Morgunblaðið - 07.11.1976, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 07.11.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1976 3 SÝNINGUM ÞEIRRA LÝKUR Á KJARVALSSTÖÐUM í KVÖLD „Síbreytileg stemmn- ing í náttúru Eyjanna” - Rabbað við Guðna Hermansen listmálara frá Vestmannaeyjum I verðar andstæður i litum finnst mér ! ég fara mjög varlega með þá, mjúkt, en hins vegar fer breytileiki mynd- anna mikið eftir birtunni, stemm- j ningunni, tónlistinni Billy Holliday ' býður t.d. upp á fallega mynd og ef Jón Múli gæti spilað fyrir mig Indiana með Oskar Petersson þá kæmi hörkumynd Ég er búinn að bíða í 5 ár eftir þessu í útvarpinu hjá honum, en það bara kemur aldrei. HELGAR SIG MÁLARALISTINNI „Ég málaði þessar myndir bein- línis fyrir þessa sýningu og það hafa farið þrjú ár í þessar 75 myndir. Það eru ekki margar myndir miðað við það að mest allur vinnutími minn hefur farið í það verk, en ég er ekkert að prenta myndir, ber virð- ingu fyrir málaralistinni, viðfangs- efninu og vinnunni," sagði Guðni Hermansen listmálari frá Vest- mannaeyjum i spjalli við okkur, en Guðni kvaðst oft vera 3—4 mánuði að vinna mynd, þótt hann ynni eitt- hvað daglega við þær og upp í 8— 1 0 tíma lotur í einu. Guðni hefur málað meira og minna s.l 15 ár og eingöngu helgað sig málaralistinni um árabil SÍBREYTILEG NÁTTÚRA EYJANNA ER HVATINN „Myndefnið kemur allt úr Eyja- hrauninu og Vestmannaeyjum," sagði Guðni," allar hugmyndirnar eru komnar þaðan Viðfangsefnin þar eru óþrjótandi og má benda á að margir kunnustu málarar þjóðarinn- ar hafa sótt fyrirmyndir í verkum sínum til Vestmannaeyja. Lengi skildi ég ekki hvers vegna svo fáir af meisturunum máluðu Helgafell, eins og það er fagurt og jafnframt einfalt í formi Þegar ég fór hins vegar sjálfur að mála Helgafell. skildi ég þetta, því þá komst ég að raun um að maður þarf að hafa búið lengi með Helgafelli til þess að ná hinum einfalda en sterka svip þess. Það er gott að sækja fyrirmyndir í náttúru Vestmannaeyja, hið mikla og skjóta birtuspil himins, hafs og hamra, gerir Eyjarnar og stemmn- inguna síbreytilega. Maður sér lahdslagið aldrei eins BIRTAN OG STEMMINGIN. Sumir spyrja mig um ástæðuna fyrir sviptingum í litameðferð, en því er erfitt að svara Þótt ég noti tals- HELD MÍNU STRIKI Að þessari sýningu lokinni hygg ég ékki á sýningu um sinn, þetta er svo dýrt fyrirtæki Ég vanda þetta eins og frekast er unnt af minni hálfu, nota vönduðustu ramma sem völ er á og mér þykir fara vel við myndirnar, mála þær reyndar I Gudni Hermansen römmunum og allt kallar þetta mikinn kostnað Ég mun hins vegar halda mínu striki áfram heima eins og ég er vanur, annað er ekki hægt, ekki mögulegt hvað sem hver segir " „Án fordóma og með húmor verða myndirnar reglulega fallegar” —Rœtt við Magnús Kjartimsson tistinálara í Reykjavík AÐ FÁ "TAPPA" í MÁLVERKINU „Þessar myndir eru gerðar á s.l. 3 árum, mest allt klippimyndir, þótt allt hafi farið í rugling og hár saman hvað það orð snertir. Síðast þegar ég sýndi hér á Kjarvalsstöðum 73 með 5 öðrum ungum listamönnum, sýndi ég málverk , en skömmu síðar fór ég til Kaupmannahafnar til náms. Þar lenti ég í klípu með málverkið og gat ekki málað í eitt ár, fékk leið á þessu. Það er vist algengt að menn fái tappa Ég man t.d. eftir því þegar Kjarval kom eitt sinn til afa míns og sagði honum að hönd sín léti ekki að stjórn. Það var hins vegar fremur hans máti að lýsa þessu ástandi þannig, sérvitur, en maður hefði nú haldið að hann ætti auðveldara með að vera laus við allar teppur en flestir aðrir, maðu^ með slíka hæfileika. POKINN MEÐ SLÁTURFÉLAGSMERKINU Ég byrjaði svo » Kaupmannahöfn að vinna þ«;tta pappirsdót. það virð- ist henta mér mjög vel, gefur meiri möguleika en flest til að brjóta upp hreinan formheim. Þó kemur þetta stundum dáfitið kynlega fyrir. Ég hef verið að nota allskonar bleðla í myndirnar mínar, en einu sinni átti ég ekkert nema poka með merki Sláturfélagsins SS, og ég setti þetta merki í eina mynd og siðan hverja af annarri, þvi mér fannst það skemmtilegt og gefa marga mögu- leika. Á hvolfi er það t.d eins og mannsandlit. Kunningi minn sem kemur oft til min og situr hjá mér við vinnuna, spurði mig strax hvers vegna ég hefði sett SS í myndina. Þetta eru einkennileg viðbrögð hvað margir hafa spurt að þvi sama, aðeins þvi Þetta virðist því vekja athygli fólks, en ég veit ekki af hverju. KLIPPNYNDALISTIN ER HUNDGOMUL Þú spurðir áðan hve klippmynda- listin sé gömul. Hún er hundgömul. Listspjallið i dag telur hana vera síðan um 1912, en hún er örugg- lega miklu eldri, mörg þúsund ára gömul. En menn þekkja hins vegar ákveðna þróun siðan um aldamótin og þá er það víst sjálfsögð við- miðun Síðan þá hafa ýmsir mætir listmálarar fiktað við þetta af og til, fyrrum var þetta oft unnið mun hlutbundnari hátt en nú orðið. Margs konar klippbútar mynduðu að lokum reglulegt borð og svo framvegis, en líklega er þjóðverjinn Karl Schwitters sá frægasti á þessu sviði Þegar poppið kom til sögunn- ar varð hann tengiliður þessarar listar við það SJÁLFUR HEF ÉG LÚMSKT GAMAN Sjálfur ætla ég að halda áfram á þessari braut, stóru flekarnir á sýningunni eru það nýja og ég er miklu hressari yfir þeim. Vinnuað- stöðu hef ég ágæta, en fremur litla sölumöguleika. Á fólk almennt virka þessar myndir sem dálítil hrávinna, það á ekki að venjast þessu. Ég er ekki frá þvi að þetta hefði litið betur út ef ég hefði haft efni á að setja gler á myndirnar Þá hverfa allar hrukkur og þetta verður samfelldara. Sjálfur Framhald á bls. 25 MUNIÐ ÚTSÝNARKVÖLDIÐ Á HÓTEL SOGU I KVOLD

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.