Morgunblaðið - 08.10.1976, Side 40
iKgpniiM&ftifr
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
JW#r0unbt«bil>
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1976
Ríkisstjörnin ræddi
rekstrarerfiðleika
Þörungavinnslunnar
SAMKVÆMT upplýsingum
Gunnars Thoroddsens iðnaðarráð-
herra hefur stjórn Þörunga-
vinnslunnar sent iðnaðarráðu-
neytinu skýrslu um ástand mála
þar. Gunnar Thoroddsen sagðist
hafa lagt skýrsluna fyrir rfkis-
stjórnina sfðastliðinn þriðjudag.
Málið verður sfðan lagt fyrir alla
þir.gflokkana, þegar alþingi kem-
ur saman.
Eins og komið hefur fram i
fréttum, eru verulegir rekstrar-
erfiðleikar hjá Þörungavinnsl-
unni h.f. og hefur t.d. þangöflun
að verulegu leyti mistekizt með
þeim vélum, sem til þess hafa
verið keyptar. Morgunblaðið náði
í gærkveldi tali af Vilhjálmi
Lúðvíkssyni, stjórnarformanni
M jólk hækkar
CTSÖLUVERÐ mjólkur og
mjólkurvara hækkaði um 3% frá
og með 6. október sfðastliðnum.
Þessi verðbreyting varð vegna
launahækkana hjá strafsfólki
mjólkursamlaga, en laun hækk-
uðu um 6%, og hækkunar á raf-
magni og heitu vatni.
Mjólk í 2ja litra fernum kostar
nú 138 krónur, hækkaði um 4
krónur, rjómi i kvarthyrnum
kostar nú 163 krónur, hækkaði
um 3 krónur, eitt kíló af skyri
kostar nú 154 krónur, hækkaði
um 3 krónur, 1. flokkur smjörs
kostar nú hvert kg. 1.012 krónur,
hækkaði um 30 krónur, og ostur
45% kostar nú hvert kg. 903 krón-
ur og hefur hækkað um 28 krón-
ur.
Þörungavinnslunnar, og vildi
hann ekkert tjá sig um efni
skýrslunnar fyrr en í næstu viku.
Fólk við
fiskvinnslu
hefur alltof
lág laun
— segir Tómas
Þorvaldsson
„ÞÓTT hækkanir á öllum hlut-
um séu afleitar og slæmar, þá
finnst mér að eitt mætti
hækka meira og það eru laun
þess fólks, sem vinnur við fisk-
vinnslu. Þau eru alltof lág,“
sagði Tómas Þorvaldsson
stjórnarformaður Sölusam-
bands fsl. fiskframleiðenda
við fréttamenn f gær. Tómas
tók það fram að hér mætti
hann ekki fyrir hönd S.I.F.,
heldur væri þetta sfn persónu-
lega skoðun.
„Islenzka þjóðin hefur ekki
efni á þvi að borga því fólki
sem vinnur við fiskvinnsluna
jafn illa og gert er. Það er ekki
þar með sagt, að fyrirtækin
hafi laust fjármagn um þessar
mundir til að hækka laun
fólksins, enda er séð svo um að
plokkað er af þeim í alls konar
tolla og gjöld, öll sú upphæð
sem hugsast getur. Það þarf að
gera breytingar á okkar þjóð-
félagi til þess að fólk í fisk-
vinnslu fái þau laun, sem það á
skilið,“ sagði Tómas.
Fullkomnasta fshafsfar Dana kom til Reykjavfkur f fyrradag á leið sinni til Godtháb f Grænlandi. Skipið
kom hér við vegna bilunar f aðalvél og komu skipasmiðir frá Burmeister og Wein hingað til þess að Ifta á
vélina og gera við hana. Myndin er af skipinu.
Umferðin í Reykjavík fyrstu 9 mánuði ársins:
Óhöpp 307 færri en í
fyrra — slys 79 færri
íslenzku stórmeistar-
arnir gerðu jafntefli
STORMEISTARARNIR Friðrik
Ólafsson og Guðmundur Sigur-
jónsson gerðu jafntefli f áttundu
umferð afþjóðlega skákmótsins f
Júgóslavfu f gærkveldi. Allmarg-
ar skákir umferðarinnar fóru f
bið, en önnur úrslit urðu m.a.
þau, að Smeikal vann Gligoric.
Efstur á mótinu nú er Smeikal
með 6V4 vinning. Friðrik er f
þriðja sæti með 5'A vinning, en
Vucic er f öðru sæti með 6 vinn-
inga, þar sem hann varnn biðskák
sfna við Guðmund, sem nú hefur
4 vinninga.
Morgunblaðið ræddi f gær við
Guðmund Sigurjónsson. Hann
sagði að ferðakostnaðarmálið
væri nú úr sögunni, þar sem Júgó-
slavar hefðu loks samþykkt að
greiða hann, en eins og kunnugt
er höfðu þeir neitað að greiða
ferðakostnað frá lslandí, vildu að-
eins greiða kostnaðinn frá landa-
mærum Júgóslavfu. Þeir Guð-
mundur og Friðrik hótuðu að
Framhald á bls 22.
