Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1976 3 EINS og Morgunblaðið hefur skýrt frá þá hefur Sölusamband fsl. fiskframleiðenda gengið frá sölu á saltfiski til Evrópulanda fyrir um 3 milljarða króna. Heildarmagnið er allt að 13000 lestir, en mest fer til Portúgal, 5.800 lestir. Það kom fram á blaðamanna- fundi með forráðamönnum S.l.F. f gær, að vel gengur að selja blautfiskinn, en hins vegar eru geigvænlegir erfiðleikar hjá þeim, sem vaska og þurrka saltfiskinn, vegna sölutregðu og lágs verðs. Það kom einnig fram, að stór fiskur, .þ.e. 10—20 sporðar f 50 kg. pakkningu, eru nú alveg að hverfa, þar sem stór þorskur fæst ekki lengur f sjónum. Fyrir nokkrum árum voru allt að 30—40% heildar- saltfiskframleiðslunnar af þessari stærð. Samið um sölu á allt að 13000 lestum til 5 landa Hlutdeild saltfisksins í heildarútflutningn- um var 20% á sl. ári Tómas Þorvaldsson sagði á blaðamannafundinum i gær, að nú hefði verið samið um sölu á saltfiski til fimm landa og samningaviðræður staðið yfir í um það bil mánuð. Forráða- menn S.l.F. fara venjulega tvisvar á ári f samningaferðir, þ.e. á haustin en þá er sumar- og haustframleiðslan seld, og á vorin en þá er gengið frá sölu á vertíðarframleiðslunni. Með þeim samningum sem gerðir voru í þessari samninga- ferð er söluþörf S.Í.F. fullnægt fram á næsta ár. Er hér um að ræða marga stærðar- og gæða- flokka. 1300 tonn af ufsa- flökum til V-Þýzkalands Að sögn Tómasar fóru hann, Þorsteinn Jóhannesson og Frið- rik Pálsson til V-Þýzkalands og tókst að selja um 1000 lestir af ufsaflökum, sem er svipað og samið var um á sama tíma í fyrra, að auki var gengið þann- ig frá samningum að Þjóðverj- ar áttu kost á 300 tonnum til viðbótar i vissan tíma og hafa nú staðfest kaup á 150 tonnum af þvi magni og vonast er til að þeir staðfesti hin 150 tonnin á næstu dögum. Sagði Tómas að ufsaflökin væru að mestu notuð í sjólax, og kepptu islenzk skip sem seldu í ísfisk í V- Þýzkalandi við vöru sem unnin væri á tslandi. Verðið sem fékkst fyrir ufsaflökin er rétt um 2% hærra en fékkst á sama tima i fyrra. Ufsaflök voru fyrst seld til Þýzkalands skömmu eftir strið og undan- farin þrjú ár hefur salan aukist stöðugt. Frá Þýzkalandi var haldið til Grikklands og önnuðust þeir Tómas Þorvaldsson og Helgi Þórarinsson samningagerðina þar og tókust samningar um 2000 tonn af smáþorski og að auki 300 til viðbótar siðar. Er hluti af því magni smálanga. Til Grikklands tókst að selja 1700 tonn á sama tima í fyrra, en viðbótarsamningar voru gerðir í nóvember — desember. Litlu hærra verð fékkst í Grikk- landi miðað við s.l. ár. Losað um innflunings- höftin á Spáni Frá Gikklandi héldu þeir Helgi og Tómas til Madrid, og er þeir komu þangað, hafði S.l.F. ekki fengið innflutnings- Þeir önnuðust samningagerðina fyrir S.I.F. talið frá vinstri: Friðrik Pálsson, Tómas Þorvaldsson og Helgi Þórarinsson. Ljósm. Mbl. RAX. leyfi frá því í vetur, og stóðu málin þannig að S.I.F. hefði ekki getað uppfyllt 1400 tonna samninginn frá því í vetur af