Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 37
 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER 1976 37 \/C| \/A|/A|\ini — “ “ Velvakandi svarar l slma 10- 100 kl. 10—11 f.h. frá mánu- degi til föstudags. 0 Vandamál heimilislausra katta Umræða um þessi vanda- mál hefur verið nokkur að undan- förnu og hér birtist bréf frá Kattavinafélaginu: „Velvakandi birti nýlega bréf frá Kattavinafélaginu, þar sem félagið þakkar góðan skilning sveitarstjórnar Mosfellssveitar á vandamálum heimilislausra katta, en Kattavinafélagið hafði skrifað sveitarstjóra Mosfells- sveitar þar sem bent var á, að nú þegar haustaði væri nauðsynlegt að fækka sem mest heimilislaus- um flækingsköttum, einkanlega á höfuðborgarsvæðinu. I bréfi Kattavinafélagsins segir svo m.a.: „Deyðum dýrin á mann- úðlegan hátt fremur en láta þau hrekjast úti hjálparvana, hungruð og öllum yl svipt í vályndum veðrum hins komandi vetrar.“ Nú sunnudaginn 3. október birtir Velvakandi athyglisvert bréf um þetta vandamál undir yfirskriftinni „Á að láta þau hverfa?" Þetta bréf ritar Sigrún Stella Karlsdóttir, og segir þar m.a.: „Það er hægur vandi að drepa allt og taka frá manni einu góð- verkin. Við losnum þá við að hafa matarúrganga bak við öskutunn- una handa feludýrunum." Þessi hluti bréfs Sigrúnar ber vott um ánægjulega og mannúðlega af- stöðu til dýra, en Sigrún virðist hinsvegar ekki hafa átt þess kost að kynna sér til hlitar þetta vandamál heimilislausra katta á Reykjavíkursvæðinu, og í þéttbýli yfirleitt. Fjöldi heimilislausra katta hér er það mikill, að þótt töluvert sé um það að dýravinir eins og Sigrún Stella Karlsdóttir leggi út matarleifar til að seðja svanga ketti, þá er það fjarri því að þessi góðverk nægi til að lina þjáningar heimilislausra katta. 1 fyrsta lagi nægja þessar matargjafir hvergi nærri til að seðja stöðugt vaxandi fjölda heimilislausra katta. I öðru lagi er í frosti og hríð að vetri til mjög örðugt að halda mat úti snjólaus- um og ófrosnum. I þriðja lagi er matur ekki eini vandi þessara heimilislausu katta, þótt sultur- inn sé eflaust sárastur. I frosti og byl er það aum ævi sem heimilis- lausir kettir eiga, án skjóls og yls, meðan við njótum sjálf allra þæg- inda veiferðarþjóðfélagsins. Kett- ir þurfa, auk matar, húsaskjól og alúö. Heimiliskettir, sem njóta skilnings manna og alúðar, þeir — Já, einmitt! Erin brosti svo skein f allar hvltu tennurnar. — £g hef svo oft lent I kröppum dansi I kvikmynd að það verður skemmtileg til- breyting að kynnast þvf loksins f alvörunni. — An efa. Ekta kúlur og ekta blóð. Ljómandi. Þeir stóðu við hvftmálaða vél- ina. Erin lagði höndina á öxl honum. — Heldurðu f alvöru að þú munir týna lffinu? Eg get ekki fmyndað mér það. — Ég veit það. Skyndilegur dauði getur komið fyrir aðra en ekki mann sjálfan. Erin opnaði dyrnar á vélinni. Hann sagði hiklaust. — Jack... þú ert viss um að við höfum rétt fyrir okkur, er það ekki? Hún ER þarna? — Hún hlýtur að vera það. Jack horfði á eftir honum, þeg- ar hann hðf vélina á loft, flaug einn hring yfir vellinum og stefndi sfðan f norður. Hann stóð kyrr unz vélin var horfin sjónum inn f sfðdegishimininn. Sfðan gekk hann á ný til gisti- hússins og settist á barinn. Hann