Morgunblaðið - 02.10.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKT0BER 1976
„Unnt er að koma
fótum undir Þör-
ungaverksmiðjima”
Þessar síldarsöltunarstelpur Bæjarútgerðar Reykjavíkur drifu sig út í sólina til
að fá sér kaffisopann og hvern langar ekki í tíu dropa þegar hann sér þessa
kaffitímalegu mynd, sem Friðþjófur tók.
.fc/ 'i
Ávísanamálid:
Yfirdráttur heimill
í einstaka tilvikum
Yfirheyrsium í ávísanamálinu var fram haldið f gær
hjá Hrafni Bragasyni rannsóknadómara. Voru yfir-
heyrðir tveir bankastjóra, annars vegar bankastjóri f
Verzlunarbanka tslands og í öðru lagi útibússtjóri
Lnadsbanka tslands.
Við yfirheyrslurnar sagði
bankastjóri Verzlunarbaríkans að-
spurður um viðskipti Ásgeirs H.
Magnússonar að hann hefði í ein-
staka tilfellum fengið nokkra yf-
irdráttarheimild í sambandi við
sín víxlaviðskipti. Saði banka-
stjórinn að Ásgeir hefði ætíð sett
næga tryggingu fyrir sínum við-
skiptum að mati bankastjórnar-
innar. Utibússtjóri Landsbankans
sagði aðspurður um viðskipti
nokkurra aðila í ávisanamálinu að
þeir hefðu ekki haft heimildir til
yfrdráttar, enda hefði hann ekki
leyfi til að veita slíkar heimildir,
það væri aðeins á færi banka-
stjórnarinnar. Þá var nokkuð rætt
um skyndikannanir og útibús-
stjórinn spurður hvort hugsan-
legt gæti verið að nokkur fengi að
vita um þær fyrirfram. Sagði
hann að slíkt mætti heita útilok-
að, þar sem ekki væri tilkynnt um
slíkar kannanir fyrr en seinni
part dags. Væri þá starfsfólk það
sem vinna ætti við könnunina
áminnt um að láta það ekki berast
hvað stæði fyrir dyrum. Þá sagði
útibússtjóri Landsbankans að sá
háttur væri á í sambandi við út-
vegun matar fyrir starfsfólkið að
Framhald á bls. 18
„ÞAÐ er verið að ganga frá tillög-
um stjórnar Þörungaverksmiðj-
unnar til lausnar á þeim vanda-
málum sem verksmiðjan á við að
glfma og tillögurnar verða sendar
Þagnarmúr
hjá út-
varpinu
STARFSMENN sjónvarpsins
efndu sem kunnugt er tii ólög-
legra verkfallsaðgerða til að
undirstrika kröfur sfnar um
endurskoðun á launakjörum
sfnum og f tengslum við þessar
aðgerðir komu fram opinber-
lega kröfur um að upplýsingar
yrðu veittar um það hver væru
raunveruleg meðaltalsmánað-
arlaun ýmissa starfshópa inn-
an sjónvarpsins.
Morgunblaðið hefur ítrekað
spurzt fyrir um þetta atriði hjá
forráðamönnum ríkisútvarps-
ins en fengið þau svör, að þeir
sjái ekki ástæðu til að gefa
þetta upp. Þá sneri Morgun-
blaðið sér til Höskulds Jóns-
sonar, ráðuneytisstjóra fjár-
málaráðuneytisins, og leitaði
eftir þessum upplýsingum þar.
Höskuldur kvaðst þá aðeins
hafa undir höndum mánaðar-
tekjur sjónvarpsmanna sam-
kvæmt launaflokkum ásamt
yfirvinnu en ekki ýmsar auka-
tekjur þeirra. Ráðuneytið gæti
að sjálfsögðu aflað þeirra upp-
lýsinga hjá fjármálastjórn rík-
isútvarpsins en þegar spurt
var hvort ráðuneytið gæti orð-
ið Morgunblaðinu úti um þess-
ar upplýsingar sá Höskuldur
Framhald á bls. 18
ráðherra f næstu viku,“ sagði Vil-
hjálmur Lúðvfksson formaður
stjórnar verksmiðjunnar þegar
Morgunblaðið leitaði frétta hjá
honum f gær varðandi aðgerðir til
að tryggja rekstur þörungaverk-
smiðjunnar á Reykhólum, en
rfkið er stærsti hluthafinn f verk-
smiðjunni með 90 millj. kr. af
120.
