Morgunblaðið - 07.11.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1976
27
Hlaða á Riverside Farm, heimili fslenska frumbyggjans f Minnesota
fylki
Frá Riverside Farm (Hákonarstöðum), sjö mflur norð-austur af
Minneota, Minnesota
Vita minnismerkið f fslensku mormónabyggðinni, Spanish Fork, Utah
Icelandic Lutheran Church. Mountain, N.D.
Jón Ólafsson, skáld og ritstjóri,
flutti ræðu. Fámennur hópur fór
frá Milwaukee til Shawano, og
þar var smábyggð um tfmabil.
Ibúar hennar fluttu allir til
' Norður-Dakota seinna. Nokkrir
fóru til Nebraska. Aldrei varð úr
flutningi til Alaska, þrátt fyrir
ferð Jóns Ólafssonar þangað á
vegum bandarísku stjórnarinnar
og áróður hans um þá hugmynd.
Eins og fyrr var sagt, myndaðist
Minnesota byggðin með flutningi
frumherja frá Wisconsin árið
1875. Islendingar í Minneota og
nærliggjandi sveitum stofnuðu
kaupfélag á þingeyska vfsu —
Verzlunarfélag íslendinga, og var
heitið munnfyllir handa ensku-
mælandi fólki. Sú stofnun hóf
starfsemi árið 1886 og hélt velii
þangað til 1896. Tvö tímarit voru
gefin út f prentsmiðju Gunnars
Björnssonar f Minneota. Árið
1897 var byrjað á útgáfu
mánaðarrits sem hét Kennarinn,
og urðu átta árgangar. Var ritið
notað til kristinnar fræðslu f
sunnudagaskólum og heima-
húsum. Vfnland kom út sem
mánaðarrit frá stofnun 1902
þangað til það leið undir lok 1908.
Þeir gengu
menntaveginn
Margir stofnendur byggðar-
innar í suðvestur-horni Minne-
sota-ríkis urðu bændur, en
snemma bar á leiðtogahæfileikum
í kennarastéttinni, í opinberum
embættum, við verzlun, í lögfræði
og öðrum greinum. Áhuginn á
æðri skólamenntun varð áberandi
meðal tslendinga í Minnesota eins
og vfða.
Byggðin í Pembina-héraði f
Norður-Dakota, sem myndaðist
1878 varð heimabyggð margra
sem skarað hafa fram úr á ýmsum
sviðum. Tveir þeir bezt þekktu
voru landkönnunarmaðurinn
Vilhjálmur Stefánsson og
uppfinningamaðurinn Hjörtur
Þórðarson. Vilhjálmur var
tveggja ára þegar hann fluttist
með foreldrum sínum frá Arnesi f
Manitoba til Dakóta-byggðar, og
Hjörtur sex ára þegar hann fór
frá Islandi, fyrst til Wisconsin og
þaðan f Dakóta-nýlenduna. Raf-
magns-áhöld voru framleiðsla
stór-fyrirtækis sem hann rak í
fjölda mörg ár í Chicago —
Thordarson Electric Company.
Hjörtur varð mikill safnari
fágætra bóka, og hið stóra bóka-
safn hans, upp á 15.000 bindi, er í
eign Wisconsinháskólans f
Madison.
Aðrir þekktir leiðtogar fæddust
eða voru aldir upp í Norður-
Dakota. Þrfr Islendingar hafa
orðið dómsmálaráðherrar í
rfkinu; þrfr voru meðlimir Hæsta-
réttar; fleiri urðu héraðsdómarar
og um tólf hafa verið kosnir á
ríkisþingið. Fleiri hafa skarað
fram úr sem læknar, lög-
fræðingar og kennarar.
Einn í sinni röð var Dakóta
kímni-skáldið fræga, Kristján N.
Július fæddur á Akureyri. Ur
stöfum nafnsins, K.N., varð
þekkta nafnið Káinn. Hann hefur
verið talinn „Bobbie Burns
islenzks kveðskapar.“ Gamansemi
hans f ljóðum var einsdæmi oft
krydduð með blöndun enskra
hnittiyrða inn í islenzkuna.
Verðskuldaður minnisvarði hans
stendur við leiðið f Eyford-
kirkjugarðinum á milli Mountain
og Garðar.
Stórborgirnar
Tala tslendinga í Chicago og
þar í grennd hefur í mörg ár verið
um 200 manns, og þar hefur Is-
lendingafélag starfað f mörg ár.
