Morgunblaðið - 29.09.1976, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
225. tbl. 63. árg. MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Allir deiluaðilar vilja hefja
viðræður - segir dr. Kissinger
Frá fundi Kissingers og Nyerere forseta Tanzaníu
er þeir ræddu málefni Rhódesíu.
Smith býð-
ur erindreka
Breta
til Salisbury
Saiisbury — Washington —
28. september — Reuter — AP
HENRY Kissinger utanríkisráð-
herra Bandarfkjanna sagði í
kvöld, að allir aðilar að deilunni
um framtfð Rhódesfu hefðu tjáð
honum vilja sinn, og reyndar
ákafa, um að friðarviðræður
yrðu hafnar. Ráðherrann sagð-
ist þeirrar skoðunar, að tekizt
hefði að ryðja leiðina til
þess að deiluna mætti leysa
með samningum, og nú væri
vandinn sá að koma á fót samn-
ingaviðræðum. Fulltrúi utanrfk-
isráðuneytisins, Robert Funseth,
sagði, að Kissinger hefði fengið
boð frá Ian Smith forsætisráð-
herra minnihlutastjórnarinnar f
Rhódesfu f gegnum þriðja aðila
síðasta sólarhring, en um þessa
orðsendingu hafa ekki fengizt
nánari upplýsingar.
Ian Smith hefur boðið erind-
reka brezku stjórnarinnar, sem
nú ræðir málefni Rhódesfu við
forseta fimm Afrfkurfkja, að
koma til Salisbury svo takast
megi að finna leiðir til samkomu-
lags í deilunni.
Brezka stjórnin hefur ekki svar-
að þessu boði Smiths enn sem
komið er, en James Callaghan for-
sætisráðherra ítrekaði á lands-
fundi Verkamannaflokksins, sem
fram fer í Blackpool, að bráða-
birgðastjórn yrði að taka við völd-
um í Rhódesíu sem fyrst, og lagði
til að það yrði innan fjögurra til
sex vikna. „Þegar svo er komið
málum verður ekki aftur snúið —
þá er teningnum kastað,“ sagði
Callaghan. Hann sagði, að Bretar
myndu taka virkan þátt i því að
koma á meirihlutastjórn í landinu
innan tveggja ára.
Julius Nyerere, forseti Tanzan-
iu, lýsti því yfir í dag, að bráða-
birgðastjórn í Rhódesiu innan sex
vikna mundi sanna að friðarum-
leitanir Kissingers hefðu borið
árangur, en ekki væri unnt að
koma í veg fyrir skæruhernað í
landinu eða búast við efnahags-
legum stuðningi fyrr en hinar sex
milljónir blökkumanna í landinu
hefðu tekið við völdunum af 270
þúsundum hvítra manna.
Robert Mugabem, einn af leið-
togum ZANU-
skæruliðahreyfingarinnar, lét svo
um mælt í Lusaka í dag, að vopn
væru nauðsynleg til að koma á
meirihlutastjórn í landinu, og
leiðtogi þjóðernissinnaðra
blökkumanna, séra Sithole, sagð-
ist fagna andstöðu forsetanna
fimm við tillögum Breta og
Bandarikjamanna til lausnar deil-
unni. Kissinger lét hins vegar svo
um mælt í dag, að hann hefði
fengið orðsendingar frá þremur
blökkumannaleiðtogum um að
þeir væru bjartsýnir á að hægt
yrði að ná samkomulagi í væntan-
legum viðræðum, en Kissinger
vildi ekki segja hverjir þessir
leiðtogar væru. Hann tók fram, að
þeir hefðu ekki gert umtalsverðar
athugasemdir við ákvæði sam-
komulagsins.
Gromyko utanríkisráðherra
Sovétríkjanna lýsti í dag van-
þóknun sinni á friðarumleitunum
Breta og Bandaríkjamanna i
Rhódesíumálinu, og sagði að
þar hefði orðagjálfri stjórn-
málamanna og fyrirheitum um
fjárframlög verið beitt til
að koma i veg fyrir að
raunverulegt sjálfstæði kæm-
ist á í Rhódesíu. I sama
streng hefur Fidel Castro forsæt-
isráðherra Kúbu tekið, og Map-
Framhald á bls. 18
James Callaghan ávarpar
landsfund brezka Verka-
mannaflokksins f Blackpool f
dag.
