Morgunblaðið - 13.10.1976, Qupperneq 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JílorgitnbUiöiö
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1976
ASÍ og VSÍ ætla að taka
þátt í verðbólgunefndinni
Efri myndin sýnir vel mann-
virkjagerð á Kröflusvæðinu,
en gufuhverinn kom upp þar
sem örin sýnir. Gufumökkur-
inn iengra til vinstri er frá
holu 3, en borinn er við holu 9.
1 forgrunni er Jötunn og sést
þar sem bormenn eru að
hreinsa leirinn sem skvettist á
borinn, en fjærst sér á kæli-
húsið og stöðvarhúsið.
Neðri myndin sýnir hvera-
holuna sfðdegis f gær, en hún
var þá farin að slappast all
mikið, en af og til bullaði f
miðri holunni. Ef myndin
prentast vel sjást einmitt
sprungur f leðjunni þar sem
opið er undir. Sjálf er holan,
sem gufan mótaði, um 10 m í
þvermál og 5 m djúp. Ljós-
myndir Mbl. Friðþjófur.
Leirgosið í rénun - en Jötunn fluttur um set
□ --------------------□
Sjá einnig bls. 16,17 og 30.
ALLT var með kyrrum
kjörum við Kröflu, þegar
Morgunblaðið hafði sam-
band þangað laust fyrir
miðnætti. Leirhverinn,
sem myndaðist þar í gær-
morgun bærði lítt á sér og
starfsmenn við Kröflu-
virkjun voru að ganga til
náða. Almannavarnanefnd
Mývatnssveitar veitti í
gærkvöldi leyfi sitt til þess
að starfsmenn fengju að
dvelja á Kröflusvæðinu,
enda var þá búið að gera
endurbætur á neyðarkerf-
inu, en nefndin hafði sett
það sem skilyrði fyrir því
að starfsmönnum yrði
leyft að dvelja á virkjunar-
svæðinu. Björn Friðfinns-
son, einn nefndarmanna í
almannavarnanefndinni,
sagði við Mbl. í gærkvöldi,
að einhver fjöldi starfs-
manna myndi dvelja þar f
nótt en margir mundu
hafa haldið til síns heima í
gærmorgun þegar leirgos-
ið hófst og Reykvíkingar
fóru fæstir norður í gær
þegar fréttirnar bárust út,
en helgarfrí var við Kröflu
um s.l. helgi. Hins vegar lá
ekki Ijóst fyrir í gærkvöldi,
hvort vinna hefst við virkj-
unarframkvæmdir í dag.
Gufuhver, um einn metri í
þvermál, myndaðist óvænt
skammt fá stóra jarðbornum
Jötni við Kröflu í fyrrinótt.
Virkni hans var undir afli meðal-
stórrar borholu, en hverinn þeytti
til að byrja með upp talsverðu af
þunnfljótandi leir, m.a. yfir stóra
jarðborinn, Jötun. Starfsmenn
við Kröflu voru fluttir brott fyrir
Framhald á bls. 30
Starfsfólki heimilað að
dvelia á Kröflusvæðinu
BÆÐI Alþýðusamband tslands
og Vinnuveitendasamband ts-
lands hafa ákveðið að verða við
tilmælum rfkisstjórnarinnar um
að tilnefna fulltrúa í nefnd með
fulltrúum ríkisstjðrnarinnar og
auk þess fulltrúum Bandalags
starfsmanna rfkis og bæja,
Stéttarsambands bænda og þing-
flokkanna en nefnd þessi skal
fjalla um aðgerðir gegn verð-
bólgu. Þingflokkar stjórnarands-
stöðunnar munu fjalla um þessi
tilmæli rikisstjórnarinnar i dag
og taka þá afstöðu til þeirra.
1 samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Björn Jónsson, forseti
Alþýðusambandsins, að miðstjórn
ASÍ hefði komið saman til fundar
þá fyrr um daginn og þar verið
samþykkt að taka þátt í störfum
nefndarinnar. Björn sagði, að á
fundinum hefði hins vegar verið
gerð sérstök bókun, sem Björn
sagði að eftir væri að afhenda
forsætisráðherra, en meginefni
þessarar bókunar væri að þátt-
taka ASl i nefndinni gæti ekki á
neinn hátt bundið hendur sam-
bandsins i kjaramálum.
