Morgunblaðið - 13.10.1976, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1976
Vélskóli íslands settur í 61. sinn:
Neita þurfti 30 nemendum um
inngöngu vegna húsnæðisskorts
I SETNINGARRÆÐU Andrésar
Guðjónssonar, skólastjóra Vél-
skóla tslands, er skólinn var sett-
ur I 61. sinn 15. sept. síðastl.,
segir hann m.a. að aðsókn að
skólanum hafi aldrei verið meiri
en nú, eða um fjögur hundruð
nemendur I Reykjavlk. Neita
þurfti þrjátlu nemendum um
inngöngu vegna húsnæðisskorts
og tækjaleysis, en tólf eru á bið-
lista.
A Akureyri verða tíu nemendur
i 1. stigi og tólf i 2. stigi. Á Isafirði
verða fimmtán nemendur i 1. stigi
og fimmtán i 2. stigi. I Siglufirði
verður ekki skóli núna vegna
ónógrar þátttöku. 1 Vestmanna-
eyjum hafa aðeins átta nemendur
sótt um 1. stig, sem er vart næg
þátttaka. Kvað Andrés það
óskiljanlegt að stærsta verstöð
landsins með allan sinn bátaflota
og verksmiðjur hefði ekki þörf
fyrir vélskóla.
1 Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Mildur?
Paimolive-uppþvottalögurinn
er mjög áhrifamikill og gerir
uppþvottinn Ijómandi hreinan og
skínandi — jafnvel þóttþér þurrkió
ekki af ílátunum.
Jafnframt er efnasamsetningin
í Palmolive þannig, að hann
er mjög mildur fyrir hendurnar.
Prófið sjálf...
Palmolive í uppþvottinn
OPPVASK
verður i vetur vélstjórabraut með
fimmtán nemendum.
I Vélskólanum í vetur verða
átján bekkjardeildir, þar af fjórar
i 1. stigi. I 2. stigi verða sex deild-
ir. Iðnsveinar eru tuttugu og sex
saman í einni deild.
Vélskólinn hefur í vetur sextán
kennslustofur fyrir átján
bekkjardeildir. Fær skólinn til
afnota eðlis- og efnafræðistofu í
austurenda vélahúss, sem lag-
færing fer fram á núna.
Smiðastofur, vélasalir og raf-
tækjasalir eru nú alveg fullnýttir.
Að lokum gat Andrés Guðjónsson
skólastjóri þess, að vonir stæðu til
að skólinn eignaðist tvo renni-
bekki til að bæta ástandið i smíða-
kennslunni. I vetur starfa fjöru-
tiu og tveir kennarar við skólann,
þar af tuttugu og einn fastráðinn.
Takmark — blað
gegn reykingum
Verðlaunasamkeppni um varnaðarorð
HAFIN er útgáfa blaðs sem
helgað er baráttu ungs fólks gegn
tóbaksreykingum. Nefnist blaðið
Takmark og er gefið út af
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur
og Krabbameinsfélagi Islands, en
sem kunnugt er hófst á slðasta
vetri herferð gegn tóbaksneyzlu í
6. bekk barnaskóla. Efnir blaðið
m.a. til verðlaunasamkeppni um
varnarorð gegn reykingum.
Takmark er prentað I 20.000
eintökum og verður þvl einkum
dreift til tólf og þrettán ára
barna. Stefnt er að því að blaðið
komi út ársfjórðungslega, en gert
er ráð fyrir að það komi út tvisvar
á þessu ári. Um efni blaðsins er
það að segja að þar verða fluttar
frásagnir af baráttunni gegn
reykingum I skólum og utan
þeirra svo og ýmsar gagnlegar
upplýsingar og fræðsla um áhrif
tóbaksnautnar.
1 þessu fyrsta tölublaði Tak-
marks er greint frá samtökum
skólafólks gegn tóbaksneyzlu, að
nemendur efstu bekkja barna-
skóla sameinist um að hafna
tóbakinu og berjast gegn
reykingatizkunni. Það voru 6.-
bekkingar í Breiðholtsskóla sem
riðu á vaðið. Voru haldin nám-
skeið undir stjórn skólastjóra um
skaðsemi reykinga og hélt hver
bekkjardeild kynningar- og
fræðslufund fyrir hóp nemenda
9—11 ára. I Hlíðaskóla og Laugar-
nesskóla voru haidin sams konar
námskeið, en ekki vannst timi til
slíks námskeiðs i Vogaskóla. Þar
var sérstakur fundur og ýmislegt
annað gert í baráttunni gegn
reykingunum.