Pundið
hrynur
áfram
London 28. september Reuter.
HRUN brezka sterlingspunds-
ins heldur áfram og lækkaði
það f dag um 4H cent gagnvart
Bandarfkjadollara. Var skráð
gengi þess er gjaldeyris-
markaðnum f Lundúnum var
lokað 1.6365 cent f einu pundi.
Fyrr um daginn hafði gengi
þess farið niður f 1.63 cent, en
fregnir um að Denis Healey
fjármálaráðherra hefði snúið
aftur til skrifstofu sinnar frá
Lundúnaflugvelli, þar sem
hann var að leggja af stað til
Framhald á bls. 18
Ráðhúsið f Beirút er nú tæpast annað en rúst, og f
harðnandi bardögum f landinu sfðustu daga hefur
gffurlegt tjón orðið á mönnum og mannvirkjum.
Stórsókn
lendinga gegn
vinstrimönnum
Heiftarlegir bardagar í Líbanon
Beirút 28. september. Reuter.
HEIFTARLEGIR bardagar brut-
ust út f fjöllunum fyrir austan
Beirút f dag eftir að fregnir bár-
ust um að sýrlenzkt herlið og her-
sveitir hægrimanna f Lfbanon
hefðu hafið sókn á tveimur víg-
stöðvum gegn fylkingum
Ford viðurkennir að hafa
þegið boð um að leika golf
Washington — 28. sept. — Reuter
BLAÐAFULLTRUI Geralds
Fords, Bandarfkjaforseta,
skýrði frá þvf f dag, að f þing-
mannstfð sinni hefði forsetinn
þegið boð að minnsta kosti f jög-
urra stórfyrirtækja um að leika
golf, og gaf hann jafnframt f
skyn, að ferðakostnaður vegna
þessara golfiðkana hefði verið
greiddur að gestgjöfunum. Ron
Nessen blaðafulltrúi sagði, að
Carter ásakar forsetann
um árabil hefði forsetinn þegið
boð um að leika golf á hinum
ýmsu stöðum, og ekki séð neitt
athugavert við það, enda liti
hann ekki svo á að þar hefði
verið um stórgjafir að ræða.
Hann lagði áher/.lú á, að forset-
inn hefði ekki þegið slfk boð
hefði hann talið slfka breytni
ámælisverða.
Jimmy Carter, andstæðingur
Ford, hefur bætzt í hóp þeirra,
sem um þessar mundir gera
harða hríð að forsetanum og
bera honum á brýn óviðeigandi
meðferð fjármuna. Carter hef-
ur gert blaðafregnir um golf-
leik forsetans að kosningamáli,
og í gær lét hann þau orð falla,
að nauðsynlegt væri að fá
„utanaðkomandi aðila“ til að
hreinsa til í Washington, þar
sem valdamenn teldu sæmandi
að þíggja bæði ráð og fjárhags-
legan stuðning af einstökum
hagsmunahópum og athafna-
mönnum.
Framhald á bls. 18
Palestfnumanna f landinu. Yass-
er Arafat gaf út áskorun til allra
Arabaleiðtoga 6 klukkustundum
eftir að bardagar hófust um að
þeir hlutuðust til um að stöðva
þessi „nýju fjöldamorð** eins og
hann orðaði það. Heimildír f Beir-
út herma að hann hafi hringt f
Khaled konung Saudi-Arabfu,
Gaddhafi forseta Líbýu og
Boumedienne forseta Alsfr.
Útvarpsstöðvar deiluaðila I
Líbanon skýrðu frá því í dag, að
skriðdrekar, stórskotalið, eld-
flaugar og flugvélar hefðu verið
notaðar í bardögunum. Herma
heimildir að hér sé um að ræða
mestu sameiginlegar aðgerðir í
borgarastríðinu frá þvi að sýr-
lenzkt herlið náði helming lands-
ins á sitt vald. Borgarastríðið hef-
ur nú staðið i 17 mánuði og kostað
um 40 þúsund mannslíf.
Stjórnmálafréttaritarar í Beir-
út segja að tilgangur sóknarinnar
sé að ná hinum hernaðarlega
mikilvægu fjöllum úr höndum
vinstrimanna áður en snjóar gera
fjallvegina ófæra þungum farar-
tækjum.
Framhald á bls. 18