Morgunblaðið - 02.10.1976, Page 14

Morgunblaðið - 02.10.1976, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1976 Helmutarnir í lokauppgjöri á morgun í v-þýzku kosningunum KOSNINGARNAR, sem fram fara í V-Þýzkalandi á morgun eru taldar verða einhverjar þær tvísýnustu um árabil. Stjórn Helmut Schmidts kanslara, sam- steypustjórn jafnaðarmanna og frjálsra demókrata, sem verið hefur við völd f 7 ár hefur töluverðar áhyggjur af úrslitum kosninganna f Svíþjóð fyrir skömmu, er sænskir kjósendur felldu jafnaðarmanna- stjórn Olofs Palme og komu væntanlega til valda fyrstu borgarlegu stjórninni þar f landi f 44 ár. Túlkun úrslita sænsku kosninganna f V-Þýzkalandi er mismunandi eftir því hvort hægri eða vinstri menn eru spurðir. Hægrimenn segja að úrslitin tákni veðra- brigði, vinstrimenn segja að þau skipti engu máli. Þó verður að hafa í huga, að Svíþjóð hefur löngum verið haldið á loft sem fyrirmyndar- þjóðfé^gi i V-Þýzkalandi og jafnaðarmannastefnan í Sviþjóð hefur markað stefnuna fyrir aðra jafnaðarmanna- flokka í V-Evrópu. Stjórnmála- fréttaritarar segja að at- burðirnir í Svíþjóð ásamt þvi sem nefnt er „7 ára kláðinn“ sem oft nær tökum á kjósend- um, er stjórn hefur setið lengi við völd, geti nægt til þess að fella stjórn Schmidts, en tal þess að svo geti orðið verður fylgisbreytingin á milli stjórnarinnar og stjórnarand- stöðunnar að verða 5% miðað við kosningaúrslitin 1972. Síð- ustu skoðanakannanir benda til þess að úrslitin verði afar tví- sýn. Tvær milljónir kjósenda verða að hverfa úr herbúðum stjórnarflokkanna til kristi- legra demókrata og íhaldssama systurflokksins í Bæjarlandi kristilega sósialsambandsins, sem Franz Josef Strauss er í forsvari fyrir. Fordæmi eru fyr- ir þvi í kosningum f V- Þýzkalandi að svo mikil fylgis- breyting hafi orðið, en fréttarit- arar segja að til of mikils sé ætlast af Helmut Kohl, for- manni kristilegra demókrata og kanslaraefni þeirra, að flokkur hans nái slíkum árangri. Kohl, sem kallaður er „svarti risinn“ vegna þess hve hávaxinn hann er og dökkleitur þykir ekki hafa öðlast þá stöðu eða vin- sældir í v-þýzkum stjórnmálum, sem Schmidt nýtur. Kohlér for- sætisráðherra í Rínarhéruðun- „Vió vrtum meira um frebi" segjajafnaðarmenn ísvari við „Frelsiístað sósíalisma" „Við vitum meira um frelsi“ Kristilegir demókratar tóku sér I upphafi kosningabarátt- unnar slagorðið „frelsi í stað sósíalisma“. Þetta kom í fyrstu mjög illa við jafnaðarmenn, sem kölluðu slagorðið fals- kenningu, sem hitti fyrir neðan beltisstað. Síðar tóku þeir yfir- vegaðri afstöðu og létu til skar- ar skríða með slagorðinu „við vitum meira um frelsi." 5. Hver V-Þjóðverji mun innan tiðar þiggja einhvers konar eftirlaun. 1 upphafi kosningabaráttunnar reyndi stjórnarandstaðan að gera eftir- launamálið að stórmáli með þvi að láta að þvi liggja að eftir- launagreiðslur væru i hættu vegna mikils greiðsluhalla. Stjórnin tók það mál þegar föst- um tökum og gaf yfirlýsingu um að eftirlaun myndu halda áfram að hækka i samræmi við launa- og verðhækkanir. Framkvæmdastjóri kristi- legra demókrata, hagfræði- Willy Brandt Helmut Kohl Heimut Schmidt Franz Josef Strauss Ekkert sparað til baráttunnar Skoðanakannanir benda til að heldur hafi hallað undan fæti fyrir stjórninni, en þess ber að gæta að 11% kjósenda hafa enn ekki gert upp hug sinn. Skoðanakönnun, sem gerð var 21. september, sýndi, að stjórnarflokkarnir nutu fylgis 49.9% kjósenda, en höfðu 54.3% 1972 og stjórnarandstað- an fylgi 49.3%, en hafði 44.8%. Innan við eitt prósent kjósenda styður öfgaflokka eins og nýnasista og kommúnista. 