Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER 1976
23
Sprengiefna-
þjófnaður
upplýstur
RANNSÖKNARLÖGREGLAN
íKópavogi hefur upplýst þjófnað
á 150 hvellhettum og 12 dynamit-
túbum, sem framinn var í Kópa-
vogi á miðvikudaginn. Höfðu
nokkrir 12 ára drengir stolið
sprengiefninu og komst það mest-
allt til skila. Drengirnir höfðu
sprengt nokkrar hvellhettur og
má telja mestu mildi að ekki
skyldi hljótast slys af þessari iðju
þeirra.
— Hlutdeild
saltfisksins
Framhald af bls. 3
vetur og eigum þá eftir nokkuð
á annað þusund tonn, sem við
munum selja upp i ef okkur
áskotnast nógu mikill saltfiskur
á næstu mánuðum," sagði
Tómas.
Hann sagði, að ástæðan fyrir
þessum höftum á Spáni væri að
útgerðarmenn þar í landi teldu
að þeir gætu fullnægt saltfisk-
markaðnum þar. Það teldu salt-
fiskkaupmenn hins vegar ekki
og bentu á að saltfiskurinn,
sem kæmi frá íslandi væri bæði
stærri og af allt öðrum og betri
gæðaflokki, og fólk vildi kaupa
þennan fisk.
Vilja að lslend-
ingar kaupi meira
Þegar þeir félagar héldu til
Lissabon var Einar Benedikts-
son sendiherra nýbúinn að af-
henda skilriki sín þar sem
sendiherra og ræddi hann við
forseta Portúgai og starfsmenn
viðskiptaráðuneytisins þar um
innflutning á saltfiski frá Is-
landi.
Tómas sagði, að Portúgalir
legðu mikla áherzlu á, að Is-
lendingar keyptu meira af
þeim. Portúgal væri ein stærsta
viðskiptaþjóð Islendinga og
eins og allir vissu ætti landið í
erfiðleikum. Þeir bentu á að
þar i landi væri framleiddur
góður útbúnaður í fiskiskip,
ennfremur veiðarfæri, skótau,
vefnaðarvörur og vin, svo eitt-
hvað væri nefnt, og ekki mætti
gleyma ferðaiðnaðinum þar.
Það voru þeir Tómas og Frið-
rik Pálsson, sem önnuðust
samningagerðina, og töldu þeir
sig þurfa semja um 5000—6000
lestir af blautfiski og 600—1200
tonn af þurrfiski. Að sögn
Tómasar komu upp vandamál
eftir annan dag samningavið-
ræðnanna og lítið gert næstu
daga, en eftir það gengu samn-
ingaviðræður vel fyrir sig. Var
alls gengið frá sölu á 5800 lest-
um af blautverkuðum fiski til
Portúgals og er hér um að ræða
þorsk, keilu, ufsa og löngu.
Hins vegar hefði ekki verið
hægt að ganga að því verði sem
Portúgalir hefðy boðið fyrir
þurrfiskinn og væri það mál
ekki útkljáð enn. Verðið sem
fékkst fyrir blautfiskinn i
Portúgal er litlu lægra en
fékkst fyrir vertiðarfiskinn s.l.
vor.
Þá sagði Tómas að í viðræð-
unum hefði það komið fram, að
Portúgalir hefðu í huga að Is-
Iendingar keyptu ekki minna
en 15% á móti því sem þeir
seldu til Portúgal.
Stórfiskur
til Italfu
Frá Portúgal héldu SÍF menn
til ltalíu og var þar gengið frá
sölu á 1200 lestum af þorski,
mest stórfiski og verðið eilitið
hærra en við siðustu samninga-
gerð.
Afskipanir á saltfiskinum
eru nú að hefjast og er Eldey að
lesta r fisk á Norðurlandi,
sem a ad fara til Grikklands,
Italiu og Portúgal og siðan fara
1—2 skip i mánuði þangað til í
jan-feb.
Geigvænlegir erfið-
leikar f sölu á
þurrfiski.
Það kom fram á fundinum, að
geigvænlegir erfiðleikar eru á
sölu á vöskuðum og þurrkuðum
saltfiski. Fyrsta áfallið, sem
þessi verkunaraðferð varð fyr-
ir, var þegar innborgunarskyld-
an var sett á í Brasiiiu, en hún
gildir í eitt ár. Senn fer að líða
að því að ár sé liðið frá því hún
var sett á, og vonast menn þá til
að eitthvað losni um peninga
þar. I kjölfar þessa áfalls kom
svo að Norðmenn, sem höfðu
selt mikið af saltfiski til Brasi-
líu fóru að leita fyrir sér i
Evrópu og þrengja þannig að
islenzka saltfiskinum.
