Morgunblaðið - 02.10.1976, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1976
10
Jaguar XJ 4,2.
Lúxus á hjólum
Jaguar XJ 4,2 - Automatic
í SÍÐUSTU viku var rætt um í
bílaþættinum einn ódýrasta bfl-
inn, sem völ er á hér í dag. Nú
er hins vegar komið að hinum
enda verðlínunnar. Á síðari ár-
um hefur einn og einn maður
lagt út í að flytja til landsins
lúxusbíla, sem eru svo glæsileg-
ir útlits að manni finnst nóg
um. En eftir að setjast i og aka
bíl, sem er jafn hljóðlátur og
maður væri inni I stofu heima
hjá sér, sætin leðurklædd á við
besta sófasett og hraðinn finnst
vart nema að horfa á hraðamæl-
inn, er maður næstum orðlaus.
Það tekur tíma að jafna sig
eftir bíltúr í slíkum lúxus —
eina hljóðið, sem heyrist á 180
km/klst hraða er í vindinum.
Öllum hurðum er hægt að
læsa með því að ýta á einn
takka við hlið bílstjórans. Þar
eru einnig takkar til að opna
gluggana, sem eru auðvitað raf-
knúnir. Hér er ekki verið að
tala um bandarfskan lúxus, né
þýskan, heldur er hér á ferð-
inni Jaguar XJ 4.2, sem er frá
Jaguarverksmiðjunum I Eng-
landi, hluta British Leyland
samsteypunnar. Eigandi þessa
bíls er forstjóri P. Stefánsson
hf., Sigfús Sigfússon.
Tveir bensfntankar, sinn í
hvoru afturbrettinu taka sam-
tals um 80 lftra og sjá vélinni
sem er 172 hestöfl fyrir elds-
neyti. Vélin er línuvél, 6
strokka, hestöflin eru gefin
miðað við 4500 snún./mín.
Þjöppunin er aðeins 7,8:1 og
rúmmálið 4235 rúmsm.
Jagúarinn vegur 1790 krg
óhlaðinn, er tæplega 5 m lang-
ur, 177 sm breiður og 137,5 sm
hár.
Stýringin er ein sú léttasta,
sem völ er á (vökvaaðstoð) án
þess þó að vera svo létt að mað-
ur missi tilfinninguna fyrir
akstrinum, nema kannski
nokkra fyrstu kílómetrana.
Um leið og kveikt er á útvarp-
inu rennur loftnetsstöngin upp
úr öðru afturbrettinu, en niður
á ný þegar slökkt er.
Þetta er ekki sportbill en þol-
ir þó beygjuakstur á við góðan
sportbíl. Viðbragðið er gott þótt
sjálfskipting sé. Ekki er hér völ
á nákvæmum tfma en bein-
skipti bíllinn er 10 sek. 0-100
km/klst. Billinn er geysilega
þægilegur i akstri, hvort sem er
á 18 km/klst hraða, 80 km/klst
eða 180 km/klst. Hraðinn
finnst litið, a.m.k. úr öku-
mannssætinu og sama og ekk-
ert fyrr en ofan við 140
Frágangur allur er fyrsta
flokks.
Lúxus fyrir fimm manns.
6 — strokkar f línu, 172 hestöfl.
km/klst. Hámarkshraðinn ku
vera yfir 200 km/klst þegar
bíllinn er vel stilltur. En hér er
vissulega um að ræða meiri
hraða en nothæfur er á íslenzk-
um vegum.
Ef maður á svona bfl hlýtur
hann að hugsa sig tvisvar um
áður en hann fer útfyrir mal-
bikið á honum en holurnar
finnast vart inni f bílnum. Eitt
af einkennum Jagúarsins, sem
ennfremur greinir hann frá
sportbfl, eru hinir dúnmjúku
demparar. Miðstöðin er frábær.
Það. eru 18 sm undir bílinn
þar sem hann er lægstur. Mæla-
borðið er sérlega vandað eins
og raunar allur bíllinn að inn-
an. Þar getur að lfta alla nauð-
synlega mæla (hraða-, snún-
ingshraða-, olfuþrýstings-, hita-
og bensínmæli).
