Morgunblaðið - 02.10.1976, Side 13

Morgunblaðið - 02.10.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 2. OKTÓBER 1976 13 Flugleiðir fluttu 200 þús. farþega — fyrstu 7 mánuði þessa árs — Hec8,27.Bd6—Hxbl (Svartur er engu betur settur eftir 27. Hb6 28.Hfcl.) 28. Hxbl — Re2 29. Hb7 (Frábært samspil hvítu mannanna gerir nú út um skák- ina.) 29. — Bh8, 30. Rf6+! — Bxf6 31. gxf6 — Rexf4, 32. f7+ — Kh8.__________________________ j§ I W # * 1 §§ w i ém, wm . V > N 4 9 mW' i mM. ■ mm 'W wm. WAWÁ mp mm. w, A wm. wm, A '#m. wé m WÆ. W. Jl §§ m, wk ■ Jl ip wk 4? 33. He7! Hér ákvarð svartur að gefast upp, enda gengur hvorki 33. Rxe7 vegna 34. Be5 mát né 33. Kg7 vegna 34. f8=D — Kxf8 35. Hc7+ og vinnur. Eini möguleiki svarts er 33. Hf8 en eftir 34. He8 — Kg7, 35. Hxf8 — Rxf8 36. Bxf4 hefur hann manni minna. Urslit í annarri umferð urðu síðan þau, að Sigurður vann Ólaf, en Hilmar Karlsson og Hilmar Viggósson, Stefán og Jónas og Þröstur og Ásgeir gerðu hins vegar allir jafntefli. Aðrar skákir fóru f bið. Þriðja umferð var tefld sl. fimmtudag og urðu úrslit þá þessi: Hilmar Viggósson vann Helga, jafntefli gerðu Ásgeir og Hilmar Karlsson, Jónas og Þröstur. Aðrar skákir fóru í bið. Að loknum þremur um- ferðum er Hilmar Víggósson þvl efstur með 2Vi vinning. Eftirfarandi staða kom upp I þriðju umferð 1 viðueign þeirra Ásgeirs Asbjörnssonar (hvítt) og Hilmars Karlssonar (svart): Eins og lesendur hafa vafa- laust komið auga á á hvítur hér snjalla vinningsleið með 34. Rxg6!, ef Kxg6 þá 35. Rh4+ Kf6 36. De5+ og hvítur fær manninn aftur með vinnings- stöðu. 1 stað þess lék Ásgeir sem var í tímahraki: 34. De5+? — Kh7, 35. Rxf5 — gxf5, 36. Rd4 — Bg7!, 37. De7 (Ef 37. Dxf5+ — Dxf5 38. Rxf5 heldur svartur öllu sínu með 38.... Bb2) 37. — Kg6, 38. Re6 — (Nú virðast öll spjót standa á svörtum en Hilmar finnur snjalla vörn:) 38. — Dg8!, 39. h4 — Kh7, 40. h5 — Kh8 Jafntefli. Nú stendur yfir hjá Skák- félaginu Mjölni í Reykjavík mót til fjáröflunar vegna komu sovézka stórmeistarans Taimanovs hingað til lands. Tefldar eru 7 umferðir eftir Monrad -kerfi og hefur hver keppandi eina klst. til umráða fyrir skákina. Að loknum 4 umferðum eru þeir jafnir og efstir Þráinn Sigurðsson og Magnús Sólmundarson með 4 vinninga hvor. Mótinu lýkur á sunnudag FARÞEGAR f áætlunarflugi Flugfélags Islands og Loftleiða til annarra landa f júlf sl. voru 61.361 og er það um 10,8 % fjölgun miðað við sama mánuð f fyrra, þegar þeir voru 55.357. Sætanýting nú f júlf var um 85% en var 83.1% f sama mánuði f fyrra. Heildarfjöfdi farþega f millilandaflugi fyrstu sjö mánuði þessa árs var 217.078 miðað við 206.461 á sama tfma f fyrra og nemur aukningin 5.1%. Farþegum i áætlunarflugi Air Bahama fjölgaði um 20.8% i júli sl. miðað við sama mánuð í fyrra og voru þeir nú 8.115 en 6.719 I júlfmánuði í fyrra. Sætanýting nú var 85.8% en var 79.4% í júlí- mánuði I fyrra. Heildarfjöldi I áætlunarflugi Air Bahama fyrstu sjö mánuði ársins nam nú 42.392 en var 42.723 á sama tíma f fyrra. Stálvík í sigl- ingu til Bretlands Siglufirði 30. september. STÁLVÍK kom hingað með 180 tonn af fiski I dag og landar hér 35 tonnum. Hinn hluta aflans siglir togarinn með til