Morgunblaðið - 07.11.1976, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1976
Valdimar Björnsson:
VALDIMAR Björnsson,
fyrrverandi fjármálarád-
herra Minnesota, segir hér
frá tslendingabyggðum
vestur í Bandaríkjum og
rekur slóð íslensku frum-
byggjanna allt frá slétt-
unum þarna vestra og inn í
stórborgirnar. Uppistaðan
er grein, sem hann skrifaði
fyrir American
Scandinavian Review,
„Icelanders in the United
States“, en sú útgáfa, sem
hér er birt, er þó allnokkuð
lengri. — Valdimar hefur
raunar heitið okkur því að
senda okkur pistla annað
slagið og hyggur Morgun-
blaðið vissulega gott til
þeirrar samvinnu.
Islendingar, miklu færri í
Bandaríkjunum heldur en í
Kanada hafa samt þrisvar haldið
upp á aldarafmæli byggða í
Bandarfkjunum á sfðari árum.
Fyrsta landnámsför, að undan-
teknum þeim tilraunum sem
komu f kjölfar Leifs heppna, var
hafin 1855 af mormónum sem
fóru til Utah. Næsta 100-ára
minningarhátfðin var sumarið
1970 á Washington eyjunni, sem
tilheyrir Wisconsin. Sú þriðja var
í Minneota, nær suðvestur-horni
Minnesota ríkis, i júlí 1975.
Ein byggð í viðbót, sú í Norður-
Dakota mun eiga hundrað ára
afmæli 1978. Þá verður minnst
þess að landar tóku þar bólfestu
1878, og lögðu þá grundvöll
stærstu Islendinga-byggðar
Bandarfkjanna.
Um leið og minnst er á stofnun
ýmissa byggða má koma með
arbakka mörg bréf. Það varð úr
að fáeinir fóru þaðan, með
Washingtoneyju f Wisconsin sem
áfangastað, árið 1870.
Þá koma norskir útflytjendur
til sögunnar, og helst nokkrir
þeirra f Dane-héraði, nálægt
Madison, höfuðborg Wisconsin-
ríkis. Gunnlaugur Pétursson frá
Hákonarstöðum á Jökuldal var
meðal þeirra sem komu frá Is-
landi til Milwaukee í Wisconsin
1873. Hann varð bóndi fyrst f
Danecounty eða héraði, og slóst í
för með norskum nábúum sem
fluttu þaðan lengra vestur 1875.
Hann nam heimilisréttarland sjö
mílur norðaustan við þorpið
Minneota f Minnesota, einmitt á
þjóðhátíðardegi Bandarfkjanna,
4ða júlf 1875, og varð þannig
árin 1928 og 1929. Hann hefur
verið prófessor við háskóla í
Monterey, California, f mörg ár og
hefur tekið saman lesbók
íslenskra bókmennta í enskum
þýðingum. Fólk af íslenzkum
stofni hefur unnið sér frama f
Utah sem læknar,
hjúkrunarkonur, kennarar,
dómarar og einn sem borgar-
stjóri. Ein best þekkt er frú Kate
Barneson Carter, sem hefur
samið mörg rit um mormóna f
Utah og var frumkvöðull að stofn-
un minjasafns f Salt Lake City.
Eyrarbakkiog
fslenskir hestar
Minnst hefur verið á næst elstu
byggðina á Washington eyjunni f
Islendingar í
Bandaríkjunum
Minnisvarðinn við gröf séra Páls Þorlákssonar.
Minnisvarði við leiði Káins
Stafholt old people’s home, Blaine, Washington
Washington Island ferjan „Eyrarbakki". Arni Richter, dðttursonur
eins landnámsmannsins, á hana og starfrækir.
heildartölur sem fróðlegt innskot.
Þær tölur voru teknar saman af
Árna heitnum Helgasyni, sem var
lengi heiðursræðismaður Islands
í Chicago. Yfirlit Arna birtist í
Lögberg-Heimskringlu f Winni-
peg í nóvember 1965.
Niðjar tslands hafa verið að
flytja vestur á bóginn f Banda-
ríkjunum síðari árin, og eins
hefur verið f Kanada. Samkvæmt
kanadísku manntali 1961 bjuggu
14,547 Islendingar í Manitoba-
fylki í Kanada. Þar með eru taldir
aðeins þeir sem fæddir voru á
íslandi og þeir sem áttu feður
sem þar fæddust. En um leið voru
Islendingar f British Columbia,
vestur við Kyrrahaf í Kanada,
5,136 alls.
