Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÖBER 1976 33 fclk í fréttum + Þeir áttu svo sannarlega fótum sfnum f jör að launa krakkarnir, sem voru á leið f skóla sinn f Silkiborg I Danmörku, þegar mikil sprenging kvað við og bfllinn stóð f björtu báli. Til allrar hamingju komust allir út heilu og höldnu en skólabfllinn brann til kaldra kola á skammri stundu. + Það er stundum sagt um þá sem ekki láta sér verða bumbult af hverju sem er að þeir hafi strútsmaga og það á enda vel við. Þegar strúturinn Rhea lagði upp laupana í dýragarðinum f Frankfurt nú fyrir skemmstu tóku dýralæknar garðsins hann til athugunar og þar gaf nú á að Ifta þegar þeir opnuðu maga hans. Peningar, hárgreiða, lyklar, vasaklútur, dósahringir og medalfa úr bronzi. Nú skyldi mega ætla að banamein Rheu hafi verið meltingartruflanir en svo var alls ekki. Rhea lézt af ellihrumleik, södd Iffdaga. Slysarokkurinn Jack Lemmon + Jack Lemmon á að fara með aðalhlutverkið f kvikmynd Universal-kvikmyndafélagsins „Airport ‘77“, sem er sú þriðja f röðinni í þessum flokki og f jallar, eins og hinar tvær fyrri, um reglufega „krassandi og til- komumikið“ flugslys. „Ef Universal heldur áfram á þessari braut getur það brátt stofnað sitt eigið flugfélag og þá gæti ég kannski bara fengið fast starf hjá þvf — sem óheillakráka,“ segir Lemmon. Hér á myndinni er Lemmon ásamt konu sinni, leikkonunni Feliciu Farr, og eins og sjá má er hann ekki jafn stuttklipptur og oftast áður og kominn með yfirvararskegg meira að segja. + Hugh Hefner, bandarfski glaumgosinn, sem gefur meðal annars út tfmaritið Playboy, hefur nú f hyggju að hætta öll- um umsvifum og lifa bara á þvf sem hann hefur getað lagt til hliðar. Hér sést hann f fylgd með uppáhaldskanfnunni sinni þessa stundina, Barble Benton. Elísabet og eplin + Það virðist ekki vera dýrtfðinni fyrir að fara f Finnlandi; kflóið af gómsætum Jonathans-eplum á 2,50, og svona f kaupbæti eitt stykki drottningarhöfuð. Svo er að minnsta kosti að sjá á þessari mynd sem tekin var af Elfsabetu Englandsdrottningu sem nýlega var á ferð I Finnlandi. Eða kannski að fjósmyndarinn hafi bara brugðið á leik og raunar eklíf ólfklegt enda er myndavélin eitt áhrifarfkasta blekkingartól sem upp hefur verið fundið. GOODWÝEAR SNJÓDEKK A flestar tegundir bifreiða - FYRIRLIGGJAIMDI - SNJÓDEKK á Austin Mini kr. 4.423.— GUMMIVINNUSTOFAN Skipholti 35 — Sími 31055 HELZTU KOSTIR: it 850 w mótor * + Rykstillir — tryggir nægan sogkráft. Snúruvinda — dregur snúruna inn f hjóliS i augabragSi. ★ Sjálflokandi pokar — hreinlegt aS skipta um þá. — lætur vita þegar pokinn er fullur. if Sjálfvirkur rykhaus rykhaus — lagar sig aS fletinum sem ryksuga ð. Léttbyggð - Lipur - Stöðug Verð kr. 47.300.- Eignist stíka vél með aðeins 15.000 kr. útborgun og kr. 5.900 á mánuði í sex skipti. V Vörumarkaöurinn hí. Ármúla 1A, húsg.deild s. 86-112. Matvörudeild s. 86-111, vefnaSarvörud. s. 86-113 heimilistækjadeild s. 81580.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.