„Það er ljóst,“ sagði Vilhjálm-
ur, „að þetta hefur gengið illa og
rekstur hefur f raun og veru ekki
tekizt. Það þarf því að fram-
kvæma meiriháttar aógerðir og
nú eru möguleikar að koma í ljós
sem hægt er að byggja á og út frá
þeim er ástæða til að ætla að unnt
sé að koma fótum undir fyrirtæk-
ið tæknilega og fjárhagslega, en
það tekur meiri tíma en við reikn-
uðum með og við það verðum við
að horfast i augu. Líklega tekur
það um 3—4 ár að koma þessu á
réttan kjöl og tillögurnar byggjast
á því, en á næstunni munum við
gera nánar grein fyrir stöðunni í
málinu.“
„Teflt
af
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
tapaði á skákmótinu f Júgó-
slavfu f gærkvöldi fyrir Smej-
kal, en skák Friðriks og Garcia
fór f bið og er Friðrik með
betri stöðu.
Aðeins þermur skákum lauk
f þriðju umferð f gærkvöldi.
Sax gerði jafntefli við Hort,
Gligorich gerði jafntefli við
Ivkov og Smejkal sigraði Guð-
mund. Guðmundur og Smejkal
eru nú efstir með tvo vinninga
en fleiri eiga sömu möguleika
eftir biðskákirnar.
1 spjalli við Guðmund f gær-
kvöldi var hann óhress yfir
niðurstöðunni. Skákin var 40
leíkir og var mikið tfmahrak f
henni. Sagði Guðmundur að
mótherji sinn hefði verið I
mun meira tfmahraki en hann
sjálfur. „En ég lék mjög illa af
mér,“ sagði Guðmundur, „ var
of bráður og tapaði.“
Við röbbuðum einnig við
Friðrik, en hann var þá að
kanna stöðuna og möguleika f
biðskák sinni. „Ég ætla að fara
að kfkja svolftið betur á hana,“
sagði hann, „þetta er betra hjá
mér, en ég ætla að kanna hvort
að ég get eitthvað pfnt hann,
það eru möguleikar, en þó er
þetta ekki búið ennþá. Þetta er
sterkt og skemmtilegt mót,
teflt af mikiili hörku og mikil
keppni. Þetta er ekki ósvipað
og sfðasta mót heirna."
Annars var gott hljóðið f
þeim félögum þótt Guðmund-
ur væri ekki alveg sáttur við
sjálfan sig. Þeir búa f miklu
virki sem stendur uppi á hæð
og sögðu að það fr,ri ágætlega
um þá, en keppnin fer fram á
járnbrautarstöð. „Við fylgj-
umst þvf með daglegri áætlun
lestanna," sagði Friðrik og hló,
„ og ef þetta gengur illa, þá er
bara að vippa sér upp f næstu
lest.“
Fiskverð til
Yfirnefndar
Undanfarna daga hefur Verð-
lagsráð sjávarútvegsins fjallað
um nýtt fiskverð, en samkomulag
náðist ekki. Var því málinu vísað
til yfirnefndar og hélt nefndin
sinn fyrsta fund i gær án þess að
samkomulag næðist.
Forsætisráðherra
í Eyjum í dag
Geir Hallgrímsson for- sætisráðherra í öðrum
Geir Hallgrfmsson.
sætisráðherra efnir til
fundar með Vestmann-
eyingum í dag og hefst
fundurinn í Samkomuhús-
inu kl. 16. Er þetta fram-
hald af fyrri fundum for-
kjördæmum landsins í júni
og júli í sumar. Mun for-
sætisráðherra ræða um
ástandið í þjóðmálum og
fundargestir geta borið
fram fyrirspurnir.
Takmarkið: Engin slysaalda í ár
1 Blaðinu ( gcr rugluðust tölurnar um
árekstrafjöldann vfir þá daga sem eru
liðnir af þessari viku. En þá höfðu orðið
26 ( ár á móti 46 ( fyrra.
Þessi föstudagur ( fyrra varð einn sá
versti það árið, en það voru gerðar skýrsl-
ur um 29 umferðaróhöpp. Einn maður lózt
og fjórir hlutu meiðsli. Árangurinn eftir
föstudaginn 1. okt. er litlu betri. Skýrslur
voru gerðar um 25 óhöpp og f tveim urðu
meiðsli á fólki en ekki er að fullu kunnugt
um meiðsli. Margir þessara árekstra
höfðu gffurlegt eignatjón f för með sér.