Þá er greint frá því að börn úr
6. bekk í Hvassaleitisskóla hafi
mælst til þess vió kaupmenn að
takmoík Sisr
iiti& um btilbngAttfnttl __._T_ "
TAKMARKIO ER: REYKLAUST LAND
þeir tækju niður tóbaksaug-
lýsingar úr búðum sínum og að
það hafi borið nokkurn árangur.
Verðlaunasamkeppni.
Takmark efnir til verðlauna-
samkeppni um varnarorð gegn
reykingum. Er hugmyndin að
nota þau sem „vigorð'* eins og
segir í blaðinu, í baráttunni gegn
reykingum og fyrir rétti þeirra
sem reykja ekki. Gæti t.d. falist í
þeim aðvörun um skaðsemi reyk-
inga, hvatnig til baráttu gegn
þeim, hvatning til að hætta að
reykja eða að byrja ekki eða ann-
að sem nota má sem auglýsinga-
texta. Skilafrestur er til 15.
nóvember og ber að skila tillögum
til Takmarks, Suðurgötu 24, R.
merktar dulnefni, en nafn,
heimilisfang sendanda, ásamt
fæðingarári og skóla fylgi með í
sérstöku umslagi. Krabbameins-
félag Reykjavikur veitir þrenn
verðlaun fyrir hnyttnustu til-
lögurnar að mati dómnefndar.
Menntamálaráduneytíð
og umsóknir dr. Braga
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur sent blaðinu eftirfarandi
pistil:
Vegna blaðaskrifa um veitingu
embættis aðstoðarskólastjóra við
Fjölbrautáskólann í Breiðholti,
hef ég þegar gert opinberlega
grein fyrir viðhorfi mínu til þess
máls.
Blöðum hefir einnig orðið tíð-
rætt um meðferð fyrri umsókna
dr. Braga Jósefssonar um stöður á
vegum menntamálaráðuneytisins.
Eitt blaðið segir þær umsóknir
orðnar tólf og mörg fara hörðum
orðum um afgreiðslu þeirra, þó
án teljandi skilgreiningar.
Að athuguðu máli þykir mér
rétt að greina frá staðreyndum,
ekki síst vegna þess að Alþýðu-
blaðið, sem B.J. starfar við, hefir
nýverið kvartað undan því, að
menntamálaráðherra gefi „enga
skýringu á því hvers vegna dr.
Bragi hefir ekki komið til greina I
þær tólf stöður, sem hann hefir
áður sótt um“.
Þá er þess fyrst að geta, að fyrri
umsóknir B.J. um stöður á vegum
menntamálaráðuneytisins á um-
ræddu tfmabili munu „aðeins"
vera sex og skal ég greina hverja
fyrir sig.
1) Deildarstjóri fræðsludeildar,
umsókn dags. 28.4. 1975. Sama
staða og B.J. gengdi áður I
menntamálaráðuneytinu.
2) Lektor I uppeldisfræði við
Háskóla íslands. Dómnefnd innan
deildar taldi Guðnýju Guðbjörns-
dóttur hæfasta. Við atkvæða-
greiðslu í deild fékk hún 16 at-
kvæði og B.J. 2 atkvæði. G.G. var
sett til eins árs.
3) Fræðslustjóri I Reykjanes-
umdæmi. Við atkvæðagreiðslu í
fræðsluráði fékk Helgi Jónasson
3 og Kristin Tryggvadóttir 2 at-
kvæði. Tveir fræðsluráðsmenn
skiluðu bókunum, annar þeirra
mælti með B.J.
4) Fræðslustjóri í Vesturlands-
umdæmi. Afgreiðsla fræðsluráðs
var sú, að samstaða varð um að
mæla með Snorra Þorsteinssyni.
5) Fræðslustjóri í Suðurlands-
umdæmi. I fræðsluráði hlaut Jón
Hjálmarsson 3 og Sigurður K.G.
Sigurðsson 2 atkvæði.
6) Fræðslustjóri í Norðurlands-
umdæmi vestra. Sveinn Kjartans-
son hlaut 3 atkvæði í fræðsluráði
og Valgarður Runólfsson 2.
Þessi fjögur embætti og raunar
allar fræðslustjórastöður hafa nú
verið veittar I samræmi við tillög-
ur fræðsluráða, þar sem ráðherra
sá ekki ástæðu til frávika neins
staðar. Vert er að vekja athygli á
þvi, að fræðsluráðin mæla oftast
með heimamönnum og I fjórum
tilvikum með þeim, sem gegnt
hafa likum störfum áður.
Af marggefnu tilefni þótti mér
rétt að rifja þetta upp. En eins og
áður segir veit ég ekki til að dr.
Bragi Jósefsson hafi sótt um fleiri
störf hjá menntamálaráðuneyt-
inu.
Vilhjálmur Hjálmarsson.