu einnig umræðuefni og einstaka menn stilltu sér upp með spekingssvip og ræddu vanda landbúnaðarins og þau verkefni, sem þar bíða úrlausnar Gjarnan var þá vasapelinn hafður við höndina til að væta kverkarnar En látum nú staðar numið, því bændurnir eru nú teknir að hóa saman fólki sínu og hyggja á heimferð Lokapunktur réttardagsins var þó settur í Skúlagarði, félagsheimili þeirra Kveldhverfinga, en þar var réttardagurinn dansaður út — Verð á Framhald af bls. 3 strax og nýja verðákvörðunin lægi fyrir, ættu neytendur að geta fengið nýmeti, þvi að nýslátrað kjöt væri þegar fyrirliggjandi. Til að mynda væri búið að slátra I fjóra daga hjá Sláturhúsinu I Borgarnesi, einnig væri slátrun hafin á Sauðárkróki og Blönduósi og slátrun að hefjast i öllum öðr- um stærstu sláturhúsum landsins. — Króatar Framhald af bls. 1. vændum að verða ákærðir fyrir flugvélarán, og hugsanlega einn- ig fyrir morð, fyrir dómstóli I Bandarikjunum. Ræningjarnir, sem kröfðust og fengu viðtæka kynningu á baráttu sinni fyrir sjálfstæði Króatiu, eru komnir aftur til New York og voru fluttir t varðhald af bandarisku alrikis- lögreglunni FBI. Brot þeirra varðar I stytzta lagi 20 ára fang- elsisvist, en samkvæmt Iögum getur refsing fyrir flugrán orðið allt að llfstfðarfangelsi ef manns- lát hlýzt af. Lögreglumaður beið bana í New York, og þrir særðust, er verið var að reyna að gera sprengju, sem Króatarnir höfðu komið fyrir á aðaljárnbrautar- stöðinni, óvirka. Króatarnir höfðu ennfremur hótað að sprengja þot- una I loft upp, ef ekki yrði látið undan kröfum þeirra, en komið hefur í ljós, að „sprengjurnar“, sem þeir voru með reyrðar um sig miðja, voru aðeins leir. Að sögn franskra yfirvalda hafði Króötun- um verið sagt á Charles de Gaulle- flugvelli i París, að þeir yrðu teknir af lífi, ef farþegunum yrði unnið tjón. Þeir gáfust þá upp, en hafði áður verið boðið að verða fluttir annað hvort til Júgóslavíu eða Bandarikjanna, og kusu þeir Bandarikin. Ræningjarnir eru Zvonko Busic, 30 ára eiginkona hans, Julienne, 27 ára, Petar Matovic, 31 árs, Frane Pesut, 25 ára, og Mark Vlasic, 29 ára. Þrjú hin fyrstnefndu eru frá New York, Pesut er frá Cleveland, en ekki er vitað um fyrri dvalarstað Vlasics í Bandarikjunum. — Ekki ákveðið Framhald af bls. 1. efni Islendinga sagði Eyjólfur, að það sem fengizt hefði fram, væri ekki i neinni hættu. Það sem aðallega er þrefað um á ráðstefnunni núna er yfirráð og nýting alþjóðlegra hafs- botnssvæða.en það er fyrsta nefnd, en ekki fiskinefnd, eins og misritaðist I Mbl. f sfðustu viku, sem hefur þau mál til meðferðar. — S-Afríka Framhald af bls. 1. Tilgangur ferðar Kissingers til Afriku er aðallega að tryggja sjálfstæði Namibíu, sem verið hefur undir stjórn Suður-Afríku og að ýta á eftir þvi, að meirihluti íbúa Ródesiu, sem eru 6 milljónir svertingja, fái völdin i landinu með friðsamlegum hætti úr hönd- um 270.000 hvítra. Smith sagði, áður en hann fór frá Salisbury til fundar við Vorster, að hann kærði sig ekki um neina „vitleysu eins og einn maðui eitt atkvæði“. Hann sagði meirihlutastjórn vera „að telja hausa eins og maður telur rollur". 17 menn, þar á með- al 7 skæruliðar og 1 hermaður frá Mosambique, hafa týnt lffi f bar- dögum í Ródesiu milli hermanna Ródesiustjórnar og skæruliða sfð- ustu 3 daga. Haft var eftir Kenneth Kaunda forseta Zambiu í dag, að svartir Afrfkubúar ætli ekki að stöðva skæruhernað sinn í Ródesiu vegna samkomulagsumleitana Kissingers. — Líflátsógnun Framhald af bls. 25 vopn, en það verður að segjast, að þeir voru ákaflega kurteisir og ég er ákveðinn í að fara og vera við réttarhöldin. Ég get aðeins sagt, að ég er ákaflega þreyttur og vil komast í svefn- inn sem fyrst og siðan heim til min með fyrstu ferð. Ég held, að áhöfnin öll hafi staðið sig stór..tlega vel og sama er að segja um farþegana, þeir voru dásamlegar hetjur." Warren Benson, einn farþeg- anna, sagði við fréttamenn, að á stundum hefði verið gersam- lega útilokað að trúa því, að farþegarnir væru um borð í vél, sem hefði verið rænt. Hann sagði að ræningjarnir hefðu gert sér tíðförult aftur í far- þegaklefann og setzt hjá far- þegum og talað við þá. Éinnig hefðu farþegar, sem fengu sér göngutúr til að teygja úr sér, farið fram á fyrsta farrými, þar sem ræningjarnir höfðust við, og setzt hjá þeim og skrafað um heima og geima. Hann sagði, að ræningjarnir hefðu látið til skarar skríða 1 klst. og 15 mín- útum eftir flugtak frá New York og hefðu gert það með því að segja flugfreyju, að þeir væru með sprengjur um borð og ætluðu að taka við stjórn vélarinnar. Flugfreyjan til- kynnti flugstjóranum þetta og hann sagði farþegum nokkuð skjálfraddaður, að „alvarlegt vandamál hefði komið upp“. Benson sagði, að enginn far- þeganna bæri kala í garð ræn- ingjanna þrátt fyrir þetta, þeir hefðu verið mjög mannlegir og sumir elskulegir og umhyggju- samir. — Skeiðarár- hlaup Framhald af bls. 40 með, þvi að miðað við að síðasta hlaup. sem var 1972 hefði næsta hlaup naumast átt að koma fyrr en 1977—78. Hlaupið 1972 var hins vegar öllu seinna á ferðinni en menn áttu þá von á, þar sem þá voru liðin sex ár á milli hlaupa og varð ekki verulegt að vexti, enda kvað Sigurjón hlaupin heldur hafa minnkað á síðustu árum. Sigurjón sagði, að ógjörningur væri að spá um stærð þessa hlaups, en miðað við að það væri fyrr á ferðinni en venja væri, mætti ætla, að það yrði með minna móti. Hins væri aftur á móti að gæta, að mjög mikið hefði rignt undanfarið og það gæti einnig haft áhrif í þá veru að hlaupið yrði stærra. Skeiðarár- hlaup ætti einkum rætur sínar að rekja til tvenns — annars vegar jarðhita I Grlmsvatnalægðinni, sem bræddi Isinn, og hins vegar veðurfars og úrkomu sumarsins, og raunar væri ekki ljóst hvor þátturinn mætti sin meira. Sagði Sigurjón, að í sumar hefði vatns- borð verið orðið mjög hátt i Grímsvötnum og óeðlilega hátt miðað við árstíma. — Minning Framhald af bls. 30 þegar hann fékk aldur til. Börnin voru samhent og dugleg enda vel gefin og góð. Eftir að Kristín fluttist frá Reykjanesvita, bjó hún í Keflavik, Ási á Bergi. Siðustu árin bjó hún með Ragnari syni sinum sem var henni mjög góður og nærgætinn. Kristín andaðist 21. april 1976 á Kefla- víkurspítala eftir langa og erfiða legu, sem hún bar með hetjuskap eins og henni var lagið allt sitt líf. Blessuð sé minning þessarar frænku minnar. Vil ég að endingu votta börnum hennar, tengda- börnum barnabörnum og systrum hennar tveimur mina innilegustu samúðarkveðju. Reykjanesviti 23. maí 1976. Sigurjón Ólafsson. — Þang- verksmiðjan Framhald af bls. 8 Kvað Vilhjálmur það vera algjört frumskilyrði að verksmiðjan fengi meira heitt vatn en nú væri til reiðu fyrir þurrkarann, þar sem verksmiðjan hefði I sumar ekki einu sinni annað þvi tak- markaða þangi sem þó hefði afl- azt. Vilhjálmur sagði, að heitavatns- skorturinn hefði I för með sér verulegan aukinn rekstrarkostn- að, m.a. vegna þess að starfslið verlfsmiðjunnar væri að miklu leyti bundið við störf í verksmiðj- unni sjálfri þegar mest þörf væri fyrir mannskapinn við þangtekj- una. Vilhjálmur kvað þangtekj- una hafa reynzt meiri vandkvæð- um bundna er áætlað hefði verið, bæði vegna þess að fleiri dagar féllu úr en búizt hefði verið við,- og oft gengi illa að ná þangi í prgjnmann jafnvel þó að nóg virt- ist vera af þanginu á þessum slóð- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.