Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1976 16 Sagan um sláturleyfi Slát- ursamlags Skagfirðinga SLÁTURSAMLAG Skag firðinga h.f tók við rekstri Siáturhúss Verslunarfélags Skagfirðinga haustið 1965 og festi Slátursamlagið þá kaup á húsakynnum félags- ins á Eyri á Sauðárkróki. Slátursamlagið er hlutafé- lag um 200 Skagfirðinga, sem flestir eru bændur og var hlutafé þess aukið veru- lega á þþessu ári til að standa straum af þeim lag- færingum og endurbótum, sem gerðar hafa verið á Sláturhúsi félagsins að undanförnu. Um haustið 1965 hófst slátrun á vegum Slátursam- lagsins og var Sauðfé og Stórgripum slátrað i húsi félagsins án þess að nokkr- ar athugasemdir væru gerð- ar við starfrækslu hússins til haustsins 1972. Á þessu árabili var Jafnframt starf- rækt á Sauðárkróki Slátur- hús á vegum Kaupfélags Skagfirðinga. KAUPFÉLAGIO BYGGIR NÝTT SLÁTURHÚS — HINUM SYNJAÐ UM SLÁTURLEYFI Á árinu 1972 hófst Kaupfélag Skagfirðinga handa um byggingu Sauðfjarsláturshúss auk áfasts stór- gripasláturhúss og var Sauðfjárslát urhúsið nýja tekið í notkun haustið 1973 Þetta sama haust, 1973, er Slátursamlaginu neitað um leyfi til slátrunar í húsi sínu og eru húsa- kynnin ekki talin uppfylla heilbrigð- isreglur. sem sett eru leyfisveiting- unni samkvæmt reglugerð um út- búnað sláturhúsa Leifi til sauðfjár- slátrunar I sláturhúsi Slátursamlags- ins er þó veitt um síðir þetta haust en landbúnaðarráðuneytinu hafði þá borizt áskorun um leyfisveitinguna frá þorra bænda í Skagafirði Haust- ið 1974 synjar landbúnaðarráðu neytið um sláturleyfi á sömu for- sendum en slátrun stórgripa var þó heimiluð bæði haustin Kaupfélagið se ekki KAUPFÉLAGIÐ SÁ EKKI ÁSTÆÐU TIL SAMSTARFS Þegar hér var komið sögu og sýnt var að sláturhús Slátursamlagsins fékk ekki leyfi til sauðfjárslátrunar kom stjórn slátursamlagsins saman til fundar 30. október 1974 þar sem samþykkt var að senda stjórn Kaupfélags Skagfirðinga bréf þar sem leitað er eftir samvinnu víð Kaupfélagið um slátrun i einhverju formi, t.d þannig að Kaupfélag Skagfirðinga tæki að sér slátrun sauðfjár fyrir Slátursamlagið, en hús þess yrði hagnýtt til slátrunar stór- gripa Þessu bréfi svaraði stjórn Kaupfélagsins á þann hátt, að hún sæi ekki að þörf væri á þessu sam- starfi Á fyrrnefndum fundi stjórnar Slátursamlagsins var einnig sam- þykkt að leita til Eyjólfs Konráðs Jónssonar alþingismanns og lög- fræðings um að annast málarekstur fyrir hönd Slátursamlagsins ARKITEKT AÐ ÁBENDINGU YFIRDÝRALÆKNIS Á aðalfundi Slátursamlagsins, sem haldinn er 4 júli 1975, var samþykkt að fela stjórn Samlagsins að vinna að því að leyfi fengist til slátrunar sauðfjár og stórgripa i slát- urhúsi Samlagsins á komandi hausti og heimilaði fundurinn stjórninni að verja fé og afla fjár til nauðsynlegra endurbóta á sláturhúsinu í fram- 'haldi af þessari samþykkt aðalfund- arins leitar stjórn Samlagsins til Páls A. Pálssonar yfirdýralæknis um ábendingar um arkitekt til að gera tillögur að endurbótum á Sláturhúsi samlagsins. Páll tjáði forsvarsmönn- um Samlagsins að Ólafur Sigurðs- son arkitekt væri eini aðilinn, utan Starfsmanna Sambands Isl. Sam- vinnufélaga, sem fengizt hefði við byggingar sláturhúsa að einhverju ráði Ólafur tók að sér framkvæmd verskins og i bréfi til stjórnar Slátur- samlagsins segir hann orðrétt: ,.