Morgunblaðið - 14.09.1976, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
| raðauglýsingar - - raðauglýsingar - raðauglýsingar
tilkynningar
HAFSKIP H.F.
Tilkynning
Vér viljum hér með vekja athygli heiðr-
aðra viðskiptavina vorra á því að vörur,
sem liggja í vörugeymslum vorum, eru
ekki tryggoar af oss gegn bruna, frosti
eða öðrum skemmdum og liggja þar á
ábyrgð vörueigenda. — Athygli bifreiða-
innflytjenda er vakin á því, að hafa frost-
lög í kælivatni bifreiðanna.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
því að gjalddagi söluskatts fyrir ágúst
mánuð er 1 5. september. Ber þá að skila
skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu í þríriti
Fjármálaráðuneytið 10. september 1976
AlGI.VSINÍiASÍ.WINN ER:
^22480
J JRoTflunbUibiÖ
| húsnæöi í boöi
Keflavík
Til sölu stórt einbýlishús við Smáratún.
Samliggjandi stofur eitt herbergi og eld-
hús á neðri hæð. 5 herbergi á efri hæð.
Séríbúð þ.e. eitt herb. og eldhús í
kjallara. Ræktuð og girt lóð. Góður
bílskúr. Lauststrax. Góð greiðslukjör.
Fasteignasala Vilhjálms
og Guðfinns,
Vatnsnesvegi 20, Keflavík, símar 1263
og 2890.
Minning:
Kristín Guðmundsdóttir
fyrrverandi vitavörður
Fædd 14. sept. 1893
Dáin 21. aprfl 1976.
Oft er það svo, þegar maður
fréttir lát einhvers vinar eða
ættingja, þá rifjast margt upp i
huga manns, sem maður hefur
ekki hugsað um eða jafnvel
gleymt. Þannig er það um
Kristinu frænku mína. Því samof-
ið var okkar líf og kunnings-
skapur, sem sagt frá því ég man
fyrst eftir mér sem harn og entist
sá kunningsskapur til siðustu
daga lífs hennar. Hún var mér
náskyld í móðurætt mína, móðir
mín og hún voru systkinabörn. Ég
sem þessar linur skrifa þekkti vel
til hennar æskuheimilis þvi ég
var það flest sumur frá þvi ég var
barn og til fermingar, Jónsnes-
heimilið var orðlagt fyrir gest-
risni og höfðingskap og þar var
gott að vera fyrir unglinga sem
börn, enda heimilisbragur góður.
Kristin var fædd að Hofsstöðum í
Helgafellssveit á Snæfellsnesi 14.
september 1893. Foreldrar
hennar voru hjónin Guðmundur
Bjarnason og Ólina Árnadóttir
sem síðar bjuggu i Jónsnesi í
sömu sveit. Kristín fór snemma að
vinna fyrir sér, sem siður var á
þeim tíma, var hún víða í vinnu-
mennsku, bæði i eyjum á Breiða-
firði og viðar um land, þ. á m.
Hólum í Hjaltadal og Laxamýri i
Þingeyjarsýslu. í Sveinatungu i
Norðurárdal kynntist Kristín
ungum manni se hét Jón Ágúst
Guðmundsson ættaðum frá Þor-
’.v.v. 39SS
ÞÉR TRYGGIÐ RÉTT LJÖSMAGN OG
GÓÐA LÝSINGU MEÐ ÞVf AÐ VELJA
RÉTTA PERU
Engin ein pera getur fullnægt öllum kröfum yöar. Þess vegna
býður OSRAM yður fjölbreytt úrval af hvers konar perum, til þess
að þér getið valið rétta peru og það Ijósmagn sem þér þarfnist.
Peru-úrval OSRAM gerir yður kleift að velja rétta lýsingu.
OSRAM
vegna gæðanna
finnsstöðum i Önundarfirði, vel
gefnum manni og dreng góðum,
þau kynni leiddu til þess að þau
fellldu hugi saman og stofnuðu til
hjúskapar í Reykjavík 1924.
Maður Kristínar, Jón, var um
margt vel gefinn, og varð fyrstur
manna hérlendis til að hefja
framleiðslu á gráðosti, sem var
búinn til úr sauðamjólk. Þessa iðn
lærði hann í Frakklandi. Árið
1930 var Jóni veitt vitavarðar-
staða við Reykjanesvita. Fluttust
þau hjónin þangað 1. júni 1930.
Ég sem línur þessar rita, réðst til
þeirra hjóna sem aðstoðarmaður
vorið 1931 og hjá þeim var ég í tvö
og hálft ár. Síðan skyldu leiðir
okkar Kristínar um tíma. Svo var
það siðla sumars árið 1938 er ég
var kaupamaður uppí Borgarfirði
að ég fékk þá harmfregn að Jón
vitavörður hefði andast á sjúkra-
húsi i Reykjavík. Varð mér þá
hugsað til Kristínar og ungu barn-
anna þeirra hjóna, sem nú voru
föðurlaus, og líkur voru á þvi að
Kristín yrði að fara úr þessu
starfi En Kristin var ekki á því að
gefast upp þó að syrti í álinn, hún
fékk það í gegn hjá vitamálastjóra
að vera áfram vitavörður með því
skilyrði þá að hún útvegaði mann
til sín sem áður hefði verið hjá
þeim hjónum og væri starfinu
kunnugur. Varð hún að borga
honum af sínum litlu launum
kaup og fæða hann og var þetta í
mikið ráðist, þvi laun voru lítil.