1 kosningunum verður kosið um 496 þingsæti í Bundstagen og er kosningabaráttan að mestu leyti fjármögnuð af skattatekj- um ríkisins. Flokkarnir spara engu til I baráttunni. Risastórar litaauglýsingar, eins og þær sem notaðar eru fyrir sápur og vindlinga blasa alls staðar við og það vekur athygli að varan, sem auglýst er, er ákaflega svipuð hvort sem um er að ræða stjórnarflokkana eða stjórnar- andstöðuna. Baráttumál flokk- anna eru ákaflega svipuð og bera vitni um skort á hreinum baráttumálum, eins og var t.d. I kosningunum 1972, er kosið var um Östpolitikstefnu Willy Brandts þáverandi kanslara. Margar kjósendur, sem studdu „góða nágrannastefnu“ Brandts eru óánægðir með að nágrannarnir virðast enn við sama heygarðshornið og að jarðsprengjur og byssur taka enn toll af mannslífum við landamærin. prófessorinn Kurt Biedenkopf, beindi þá spjótum sinum að verkalýðsfélögunum, sem höfðu verið heilög kýr í v- þýzkum stjórnmálum og sakaði verkalýðsleiðtoga um kliku- skap og frændsemi og að þeir störfuðu með jafnaðarmönnum að því að einoka vellaunaðar og áhrifamiklar opinberar stöður. Þessi ásökun hefur verið borin harkalega til baka, en margir kjósendur eru þeirrar skoðunar að nokkuð sé til I þeim (t.d. í Hamborg og Hesse, þar sem jafnaðarmenn hafa verið óslitið við völd I 30 ár) og að völdin i þessum fylkjum hafi stöðugt verið að færast á færri hendur. Mikil velmegun Atvinnuleysi hefur minnkað hægt og sígandi en er ennþá rétt um 5% og er um 1 milljón manna atvinnulaus, þar af verulegur hluti ungt fólk. At- vinnuleysið hefur þó ekki verið neitt sérstakt hitamál í kosningunum vegna þess að fá- ir kjósendur eru þeirrar skoð- unar, að kristilegir demókratar geti gert miklu betur. Schmidt kanslari hefur hvað eftir annað bent á efnahagsbatann, sem stöðugt tekur betur við sér og hina styrku stöðu v-þýzka marksins á alþjóðlegum gjald- eyrismörkuðum. Milljónir V- Þjóðverja, sem komnir eru heim aftur eftir sumarleyfis- ferðir á sólarströndum Mið- jarðarhafsins, eða lengra að, hafa yfir litlu að kvarta hvað lífsgæðin snertir. Spjótunum beint að Strauss Jafnaðarmenn hafa í kosningabaráttunni skipt sér litið af Kohl, en aðallega beint spjótum sinum að Franz Josef Strauss, sem þeir segja að verði sterki maðurinn í stjórninni, ef kristilegir demókratar og systurflokkurinn fara með sig- ur af hólmi. Því hefur verið lýst yfir að Strauss verði vara- kanslari og fjármálaráðherra komist kristilegir demókratar að. Segja jafnaðarmenn að Strauss geti orðið hættulegur stöðu V-Þýzkalands I heimin- um, ef hann kemst að. Mútu- hneykslið, sem kennt er við bandarísku Lockheedflugvéla- verksmiðjurnar hefur hangið eins og eiturský yfir kosningun- um, en vindátt hefur enn sem komið er ekki verið í rétta átt til að það geti haft áhrif á þær. Bandaríska ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að dularfullt bréf, sem á að vera frá yfirmanni bandarísku leyniþjónustunnar til Strauss sé falsað, en bréf þetta gefur til kynna að Strauss hafi þegið fé i sambandi við sölu á 700 Starfighterþotum til v-þýzka hersins á árunum eftir 1960, er hann var varnarmála- ráðherra. Kristilegir demókratar þurfa meirihluta 4 atkvæða Þótt kosningarnar séu bar- átta milli vinstri og hægri flokka eru leiðtogar beggja miðjumenn, Schmidt er sjálfur harðasti gagnrýnandi marxista- aflanna í jafnaðarmanna- flokknum og Kohl er ekki sér- lega harður Ihaldsmaður. Er þvi ekki mikill skoðanaágrein- ingur milli þessara tveggja manna. Flestir stjórnmála- fréttaritarar í V-Þýzkalandi eru þeirrar skoðunar, að væri Schmidt ekki kanslari jafnaðar- manna myndi flokkur hans að öllum likindum tapa fyrir kristilegum demókrötum. Lík- legt er þó talið að frjálsir demókratar muni áfram verða í lykilaðstöðunni við stjórnar- myndun og foringi þeirra, Hans Dietrich Genscher