Eitt viljum við leggja áherzlu á nú, en
það er, að ( svo til öllum tilfellum, þegar
um árekstur á gatnamótum er að ræða, að
annar eða Jafnvel báðir ökumennirnir
segjast ekki hafa séð til ferða hins fyrr en
áreksturinn varð. Við biðjum þvf alla
vegfarendur að huga að þessu og reyna að
Ifta að minnsta kosti tvisvar eftir umferð
áður en ekið er inn á gatnamót og ekki
horfa á blfreiðina sem er alllangt frá og
aka sfðan f feg fyrír bifreiðina sem er
komin að gatnamótunum.
FÖSTUDAGUR
1975
Kl. 07.58 varð árekstur á bifreiðastæði.
Kl. 08.04 var vörubifreið ekið aftan á
fólksbifreið og kastaði hún henni á aðra.
Kl. 08.24 var Iftilli fólksbifreið ekið af
Ægisgötu inn á Vesturgötu, en lenti þá á
hlið almenningsvagns sem ökumaðurinn
hafði ekki séð.
Kl. 08.30 var ekið aftur á bak á bifreið á
Drekavogi.
Kl. 08.32 var ölvaður ökumaður á ferð
um borgina og stöðvaði ekki fvrr en Ijósa-
staur lenti f vegi fyrir honum.
Betur
má ef
duga
skal...
Kl. 08.44 varð kona fyrir almennings-
vagni á Háteigsvegi, en reyndist ómeidd.
Kl. 09.42 missti ökumaður stjórn á bif-
reið sinni á Norðurfelli og fór yfir á
öfugan vegarhelming og þar á bifreið sem
kom á móti. ökumaður þeirrar bifreiðar
meiddist nokkuð.
Kl. 09.46 missti almenningsvagnsstjóri
stjórn á farartækinu og hafnaði á Ijósa-
staur. Einn farþegi slasaðist.
Kl. 09.58 missti enn einn ökumaður
stjórn á bifreið sinni, sem snerist á göt-
unni og stöðvaðist loks á mannlausri bif-
reið.
Kl. 10.03 varð 79 ára gamall maður fyrir
bifreið á Njálsgötu og siasaðist.
Kl. 11.21 var bifreið ekið yfir á öfugan
vegarhelming og lenti þar á bifreið sem
kom á móti.
Kl. 11.30 varð áreksíur á blfreiðastæði.
Kl. 11.50 varð harður árekstur á mótum
Brekkulækjar og Kleppsvegar.
Kl. 12.17 biluðu hemlar bifreiðar á Æg-
isgötu og stöðvaðist hún ekki fyrr en
brunahani varð (vegi fyrir henni.
Kl. 12.56 varð mjög harður árekstur á
Kleppsvegi við Langholtsveg, þrennt var
flutt á slysadclld, en engin teljandi
meiðsli komu fram.
Kl. 14.22 varð lftil stúlka fyrir bifreið á
Holtavegi og meiddist talsvert.
Kl. 15.03 ók dráttarvél aftan á almenn-
ingsvagn.
Kl. 15.20 varð 78 ára gamali maður fyrir
bifreið á Hverfisgötu við Klapparstlg.
Hann lézt af völdum meiðslanna sem
hann hlaut.
Kl. 15.24 var bifreið ekið úr húsasundi
og inn á Armúla og á bifreið sem var ekið
hjá um leið.
Kl 16.07 varð enn einn árekstur á bif-
reiðastæði, þar sem annar aðilinn ók aftur
á bak án þess að gæta að sér sem skyldi.
Kl. 17.18 varð árekstur við benzfnaf-
greiðsluna á Kleppsvegi, þar sem annarri
bifreiðinni var ekið inn á Kleppsveginn
án þess að ökumaður liti nægilega vel
eftlr umferð.
Kl. 17.40 varð harður árekstur þar sem
ökumaður ætlaði fram úr bifreið sem
beygði um leið.
Kl. 17.50 urðu tveir árekstrar. Annar
þegar biðskylda var ekki virt á Eyrarlandi
við Bústaðaveg, en hinn þegar ekið var
aftan á bifreið á Laugavegi.
Kl. 18.52 var bifreið beygt í veg fyrir
aðra á Háaleitisbraut-Kringlumýrarbraut.
Kl. 19.15 varð harður árekstur á mótum
Framhald ð bls. 18