Grimsby og selur þar á miðvikudag. Togarinn siglir vegna mikillar fólkseklu hér á staðnum við vinnslu fisks. Afli linubáta hefur verið með sæmilegasta móti undanfarið, frá 5—7 tonn I róðri. mj Bókagjöf til Héraðsbóka- safns V-Skaft. Litlahvammi, 30. september. NYLEGA barst Héraðsbókasafni Vestur-Skaftafellssýslu minn- ingargjöf um Unni Eiriksdóttur, rithöfund frá Höfðabrekku, og er gjöfin ritverk Unnar í vönduðu skinnbandi. Hefur ritverk þetta að geyma frumsamin ljóð og sög- ur auk þýðinga. Eru gefendur fermingarsystkini Unnar en hún lézt á þessu ári. Fyrir fjórum árum gaf þessi sami hópur ásamt Unni kross i Vfkurkirkju til minningar um Sigurð L. Árnason frá Vík en hann var sá fyrsti, sem féll frá úr þessum hópi en þetta eru einnig fyrstu fermingarbörn- in frá Víkurkirkju eða frá árinu 1935. Sfgþór. Flóamarkaður kvenstúdenta Flóamarkaður er haldinn á veg- um íslenzka kvenstúdentafélags- ins á Hallveigarstöðum næstkom- andi laugardag og er er þetta einn liður I fjáröflunarstarfsemi félagsins, en þar fyrir utan er haldin tfzkusýning á vegum þess og kaffisala með happdrætti o.fl. Kökubasar er einnig árlegur liður f fjáröflunarstarfseminni. Undanfarin ár hefur ágóðanum verið varið til að styrkja stúdinur, en nú er ætlunin að breyta til og reyna að koma upp eigin húsnæði félagsins og styrkja á þann hátt efnilegar stúdfnur. Aðeins dýrasta síldin kostar um 20 þús. MORGUNBLAÐINU hefur verið bent á villur f frétt blaðsins i gær um framleiðslukostnað á einni tunnu af saltaðri sild. Hið rétta mun vera að framleiðslukostn- aður er mjög misjafn eftir stærð- um sildarinnar og verkunarteg- undum, sem eru mjög margar. Mikill munur er t.d. á kostnaðarverði á heilsaltaðri sild og hausskorinni og slógdreginni. Þá er og sykursfld og kryddsfld dýrari f framleiðslu en venjuleg saltsfld. Aðeins allra dýrasta sfldin mun kosta nálægt 20 þúsund krónum f framleiðslu hver tunna að meðtöldum öllum útflutningsgjöldum, sem nema á annað þúsund krónur. Svar: Tæknileg fullkomnun ÞEIR SEM RANNSAKAÐ HAFA TÆKIN SEGJA M.A.: 1) í dag eru ekki fáanleg tæki með betri litmyndagæðum en „PHILIPS" (Danskt tæknitímarit, október 1975). 2) „Litgæðin eru best og I heildarniðurstöðu er PHILIPS einnig hæst" (Úr prófun norrærvna neytendasamtaka á 1 2 gerðum litsjónvarps- tækja). AUK ÞESS FULLYRÐUM VIÐ: 1) Algjörlega ónæm fyrir spennubreytingum (þolir 165 — 260 volt án þess að myndin breytist). 2) Fullkomin varahlutaþjónusta og BEST menntuðu viðgerðarmenn hér á landi. 3) Bilanatíðni minni en ein á 3ja ára fresti. 4) Hentugasta uppbygging tækis (modules)- auðveldar viðhald. PHILIPS litsjónvarpstækin eru byggð fyrir fram- tíðina, því að við þau má tengja myndsegul- bandstæki, VCR (Fáanleg I dag) og myndplötu- spilara, VPL (kemur á markað 1977). Hvor- tveggja auðvitað PHILIPS uppfinningar. SKOÐIÐ PHILIPS LITSJÓNVARPSTÆKIN í VERSLUNUM OKKAR ( í Hafnarstræti 3 höfum við tæki tengt myndsegulbandstæki). PHILIPS MYNDGÆÐI EÐLILEGUSTU LITIRNIR PHILIPS KANN TÖKIN ÁTÆKNINNI heimilistæki sf Haf narstræti 3 — Sætúni 8 Hvers vegna eru PHILIPS litsjónvarpstækin mest seldu litsjónvarpstæki Evrópu? I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.