utanríkis- ráðherra, hefur þegar lýst því yfir að flokkur sinn muni halda áfram stjórnarsamstarfi með jafnaðarmönnum og ekki undir neinum kringumstæðum ganga til liðs við kristilega. Kristilegir og systurflokkur þeirra verða því að fá hreinan meirihluta atkvæða til að ná völdum og það hefur aðeins gerst einu sinni áður undir forsætis Konrads Adenauers fyrir 19 ár- um. Annar möguleiki er einnig fyrir hendi þótt langsóttur sé og það er að frjálsir demókrat- ar fái undir 5% atkvæða, því að þá koma þeir ekki manni að skv. kosningareglunum, sem settar voru til að koma í veg fyrir að klofningshópar fengju lamað þingstörf eins og á árun- um eftir 1920, sem ruddi leið- ina fyrir valdatöku Hitlers. Þessi reglugerð heldur nú nýnasistum og kommúnistum utan þingsins. Ekki er talin mikil hætta á að frjálsir demókratar fari undir 5%, þeir fengu I síðustu kosningum 8.4% og talið er að gengi þeirra nú muni vaxa fremur en hitt. Lægsta atkvæðamagn þeirra fram til þessa var 1969 er þeir fengu 5.8% atkvæða. Willy Brandt Willy Brandt fyrrum kanslari, sem segja varð af sér 1974, er upp komst að nánasti samstarfsmaður hans var a- þýzkur njósnari, er enná for- maður jafnaaðarmanna- flokksins og nýtur mikilla vin- sælda með fjölda V-Þjóðverja. Brandt er nú 62 ára að aldri og tekur virkan þátt i baráttu flokks sins. Hann virðist mun rólegri en hann var sem kanslari, hann hefur fitnað og hann fær hlýrri móttökur en bæði kanslaraefnin á fundum. En hægri menn hata Brandt jafn innilega og jafnaðarmönn- um þykir vænt um hann. Hægrimenn lita á hann sem svikara, sem flúði undan nasist- unum til Noregs og kom heim eftir striðið klæddur norskum einkennisbúningi. Þeir telja einnig að Östpolitik hans, sem vann honum friðarverðlaun Nóbels, hafi selt kommúnistum sameinangardraum þýzku ríkjanna. Rainer Barzel, sem var kanslaraefni kristilegra demókrata 1972, en tapaði fyrir Brandt, sagði nýlega: „Við munum gera allt sem f okkar valdi stendur til að koma i veg fyrir að þessi maður gegni á ný opinberu embætti. Brandt kemur oftast einn sins liðs á fundina og þykir föðurlegur flokksleiðtogi sem stappar stálinu í flokksmenn sína og leitar stuðnings fyrir fram- bjóðendur I einstökum kjör- dæmum og jafnaðarmenn i heild. Schmidt nýtur meiri virðingar en hlýju, en stuðningsmenn Kohls klappa sinum manni kröftuglega lof í lófa, en láta ekki í ljós beina aðdáun. Helmut Schmidt Þrátt fyrir þátt Brandts er augljóst á baráttuaðgerðum jafnaðarmanna að þeir leggja allt sitt traust á Schmidt, að honum takist að leiða þá til sigurs. Kosningaspjöld um allt landið segja: „Betri maðurinn verður að vera kanslari áfram.“ „Hvers vegna skipta á kanslara sem nýtur alþjóðlegrar virðingar og fylkisstjórnmála- manni, sem hefur ekki meiri reynslu en sem forsætisráð- herra fylkis með 3 milljónir Ibúa?“ Þetta er einnig það sem Schimdt leggur áherzlu á á kosningaferðum sinum um landið. Hann lætur heldur ekkert tækifæri ónotað til að koma því inn hjá kjósendum að aflið hjá stjórnarandstöðunni sé ekki Kohl heldur Strauss, að I eldhúsi stjórnarandstöðunnar sé Strauss matsveinninn en Kohl bara þjónn. Fréttamenn sem verið hafa á kosningaferða- lagi með Schmidt segja að það fari ekkert á milli mála að þrátt fyrir rósemi Schmidts og þær góðu móttökur sem hann alls- staðar fær, sé hann að berjast af alefli fyrir kanslarasæti sínu. Stjórnarandstöðu- flokkarnir hafa bætt við sig fylgi I 10 af 11 fylkiskosning- um, sem haldnar hafa verið síðan 1974 og það liggur ljóst fyrir, að stjórnarflokkarnir munu tapa eitthverju af þeim 46 sæta meirihluta sem þeir hafa haft í þinginu. Schmidt hefur sterkan málstað. Þau tvö Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.