Morgunblaðið - 29.09.1976, Síða 32
\ n.LYSINí.ASÍMÍNN EH:
22480
AUGLÝSINGASÍMIXN ER:
22480
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1976
Kröfluvirkjun:
Áætlun um nýja vam-
argarða senn tilbúin
Orkustofnun hvetur til áframhaldandi varúðar á svæðinu
ORKUSTOFNUN hefur f nýrri skýrslu til iðnaðaráðuneytisins lagt til
að framkvæmdum á Kröflusvæðinu verði haldið áfram og segir f
skýrslunni að við þær aðstæður, sem nú rfkja á svæðinu og með
hliðsjón af ástandinu f raforkumálum norðanlands, sé rétt að leggja
áherzlu á að koma fyrri vélasamstæðu virkjunarinnar f nothæfan
rekstur sem fyrst. Er því gert ráð fyrir, að fyrri vélasamstæðan geti
komizt í gang um eða upp úr áramótum. Jafnframt er gert ráð fyrir
byggingu nýrra varnargarða til að draga úr hættu á þvf að virkjunar-
mannvirki skemmist eða eyðileggist ef gos hefst á ný úr Leirhnúks-
sprungunni. Ennfremur vill Orkustofnun að f engu verði slakað á
þeirri varúð, sem viðhöfð hefur verið undanfarna mánuði á svæðinu.
Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra, sagði að þess bæri fyrst
að geta að Orkustofnun væri
ráðunautur og ráðgjafi iðnaðar-
áðuneytisins um framkvæmdir á
Kröflusvæðinu, ástand og horfur.
Hún hefði á að skipa fjölmörgum
sérfræðingum á öllum sviðum, er
máli skipta og henni hefur verið
falið að gefa iðnaðaráðuneytinu
skýrslu um ástandið öðru hvoru
og alltaf þegar sérstök ástæða hef-
ur þótt til. Þannig hefur hún gef-
ið ráðuneytinu skýrslur öðru
hverju i sumar og niðurstaða
þeirra hefur verið sú, að ekki
hefur verið ástæða til þess að
breyta framkvæmdaáætlun.
Á föstudaginn var fékk Gunnar
Thoroddsen nýja skýrslu frá
Orkustofnun. Gunnar Thorodd-
Konu bjargað
höfninni
ur
KONA ein var á ferð í leigubfl við
Reykjavfkurhöfn um nfuleytið í
gærkvöldi. Þegar bifreiðin var
stödd á Grandagarði, við vöru-
geymslur Eimskips, bað konan
bifreiðarstjórann að stöðva
hflinn. Sté konan út úr bflnum og
henti sér umsvifalaust f höfnina
og synti frá hafnarbakkanum.
Bílstjórinn kallaði þegar á lög-
regluna og kom hún fljótlega á
vettvang. Þegar lögreglumennirn-
ir komu var konan búin að snúa
við en var alveg að þrotum komin
og tekin að sökkva. Erlendur
Sveinsson varðstjórí á miðborgar-
stöð lögreglunnar henti sér þegar
í sjóinn og náði að bjarga kon-
unni. Var hún flutt á slysadeild-
ina, og fékk Mbl. þær upplýsingar
á lögreglustöðinni, að konunni
hefði ekki orðið meint af volkinu.
sen sagði, að það bréf hefði verið
samið og undirritað af yfirmanni
Orkustofnunar, Jakobi Björns-
syni, orkumálastjóra, og forstöðu-
manni Jarðhitadeildar Orkustofn-
unar, dr. Guðmundi Pálmasyni.