gat ekkert aðhafst fyrr en Erin endurgjalda mönnum með fölskvalausu þakklæti. Sigrún Stella Karlsdóttir og aðrir sannir dýravinir mega vera fullvissir um það, að margir með- limir Kattavinafélagsins gefa heimilislausum köttum mat, en þvi miður er þessi góðgerðarstarf- semi ekki lausn vandans. Það er rétt, að það er alltaf leitt að þurfa að deyða, en þegar vandamálið er orðið eins stórt og það er hér, þá telja aðilar Kattavinafélagsins betra að deyða heimilislausa ketti á mannúðlegan hátt en að láta þá þjást af sulti og kulda í vályndum veðrum komandi vetrar. Stjórn Kattavinafélagsins vill þvi leyfa sér að bjóða Sigrúnu Stellu Karlsdóttur sem og öðrum dýravinum, að gerast meðlimir Kattavinafélagsins og taka virkan þágt í starfi þess. Sími félagsins er 14594. Með þökk fyrir birtinguna. Stjórn Kattavinafélags Islands." 0 Förumenn í viðbót við bréf Kattavina- félagsins bætum við við öðru bréfi um þessi mál en það er frá einni félagskonu þeirra. „Víða á spjöldum sögunnar eru sagnir um förumenn liðinna tima. En hverjir eru förumenn nútim- ans, það eru án efa blessuð dýrin, sem flækjast frá heimilum sínum. Gleymum því ekki, að það þótti engin fyrirmynd áður fyrr að reynast slíkum illa. Já, menn og dýr eru nú sitt hvað — lítur út fyrir að margt fólk hugsi, en er nú svo í reynd ef hugur fylgir máli? Guð er höfundur alls lífs, segir okkur guðfræðin, og því halda okkar guðfræðingar fram þó þeir tileinki mannskapnum aðallega kenningu sína, en mættu gjarnan oftar áminna fólk um miskunn- semi. Þó á séra Árelius þakkir skilið fyrir áminningar sinar um að liðsinna bágstöddum dýrum. Hann ber því aðalsmerki kenni- mannsins i sjálfum sér. Kattavinafélagskona.“ 0 Þakkir fyrir góðar greinar Einn lesenda blaðsins hringdi og vildi koma á framfæri þökkum fyrir góðar greinar í Les- bókinni. Vildi lesandinn vekja athygli á grein séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar i Rabbi i Lesbókinni og hvetja alla til að lesa hana hafi þeir ekki gert það og þætti vænt um ef hún yrði birt aftur. Sömuleiðis vildi hún þakka fyrir Rabb Gísla Sigurðssonar sem var fyrir viku, — þetta voru hvor tveggja mjög þarfar hug- vekjur. HÖGNI HREKKVÍSI „Hvern fj... varðar Trygg um það, þó það sé hann Brúnn gamli?“ SIGGA V/öGk £ 1/LVtRAM Takið eftir Kálfalæri.................. 430 kr. kg. Kálfakótilettur...............430 kr. kg. Kálfahryggur..................350 kr. kg. Kálfahakk.....................550 kr. kg. Nýtt hvalkjöt...................495 kr. kg. Reykt hvalkjöt................495 kr. kg. Lambalifur (1975).............455 kr. kg. ofsagóð Nautahakk ..................670 kr. kg. Lambaskrokkar 1. fl.......549 kr. kg. gamla verðiS. Lambaskrokkar 2. fl.............498 kr. kg. gamla verðið. Villigæsir hamflettar.....650 kr. stk. Unghænur ...................500 kr. kg. 10 stk. kassa Unghænur................... 590 kr. kg. í lausu. Rúllupylsur.....................495 kr. kg. Úrvals saltkjöt.................677 kr. kg. Vz folaldaskrokkar ...... 677 kr. kg. tilbúnir. mm IDAG FRA KL. 3 Kynnir Jenný Sigurðardóttir húsmærakennari. i 1 i I I 1 1 i j DSJXÖ)TrRfflB@Tf?ö)®D[R£] Laugalæk 2. REYKJAVIK. simi 3 5o 2o J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.