FYRSTU 9 mánuði ársins hefur
orðið umtalsverð fækkun um-
ferðaróhappa og slysa f Reykja-
vfk ef miðað er við sömu mánuði f
fyrra. Eru óhöpp f umferðinni
307 færri og slysin eru 79 færri.
Hins vegar er einu banaslysi
fleira nú en f fyrra.
Samkvæmt upplýsingum slysa-
deildar lögreglunnar verður að
hafa í huga að á hverjum degi
verða nokkur minni háttar óhöpp
í umferðinni sem ekki koma á
skrá lögreglunnar. Snúa menn ser
þá beint til tryggingafélaga eða
bæta tjónið úr eigin vasa. Er það
m.a. gert til að missa ekki bónus
eða til þess að þurfa ekii að greiða
sjálfsábyrgð.
Yfirlit yfir árekstra og slys í Reykjavík mánuðina janúar til
september árin 1975 og 1976:
1975 1976
Skýrslur um umferðaróhöpp 2490 2183
Slys með meiðslum Börn fyrir bifreiðum 25 28
Konur fyrir bifreiðum 17 12
karlar fyrir bifreiðum 20 12
Slasaðir vélhjólamenn 19 19
Slasaðir hjólreiðamenn 2 9
Slasaðir ökumenn 91 52
Slasaðir farþegar 81 44
Samtals 255 176
Dauðaslys 4 5
Það sem af er árinu hafa því orðið 307 færri óhöpp á þessu ári og 79
færri hafa slasast í ár, en nú eru einu banaslysi fleira.
Slátursamlag Skagfirdinga:
Iðnaðarráð-
herra að
Kröflu í dag
GUNNAR Thoroddsen iðnað-
arráðherra mun f dag fara
norður til Kröflu, þar sem
hann mun halda fund með
samstarfsnefnd um Kröflu-
virkjun, en f henni sitja full-
trúar frá Orkustofnun, Kröflu-
nefnd og Rafmagnsveitum rfk-
isins, en það eru þeir aðilar,
sem sjá um framkvæmdir á
Kröflusvæðinu.
Gunnar Thoroddsen sagði í
viðtali við Morgunblaðið í gær
að hann færi norður bæði til
þess að kynna sér framkvæmd-
ir og aðstæður þar allar og
ræða við framámenn í þessum
málum. Ráðherra mun vænt-
anlegur til höfuðborgarinnar
aftur í kvöld.
Sláturleyfió veitt
eftir haróar deilur
□---------------------------□
Sjá nánar frásögn
og myndir á bls. 16
I blaðinu í dag ^
FYRIRHUGAÐ er að hefja slátr-
un f sláturhúsi Slátursamlags
Skagfirðinga f dag en sláturhús
þetta fékk leyfi til slátrunar í gær
að loknum hörðum deilum um
það. I gærmorgun fór Eyjólfur
Konráð Jónsson alþingismaður til
Sauðárkróks en hann hafði með
bréfi f fyrradag tilkynnt ráðherr-
um, að slátrun mundi hefjast f
sláturhúsi Slátursamlagsins f
gærmorgun og mundi hann með
eigin hendi slátra fyrsta dilknum,
Slátrun hefst í dag
hvort sem landbúnaðarráðuneyt-
ið hefði veitt húsinu löggildingu
eða ekki. 1 gærmorgun hafði um-
beðið leyfi ekki verið veitt en
laust fyrir kl. 10 árdegis bárust
boð um það, að landbúnaðarráð-
herra hefði sent héraðsdýralækn-
inum á Sauðárkróki hraðskeyti,
þar sem þess var óskað, að dýra-
Iæknirinn skoðaði sláturhúsið og
sendi ráðuneytinu umsögn um
ástand þess. Eyjólfur Konráð
Jónsson gaf þá frest til kl. 11.00
en kvaðst þá mundu gera alvöru
úr þeirri fyrirætlan sinni að
slátra fyrsta dilkinum, ef ráðu-
neytið hefði þá ekki svarað leyfis-
beiðni slátursamlagsins.
Um kl. 10.30 í gærmorgun kom
héraðsdýralæknir í sláturhúsið og
skoðaði það. Skýrði hann forráða-
mönnum slátursamlagsins frá þvi
að hann sæi ekkert athugavert
við, að slátrun gæti hafizt í slátur-
húsinu og mundi hann skýra
ráðuneytinu frá því. Eyjólfur
Konráð Jónsson hafði þá sam-
band við ráðherra, sem kvaðst
mundu veita leyfið síðar um dag-
inn úr því að umsögn héraðsdýa-
læknis væri jákvæð.
Siðdegis í gær barst stjórn Slát-
ursalagsins sláturleyfið og hljóð-
ar það upp á undanþágu frá gild-
andi reglum um útbúnað slátur-
húsa, en mörg sláturhús starfa
eftir sams konar undanþáguleyf-
um. Aætlað er að slátra á degi
hverjum 350 fjár.
Slátursamlag Skagfirðinga h.f.
er hlutafélag um 200 Skag-
firðinga, sem flestir eru bændur
og hefur Slátursamlagið rekið
Framhald á bls 22.