Þetta bréf fjallar um ástand og
horfur varðandi framkvæmdir á
Kröflusvæðinu. Þeir greina þar
frá ýmsum atriðum, sem koma til
athugunar í sambandi við mat á
ástandinu, hveravirkni, sprungu-
hreyfingar, jarðskjálfta eða
skjálftavirkni, landris, efnasam-
setningu borholuvatnsins o.fl. Að
öllu þessu athuguðu segir í bréf-
inu:
„Það er mat Orkustofnunar, að
við þær aðstæður, sem nú rfkja á
Framhald á bls. 18
Dagný setti sölumet:
22,4 millj. kr. feng-
ust fyrir 150 tonn
EINS og komið hefur fram f
Morgunblaðinu seldi skuttogar-
inn Dagný frá Siglufirði fyrst fs-
lenzkra skipa fisk f Bretlandi eft-
ir að samningurinn um 200 mflna
fiskveiðilögsöguna var gerður f
júni s.l. Dagný seldi upphaflega
93.4 tonn af fsfiski fyrir 13.6
millj. kr. og daginn eftir seldi
skipið 63 lestir af heilfrystum
fiski fyrir 8.8 millj. kr. Alls fékk
Dagný 22.4 millj. króna fyrir afl-
ann og er þetta hæsta verð sem
íslenzkur togari hefur fengið f
Bretlandi fyrr og sfðar hvort sem
talið er f krónum eða sterlings-
pundum.
Dagný seldi alls um 150 lestir í
þessari söluferð og fyrir þær
fengust 74.400 sterlingspund, en
að sögn Ingimars Einarssonar,
framkvæmdastjóra Félags ísl.
botnvörpuskipaeigenda, átti skut-
togarinn Ögri RE hæstu sölu fs-
lenzks togara í Bretlandi áður, en
þann 6. febrúar 1974 seldi Ögri
afla í Grimsby fyrir 68.030 sterl-
ingspund.
Ingimar sagðist vilja taka það
fram, að ekki væri gott að bera
saman þessar sölur, þar sem afli
Ögra hefði eingöngu verið ísfisk-
ur, en Dagný bæði með ísfiks og
heilfrystan fisk, og tæki það mun
lengri tíma að ganga frá heil-
frysta fiskinum um borð á veið-
um.
mmrnMm*.' J,
Ljósm. Birgir
Varðskipsmenn af Tý leggja af stað um borð í
lendan togara til að kanna veiðarfæri.
er-
Nýjar mælingar á kröflusvæðinu:
Ris mest sunnan Leirhnúks
og mestar líkur á gosi þar
Aðstreymi hraunkviku getur verið
allt að 850 þús. rúmm á dag
NVJAR hallamælingar á Kröflu-
svæðinu á vegum Raunvfsinda-
stofnunar gefa til kynna að land-
ris á svæðinu sé nú mest sunnan
við Leirhnúk eða 6.7 til 7 milli-
metrar á dag. Einnig hefur verið
reiknað út, að ef ris þetta stafar
af aðstreymi hraunkviku þá er
það magn sem þarna streymir að
um 10 rúmmetrar á sekúndu.
Einnig sýna þessar mælingar að
Litsjónvarpstækin:
Árleg gjaldeyriseyðsla
naumast meir en ÍOOmillj.
SAMKVÆMT áætlunum
tveggja stórra innflytjenda á
sjónvarpstækjum má gera ráð
fyrir, að hér seldust á ári um
1000 litsjónvarpstæki og f
hæsta lagi um 2 þúsund tæki
miðað við eðlilegan innflutn-
ing. Miðað við að salan yrði um
1000 tæki má áætla að heildar
gjaldeyrisverð þeirra sé um 50
til 100 milljónir króna.
Eftir að tækin eru komin til
landsins nærri þrefaldast cif-
verð þeirra hér í meðförum.
Tollur á þeim er um 75% og
rennur hann til sjónvarpsins tíl
uppbyggingar á dreifikerfi
þess. Ýmis annar kostnaður
leggst á tækin áður en þau kom-
ast til kaupenda en ofan á það
allt leggst söluskattur og vöru-
gjald, sem rennur til ríkisins og
er þess hlutur litlu minni en
sjónvarpsins.
í samtali við Halldór Laxdal,
forstjóra Radíóbúðarinnar,
gizkaði hann á að hér myndu
seljast um 1000 litsjónvarps-
tæki á ári miðað við að inn-
flutningur værí með eðlilegum
hætti, og taldist honum til að
heildargjaldeyriseyðsla þjóðar-
innar vegna þeirra tækja væri
um 50—70 milljónir króna.