Þá náði Morgunbalðið tali af
Framhald á bls. 18
Skáksambandið neitar
að borga ferðakostnað
TÓLFTA umferð skákmótsins i
Novi Sad f Júgóslavfu var tefld í
gærkvöldi. Friðrik samdi um
jafntefli við Notaros og
Guðmundur á biðskák við
Velimirovic og sögn Friðriks
Ólafssonar á Guðmundur mun
Orkustof nun vill halda áf ram
—Almanna varnarád gera hlé
ALMANNAVARNARAÐ ríkis-
ins, Almannavarnanefnd
Mývatnssveitar og Orkustofnun
sendu f gær frá sér yfirlýsingar
vegna síðustu atburða við
Kröflu. t yfirlýsingum þessum
kemur fram að skoðanir eru
skiptar um hvort strax skuli
haldið áfram borunum við
Kröflu eða hvort gera skuli hlé
þar til gleggri mynd fæst af
þeirri þróun, sem á sér stað á
svæðinu um þessar mundir.
Fara yfirlýsingarnar þrjár hér
á eftir.
Frá
Almannavarnanefnd
Mývatnssveitar:
„Nefndin er sammála um að
leyfa beri nauðsynleg umsvif
til þess að borinn Jötunn verði
tafarlaust fluttur til. Þá leggur
hún til að girt verði í kringum
hverinn til að forðast slys.
Nefndin v.ekur athygli á þeirri
skoðun jarðvísindamanna að
goshætta sé vaxandi á svæðinu
og leggur áherzlu á að varúðar-
ráðstafanir séu auknar og að
tafarlaust verði bætt úr þeim
ágöllum, sem komu í ljós við
boðun hættuástands i morgun.
Eftir að bætt hefur verið úr
þeim ágöllum telur nefndin að
leyfa megi að svo stöddu um-
ferð um svæðið á ný.“
Fund sinn hélt Almanna-
varnanefnd Mývatnssveitar i
Reykjahlíð um miðjan dag í
gær og sátu hann auk nefndar-
manna þeir Guðmundur Sig-
valdason jarðeðlisfra^ðingur og
Karl Grönvold jarðfræðingur.
Frá Almannavarna-
ráði ríkisins:
„Almannavarnaráð er sam-
mála ályktun Almannavarna-
nefndar Mývatnssveitar frá því
i dag, en telur þó ráðlegt að
fresta framkvæmdum á Kröflu-
svæðinu í bili, eða þar til
gleggri mynd fæst af þeirri þró-
un, sem nú á sér stað á svæð-
inu.“
Ályktunin var samþykkt á
fundi ráðsins seinni partinn í
Framhaid á bls. 18
betri stöðu, og með góða vinnings-
möguleika. önnur úrslit urðu
þau, að Smejkal vann Popovic,
Gligoric vann Vukic, Hort vann
Buljovic, Matulovic vann Marjan,
Sax og Garcia sömdu um jafntefli
og biðskák varð hjá Ikov og Deze
og stendur Ikov betur að vfgi.
Staðan eftir 12 umferðir er sú,
að Smejkal er i fyrsta sæti með
914 vinning, 2. er Velimirovic með
814 vinning, 3.—4. eru Vukic og
Hort með 714 vinning 5.—6. Sax
og Gligoric með 7 vinninga 7.
Friðrik með 614 vinning 8. Ikov
með 6 vinninga og biðskák 9.
Garcia 6 vinninga, 10.—11.
Guðmundur og Buljovic með 5
vinninga og biðskák, aðrir hafa
færri vinninga.
Biðskák Guðmundar og Horts
úr 11. umferðinni lauk með jafn-
tefli.
Friðrik Ólafsson sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gærkvöldi, að hann og Guðmund-
ur hefðu oft verið í betra skapi,
en þetta væri eitt af þeim mötum
sem bezt væri að afskrifa sem
fyrst, því úr þessu kæmu þeir
Framhald á bls. 18