Manntöl í Bandaríkjunum nota
breiðari grundvöll í reikningum
um þjóðflokka. Islendingar eru,
náttúrlega, þeir sem fæddust á
Islandi, og um leið allir sem hafa
átt föður eða móður sem fædd
voru á Fróni. Þannig skráði
bandaríska manntalið á árinu
1960 9,023 íslendinga, 2,780 sem
fæddir voru á íslandi. Þótt
byggðin í Norður-Dakota sé enn
stærst, þá eru dreifðar nýlendur f
vesturhluta landsins stærri þegar
tölur eru samanlagðar. Skýrslur
manntalsins árið 1960 staðsetja
Islendinga þannig: í norðaustur-
rikjum 1,878; norðarlega f mið-
vestur-ríkjunum 2,829; f suður-
rfkjum 895; f vestur-ríkjum 3,421.
Náttúrlega má segja, að Is-
lendingar finnist hér og hvar um
alla Amerfku. Nokkuð margar
íslenzkar konur giftust
Amerikönum á stríðsárunum og
sfðan, og eru heimili þeirra vfða
um landið. Svo vitnað sé einu
sinni enn í skýrslunar sem Árni
Helgason tók saman á milli 1950
og 1960 þá bættust við manntalið
325 manns, fæddir á Islandi, en á
meðan fækkaði þeim í Kanada um
1,097.
Tóku
mormónatrú,
héldu vestur
Kynni lslendinga við Dani og
Norðmenn áttu þátt í fyrstu land-
námsferðum vestur. Tveir ungir
Islendingar frá Vestmannaeyjum
fóru til Kaupmannahafnar 1851
sem iðnnemar. Þeir tóku Mor-
mónatrú þar um leið og nokkuð
margir Norðmenn og Svfar gengu
sömu leið. íslendingar voru með í
smáhópi Norðurlandabúa sem
fóru til Utah 1855, nokkrir frá
Vestmannaeyjum og fáeinir af
Suðurlandinu.
Svo var Dani, William
Wickmann að nafni, sem vann hjá
Guðmundi Thorgrimsen faktor á
Eyrarbakka. Hann fór til
Wisconsin árið 1865, og skrifaði
fyrrverandi starfsbræðrum á Eyr-
fyrsti íslenzki landneminn í
Minnesotaríki.
Byggðin, sem fór að myndast í
Minneota og í sveitum fyrir norð-
austan og suðvestan bæinn, taldi
800 manns fædda á íslandi áður
en flutningar tóku enda á níunda
tug aldarinnar. Stærsti hópurinn
'sem kom f einu yar árið 1879,
þegar 160 manns bættust við,
aðallega úr Múla- og Þingeyjar-
sýslum.
Nokkuð áður en haldið var upp
á 100-ára afmæli byggðarinnar
við Spanish Fork, Utah, nálægt
Salt Lake City, var búið að koma
upp minnisvarða. Landar kusu
strandvita sem tákn og stendur
það minnismerki í Spanish Fork.
Hátíðarblær rfkti yfir aldaraf-
mælinu 1955 og tók sendiráð
Islands þátt í athöfninni, þar sem
Pétur Eggerz mætti fyrir hönd
Thor Thors heitins.
Nokkrir Islendingar sem
tilheyrðu ekki mormóna-
trúarflokknum bættust við
hópinn. Fyrsti Vestur-
Islendingurinn sem sótti nám við
Háskóla Islands var úr mormóna-
fjölskyldu — Loftur Bjarnason,
Wisconsin, stofnsett 1870. Fjórir
Islendingar settust þar fyrst að og
náði talan aldrei upp í 100 manns.
Conan Bryant Eaton hefur samið
sögubrot um eyjuna, um nær-
liggjandi Rock Island eða Kletta-
ey, sem Hjörtur Þórðarson átti
alla um árabil, og um byggðir á
Green Bay-tanganum. Hann
minnist þess að nafnið Eyrar-
bakki er bundið við Washington-
ey, fest stóru lelri á ferjuna sem
gengur milli tangans og eyjunnar.
Árni Richter á ferjuna og er hann
dóttursonur Árna Guðmunds-
sonar, einn af þeim fjórum land-
námsmönnum.
Á Washingtoneyju eru einu
íslenzku hestarnir sem finnast í
nokkurri íslendingabyggð, keypt-
ir frá amerískum áhugamanni í
Maryland sem fékk nokkra hesta
frá Islandi og hefur ræktað kynið.
Milwaukee í Wisconsin varð að-
komustaður nokkuð margra
fslenzkra innflytjenda snemma á
sjöunda tug aldarinnar. Þar var
haldið upp'á þjóðhátíðardaginn,
annan ágúst 1874, á sama tíma og
þúsund ára afmælið á islandi.
Séra Jón Bjarnason messaði og