Rafn Johnsson, forstjóri
Heimilistækja, taldi þá tölu
ekki fjarri lagi miðað við sölu á
sjónvarpstækjum hér á landi
nú síðustu árin, enda þótt ákaf-
lega erfitt væri að gera sér
grein fyrir slíku.
Raunverulega hefði verið
búið að metta markaðinn að
mestu fyrir nokkrum árum og
kaupendur væru aðallega ungt
fólk að stofna heimili eða fólk
sem væri að endurnýja eldri
Framhald á bls. 18
landrisið nær yfir stærra svæði
en áður var ætlað. Mestar Ifkur
eru á gosi á þvf svæði þar sem
landris er mest og þessa stundina
eru þvf mestar Ifkur á gosi sunn-
an Leirhnúks. Skjálftatfðni held-
ur áfram að vaxa á Kröflusvæð-
inu og mælast þar um 130 skjálft-
ar á sólarhring miðað við fimm
daga meðaltal.
Hallamælingar þessar hefur
Eysteinn Tryggvason, dósent,
annazt fyrir Raunvísindastofnun
Háskólans. Setti hann niður í júlí-
mánuði sl. hallamæla á fimm stöð-
um á þessu svæði og var fyrst
mælt hinn 27. júlf, síðan 20. ágúst
sl. og loks hinn 20. september sl.
Niðurstöður þessara mælinga
gefa nokkru nákvæmari mynd af
landrisi á þessum slóðum en eldri
mælingar og eins í hvaða stefnu
landið rís.
Að sögn Eysteins eru helztu nið-
urstöður þær, að landið ris mest
við Leirhnúk eða nokkru vestar
en áður var talið, og sýna mæling-
arnar að þar er landris sennilega
milli 6.6 og 7 millimetrar á dag. Á
fyrrihluta tímabilsins eða frá 27.
júlf til 20. ágúst var risið mest á
miðjum Leirhnúki en á síðara
tímabilinu var það mest rétt sunn-
an við Leirhnúk og hefur þannig
færzt til.
Einnig sýna þessar mælingar,
að landrisiö nær yfir nokkru
stærra svæði en áður var talið, t.d.
má ætla að landið rísi um 1 senti-
metra á mánuði norðaustan
Mývatns. 1 þriðja lagi er ekki að
sjá af þessum mælingum, að
neinar breytingar séu að verða á
þeirri þróun sem þarna hefur
verið að eiga sér stað undanfarna
mánuði heldur haldi hún áfram
með jöfnum hraða.
Eysteinn sagði, að ef landris
þetta stafaði af aðstreymi hraun-
kviku, þá væri það magn sem
þarna streymdi að um 850 þúsund
rúmmetrar á dag eða um 10 rúm-
metrar á sekúndu eða nokkru
meira en áður hafði verið reiknað
út. Það stafar þó ekki af því að
aðstreymið hafi aukizt heldur
gefa þessar mælingar nú betri
mynd af hreyfingunni þar sem
þær ná yfir stærra svæði en áður.
Framhald á bls. 18
Geirfinnsmálið:
Unnið úr upp-
lýsingum frá
því í vetur
MORGUNBLAÐIÐ ræddi f
gær við örn Höskuldsson full-
trúa við sakadóm Reykjavfkur
og spurði hann um gang Geir-
finnsrannsóknarinnar. örn
sagði að ekkert sérstakt væri
að frétta af rannsókninni, 10
manna vinnuhópurinn ynni
stöðugt að málinu. Væri aðal-
áherzlan lögð á það núna áð
vinna úr upplýsingum, sem
aflað var s.l. vetur en ekki
hafði unnizt tfmi til að full-
vinna. Vestur-þýzki sérfræð-
ingurinn Karl Sciitz er um
þessar mundir erlendis f fyrir-
lestrarferð.