Verðið á þessum bíl yrði víst
vart undir 6 millj. kr. en um
almennan innflutning á þess-
um bfl er ekki að ræða. Umboð-
ið fyrir öllum British Layland
bflum á Islandi hefur P. Stef-
ánsson hf.
Jagúar XJ er einnig fram-
leiddur með minni vél, 3,4 lftra
163 hestöfl og svo stærri vél
V-12, sem er 5,3 lítrar og 289
hestöfl. Bremsurnar til að
stöðva Jagúarinn eru diskar á
öllum hjólum og tvöfalt kerfi.
Þessum lúxusbíl, sem hér er
um að ræða verður vart með
orðum lýst. — Tvfmælalaust
besti lúxusbfll, sem ég hefi enn-
þá ekið.
br.h.
Draumabfll?
Frétt frá Bridge-
félagi Hafnarf jarðar
Aðalfundur Bridgefélags
Hafnarfjarðar var haldinn 24.
september ’76.
Formaður næsta starfsárs
verður Halldór Einarsson.
Starfsárið hófst mánudaginn
27. sept. s.l. með einskvölds tví-
menningskeppni.
A-riðill.
stig.
Einar Sigurðsson
— Dröfn Guðmundsdóttir 128
Albert Þorsteinsson
— Kjartan Markússon 120
Björn Theodórsson
— Hrafn Sigurhansson 118
B-ríðill
stig.
Þorgeir Eyjólfsson
— Magnús Jóhannsson 106
Óli Kr. Björnsson
— Vilhjálmur Einarsson 102
Arni Þorvaldsson
—■ Sævar Magnússon 96
Næsta mánudagskvöld hefst
4 kvöldá tvímenningskeppni.
Sú nýjung verður tekin upp i
vetur að gefa næsta pari fyrir
neðan miðlung í hverjum riðli
bridgebók. Félagar og aðrir
áhugamenn um bridge í
Hafnarfirði eru hvattir til að
mæta. Keppni hefst stundvis-
lega kl. 20.00 í Iðnaðarmanna-
húsinu í Hafnarfirði.
XXX
Frá Bridgedeild
Húnvetningafélags-
ins
Bridgedeild félagsins byrjar
starfsemi sína með fimm
kvöida tvimenningskeppni mið-
vikudagskvöldið 6. okt. Spilað
verður í húsi félagsins I.aufás-
vegi 25 (Þingholtsstrætismeg-
in). Spilað verður í tveim tíu
para riðlum. Þeir sem vilja taka
þátt í keppninni, og enn hafa
ekki látið skrá sig, eru vinsam-
lega beðnir að tiikynna stjórn
deiidarinnar þátttöku sina sem
fyrst.
Stjórnina skipa Jakob Þor-
steinsson, formaður, simi
33268, Kári Sigurjónsson, sími
19854, og Haraldur Snorrason,
sími 36437.
XXX
Bridgefélag kvenna
Þriggja kvölda einmennings-
keppni félagsins er nú Iokiö, og
sigraði Gunnþórunn Erlings-
dóttir með 308 stigum, næstar
urðu:
Stig.
Halla Bergþórsdóttir 306
Ingunn Hoffmann 303
Laufey Arnaids 301
Herdis Brynjólfsdóttir 294
Sólveig Kristjánsdóttir 294
Margrét Margeirsdóttir 289
Hólmfríður Brynjólfsdóttir 288
Viktoria Ketilsdóttir 285
Erla Guðmundsdóttir 285
Meðalskor: 270stig.
Næsta keppni félagsins
verður „barometer"-
tvimenningskeppni, sem hefst
mánudaginn 4. október n.k. i
Domus Medica kl. 19.30 stund-
víslega. Allar konur eru vel-
komnar í þessa keppni, þótt
þær séu ekki i félaginu. Þátt-
taka óskast tilkynnt til for-
manns félagsins, frú Margrétar
Ásgeirsdóttur, í síma 1-42-18,
fyrir sunnudagskvöld 3. okt.
n.k.
ÞingB.S.I.
