Morgunblaðið - 13.10.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUÐAGUR 13. OKTÓBER 1976
31
ISLENDINGARNIR tveir f
Dankersenliðinu, Axel Axelsson
og Ólafur H. Jónsson höfðu sig
ekki mikið I frammi f leiknum f
fyrrakvöld. Þeir skoruðu þó sitt
markið hvor og er þessi mynd
tekin er Ólafur var að senda
knöttinn í mark Framara. Það er
Guðmundur Sveinsson sem kem-
ur út á móti Ólafi, en Framari nr.
2 er Andrés Bridde.
greinilega að reyna sig með kerfi,
og þá aðallega eitt sem átti að
ganga upp á landsliðsmanninum
Bernhard Busch. Heppnuðust
,,keyrslur“ Dankersenliðsins eng-
an veginn — ef til vill af því að
Framararnir voru fljótir að koma
í mennina og trufla hlaup þeirra.
Bezti leikmaður Dankersen í
þessum leik var umræddur
Busch, en einnig er Hans Kramer
mjög góður leikmaður. íslending-
arnir tveir: Ólafur H. Jónsson og
Axel Axelsson voru ekki atkvæða-
miklir í þessum leik, en spil þýzka
liðsins gjörbreyttist þó til batnað-
ar í seinni hálfleik er Ólafur kom
út af línunni og lék fyrir utan.
Ógnaði hann vel, og opnaði að því
er virtist betur en hann gerði
meðan hann lék á linunni. Axel
Axelsson skaut aðeins einu sinni
á Frammarkið í leiknum, og skor-
aði þá faliegt mark.
Mörk Fram skoruðu: Andrés
Bridde 5 (3 víti), Arnar Guð-
laugsson 2, Jens Jensson 2, Árni
Sverrisson 1 og Guðmundur
Sveinsson 1.
Mörk Dankersen skoruðu:
Bernhard Busch 8 (4v), Gerd
Becker 2, Ólafur H. Jónsson 1,
Axel Axelsson 1, Hans Kramer 1
og Dieter Waltke 1.
Brottvísanir: Axel Axelssyni
var visað af velli f 2 mín og 5 mín.
og Walter von Oepen í 2 min.
Misheppnuð vftaköst: Mark-
vörður Þjóðverjanna varði vita-
köst frá Guðmundi Sveinssyni og
Arnari Guðlaugssyni.
Dómarar: Björn Kristjánsson
og Óli Olsen. Þeir voru dálitið
ónákvæmir, en það var síður en
svo að þeir hölluðu á Dankersen í
leiknum.
—stjl.
Úrslitatafla
r
Islandsmótsins
GERÐ hefur verið skemmtileg
tafla fyrir íslandsmótið i hand-
knattleik, fyrstu deild karla, og er
hún hönnuð þannig að unnt er að
skrifa niður öll úrslit leikjanna á
töfluna.
Þannig geta handknattleiks-
unnendur fylgst betur með um
leið og þeir hafa heildaryfirsýn
yfir öll úrslit. i ráði er að gera
slíka töflu á hverju ári, og gefst
þá betra tækifæri til að bera sam-
an úrslit frá ári til árs.
Það er ráðstefnumiðstöðin
Mannamót sem hefur látið gera
töfluna. Hana er hægt að fá
ókeypis i sportvöruverzlunum.
Leiðrétting
í FRÁSÖGN Morgunblaðsins af verð
launaveitingu til handknattleiks-
manna og knattspyrnumanns er birt-
ist f blaðinu s.l. laugardag féll niður
nafn eins þeirra er tók til máls. Var
það Stefán Jónsson, varaformaður
Þróttar. Einnig misritaðist nafn for-
manns Fram, Steins Guðmundsson-
ar, Eru hlutaðeigendur beðnir vel
virðingar.
MARGIR STÓRLEIKIR
GETRAUNAÞATTUR
MORGUNBLAflSINS
Arsenal — Stoke City. 1.
Árangur Stoke City á útivöllum
það sem af er hausti, hefur verið
heldur bágborinn (2 stig í 5 leikj-
um) og er ekki liklegt, að liðinu
takist að ógna frísku liði Arsenal
áHighbury. Heimasigur. (2—0).
Birmingham — Middlesboro. 1.
Heimasigur. (1—0). Þó að spá-
in sé að mestu byggð á óskhyggju,
þá er hún samt ekki svo langsótt,
þar sem Birmingham hefur staðið
sig með miklum ágætum í haust.
Það yrði enskri kanttspyrnu lítt
til framdráttar, ef Middlesboro
ynni til verðlauna í vetur, með
sitt sérkennilega afbrigði af
knattspyrnu. Hætt er þá við, að
önnur félög tækju upp nýjung M.
Boro að leika með 11 manna vörn
bæði heima og heiman.
Bristol C. — Leicester C. x.
Eins og aðrir leikir sem
Leicester-liðið tekur þátt I, er
þessi leikur jafnteflislegur og þá
líklega 1—1 eins og venjulega hjá
Leicester.
Coventry — Newcastie. 1.
Viðureignir þessara liða eru oft
hinar mestu markahátiðir og er
sem fyrr, erfitt að spá úrslitum.
Bæði liðin hafa auk þess staðið sig
þokkalega í deildakeppninni. Spá-
in: Naumur heimasigur (2—1).
Derby — Tottenham. 2.
Siðustu vikurnar hefur allt
gengið á afturfótunum hjá Derby
og ýmsir brestir verið að myndast
innan félagsins, sem bent gætu til
þess, að Derby-veldið sé á niður-
leið. Tottenham hefur verið óút-
reiknanlegt í haust og ieikur liðið
oft best, þegar minnst er búist við
af því sbr. sigur liðsins á Old
Trafford fyrr í haust, auk þess,
sem liðið hefur fengið til liðs við
sig frábæran leikmann sem er
Peter Taylor. Spáin: Útisigur.
(2—3).
Liverpool — Everton x.
Stórleikur umferðarinnar er
innbyrðisviðureign Mersey-
liðanna, sem bæði eru nú við
toppinn í fyrstu deild. Yfirleitt
eru leikir þessara liða mjög jafnir
og harðir og oftast nær er mjög
mjótt á mununum. Varla eru
horfur á, að nokkrar breytingar
verði á því og er spáin því jafn-
tefli (0—0).
Manchester C — Q.P.R. 1.
Hér mætast tvö af skemmtileg-
ustu liðum enska fótboltans og
má því vænta' skemmtilegrar við-
ureignar. City er trayst á heima-
velli og ætti að merja sigur en
naumlega þó. Heimasigur.
(3—2).
Norwich — Leeds. x.
Viðureign tveggja liða, sem
hafa verið að koma verulega til
eftir afleita byrjun. Spáin er sú,
að þau haldi bæði sínu striki og
deili stigunum. (1—1).
Sunderland — A. Villa. 1.
A. Villa er afar slakt útilið og er
hér því kjörið tækifæri fyrir Sun-
derland til þess að vinna sinn
fyrsta deildarsigur og hressa
þannig svolitið upp á liðsandann.
Heimasigur: (2—1).
W.B.A. — Manchester Udt. 2.
Þrátt fyrir góða frammistöðu
heimaliðsins í vetur, standast þeir
varla gestum simum snúning á
laugardag. Manchester-iiðið hefur
4 undanförnum vikum unnið
hvern sigurinn af öðrum gegn
sterkari liðum en W.B.A. og ætti
þvi að tryggja sér tvö dýrmæt
stig. Spáin:.Utisigur. (1—2).
West Ham — Ipswich. 2.
Heimaliðið er komið í bullandi
Dankersen átti í brösum
meö vængbrotið Framlið
Það er gömul saga og ný þegar
vestur-þýzk handknattleikslið
koma hingað í heimsókn og sýna
slaka leiki, þá kenna þau öðru um
slfkt en sjálfu sér. Þannig var það
líka í fyrrakvöld er Dankersen
sigraði Fram með 14 mörkum
gegn 11 í fyrsta leik sfnum í
lslandsferðinni að þessu sinni.
Nú voru það dómararnir, Björn
Kristjánsson og Óli Olsen, sem
voru sökudólgarnir, og þá fyrir að
leyfa ekki meiri hörku f leiknum.
Voru þjálfarar Dankersen og liðs-
stjórar mjög æstir að leikslokum,
og létu þau orð falla, að liðið
hefði lltið hingað að gera ef
dómararnir ætluðu að eyðileggja
leiki þess.
Vel getur verið, og raunar mjög
sennilegt, aó meiri harka sé leyfð
í vestur-þýzka handknattleiknum
heldur en hér, en það er hins
vegar ekki rétt sem Axel Axels-
DANKERSEN leikur sinn annan
leik i tslandsheimsókninni 1
kvöld og mætir þá tslands- og
bikarmeisturum FH f Iþróttahús-
inu f Hafnarfirði. Er varla vafi á
þvf að þar verður um skemmti-
lega og tvfsýna viðureign að ræða
og vfst er að Ifkur eru á þvf að
Dankersen fái þar erfiðari keppi-
naut en Framarnir voru f fyrra-
kvöld. Leikur FH við færeysku
meistarana VlE s.l. laugardag
son lét ummælt eftir leikinn í
fyrrakvöld, að það geti verið
íslenzkum handknattleik hættu-
legt, hvað dómararnir leyfa lítið.
Hingað til hafa fslenzkir hand-
knattleiksmenn fengið allt annað
orð á sér í leikjum erlendis en að
þeir væru of prúðir. Þvert á móti
hefur oft heyrst eftir slika leiki
að íslendingar væru hreinir hand-
knattleiksruddar.
Þaó verður að segjast eins og er
að Dankersen-liðið olli miklum
vonbrigðum í leik sínum við Fram
i fyrrakvöld. Flestir áttu von á
mjög góóum leik af þess hálfu, en
honum brá ekki oft fyrir í leikn-
um. Það var gæfa Dankersen
hversu daufir Framararnir voru í
leiknum, og eins að Pálmi Pálma-
son gat ekki leikið með vegna
méiðsla í baki, en sem kunnugt er
skorar Pálmi jafnan bróðurpart-
inn af mörkum Fram í leikjum
bendir til þess að liðið sé nú að ná
sér vel á strik, og frammistaða
Geirs Hallsteinssonar f þeim leik
bendir einnig til þess að hann sé f
góðu formi um þessar mundir.
Verður fróðlegt að sjá hvernig
Geir vegnar f baráttu við vörn
þýzka liðsins.
Dómarar f leiknum f kvöld
verða þeir Kjartan Steinbeck og
Kristján Örn Ingibergsson.
liðsins. Var svo í þessum leik að
Framarana skorti tilfinnanlega
skyttu, eða menn sem ógnuðu
meira að utan. Hins vegar var
vörn Framliðsins góó i þessum
leik, og markvarzla Guðjóns
Erlendssonar einnig, en Guðjón
átti reyndar beztan leik allra
Framaranna i leiknum.
Gangur leiksins var þannig í
stuttu máli að eftir 10 minútna
leik var staðan jöfn 1—1, en siðan
náði Dankersen þriggja marka
forystu og var staðan 4—1 þegar
17 mínútur voru af leik. Undir lok
hálfleiksins réttu Framarar hlut
sinn og i leikhléi var jafnt 5—5. í
seinni hálfleik náðu Framarar
forystu í leiknum í fyrsta sinn
með marki Jens Jenssonar, en
Dankersen jafnaði fljótlega og
komst yfir. Síðast var jafnt á töl-
unni 7—7, en undir lokin sigu
Þjóðverjarnir fram úr og höfðu
mest 4 mörk yfir þegar staðan var
13—9 og 14—10. Urslit leiksins
urðu svo sem fyrr segir 14—11.
Dankersenliðið hafði eitt áber-
andi fram yfir Framarana — það
að flestir leikmanna liðsins eru
stórir og vel á sig komnir likam-
lega. En þeir eru ekki allir liprir
og létu stundum fara illa með sig í
vörninni. Þannig tókst t.d. Jens
Jenssyni að plata hornamenn
Þjóðverjana hreinlega ,,upp úr
skónum", hvað eftir annað, en
Jens verður Fram greinilega mik-
ill styrkur, þótt skotanýting hans
sé engan veginn nótu góð.
Sóknarleikur Dankersen virtist
vera nokkuð einhæfur. Liðið var
FH - Dankersen í kvöld
fallhættu og kemur liklega til
með að standa í henni i vetur.
Kemur það ekki á óvart eins og
liðið hefur leikið í haust, en þess
ber þó að geta, að margir af leik-
mönnum liðsins eiga við meiðsli
að stríða t.d. Pat Holland, Mick
McGiven (báðir fótbrotnir),
Frank Lampard, Keith Robson og
fleiri. Ipswich liðið er nú i sókn
eftir frekar rólega byrjun og er
líklegt tii að blanda sér í toppbar-
áttuna um síðir. Utisigur (0—2).
Hull C. — Wolves. 2.
Úlfarnir leika mjög þróttmikla
sóknarknattspyrnu og ættu þeir
að ná tveimur stigum úr þessari
viðureign. Úlfarnir eru hins veg-
ar engin ofurmenni i vörninni
(sbr. 2—6 tapið fyrir Southamp-
ton fyrir skömmu) og verða þeir
að þétta hana ef eitthvað á að
verða úr því að fara beint upp i
fyrstu deild eftir aðeins eitt ár i
annarri. Spáin: Útisigur. (1—3).
gug.
Dankersenliðið lék undir getu
- sagði Olafur H. Jónsson
— MÉR fannst þeir Björn og
Öli dæma þennan leik illa,
sagði Axel Axelsson, — við mát-
um ekki hreyfa okkur, án þess
að þeir dæmdu á okkur, og ég
átti einnig mjög erfitt með að
skilja hvers vegna þeir ráku
mig útaf I 5 mínútur. Ég er viss
um að enginn leikmaður hefði
verið rekinn útaf í leik sem
þessum i Þýzkalandi, og það
hefði tæplega verið dæmt vita-
kast í honum. Islenzkir dómar-
ar verða að túlka reglurnar á
svipaðan hátt og gert er annars
staðar, ella get^ -þeir gert ís-
lenzkum handkríattleik erfitt
fyrir. Það virðist skoðun
margra, að Vestur-Þjóðverjar
leiki mjög grófan handknatt-
leik, og ég veit að þeir hafa gert
það hér. En í þessum leik var
Dankersenliðið ekki gróft.
Liðsstjóri Dankersen sagði
eftir leikinn að Björn og Óli
hefðu eyðilagt leikinn fyrir
þeim, og Islandsferðin myndi
ekki hafa mikinn tilgang fyrir
liðið, ef það ætti að búa við
slíka dómgæzlu i leikjum sinum
hér. Dankersen hefði skoðað
þessa ferð sem æfingaferð, og
ætlað sér að reyna ýmislegt sem
liðið væri með á prjónunum, og
væri það hart ef það væri ekki
hægt vegna dómaranna.
Ólafur H. Jónsson sagði eftir
leikinn, að Dankersenliðið
hefði leikið þennan leik undir
getu. — Það gekk bókstaflega
ekkert hjá okkur I fyrri hálf-
leik, sagði hann, — það var
ekki fyrr en rétt undir lokin að
við fórum svolítið að rétta úr
kútnum.
Björn Kristjánsson dómari
sagði að það væri ekkert nýtt að
Þjóðverjar væru óánægðir þeg-
ar islenzkir dómarar dæmdu
leiki þeirra. — Hins vegar
höfðu leikmenn Dankersen það
fram yfir önnur þýzk lið sem ég
hef dæmt hjá að þeir voru mjög
prúðir inni á leikvellinum og
mótmæltu aldrei dómum.
—stjl.