Morgunblaðið - 02.10.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1976
15
Svíþjóð:
Reynt að ná samkomu-
lagi um þingforseta
MBL. ræddi f gær stuttlegavið
Óiaf Pétursson, fréttaritara sinn f
Stokkhólmi, um hvernig blöð þar
spáðu um stjórnarmyndunina f
landinu. Ólafursagði að málið
væri ekki á forsfðum þessa
dagana, eh mikil fundahöld væru
meðal borgaraflokkanna. Auk
þess myndu fulltrúar jafnaðar-
manna og borgaraflokkanna
koma saman f dag, föstudag, til að
reyna að ná samkomulagi um
þingforseta. Þingið kemur saman
á mánudag og leggja borgara-
flokkarnir kapp á að þingforseti
verði úr röðum þeirra. Jafnaðar-
menn telja að stærsti flokkurinn
eigi ftt til að fá þetta embætti og
verður reynt að jafna þennan
ágreining f dag. Þá sagði Ólafur
að enn væri ekki ljóst hvernig
afstaðan til kjarnokumálanna
yrði til lykta leidd.
fyrir
Dæmdur
morð
á Araba
Tel Aviv 1. okt. Reuter.
Herdómstóll f Tel Aviv dæmdi f
dag sekan ísraelskan majór um
manndráp á Araba einum, sem
handtekinn var á vestri bakka
Jórdanár í marz sl. Dómsorð mun
falla í næstu viku. A lokuðum
fundi í dag var ákveðið að það
yrði birt í næstu viku svo og nafn
majórsins, sem er sagður reyndur
hermaður. Maðurinn var talinn
vera ábyrgð á dauða Ahmed Dib
Dahlul, ritara kommúnistadeild-
arinnar í þorpinu Salfit á vestri
bakkanum, þegar óeirðir brutust
þar út í fyrravor. Dahlul var einn
sjö Araba, sem voru handteknir,
og var laminn á leið í fangelsi, svo
að hann hlaut bana af.
Hermenn sögðu að þeir hefðu
fengið skipanir um að sýna hina
hranalegustu framkomu við Ar-
abana sjö og var sú skipun síðan
rakin til áðurnefnds majórs.
Mynd af Júnó, málverki Rem-
brandts
611 millj.
greiddar fyrir
Júnómynd
Rembrandts
BANDARISKA blaðið New
York Times skýrir frá þvf að
myndin „Juno“ eftir Rem-
brandt hafi verið seld á dögun-
um og fyrir hana fengizt hærra
verð en nokkru sinni áður fyr-
ir Rembrandtmynd eða 3.25
milljónir dollara sem munu
vera um 611 milljónir fsl.
króna. Kaupandi var dr.
Armand Hammer, formaður
Occidental olfufélagsins. Aður
var hæsta verð fyrir Rem-
brandtmynd 2.30 milljónir
doflara og var það greitt árið
1961, þegar Metropolitan-
listasafnið keypti myndina
„Aristoteies skoðar brjóst-
mynd af Hómer“.
Málverkið af rómversku
Framhald á bls. 18
Ólafur sagði að það eina sem
gerðist á mánudag þegar þing
kæmi saman væri að kjörinn yrði
forseti og hann myndi sfðan að
líkindum formlega fela Thor-
björn Fálldin stjórnarmyndun.
Síðan væri liklegt að Fálldin
fengi frest fram eftir vikunni til
að ganga frá málefnasamningi við
flokkana og endanlegum ráð-
herralista.
Hafa drepið 65
s-afríska her-
menn upp
á síðkastið
London 1. okt. Reuter.
Afrískir skæruliðar í Namibfu
(Suðvestur-Afrfku) lýstu því yfir
í dag að þeir hefðu drepið að
minnsta kosti 65 suður-afrfska
hermenn í sex áhlaupum í norður-
hluta Namibíu. í tilkynningu sem
var gefin út í Luanda, höfuðborg
Angóla, sagði að þessi áhlaup
hefðu verið gerð frá þvf um miðj-
an ágúst og fram til 20. septemb-
er. Var sagt að liðsmenn úr Frels-
isher Namibiu —PLAN— hefðu
staðið að þeim.
Gaston Thorn, sendiherra Lúxemborgar hjá Samein-
uðu þjóðunum og fráfarandi forseti allsherjarþings-
ins, afhendir eftirmanni sínum, Hamilton Shirley
Amerasinghe frá Sri Lanka, fundarhamarinn. Amera-
singhe setti síðan þingið i síðustu viku.
Nígeríumenn stela
úr norsku skipi
Þrándheimi 1. okt. Ntb.
NORSKA skipið „Delta Mariner"
hefur nú fengið skipun um að
fara frá Nfgerfu eftir að vopnaðir
menn hafa þrjár nætur f röð ráð-
izt um borð f skipið haft á braut
með sér allmikið af skreið sem
skipið er áð koma með til Nfger-
fu. Þetta er alvarlegasti atburður-
inn sem orðið hefur f sambandi
við þau ýmsu vandkvæði sem upp
hafa komið varðandi sölu Norð-
manna og flutning á skreið til
Nfgerfu.
Meira bandarískt
hveiti til Sovét
Washington 1. okt. Reuter.
SOVÉTRtKIN keyptu f dag 400
þúsund tonn af hveiti til viðbótar
fyrri kaupum og verður það af-
hent á næsta ári, þrátt fyrir stöð-
ugar fréttir um það frá Sovétrfkj-
unum að þau væru að verða sjálf-
um sér næg með hveiti. Sam-
kvæmt fimm ára viðskiptasamn-
ingi Bandarfkjanna og Sovétrfkj-
anna, sem tekur gildi á morgun,
verða Sovétar að kaupa að
minnsta kosti 6 millj. tonn af
bandarfsku korni árlega, hvernig
svo sem þeirra eigin uppskera er.
