Morgunblaðið - 07.11.1976, Síða 28

Morgunblaðið - 07.11.1976, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 7. NÖVEMBER 1976 28 Hannes með hamarinn Stutt myndasaga með teikningum eftir bræðurna Kristin Rúnar og Hlyn Örn, þegar þeir voru 8 og 6 ára. Framhald birtist svo f næstu skipti. HANNES litli var sex Sra. Itann hafði yndi af þvf að smfða — og tók þess vegna litla hamarinn sinn alltaf með sér hvert sem hann fór. Og honum fannst Ifka gaman að skipta sífellt um húfur og hatta. Hann átti sjö húfur og fimm hatta. Verst þótti Hannesi litla að mega ekki smfða inni. Mamma hans bannaði honum það. Hún sagði, að hann truflaði allt fólkið f húsinu. Þess vegna fór Hannes út. En hvert átti hann helst að fara? AHA!! Þarna var nagli f girðingunni hjá honum Pétri. Hannes ætlaði að negla hann fastan, en ah! Hann missti hamarinn niður f garðinn. Hann klifraði upp á girðinguna og ætiaði að ná f hamarinn. En þá kom Pétur út. Hann kallaði reiðilega til Hannesar: „Gættu þfn, drengur litlí. Þetta gerir maður aldrei. Bfddu hægur, þangað til ég næ f afturendann á þér. Til hvers heldurðu eiginlega að hlið séu á görðum?" Og Hannes litli flýtti sér f burtu með hamarinn sinn. ÞEGAR Hannes litli kom út á gangstéttina sá hann tvær litlar spýtur. Hann settist niður og fór að hugsa. Hvað ætti ég nú að smfða? Ég get kannski byrjað á fleka — eða flugvél — eða bát. Það er kannski best. Hann var niðursokkinn f hugsanir sfnar, þegar hann var trufiaður. Hann leit upp og sá konu með barnavagn standa hjá sér. Hún horfði á hann og sagði vingjarnlega: „Drengur minn. Börn eiga ekki að leika sér á gangstéttunum. Þær eru fyrir gang- andi fólk.“ Hannes litli stóð á fætur og vék til hliðar. Svo hélt hann áfram að velta þvf fyrir sér, hvar hann ætti að leika sér. Bflastæðið var nógu stórt, en það var alltaf fullt af bflum og leikvöilurinn var alltof langt f burtu. Barna- og fjölskyldusíða Morgunblaðsins Umsjón: Rúna Gfsladóttir og Þórir S. Guðbergsson Barna- og fjölskyldusfða? Tngangurinn er fyrst og fremst sá ,að flytja börnum, unglingum og fullorðnum sem fjölbreytilegast efni f stuttu máli, vekja spurnngar og hugsanir, og hvetja þannig alla f jölskylduna til þess að vinna saman, ræða saman, starfa saman að ákveðnum verkefnum o.s.frv. Við lifum f tæknivæddu þjóðfélagi með mörgum og mis- jöfnum breytingum, tilboðum og freistingum, sem geta „rænt“ áhuga okkar, peningum og tfma, ekki hvað síst þvf sfðastnefnda. 1 stað þess að tækni, meiri möguleikar til vellfðunar og velfarnaðar ætti að verða okkur til góðs, fjar- lægjumst við mennirnir gjarna hver annan og bil myndast milli f jölskyldumeðlima milli kynslóða o.s.frv. Við Iftum svo á, að vandamál einstaklinga f fjölskyldu skipti f raun alla fjölskylduna máli, og það er áreiðanlega margt sem ykkur börnin langar til þess að ræða við hina fullorðnu um og spyrja um, fá nánari vitneskju um o.s.frv. En til þess þarf tfma. Það þarf að lærast og oftast að koma ýmsum breytingum í framkvæmd til þess að f jölskyldan komi saman reglulega og taki upp ýmis mál til umræðu. Við þörfnumst hvert annars. Maður er manns gaman. Reynum að vera mikið saman, börn og fullorðnir Þessi þáttur getur e.t.v. orðið ykkur hvatning og hjálp til þess. Við skulum reyna að nota tfmann meðan við höfum tæki- færi til þess. Það kann að fara svo að við vöknum allt f einu upp við vondan draum. Ungarnir eru flognir úr hreiðrinu. Lffið tekur miklum breytingum. Og við uppgötvum að við þekkjum varla hvert annað. Gaman væri að frétta af viðbrögðum einhverra fjölskyldna við þessari sfðu. Skrifið okkur og segið frá samveru ykkar hluta úr degi, umræðum ykkar eða skemmtilegum/athyglis- verðum atburðum innan f jölskyIdunnar. Efni og tillögur frá lesendum eru einnig sérlega vel þegnar — og öll jákvæð gagnrýni. Landið okkar Sennilega eiga flest heimili landabréfabók eða kort af ts- landi. Nú langar okkur til þess að leggja til að fjölskyldan setjist saman með kort af ts- Iandi og ræði saman um ein- föld atriði. Það kann að vera að erfitt reynist fyrir yngstu börnin að fylgjast með (yngri en 2ja ára), en þau gætu e.t.v. byggt úr kubbum á meðan eða einhver tekur þau sérstaklega að sér. Börn á aldrinum 3—7 ára hafa ekki fengið að heyra mik- ið um landið sitt f skóla (leik- skóla) svo að nú þurfa þau að fá gott tækifæri til þess að spyrja og svara. Flest hús á lslandi eru stein- hús. En nokkur eru einnig úr timbri. t hvernig húsi eigum við heima? Til eru margar tegundir húsa. Sum eru stór og mikil. önnur eru Iftil og lág. Sum hús eru kölluð háhýsi. En önnur eru aðeins ein hæð. t hvaða landi eigum við heima? Landið okkar heitir ts- land. Þannig Iftur það út (kortið). lsland er eyja, (út- skýring). Á tslandi eru mörg hús og margt fólk. Sumir eiga heima f borgum eða bæjum. Aðrir eiga heima f þorpum eða sveitum. Hvar eigum við heima? I þessum sunnudagsþáttum finnst okkur eðlilegt að ræða nokkuð um fjölskylduna frá ýmsum hliðum. Ef ykkur börnunum finnst erfitt að skilja einhver atriði, viljum við hvetja ykkur til þess að ræða um það við foreldra ykkar, systkini eða vini, hvort sem þið eruð á sama máli eða ekki. Heimur lítils barns er ekki stór. En smám saman vex þessi heimur og staekkar eftir því sem barnið vex og þroskast. Fyrst kynnist það foreidrum sínum og hinum nánustu, en þegar það vex kynnist það vinum og nágrönnum, nánasta umhverfi og svo framvegis. Barnið lærir að þekkja menn, dýr og náttúr- una, það notar augun til þess að sjá með, hendur til þess að þreyfa á hlutum og komast f snertingu við aðra o.s.frv. Og sfðast en ekki síst lærir það að sjá hluti með öðrum, reyna eitthvað ásamt öðrum, laerir að gleðjast með öðrum og taka þátt f sorg annarra hvort sem er f fjölskyldunni eða með vinum og félögum. / dag er sunnudagur Sunnudaginn hafa kristn- ir men valið sem hvfldardag. Öllum mönnum er nauðsyn- legt að hvflast og slaka á frá önnum og erfaði hversdags- Iffsins. „Hvfldardagurinn varð til fyrir mennina,** sagði Jesús Kristur. Þess vegna ættum við að athuga hvernig við notum venju- lega sunnudaginn. Hvernig hefur það verið sfðustu tvo sunnudaga hjá okkur? Höfum við verið saman? Eða dreifist fjöl- skyldan út um hvippinn og hvappin? Förum við saman f kirkju, sunnudagaskóla, gönguhús, bfltúr eða kvikmyndahús? Fer fjölskyldan eitthvert saman? Kannski við ættum að ræða um það f dag, hvað við — heima hjá mér — getum gert sameiginlega. Litla sagan: Máttur Ijóssins Litla sagan: Máttur Ijóssins. Eitt sinn var indverskur fursti. Hann átti tvo syni og ákvað, að sá þeirra, sem vitr- ari væri, skyldi erfa rikið eftir sinn dag. En hvernig átti hann að fá skorið úr þvf, hvor þeirra það væri? