Morgunblaðið - 13.10.1976, Page 3

Morgunblaðið - 13.10.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1976 3 Lækkar tekjuskatt- ur landsbyggðarbúa? Milliþinganefnd um verðjöfnun vöruflutninga skilar áliti TILLÖGUR milliþinganefndar Alþingis um verðjöfnun vöru- flutninga um landsbyggðina voru kynntar fjöimiðlum I gær. 1 greinargerð með tillögunum kem- ur fram að mikill aðstöðumunur rfkir meðal landsbyggðarinnar og • Reykjavlkursvæðisins hvað varðar vöruverð, en flutnings- kostnaður hefur mikil áhrif á vöruverð úti á landi. Er þannig nokkur mismunur á framfærslu- kostnaði um landsbyggðina, en tillögur nefndarinnar stefna allar að þvf að þar verði breyting á til meiri jafnaðar. - Upphaflega voru hugmyndir um að setja á fót sjóð til verðjöfn- unar á vöruflutningskostnaði, en nefndin leggur til að fallið verði frá þeim hugmyndum. Er það vegna þess, að sjóðnum mundi óhjákvæmilega fylgja mikið skriffinnskubákn og einnig yrði hann þjóðhagslega óhagkvæmur þegar til lengdar léti, þar sem fölsk eftirspurn eftir flutningum ykist meó tilkomu hans. Slíkt Viljum að landsfund- ur Samtakanna taki afstöðu til málanna — segir Karvel Pálmason alþm. EINS og kunnugt er samþykkti kjördæmisráð Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna á Vest- fjörðum á sínum tíma að leita eftir samstarfi við Alþýðuflokk- inn fyrir næstu alþingiskosn- ingar, en ekkert hefur enn orð- ið af viðræðum milli þessara flokka. Morgunblaðið hafði í gær samband við Karvel Pálma- son alþingismann Samtakanna á Vestfjörðum, og spurði hann hvers vegna viðræður við Al- þýðuflokkinn hefðu ekki verið teknar upp enn. Karvel sagði, að þegar um- rædd ályktun hefði verið sam- þykkt, hefði verið talið sjálf- sagt, að landsfundur Samtaka tæki afstöðu til þessara mála, en nauðsynlegt hefði verið að semja ályktun fyrir landsfund- inn. „Við viljum að landsfundur- inn taki afstöðu til þessa mála áður en viðræður eru teknar upp,“ sagði Karvel. Varðarfundur með forsætisráðherra LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður, samband félagssamtaka Sjálf- stæðisfélaga I hverfum Reykja- vlkur, efnir I kvöld til þriðja þjóðmálafundarins á þessu hausti. Geir Hallgrimsson forsætisréð- herra flytur framsöguræðu á fundinum og fjallar um efnið, „Hefur stefna ríkisstjórnarinnar borið árangur?" Að lokinni fram- söguræðu forsætisráðherra hefj- ast panelumræður. I þeim taka þátt, auk forsætisráðherra, Ölafur Björnsson prófessor, Hjörtur Hjartarson stórkaupmaður, Pétur Sigurðsson alþingismaður, Styrm- ir Gunnarsson ritstjóri og Þráinn Eggertsson hagfræðingur. Fundurinn verður i Atthagasal Hótel Sögu og hefst kl. 20.30 og er hann öllum opinn. Erling B. Bengts- son leikur hér á 40 ára starfsafmælinu Kammermúsikklúbburinn hefur nú starfsárið 1976—1977 með þvf að prófessor Erling Blöndal Bengtsson flytur allar sex svltur J. S. Bach fyrir einleiksselló á tvennum tón- leikum í Bústaðakirkju, sunnu- daginn 17. október og þriðju- daginn 19. október. Það er klúbbfélögum mikið lán að eiga þess kost að heyra svo mikinn listamann sem prófessor Erling Blöndal Bengtsson flytja svo merk verk, en þetta verður i þriðja sinn sem hann flytur klúbbnum Erling Blöndai Bengtsson flyt- ur 6 svítur Bachs á tónleikum Kammerklúbbsins. þessi tónverk. Hvert skipti fær- ir okkur víðtækari mynd af tón- verkunum og tónlistarmannin- um. Fyrir réttum 40 árum kom prófessor Erling Blöndal Bengtsson þá rúmlega 4 ára gamall, fyrst fram á tónleikum í Kaupmannahöfn. Bústaðakirkja er vegleg um- gjörð um mikinn tónlistarvið- burð. Starfsemi Kammermúsik- klúbbsins hófst i febrúar 1957 og á klúbburinn því 20 ára afmæli á næsta ári. í því tilefni eru ráðgerðir afmælistónleikar snemma á næsta ári, en ekki hefur endanlega verið gengið frá efni þeirra. Á 4. og 5. tónleikum starfsárs- ins verður haldið áfram heildarflutningi strengjakvart- etta Beethoven og flytur þá Sinnhofer kvartettinn frá Þýzkalandi sex Strengjakvart- etta Beethovens. Þeim heildarflutningi mun svo ljúka haustið 1977. Félagar f Kammermúsik- dúbbnum eru um 200, en leppilegt er að auka þá tölu aokkuð. Þeir sem vilja gerast félagar eru beðnir að kom? nokkru fyrir tónleikana F' Bústaða- kirkju til innritunar. mundi leiða til neikvæðra áhrifa á hagvöxt og byggðaþróun o.s.frv. Ef af slikum niðurgreiðslnasjóði yrði, hyrfi á brott úr hagkerfinu mikilvægur þáttur til takmörk- unar á vöruflutningum, þ.e. flutn- ingskostnaðurinn. í stað þessa leggur nefndin til að skattkerfinu verði breytt á þann veg að aðstöðumunur vegna mismunandi framfærslukostnað- ar verði jafnaður, en i því skyni ber söluskattinn mest á góma en nefndin telur þó beztu leiðina vera lækkun tekjuskatts, þ.e. per- sónuafsláttur verði mismunandi eftir byggðalögum og verði þann- ig mestur þar sem framfærslu- kostnaður er hæstur. Þá er lagt til að Framkvæmdastofnun ríkisins verði falið að gera áætlun um aðgerðir til að tryggja viðunandi verzlunarþjónustu í dreifbýli og flutningaþjónustu út frá verzl- unarmiðstöðvum sem þjóna við- komandi byggðarlögum. Sömu stofnun verði einnig falið að kanna möguleika á endurskipu- lagningu samgangna til einstakra svæða I því skyni að ná sem ódýr- astri tilhögun flutninga fyrir sam- félagið í heild. Siðast leggur svo nefndin til að þjónusta Skipaútgerðar rikisins verði stórbætt og þannig stuðlað að lækkun flutningskostnaðar. Þetta er I beinu framhaldi af þvi að hlutur Skipaútgerðarinnar í öllum vöruflutningum er sára- lítill, en fiutningar með skipum eru miklu ódýrari en með bilum eða flugvélum. Kemur hinn laki hlutur fyrst og fremst til af því að Skipaútgerðin býr við afarléleg skilyrði tii vörumóttöku, og gildir hið sama um viðkomustaði skip- anna úti á landi. Vfkingur og Vfðir skömmu fyrir brottförina frá Akranesi. Ljósm.: Júlíus Þórðarson Víkingur farinn til brey tinga í Noregi Víðir seldur til Noregs Akranesi 12. október TOGARARNIR Vlkingur AK-100 og Víðir AK-63 lögðu af stað frá Akranesi s.l. föstudag til Svolfaar I Noregi, þar sem Vfkingi verður breytt f hringnótaskip. Einnig verður hann útbúinn þannig að veiðar f flotvörpu verða fram- kvæmanlegar sem áður. Viðir, sem áður hét Njörvi, er seldur til Noregs og mun andvirði hans ganga upp í greiðslu á breyt- ingum Víkings. Víkingur er fallegt og vel byggt skip, og var smiðaður í Bremer- haven i Vestur-Þýzkalandi árið 1956. Hann hefir verið gott afla- og happaskip, t.d. bjargaði hann þýzkum skuttogara, sem var i nauðum í Norður-Ishafinu árið 1968. Eftir að skuttogurum fjölgaði svo mjög hér á landi hefur gengið erfiðlega að ráða sjómenn á Vík- Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.