Ef sfðasta salan er talin með
eiga Sovétar enn eftir að kaupa að
minnsta kosti 600 þús. tonn hveit-
is og 200 þús. tonn af maísmjöli til
að við samning þeirra sé staðið.
Samkvæmt óopinberum heim-
ildum mun kornuppskera Sovét-
manna í ár hafa orðið jafnvel
meiri en árið 1973, þegar metupp-
skera var 222.5 millj. tonn. Fyrr á
þessu ári þegar kornuppskera
þeirra leit ekki sérlega vel út
skýrðu Sovétar bandamönnum
sínum í Austur-Evrópu frá því að
þeir yrðu að snúa sér annað en til
þeirra með kaup á korni.
Opinber
gjöld hækka
á Ítalíu
ÍTALSKA stjórnin tilkynnti I
dag að hún ætlaði að hækka
skatta og gjöld fyrir opinbera
þjónustu frá næstu áramótum.
Er það liður í gagngerum end-
urbótum hennar á efnahags-
málum.
Sagði í tilkynningu stjórnar-
innar að ráðstafanirnar ykju
tekjur ríkisins um upphæð,
sem samsvaraði 2.5% af þjóð-
arframleiðslu landsins, sem er
verðmæti allrar þjónustu og
varnings, sem framleiddur er á
Italíu.
Stjórnin hyggst nota þetta fé
til að endurnýja og endur-
skipuleggja iðnaðinn, skapa
meiri atvinnu, sérstaklega fyr-
ir atvinnulausa unglinga, auka
landbúnaðarframleiðslu og
íbúðabyggingar.
Ahöfnin á Delta Mariner er
ekki nema átta menn og hefur
hún því enga möguleika á að
verja lestina fyrir hinum vopn-
uðu ræningjum, en þeir hafa
komið allt að tuttugu saman.
Gerðist þetta úti fyrir höfninni i
Port Harcourt meðan norska skip-
ið beið eftir að komast að til af-
fermingar.
Þetta mál er ekki sagt f neinu
samhengi við handtökuna á Ivar
Dyrkoren, ræðismanni, og er litið
á þetta sem hreina sjóræningja-
iðju.
Mengun á
Grænlandi
UMHVERFIS-
MÁLAAHUGAHÓPURINN Noah
á Grænlandi heldur því fram að
Greenex-náman við Marmorilik,
sem er í kanadlskri eigu hafi
sleppt út svo miklu úrgangsvatni
að mikil hætta geti stafað af því.
IJr námunni er unnið blý og zink.
Þetta kemur fram í skýrslu um
fyrstu umhverfisrannsóknina
sem gerð hefur verið síðan starf-
ræksla námunnar hófst.
Hópur danskra presta:
Vill jöfn laun
SKVRT hefur verið frá þvf f
dönskum blöðum að nokkrir
prestar dönsku þjóðkirkjunnar
f Árósum, Kaupmannahöfn og
Óðinsvéum hafi lýst vanþókn-
un á launastefnu danska
prestafélagsins og segja þeir
m.a. f yfiriýsingu: „Þörf er ein-
ingar meðal háskólamanna og
annarra launastétta f þjóðfélag-
inu. Svo og milli okkar og
þróunarlandanna. Þess vegna
verðum við að hætta og heimta
og spyrna við fótum, svo að
ófaglærðir og faglærðir verka-
menn og aðrir geti komizt á
sama launastiga."
Aðalmál starfshóps þessara
presta er að jöfn laun verði
fyrir alla presta og verði meðal-
laun svipuð og faglærður
verkamaður fær nú. Er tekið
fram að æskilegt sé að laun
presta nú fari að minnsta kosti
ekki yfir 132 þús. danskar krón-
ur á ári. (það eru tæpar fjórar
milljónir ísl.).
„Það erum við -sem höfum
góð fjárráð og því verðum við
að nema staðar og beita okkur
fyrir launastöðvun meðal okk-
ar. Ég er með um 150 þús.
danskar krónur á ári með öllu
og meira má það alls ekki vera.
Ég vann f átta ár í Tanzaníu,
þar sem danskir læknar, prest-
ar og hjúkrunarkonur fengu öll
sömu laun og það gafst prýði-
lega og allir voru ánægðir,
vegna þess að starfið var okkur
til gagns og gleði,“ segir einn úr
hópnum, Knud Ochsner í Hasle
við Árósa.
Hópurinn vinnur að þvf að
fyrir alla
þeir prestar sem hæst hafa laun
lækki verulega f launum. Auk
þess sé þess að gæta að prest-
lærðir menn hafi notið náms-
lána og styrkja meðan þeir voru
við nám og verði að meta það
framlag ríkisins svo að háskóla-
menn taki ekki of stóran bita af
köku samfélagsins þegar námi
er lokið. Prestarnir segja að
óraunhæft sé að vænta þess að
laun presta verði almennt
lækkuð. En hins vegar verði að
setja launastöðvun á hæstu
launin, svo að lægri hóparnir
geti smám saman náð þeim og
jöfnuður fengizt á þann hátt.
Prestarnir segjast vona að
þessi barátta þeirra muni hafa
áhrif á aðrar hálaunastéttir.
Formaður danska prestafélags-
ins segir að félagið hafi verið
mjög hógvært f launakröfum
sfnum og hvað eftir annað slak-
að á þeim. Hann vildi þó ekki
tjá sig um hvort hann teldi rétt
að lækka laun presta eða að
minnsta kosti setja launa-
stöðvun á þá sem komnir eru í
hæstu launaflokkana.