Morgunblaðið - 14.09.1976, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
Rússar prjóna utan við kerfið
MOSKVU — Rússar hafa nú
um nálega sex áratuga skeið
búið við kommúnistiskt stjórn-
kerfi. Eigi að sfður þrifst einka-
framtak af ýmsu tagi viðs vegar
í Sovétríkjunum, þótt ekki sé
það opinberlega viðurkennt. En
margir glöggskyggnir efnahags-
sérfræðingar fullyrða, að án
einkareksturs í Sovétríkjunum
yrði alger stöðnun í efnahags-
lífi landsins, og þessa staðreynd
viðurkenni yfirvöldin, og láti
því kyrrt liggja.
Hvað sem hæft er í þessari
fullyrðingu, er það vafalaust
rétt, að fjölmennar stéttir fram-
leiðenda, dreifingaraðiia og
sölumanna standi utan við rík-
iskerfið án þess að við þeim sé
blakað. Fyrir nokkrum dögum
skýrði Pravda, sem er voldug-
asta dagblað landsins frá einu
dæmi af þessari starfsemi.
ÞAR ER PRJÓNAÐ
OG PRJÓNAÐ
Eftir því sem blaðið segir,
hefur komið á daginn, að í hér-
aði einu í Kákasusfjöllum sinn-
ir stór hluti íbúanna engu öðru
en prjónaskap, og er prjónlesið
selt um gervöll Sovétríkin og
jafnvel víðar í Asfu. Á undan-
förnum árum hefur það færzt í
vöxt, að ungir og fullhraustir
karlmenn gefi sig óskipta að
þessari iðju, og krakkar skrópa
í skólanum til þess að sitja
heima og prjóna. Þessi prjóna-
ástríða er ekkert tómstunda-
gaman. Roskin hjón í þorpi
einu á þessu svæði höfðu ný-
Iega 10.000 rúblur í tekjur af
prjónaskap á þrem mánuðum,
en það samsvarar um 235 þús.
ísl. krónum.
Pravda skýrir einnig frá því,
að i örlitlu þorpi, þar sem eru
aðeins um 20 hús, hafi heildar-
tekjur íbúanna af prjónaskap
numið um hálfri milljón rúblna
á einu ári. Það þykir harla gott
í landi, þar sem meðalmánaðar-
tekjur eru aðeins um 200 rúbl-
ur. Það skyldi því engan undra,
að prjónaskapur sé orðin vin-
sæl atvinnugrein á þessum slóð-
um, enda dregur fréttaritari
Pravda enga fjöður yfir, að
þessi iðja færist stöðugt i vöxt.
ULLIN
„GUFAR UPP“
VIÐ RUNINGU
En hvar nær prjónafólkið í
ull? Ríkið hefur, eða öllu held-
ur á að hafa, algert eftirlit með
dreifingu á ull, en komið hefur
á daginn, að mikill misbrestur
er á þvi að svo sé. Bændum er
leyft að nytja ull af nokkrum
skepnum, um 15 fjár að meðal-
tali. En raunin er hins vegar sú,
að margir fara langt fram úr
þessu meðaltali. Pravda skýrir
frá einum bónda, sem á sjálfur
127 fjár og leggur hann fram
vænan skerf af ullarbirgðum til
ólöglegrar iðju. En bróðurpart-
inum af ullinni er hreinlega
stolið við rúningu. Pravda segir
að enda þótt fulltrúar lögreglu
séu viðstaddir rúningu, svo og
aðrir opinberir aðilar, hafi ekki
tekizt að koma í veg fyrir það,
að um það bil 1 kg. ullar af
hverri kind að meðaltali „gufi
upp“ við rúningu. í þá hít sækir
prjónafólkið hráefni til hinnar
ólöglegu iðju. Afleiðingin er sú,
að stöðug rýrnun er á ullar-
birgðum þeim, sem ríkið kaupir
af bændum landsins.
