Morgunblaðið - 14.09.1976, Side 37
1
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976 37
VELVAKANDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 10—11 f.h. frá mánudegi til
föstudags.
% Fullorðnir lítil
fyrirmynd
Fertug kona frá Akranesi hafði
nýlega samband við Velvakanda í
framhaldi af skrifum D.B.P. um
skort á skemmtistöðum fyrir
unglinga, hér fyrir fáum dögum.
Konan sagði að það væri ekkert
skrítið þó að unglingarnir gætu
ekki verið annars staðar en á
sjoppum þar sem þau ættu sér
ekkert athvarf, þ.e. unglingar á
aldrinum 17—20 ára. Hún sagðist
vera algjörlega sammála þessum
bréfritara Velvakanda og hún
stæði með þessum unglingum sem
hvergi gætu skemmt sér. Konan
taidi það ekki rétta.stefnu að
Æskulýðsráð ætti að reka staði
fyrir unglingana það ættu þeir að
gera veitingamennirnir, en það
væri e.t.v. ékki hægt að ætlast til
þess þar sem unglingarnir væru
ekki eins góðir viðskiptavinir og
þeir fullorðnu og þeir myndu þvi
tæpast sjá sér neinn gróðaveg í
því. Hún vildi taka fram að hún
gerði ekki svo mikið af því að fara
á böll, henni leiddist að horfa
uppá drukkið fólk en hún væri
kannski talin gamaldags fyrir þá
skoðun sina. Einnig vildi hún
minnast á þann „klíkuskap" sem
oft væri ríkjandi við skemmtistað-
ina, sumu eldra fólki væri hleypti
inn eftir að fullt væri orðið, fyrir
framan nefið á þeim sem væru
búnir að bíða fyrir utan heillengi.
Þá sagðist kona halda því fram
að þeir sem ættu börn og unglinga
á aldrinum 15—20 hefðu séð að
ekki væri nein fyrirmynd í því að
sjá fullorðið fólk skemmta sér —
skemmtistaðirnir væru yfirfullir
af fullorðnu fólki, og þar innan
dyra væru eflaust ekki minni
skrílslæti en fyrir utan þar sem
þeir yngri biðu, það heyrðist bara
og sæist minna til þeirra fyrir
innan.
% Hvernigeiga
unglingar ad
skemmta sér?
Ut frá þessu mætti ihuga aðeins
meira skemmtanir unglinga.
Hvað er skemmtun, hvað vilja
unglingarnir skemmta sér og þarf
að reisa og reka mikla skemmti-
staði fyrir þennan aldur, sem hef-
ur verið á vissan hátt útilokaður
frá skemmtistöðunum? Er aðal-
skemmtiefni unglinga að fara á
böll? Er ekkert fleira sem getur
verið skemmtun í þeirra augum?
Hafa þeir enga ánægju af því að
vera í hinum ýmsu tómstundafé-
lögum og íþróttafélögum sem til
eru, eða eru þau félög of fá? Eru
skólaböll alveg hætt? Væri ekki
hægt að nota húsnæði skólanna
íw 7
eitthvað á sumrin til að bæta úr
brýnni þörf?
Þessum og ýmsum fleiri spurn-
ingum mætti varpa fram og fá að
heyra viðbrögð og skoðanir ungl-
inganna sjálfra við þeim. Við ger-
um sennilega of mikið af þvi að
spyrja hina og þessa fræðinga og
aðra menntamenn og spyrjum
unglingana sjálfa ekki nógu mik-
ið. Það má koma með fleiri spurn-
ingar. Hefur skemmtun unglinga
breytzt mjög mikið undanfarin
ár? Vilja þeir eitthvað allt annað
og miklu meira en áður? Eða er
skýringin sú að þeir eru miklu
fleiri en áður? Hér með er ungl-
ingum á þessum aldri, 15—20,
boðið upp á að láta til sin heyra
um þetta mál og fleirum lika ef
þeir hafa eitthvað fram að færa.
08itthvað
um íþróttir.
Þátttaka Islendinga i
Olympíuleikunum hefur vakið
ýmsar umræður og spurningar,
sennilega meira en oft áður.
Margir hafa haft samband við
Velvakanda og haft ýmislegt að
segja um þau mál og þó að
Ölympíuleikarnir séu löngu liðnir
mætti e.t.v. ræða þá örlítið og
fleira i sambandi við íþróttir.