Áð- ur en ég tók verkið að mér ræddi ég við yfirdýralækni um málíð og studdi hann beiðni Slátursamlags- manna mjög " Arkitektinn skoðaði sláturhúsið i ágúst 1975 og gerði þá tillögur að endurbótum og voru teikningar að þeim sendar heima- mönnum og yfirdýralækni til athug- unar Óskuðu aðilar eftir nokkrum breytingum og i febrúar 1976 er teikning með umbeðnum breyting- um send sömu aðilum og áður Heimamenn gerðu enga athuga- semd við þessa teikningu en athuga- semdir yfirdýralæknis berast í bréfi til landbúnaðarráðuneytisins dag- settu 1 8 júni 1 976 og eru þær i 1 7 liðum auk þess sem yfirdýratæknir tekur orðrétt fram: „Ymislegt fleira mætti telja til þótt staðar sé numið að sinni " Yfirdýralæknir tekur fram að hann sjái sér ekki fært að mæla HÉRAÐSDÝRALÆKNIRINN. Stein Þ. Steinsson, skoðar hér aðstoð una f sláturhúsinu ásamt Jóni Björnssyní sláturhússtjóra. með því að slátrað sé sauðfé I hús- inu og að siðustu segir hann: „Ég vil að lokum leyfa mér að benda á að nýlokið er byggingu á slátur- húsi á Sauðárkróki (sláturhús Kaupfélags Skagfirðinga — innsk. Mbl ), sem annað getúr allri slátrun sauðfjár og stórgripa I hér- aðinu." NÝ TEIKNING — ÓSKIR YFIRDÝRALÆKNIS UPPFYLLTAR Þegar þessar athugasemdir yfir- dýralæknis höfðu borist var gerð ný teikning, þar sem reynt var að upp- fylla allar óskir yfirdýralæknis, svo notað sé orðalag arkitektsins, Ólafs Sigurðssonar. og er sú teikning send til umsagnar hjá yfirdýralækni. í bréfi yfirdýralæknis til land- búnaðaráðuneytisins dagsettu 21 september sl. segir han að sam- kvæmt sinni ósk hafi héraðsdýra- læknirinn á staðnum, Steinn Þ. Steinsson, skoðað hús samlagsins og þær breytingar sem þar hafi verið gerðar i sumar með tilliti leyfisveit- ingar Fram kemur að héraðsdýra- læknirinn taldi ýmsum atriðum ábótavant og yfirdýralæknir tekur fram að þær 1 7 athugasemdir, sem hann gerði við frumteikninguna hafi ekki verið tæmandi, heldur fyrst og fremst settar fram til þess að sýna að samkvæmt frumteikningu fullnægði húsið ekki gildandi reglugerð Að siðustu segir yfirdýralæknir: „Erfitt er að átta sig á hvers vegna hafnar eru kostnaðarsamar breytingar á þessu húsi án þess að fyrir liggi samþykktar teikningar eins og lög mæla fyrir um." YFIRDÝRALÆKNIR SÓTTUR HEIM Engar athugasemdir við þessa endurbættu teikningu bárust I hendur forsvarsmanna Slátursam- lagsins fyrr en þeir Ólafur Sigurðs- son arkitekt og Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður og lög- fræðingur heimsóttu yfirdýralækni að Keldum laugardaginn 25. september sl., en i bréfi frá Eyjólfi Konráð dagsettu 4 október sl., til ráðherra yfirdýralæknis og Steins Þ Steinssonar héraðsdýralæknis á Sauðárkróki, greinir hann frá för þeirra Ólafs „Fórum við Ólafur Sigurðsson arkitekt að Keldum og náSum yfirdýral. óvörum, en hanrr stundar þann leik aS