Landar fluttu þangað aðallega frá
Norður-Dakota og Manitoba og
sumir hafa komið beint frá
Islandi. Chicago-Islendingar hafa
haldið einum sið f heiðri — þeir
eru alltaf með þorrablót á
hverjum vetri, oft með mat sem
fluttur er flugleiðis frá Islandi, og
eru þær skemmtanir alltaf vel
sóttar. I Duluth, norður við
Framhald á bls. 22
Á grasafjalli, milað um 1926.
Sýning á vatnslita-
myndum í Asgrímssafni
I dag verður haustsýning As-
grfmssafns opnuð, og er hún 44.
sýning safnsins.
Aðaluppistaða þessarar
sýningar eru vatnslitamyndir,
málaðar á hálfrar aldar tfmabili,
og nokkrar þeirra sýndar í fyrsta
sinn nú.
Viðfangsefni Ásgríms Jóns-
sonar í þessum myndum eru m.a.
blóm, Þjórsárdalur, Borgarnes,
Húsafell, Þingvellir og Reichen-
hall f Þýzkalandi, en þar var Ás-
grímur um tfma sér til heilsu-
bótar arið 1939. Málaði hann þar
nokkrar vatnslitamyndir, sem
varðveittar eru f Asgrímssafni.
Eins og undanfarin ár kemur út
á vegum Asgrfmssafns nýtt jóla-
kort. Er það prentað eftir olfu-
málverkinu Vor á Húsafelli, en sú
mynd vakti mikla athygli á Ás-
grimssýningunni á Kjarvals-
stöðum. Þetta kort er gert f tilef ni
af aldarafmæli Ásgríms Jóns-
sonar, og verður aldrei endur-
prentað.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur er ókeypis.
1 tæpt ár hafa Thorvaldsenskonur selt 100 ára afmælisplatta sinn, með
mynd af Austurstræti eftir Halldór Pétursson og framleiddan hjá Bing
og Gröndal. Agóðinn rennur tal vanheilla barna.
Thorvaldsenskonur
safna tíl vanheilla bama
THORVALDSENSKONUR eru
um þessar mundir að herða róður-
inn við fjáröflun til Gjafasjóðs
Thorvaldsensfélagsins, en allur
ágóði af fjáröflun þeirra rennur
sem kunnugt er til vanheilla
barna. Á 100 ára afmæli félagsins
fyrir tæpu ári, lét féiagið gera 500
stykki af sérstökum veggplatta
hjá Bing og Gröndal. Halldór Pét-
ursson gerði teikningu af Austur-
stræti, einsog það er nú. Og eru
enn eftir nokkur stykki af þessum
platta, sem þó er að verða búinn.
Á afmælinu í fyrrahaust gaf
Thorvaldsensfélagið 10 millj.
krónur í Gjafasjóð, sem er I
vörslu menntamálaráðuneytisins,
ætlaður til að mennta sérkennara
til þjálfunar þroskaheftum börn-
um. Og hefur nýlega verið veittar
úr sjóðnum 2,4 millj. til 12 aðila.
Jólastarf Mæðrastyrks-
nefndar Kópavogs
MÆÐRASTYRKSNEFND Kópa-
vogs hefur hafið jólastarfið. Hún
er til húsa að Digranesvegi 12,
kjallara. Nefndarkonur munu
hafa þar opið frá kl. 3—22, og að
Hjallabrekku 8, dagana 9. og 10.
nóv. og veita þá fatnaði og öðrum
framlögum móttöku. Athygli skal
vakin á þvá, að einungis er tekið á
móti hreinum fatnaði. Dagana
16.—20. nóv. mun nefndin hafa
opið að Digranesvegi 12 frá kl.
5—9 e.h., nema laugardaginn 20.
nóv., þá frá kl. 2—6 e.h. Þessa
daga fer fram úthlutun á fatnaði.
Fjárframlög eru undanþegin
skatti.
1 mæðrastyrksnefnd eiga sæti
12 konur, en framkvæmdanefnd-
ina skipa: Guðný M. Pálsdóttir,
Álfhólsvegi 12a, s. 40690. Guðrún
H. Krastjánsd. Nýbýlavegi 27, s.
40421, og Inga H. Jónsdóttir,
Hjallabrekku 8, s. 42546.
Nefndarkonur veita móttöku
gjöfum til starfsins á heimilum
sínum og sækja framlög ef óskað
er.