Fyrsta veturinn fékk hún mann
sem Gísli heitir, hann hafði áður
verið hjá þeim hjónum, en næsta
vor vildi hann ekki vera lengur.
Vandaðist nú málið hjá Kristínu,
þvi vitamálastjóri setti nú það
skilyrði ef hún ætti að halda
stöðunni að næsti maður skyldi
ráðast til 2ja ára. En Kristín gafst
ekki upp þvi þaö var henni ekki
að skapi. Ég var þá sjómaður I
Grindavík Kristín kom þá til mín
og sagði mér að nú væri allt undir
því komið hvort ég vildi eða gæti
komið til hennar sem aðstoðar-
maður næstu 2 ár. Ég var kunnug-
ur heimilinu og börnin þekkti ég
vel og var þvi ekki smeykur um
að gera Kristínu þennan greiða,
enda féngið það margborgað með
vináttu hennar og barna hennar.
Börn þeirra hjóna er nú fimm,
þrir synir og tvær dætur. Einir er
elstur, hann er giftur Guðrúnu
Jörgensdóttur, hann vinnur sem
verkstjóri hjá varnarliðinu,
þungavinnuvélaverkstæði.
Guðmundur er næstur, hann eí
giftur Dagbjörgu Jónsdóttur, han
er rafvirki, vinnur hjá varnarlið-
inu. Ólína er næst, hún er hús-
móðir i Bandaríkjunum. Ragnar
er næstur vinnur hjá varnarlið-
inu. Jófríður er yngst. hún er gift
Pálma Guðmundssyni, hún var
mjög ung er hún missti sinn góða
föður. Kristín var mjög vel gefin
kona, hreinlynd og vinur vina
sinna, sagði meiningu sina við
hvern sem var, laus var hún við
að baknaga fólk sem verið hafði
hjá henni, heldur tók hún málstað
þess ef einhver lastaði það i
hennar eyru. Kristin var á
Reykjanesi til ársins 1947 og bjó
þar með börnum sinum Einir stóð
fyrir heimilinu og var veitt staðan
Framhald á bls. 26
— Nokkrar
dagsetningar
Framhald af bls. 27
Einn fulltr., Helgi Gunnarsson
tæknifr., bauðst þá til að útvega
verktaka i sparkvallarsvæðið í
„Hólmum“. Stjórna verkinu og
ljúka framkvæmdum á einni
viku. Sagðist Kristján skyldu
koma þessu boði Helga á fram-
færi við rétta aðilja. Varðandi til-
boð íbúanna um einhvers konar
sjálfboðaliðsvinnu við fram-
kvæmdir þessar, sagði Kristján,
að slikt hefði alltaf gefizt illa er
til kastanna hefði komið og hefði
þess vegna því boði ekki verið
tekið.
23.—25. ág. talar Kristján við
einn fulltrúanna, er hafði mætt á
fundi hans og skýrir frá því, að
hann hafi talað við stjórnendur
framkvæmda bæjarins, og væri
nú endanlega ákveðið það er kom
fram á fundinum 11.8., að byrjað
yrði á „Hjalla“-svæðunum nú
strax og gæti þeim verið lokið
fyrir veturinn ef veður og annað
hamlaði ekki. Einnig sagði hann
ákveðið að taka ekki boði Helga
um framkvæmdir við sparkvöll-
inn.
Sýna þessar dagsetningar, að
hægt ganga framkvæmdir hjá
bænum enda þótt sett hafi verið
framlag í þær á f járhagsáætlun.
Þetta fólk sem kom fram, sem
fulltrúar íbúa Efstalandshverfis
gerði þetta að eigin fumkvæði
með undirskriftir 300 íbúa á bak
við sig, sem allir báðu þá að
þrýsta vel á eftir þessu við bæinn.
Kemur hér vel í ljós hve nauð-
synlegt er, að stofnuð verði sterk
hverfasamtök i bænum.
Við, sem að þessu stóðum, telj-
um að nú höfum við lokið því
verki er við tókum að okkur þegar
við fórum af stað með þessa und-
irskriftasöfnun 2. apríl. Við telj-
um að eina leiðin til að sýna bæj-
aryfirvöldum að íbúar Kópavogs
hafa áhuga á málefnum bæjarins
og ýta á eftir framkvæmdum, sé
að stofna hverfasamtök.
Hulda Einarsd.
Guðjón Magnússon.
Helgi Gunnarsson.
Agnes Agnarsdóttir.
útfaraskreytlngar
blómauol
Groðurhúsið v/Sigtun simi 36770
S. Helgason hf. STílNiÐJA
llnholli 4 Slmar 74677 og 14154