Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÖBER 1976 31 „Dagur iðnaðarins” á Akureyri 22. okt. efnt til sérstakrar iðnað- arviku um sama leyti „ÞAÐ komu fram óskir um það fyrir norðan að efna til dagskrár sem stæði 1 heila viku og yrði tengd „degi iðnaðarins" sem tslenzk iðnkynning gengst fyrir“ sagði Pétur Sveinbjarnarson frkvstj. Islenzkrar iðnkynningar í viðtali við Mbl. „Þessi dagskrá hefur það að markmiði að vekja athygli á akureyrskum iðnaði og verður hún afar fjölbreytileg sagði Pétur ennfremur. Sjálfur „Dagur ’ iðnaðarins" verður þó eftir sem áður aðal-dagur þessarar viku, en hann verður föstudaginn 22. október. Þennan dag mun iðnaðarráð- herra Gunnar Thoroddsen, koma norður. Fyrir hádegi mun hann heimsækja nokkur iðnfyrirtæki, en eftir hádegi mun hann svo efna til fundar með öllum hags- munaaðilum iðnaðarins á Akur- eyri og ræða með þeim málefni iðnaðarins þar. Þá verða þennan dag veittar heiðursviður- kenningar sem snerta iðnað á Akureyri. Þá má alls ekki gleyma tískusýningunni sem var á sýningunni tslenzk föt ’76, en farið verður með hana til Akur- eyrar. Fyrsta sýningin verður á „Degi iðnaðarins" þar, en alls verða 5 sýningar 22., 23. og 24. október. Iðnaðarvikan á Akureyri stendur yfir dagana 17.—24. október. Sérstök nefnd skipuð af bæjarstjórn Akureyrar hefur gert drög :ð dagskrá fyrir vikuna. Farandsýningu íslenzkrar iðn- kynningar verður komið upp á fjölmennum stöðum, svosem bönkum og öðrum opinberum stofnunum. Verzlanir, sérstak- lega í miðbænum, munu verða með sérstakar skreytingar í gluggum í tilefni vikunnar. Skólafólk mun fara f skipu- lagðar ferðir í iðnfyrirtæki dag- ana 20.—22. október, og þá verða iðnaðarfyrirtækin opin almenningi til skoðunar 20. og 21. okt. Síðast en ekki^ sízt verða svo fáni og merki Islenskrar iðn- kynningar vígð f sambandi við dagskrána á Akureyri. íslenzk iðnkynning hefur nú þegar ákveðið að „Dagur iðnaðar- ins“ á Egilsstöðum verði 29. október og einnig verður efnt til sams konar kynningardaga á Borgarnesi og í Kópavogi f nóvember. Könnun á þjónustu almenn- ingsvagna Á fundi borgarráðs þ. 28. sept. sl. var samþykkt að gera skyldi könnun á almenningsvagna- þjónustu. Nær könnun þessi til alls höfuðborgarsvæðisins og er gerð af Þróunarstofnun Reykja- víkurborgar í samráði við S.V.R., S.V.K. og Landleiðir. Tilgangur könnunarinnar er að safna upplýsingum um ferðir almennings með almenningsvögn- um: hversu margir fara með hverri leið, á hvaða tfmum dags, hvaðan og hvert og í hvaða tilgangi. I þessu skyni hafa verið valdir tveir könnunardagar, 19. og 20. okt. n.k. og þá daga verður farþeg- um afhent bréfspjald með spurningum, sem ætlunin er að þeir svari og skili aftur í vögnunum, þegar farið er út. AUGLÝSINGASÍMINN ER: ^>22480 J JH#r®unt>Iabiþ BRITANNIA Ný gerð af borðstofusettum í gömlum brezkum stíl. 4 gerðir af borðum og stólum. © Vörumarkaðurinn hf. Matvörudeild s. 86-111 Húsgagnadeild 86-112 Heimilistækjadeild 81680 Vefnaðarvörudeild 86-113 Skrifstofan 86-1 14. t_______________________________________________________________________> SÍÐUSTU INNRITUNARDAGAR: í DAG, FÖSTUDAG KL. 5—7 N.K. MÁNUDAG KL. 5—7 InnritaS ar I skólanum. Miðbœ. Háaleitisbraut. slmi 37010. Kennsla hefst 12 okt. ATHUGIÐ, a8 þetta er skemmtilegt nám fyrir alla aldursflokka. LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER PUNDIÐ FELLUR TEPPIN LÆKKA Litavers verðlisti yfir gólfteppi komið á gólfið. Bouguet VERÐ PER FERM.: 3.364,— Regency og Bohemia 2.914,— Orion Sherwood 2.680,— Jupiter 2.150,— Aquarius Ria 3.250,— Harvard Ria 2.500,— Florence 3.364,— Zeppelin 3.156,— St. Lawrence 2.496,— Madison 2.680,— Elizabethan Senator 3.364,— Nú er tækifærið fyrir alla þá sem eru í gólfteppahugleiðingum. KOMIÐ -S JÁIÐ -SANNFÆRIST Lítið við í Litaveri, því það hefur ávallt borgað sig. H > LITAVER Hreyfilshúsinu við Grensásveg - LITAVER — LITAVER — LITAV LITAVER —LITAVER —LITAVER —LITAVER —LITAVER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.