þessum sökum. Tómas sagði, að Öiafur Jóhannesson viðskiptaráðherra hefði skrifað viðskiptaráðherra Spánar bréf' og einnig hefði Einar Benediktsson unnið að þvi að leysa þetta mál. „Á með- an við dvöldum í Madrid kom ekki endanlegt svar, en stuttu eftir að við fórum þaðan fékkst innflutningsleyfi fyrir 2500 tonn, sem þýðir að við getum uppfyllt samninginn frá því í Framhald á bls. 23 Innheim tus t j órinn greiddi mismun- inn úr eigin vasa MORGUNBLAÐINU barst 1 gær eftirfarandi athugasemd frá Axel Ólafssyni, innheimtustjóra Rfkis- útvarpsins: I Morgunblaðinu í gær er birt kvittun frá innheimtudeild Ríkis- útvarpsins útgefin 12. maí 1972 að upphæð kr. 2.187.50 en afnota- gjaldið var á þvf timabili kr. 2.200.— Mér hafði borist skemmtilegt bréf frá þessum ágæta viðskiptavini Ríkisútvarps- ins, þar sem hann nælist til þess að kr. 12.50 yrðu dregnar frá af- notagjaldinu vegna þess að sjón- varpsútsending féll niður eitt kvöld á tfmabilinu. Eg hafði sam- band við þennan viðskiptavin okkar og skiptumst við á skoðun- um um málið. Ekki minnist ég þess að nokkur annar af við- skiptavinum Rfkisútvarpsins hafi mælst til þess að fá frádrátt af- notagjalds á þessum tfma. Við- skiptavinur Ríkisútvarpsins greiddi sfðan afnotagjaldið með ávfsun að upphæð kr. 2.187.50 og gaf gjaldkerfi innheimtudeildar- innar honum kvittun samkvæmt þvf. Ekkert var sagt um það hvernig eftirleikurinn yrði, en hann var þannig: Ég greiddi úr eigin vasa mismunin kr. 12.50 til þess að spara Ríkisútvarpinu þann kostnað sem af gjaldbreyt- ingunni hefði óhjákvæmilega orð- ið í skýrsluvélum, og sjálfsagt hefði kostað fimmfalt þessa upp- hæð. Til þess að jafna bréf- og frímerkjakostnað við viðskipta- vinin bauð ég honum einnig með mér í kaffistofu starfsfólksins, þar sem við ræddum saman um löngu liðin kynni okkar frá há- skólaárum okkar og skemmtilegar samverustundir í Eyjum. Ekki sakar að geta þess að ég en ekki Ríkisútvarpið greiddi kaffiboðið. Ég vil einnig leiðrétta þann misskilning að ég hafi breitt gjaldinu á kvittuninni, það gjörði að sjálfsögðu gjaldkeri minn skv. minni beiðni. Að lokum vil ég taka það fram, að ég tek ekki ákvarðanir um al- menna niðurfellingu Rfkisút- varpsins á afnotagjöldum en f þessu tilfelli fór g minar eigin leiðir, ef til vill f blóra við mfna yfirmenn, sem vonandi ganga þó létt á þessum yfirsjónum mínum. Axel Ólafsson Misferli metið hverju sinni SVO SEM menn rekur minni til varð kennari f Vfghólaskóla upp- vfs að þvf f fyrra að nota sem kennslubók pólitfskan áróðurs- pésa, sem Fylkingin gaf út. Var þetta við kennslu f samfélags- fræðum. Af þessu tilefni hafði Morgunblaðið samband við Hörð Lafusson f menntamálaráðuneyt- inu og spurðist fyrir um það hvað ráðuneytið gerði til þess að koma f veg fyrir að slfkt endurtæki sig. Hörður sagði að eins og alkunna væri, hefðu þær aðstæður verið í framhaldsskólum, að þar væru Framhald á bls. 23 landsins að Grensásvegi 13. Þar verður á boðstólum gífurlegt úrval

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.