VÖRUNNIKOMIÐ
AMARKAÐ
Þeir, sem annast sölu á
prjónavarningi, nota öll tiltæk
ráð til að koma vöru sinni á
framfæri. Þegar ferðamenn eru
á leið um skóglendi eða klöngr-
ast um I fjallshlíðum, heyra
þeir gjarnan hrópað: „Peysur
til sölu.“
En sölumennirnir leggja oft
uStóé THE OBSERVER
_* * t \ *&
EFTIR DEV
MURARKA
land undir fót með vörur sínar í
ferðatöskum. Þeir ferðast með
áætlunarvögnum, járnbrautar-
lestum og flugvélum, en það er
mjög ódýrt að fara á milli staða
í Sovétrfkjunum. Þeir senda
einnig póstmeisturum í smá-
bæjum sýnishorn og verðlista,
og biðja þá um að gera pantanir
og senda greiðslu fyrir vörurn-
ar fyrirfram.
Hagnaðurinn er gífurlegur.
Svo að dæmi séu nefnd, þá kost-
ar ullartrefill, 90 gr. að þyngd,
1.50 rúblur, en sölumennirnir
geta fengið 10—15 sinnum
hærra verð fyrir slíka trefla. Ef
þeir komast tvær eða þrjár
söluferðir með ferðatöskur full-
ar af ullarvarningi, geta þeir
jafnvel hagnazt svo vel, að þeir
geti keypt sér bíl, en bílar eru
þrefalt dýrari í Sovétríkjunum
en á Vesturlöndum.
Það er staðreynd, að nægur
markaður er fyrir slíkar neyzlu-
vörur í Sovétríkjunum. Vörur
sem fáanlegar eri á almennum
markaði eru að sönnu miklu
ódýrari, en þær eru í lágum
gæðaflokki, illa hannaðar og oft
af mjög skornum skammti. Það
er því kannski engin furða, að
hægt sé að raka saman fé með
þvf að framleiða og selja ullar-
varning á ólöglegan hátt til
þeirra, sem byggja hin köldu
héruð Síberíu og aðra harðbýla
staði f Sovétríkjunum.
Getum afgreitt nú þegar, eóa meó mjög skömmum
afgreióslufresti CATERPILLAR aflvélar og rafstöbvar
í eftirtöldum stæröum:
D-398 - 12 strokka - 850 hö vió 1225 sn/mín
D-379 - 8
D-353 - 6
D-343 - 6
D-334 - 6
D-3306 - 6
D-3304- 4
aflvélar
1800-
2000
1500 -
rafstöó
D 353
425 hö
1225 siynnín
Einnig bjóóum vió
hinn vióurkennda ULSTEIh^skiptiskrúfubúnaó,
Sölu-, viógeróa- og /uj\
varahlutaþjónusta í
sérflokki l ,
Sími 21240
Laugavegi 170-172
Caterpillar, Cat, og CH eru skrósett vörumerki
V
/
Belenko — Viktor Belenko, flugliðsforingi í sovézka
flughernum (t.h.) ásamt öryggisverði eftir komuna til
Los Angeles-flugvallar í Bandaríkjunum á fimmtudag,
en þar hefur hann fengið hæli sem pólitískur flóttamað-
ur. Hann flaug sem kunnugt er MIG-25 herþotu sinni til
Japans, og þar er nú verið að rannsaka hana.
(AP-mynd)
Tugir fórust er
íbúðablokk hrundi
Karachi 13. september — Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 45 manns,
þar á meðal 27 börn, biðu bana er
nítýzkuleg sex hæða fbúðablokk
hrundi til grunna f Karachi f dag,
og töldu björgunarmenn, sem sfð-
degis voru að grafa sér leið gegn-
um rústirnar, :ð endanleg tala
látinna kynni að fara yfir 100
manns. Embættismenn borgar-
innar sögðu, ólfklegt væri að
nokkur hafi sloppið ómeiddur en
i blokkinni bjuggu 250 manns.
Lögreglan sagði að ástæðan fyrir
hruni byggingarinnar væri léleg-
ur grunnur, og hefði eigandanum
aðeins verið heimilt að reisa
tveggja hæða hús. Eigandinn lifði
harmleikinn af, en sex af sjö
manna fjölskyldu hans biðu hins
vegar bana.
Þegar í stað var fyrirskipuð
opinber rannsókn á orsök þess að
húsið hrundi og herinn kvaddur
til aö aðstoða við björgunarstarf-
iö. Er rökkva tók f kvöld sagði
einn björgunarmanna: „Þeir sem
við erum að grafa út núna eru
iátnir og það eru litlar likur á því
að þeir, sem enn sitja inni f
rústunum, finnist á lífi“. Flestir
íbúanna voru sofandi er húsið
hrundi.