Nokkrir af þessum viðmælend-
um Velvakanda hafa iagt til að
ekki verði lögð svo mikil áherzla á
að senda fólk á leikana, heldur
ætti að reyna að taka þátt i fleiri
mótum erlendum, til að íslenzkt
íþróttafólk kynntist sem bezl er-
lendu fólki og aðstæðum. Það
væri e.t.v hægt að nota ámóta
upphæð og kostaði að senda fólkið
á Ólympíuleikana til að senda
fólk jafnvel oftar út á önnur mót
eða jafnvel bæta við þá uppha'ð,
íþrottaunnendur myndu varla
horfa í þann kostnað þótt fjár-
hagur sé fremur bágborinn. Þá er
kannski komið að þeirri
spurningu hvað eigi að leggja
mikið fram til að reyna að halda
uppi eða koma upp íþróttafólki á
heimsmælikvarða. Margir vilja að
lagt verði sem mest upp úr þvi og
það er sennilega hér sem menn
greinir mest á um málefni
íþróttanna.
Leiðrétting.
Tvær prentvillur voru í vísu
sem birtist með bréfi Þorkels
Hjaltasonar á sunnudag. Það var
visa Bólu-Hjálmars og rétt er
visan svona:
Legg við faðir líknareyra,
leið oss einhvern hjálparstig;
en viljirðu ekki orð min heyra
eilíf náðin guðdómlig,
mitt skal hróp af heitum dreyra
himininn rjúfa kringum þig.
Við biðjumst afsökunar á
villunum og vonum að vísan
komist rétt til skila.
Rétt er að minna aftur á
breyttan símatima — hann er nú
milli kl. 10 og 11 fyrir hádegi.
snúið þegar maður veit ekki við
hverju.
Þér gætuð kannski hjálpað
mér?
— Meinið þér f sambandi við
greinina?
— Já og Ifka hvað þrúgar Ever-
est...
Hann fann að honum hafði orð-
ið eitthvað ágengt f þvf að brjðta
niður þann varnarmúr, sem hún
hafði byggt umhverfis stg.
— Hvaða bók er Hefene annars
að tala um f einu bréfanna?
— Ég myndskreyti barnabæk-
ur.
Hún reis upp og gekk að bðka-
skápnum. Hann kom á eftir
henni. Hún tðk litla bðk fram og
rétti honum.
Hann brosti, þegar hann sá
teikningarnar — notaleg eld-
stæði, heimilisleg eldhús — f
heimi þar sem börn, hundar, stór-
ir hamstrar og vingjarnlegir fulg-
ar virtust búa f sátt og samlyndi
og hafa sameinazt gegn fullorðna
fólkinu.
A hillu yfir bókunum á milli
kfnverskrar kryddkrukku og
bronsmyndar af nauti, stóð inn-
römmuð mynd af ungum manni f
einkennisbúningi.
HOGNI HREKKVÍSI
Hver spurrti um ÞÍNA skoðun?“
miíupa bamamatur
HRAUST OG ÁNÆGÐ BÖRN
novi/
FYRIR VIÐRADANLEGT
VERÐ
Nýja Novis samstæðan er ætluð ungu fólki
d öllum aldri. Novis er skemmtilega
einföld og hagkvæm lausn fyrir þö, sem
leita að litríkum hillu- og sköpasamstæðum,
sem byggja mó upp í einingum, eftir hendinni.
Novis er nýtt kerfi með nýfízkulegum blæ.
utsölustaðir: rnrmi
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf.
J L Húsið
Híbýlaprýði
Dúna
Húsgagnaúrvalið
Akranes: Verzl. Bjarg
Borgarnes: Verzl. Stjarnan
Bolungarvík: Ver2l. Virkinn,
Bernódus Halldórsson
Blönduós: Trésmiðjan Fróði h.f.
Neskaupstaður: Husgagnaverzl.
Ólafsvik: Verzl. Kassinn
Ölafsfjörður: Verzl. Valberg h.f.
Hafnarfjörður: Nýform
Siglufjörður: Bólsturgerðin
Akureyri: Augsýn hf.
Húsavík: Hlynur sf.
Selfoss: Kjörhúsgögn
Keflavík: Garðarshólmi hf.
Sauðárkrókur: Húsgagnaverzl.
Sauðárkróks s.f.
Vestmannaeyjar:
Húsgagnaverzl.
Marinós Guðmundssonar
FRAMLEIÐANDL
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA
aa