Tómas Þorvaldsson sagði, að
erfitt væri fyrir Islendinga að
spyrna fótum við þessu, þar
sem Norðmenn greiddu mikið
með sínum saltfiski, en á Is-
landi væru teknir alls konar
tollar og gjöld af honum. Is-
lendingar reyndu nú að selja
þurrfisk í ýmsum löndum, þar
sem saltfiskur hefði ekki verið
seldur áður, en ekki væri vitað
hvað út úr þvi kæmi. Þá mætti
líka benda á að innflutnings-
tollur á saltfiski til Spánar væri
21% um þessar mundir.
Stóri fiskurinn
að hverfa
Aðspurður sagði Tómas, að
stærsti fiskurinn þ.e. 10—20
sporðar í 50 kg. pakka væri
alveg að hverfa, af þeirri
ástæðu að stór fiskur væri ekki
lengur til í sjónum. Fyrir
nokkrum árum þótti ekki óeðli-
legt, að vertíðarfiskurinn gæfi
af sér 30—40% heildarsalt-
fisksframleiðslunnar í þennan
stærðarflokk.
A síðasta ári var hlutdeild
saltfisksins í heildarútflutningi
landsmanna 20% og á árinu
1974 var hlutdeild saltfisksins í
heildarútflutningnum um 52%.
Þvi má segja að Iífið sé enn
saltfiskur, a.m.k. að hluta.
— Frakkland
Framhald af bls. 19
aðgerðir gegn veróbólgu, sem
Raymond Barre, tilkynnti um i
siðasta mánuði, felur meðal
annars í sér hækkun skatta,
aðhald í launamálum og takmark-
aða verðstöðvun. Með þessu vona
stjórnvöld að minnka megi verð-
bólguna úr 9.5% í 6.5 % 1977.
Verkalýðsleiðtogar hafa lýst
þessum áætlunum sem grimmdar-
legri árás á kaupmátt launa
verkafólks, en stjórnin segir að
áætlunin komi jafnt niður á öllum
og sé eina raunhæfa leiðin til að
draga úr verðbólgu.
— Misferli
Framhald af bls. 3
gefnar út námskrár, þar sem
kennurum væri bent á hentugt
námsefni, en hins vegar kvað
hann kennara hafa svo til
óbundnar hendur og þeim væri
treyst. Hann kvað tilfellið frá því
í fyrra i Vlghólaskóla hafa verið
einangrað að sinu mati og sagðist
Hörður telja að ráðuneytið ætti
ekki að gera neinar breytingar
um frelsi kennara til þess að haga
kennslu eins og þeir teldu bezt.
Hins vegar kvað hann ráðuneytið
myndu fylgjast með og ef um mis-
ferli yrði einhvers staðar að ræða,
yrði það meðhöndlað eftir aðstæð-
um og mati hverju sinni.
Hörður Lárusson gat þess sér-
staklega, að þessi kennari, sem
kennt hefði samfélagsfræðin í
Víghólaskóla í fyrra, hefði bæði
haft með höndum kennslu þar og
í Menntaskólanum I Kópavogi.
Hann hefði I báðum þessum skól-
um verið stundakennari en ekki
fastur kennari, sem þýddi að á
hvorugan staðinn var hann ráð-
inn af menntamálaráðuneytinu.
Ráðning stundakennara væri á
vegum skólastjórnar og skóla-
nefndar. Hörður kvað sér ekki
kunnugt um það, hvort þessi um-
ræddi kennari hefði verið endur-
ráðinn sem stundakennari við
þessa skóla nú á nýbyrjuðu skóla-
ári.
— Hundslíf
Framhald af bls. 19
manni sínum við Lillehammer
I fyrra. Réðst hann þá á lamb
og drap það. Lambseigandinn
krafðist þess þá að hundurinn
yrði aflífaður I samræmi við
gildandi lög. Fékk hann í þvl
stuðning lögreglunnar.
Sporhundaklúbburinn
áfrýaði úrskurði lögreglunnar
til landbúnaðarráðuneytisins,
sem staðfesti úrskurðinn. Var
úrskurðinum þá áfrýjað til
konungs. Mun konungur taka
ákvörðun I málinu á föstudag i
næstu viku.
Þetta mál hefur vakið mikla
athygli almennings í Noregi og
hefur verið stofnuð nefnd,
Vinir Schacos, sem berst fyrir
náðun hundsins. Segir tals-
maður nefndarinnar, sem safn-
að hefur undirskriftum að það
séu dómstólar, sem eigi að
ákveða hvort hundurinn fái að
lifa, og þar til dómstólar hafa
fengist til að taka málið upp
skuli ekki hróflað við honum.
V
’J
HÚSGAGNA
MARKADUR í KJÖRGARDI
20—40% afsláttur
Skeifan er flutt úr Kjörgarði og er nú að öllu leyti með rekstur sinn
,við Smiðjuveg f Kópavogi. Þess í stað hefur nú verið opnaður
[húsgagnamarkaður í kjallara Kjörgarðs. Opið til 12 á laugardögum.
HÚSGAGNAMARKADURINN í KJÖRGARfH