DAGANA 25. og 26. sept. var
þing Bridgesambands íslands
haldið hér i Reykjavík. Mikil
gróska er í félagsstarfssemi og
áhugi fyrir bridge mjög mikill
og eykst alltaf. Fjárhagur sam-
bandsins er mjög erviður og
stendur það starfseminni fyrir
þrifum, þótt öll vinna t.d. í sam-
bandi við undirbúning keppnis-
móta og kynningarstarfssemi sé
gefin og verðlaun sömuleiðis.
Samþykkt var mjög skorinorð
ályktun á þinginu til stjórn-
valda um frekari stuðning til
B.S.I. og kemur þar m.a. fram,
að draga megi úr unglinga-
vandamálum nútlmans með
frekari starfssemi hugiþrótta
eins og bridge. Þvl er skorað á
stjórnvöld að huga betur að
málefnum bridgestarfseminnar
og bent er á stuðning þann, sem
fþrótta og félagasambönd fá
með beinum stuðningi hins
opinbera svo og stuðningi við
byggingar ofl. og væntir B.S.I.
hliðstæðrar stöðu sér til handa.
Erlendis gætum við náð mun
lengra með frekari þátttöku í
erlendum keppnismótum og
æfingum og tilsögn hér heima.
B.S.I. hefur þegar á boðstólum
bækur um bridge og er að láta
þýða bækur fyrir byrjendur og
hefur opnað skrifstofu á Lauga-
vegi 28 I Reykjavík. Alls eru nú
I B.S.I. 27 félög víðsvegar af að
landinu. A þinginu var rætt um
fjármál sambandsins og skipu-
lagsmál, keppnisreglur og laga-
breytingar.
Forseti B.S.I. var kjörinn.
Hjalti Ellasson.
Aðrir I stjórn voru kjörnir.
Ríkharður Steinbergsson,
Hörður Arnþórsson, Helga
Bachman, Alfreð G. Alfreðsson,
Tryggvi Glslason og Ragnar
Björnsson.
Varamenn I stjórn: örn Vig-
fússon, Haraldur Snorrason og
Ólafur G. Ólafsson.
Endurskoðendur: Ingi R.
Jóhannsson og Sigvaldi Þor-
steinsson.
Þingforsetar voru kjörnir,
Tryggvi Gíslason og Friðrik
Karlsson. Þingritarar voru
kjörnir, Matthfas Andrésson og
Þorsteinn Kristjánsson.
A.G.R.
eftir RAGNAR
BORG
Ég kannaði það nú I vikunni,
hvaða bækur og blöð eru á boð-
stólum fyrir myntsafnara.
Hvort heldur eru bækur sem
fjalla um myntsöfnun á breið-
um grundvelli, eða verðlistar,
sem fjalla um vftt eða afmarkað
svæði. Og það kom I ljós, að I
verzlunum I Reykjavik er sitt-
hvað sem nota má.
Víða má fá bæklinginn Is-
lenzkar Myntir 1976. Er þetta
verðlisti, en jafnframt eru
myndir af peningum, vörupen-
ingum og seðlum, sem verið
hafa hérlendis I notkun. Má
segja, að þetta sé nokkurskonar
biblfa þeirra, sem safna íslenzk-
um peningum eða seðlum.
Frovin Sieg heitir danskur
maður, sem gefur árlega út
verðlista, þar sem skráð er
verð, I dönskum krónum, á
myntum Norðurlandanna.
Einnig gefur hann út sams kon-
ar lista um seðla. Eru listar frá
Sieg mjög mikið notaðir af ís-
lenzkum myntsöfnurum. List-
arnir frá Sieg fást vfða í bóka-
verzlunum og hjá myntsölum.
Politikens forlag hefir gefið
út Nordiske Mönter eftir hinn
þekkta danska myntfræðing
Johan Chr. Holm. Árlega er svo
gefinn út pési um verðbreyting-
ar á myntinni. Nær listi Holms
aftur til 1808 eins og Sieg mynt-
verðlistinn. Johan Chr. Holm
hefir skrifað ágæta bok, sem
fæst hjá Eymundsson. Heitir
bókin De gamle mönter.
Þeir hjá Eymundsson hafa af-
ar gott úrval af bókum um