láta ekki ná til sln. Þar taldi hann upp nokkur atriSi sem gera þyrfti. Ég spurði hann hvort þetta væri tæmandi talið og svaraði hann þvl afdráttarlaust játandi." Um þessar síðustu athugasemdir yfirdýralæknis segir Ólafur i bréfí til stjórnar Samlagsins: „Gerði hann þá fjórar óverulegar athugasemdir sem auðvelt var að lagfæra i snatri og eina sem erfitt var að framkvæma á skömmum tlma, en hefur þó tekist Þessi siðbúna krafa var um að sett yrðu upp s.k. bakkaborð með til- heyrandi við innanúrtöku " Yfirdýra- lækni er tilkynnt um að óskir hans um breytingar sem hann bar fram i samtali við þá Eyjólf og Ólaf hafi verið uppfylltar með skeyti dagsettu 28 september og þess er óskað að kannað yrði hið bráðasta hvort sláturhús Slátursamlags Skaga- fjarðar uppfylli þær reglur sem gilda um sláturhús EYJÓLFUR KonráS Jónsson alþm. meS hrútinn. sem hann hugðist skjóta meS eigin hendi, ef slátur- leyfi fengist ekki. LeyfiS fékkst hins vegar á slðustu stundu og til þess kom þvi ekki. Yfirdýralæknir, Páll A. Pálsson, var á ferð á Sauðárkróki 29 septem- ber sl. með erlenda fulltrúa heil- brigðisyfirvalda og samkvæmt bréfi hans dagsettu 2. október segist hann ekki hafa haft tlma til að skoða sláturhús Samlagsins þennan dag en hinir erlendu fulltrúar skoðuðu þá um daginn Sláturhús Kaupfélags Skagfirðinga, Páll tjáði sig hins vegar reiðubúinn til að skoða slátur- hús Samlagsins sunnudaginn 3. október, sem hann og gerði. ATHUGASEMDIR YFIRDÝRALÆKNIS Ekki gefst i þessari stuttu frásögn tækifæri til að rekja allar þær bréf- skriftir, sem fram hafa farið vegna þessa máls en þess má geta að Slártursamlagið sótti I ágústmánuði sl um leyfi til að slátra allt að 1 2000 fjár í sláturhúsi sínu á Sauð- árkróki á þessu hausti en síðar bauðst stjórn Slátursamlagsins til að lækka fyrrnefnda tölu niður i 8000 fjár. í bréfi stjórnar Slátursamlags- ins til ráðuneytisstjóra landbúnaðar- ráðuneytisins, Sveinbjörns Dag- finnssonar dagsettu 3. september sl. segir orðrétt: „Við uppbyggingu sláturhússins höfum við i einu og öllu fylgt ráðleggingum yfirdýra- læknis í þeirri trú að ef farið væri að hans ráðum hlyti húsið að fullnægja öllum skilyrðum um hollustuhætti og meðferð matvæla og sláturdýra " Eins og áður gat skoðaði yfirdýra- læknir sláturhús Slátursamlagsins sunnudaginn 3. október sl og sendi þann sama dag greinargerð til land- búnaðarráðuneytisins, þar sem hann segir að við skoðun sina hafi komið I Ijós að ýmsu sé enn áfátt miðað við gildandi reglur um slátur hús og smlði i húsinu hafi ekki að Ljósmynd Friðþjófur STJÓRN Slátursamlags Skagfírðinga h.f. ásamt Eyjólfi K. Jónssyni, talið frá v. Guðmundur Stefánsson á Hrafnhóli. formaður, Sigurpáll Árnason, Lundi, varaformaður og Jón Björnsson, Hellulandi. ritari. fullu verið lokað. Yfirdýralæknir segist hafa gert forráðamönnum hússins grein fyrir þvi I stórum dráttum, hvers væri ábótavant að slnu mati en þar hafi bæði verið um að ræða óheppilegt fyrirkomulag og ófullnægjandi frágang. Segist yfir- dýralæknir senda ráðuneytinu siðar skrá yfir athugasemdir sinar en tekur þó fram I bréfi sinu fjögur atriði sem fara hér á eftir. 1. Hús Slátursamlags Skag- firðinga er innréttað sem sauð- fjársláturhús fyrst og fremst. í Ijós kom, að þar var ekki að finna sér- staka aðstöðu til slátrunar stórgripa nema einn gálga. Smiði er enn ólok- ið Fryrstar, og frostgeymslur eru ófullnægjandi, að frágangi. 2 Verulegar og kostnaðarsamar breytingar hafa verið gerðar á húsi þessu I sumar án þess að fyrir hafi legið samþykktar teikningar, svo sem lög mæla fyrir um. Því hefur margt farið úrskeiðis um fyrirkomu- lag Húsið uppfyllir nú ekki nema að nokkru leyti gildandi reglur um út- búnað sláturhúsa og kjötfrystihúsa, þó sumt hafi verið vel gert varðandi breytingar 3. Ef hafin verður starfsemi I þessu húsi, hefur það I för með sér, að mun erfiðara verður fyrir héraðs- dýralækni að framkvæma heilbrigðisskoðun og annað eftirlit, sem honum er skylt, þar sem hann þarf að vinna I tveim húsum samtímis. en mikil áhersla er lögð á, að slikt eftirlit sé sem best 4 Ekki virðist nein brýn nauðsyn vera á þvi að hefja starfsemi I þessi húsi (sbr. 1. nr 30/66), þar sem örskammt frá er nýtt og vandað sláturhús. sem er sérstaklega inn- réttað bæði fyrir slátrun sauðfjár og stórgripa og getur annað allri slátrun I héraðinu. RÁÐUNEYTIÐ ÓSKAR EFTIR ÁKVEOINNI YFIRLÝSINGU Stjórn Slátursamlags Skag- firðinga og þeir bændur, sem að því standa vildu I framhaldi af skoðun yfirdýralæknis sl sunnudag fá að vita hvort umbeðið sláturleyfi yrði veitt á þessu hausti enda sláturtið hálfnuð. Eyjólfur Konráð Jónsson, skrifaði þvi eftirtöldum aðilum: ráð- herrum, yfirdýralækni og Steini Þ. Steinssyni héraðsdýralækni bréf á mánudag þar sem hann kynnti þeim málavexti og lýsti afstöðu stjórnar Slátursamlagsins. Þennan sama dag sendir landbúnaðarráðuneytið bréf til yfir- dýralæknis, Páls Agnars Pálssonar, þar sem tekið er fram að ekki hafi verið tekin afstaða til þess I greinar- gerð hans um skoðun sláturhúss Samlagsins sl. sunnudag, hvort sláturhúsið skuli hljóta löggildingu til sauðfjárslátrunar á þessu hausti. Ráðuneytið óskaði þvi eftir þvi við yfirdýralækni að hann gæfi út ákveðna yfirlýsingu um, hvort hann mælti með löggildingu hússins eða ekki, þannig að ráðuneytið geti tekið málið til endanlegrar afgreiðslu 22 ATRIÐI í ÓLAGISEGIR YFIRDÝRALÆKNIR Degi siðar, 5. október sl., sendir yfirdýralæknir greinargerð sina til landbúnaðarráðuneytisins og greinir hann enn frá skoðunarferð sinni I sláturhús Slátursamlagsins og getur um ýmsan búnað, sem þar hafi vantað en segir siðan: „Hins vegar hafði ýmislegt verið vel gert en greinilega hefur timi verið of naum- ur og auk þess vantaði fyrirsögn manns sem slátrun var kunnugur og kröfum þeim kunnugur sem nú eru gerðar og því meir farið að gamalli hefð með lausa fláningsbekki o.s.frv." Þessu næst telur yfirdýra- læknir upp 22 atriði, sem ekki séu I samræmi við gildandi reglur eða lagfæra þurfi. Ekki kemur þó fram I greinargerð yfirdýralæknis skýrt hvort hann mæli með leyfisveitingu til sláturhússins eða ekki Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.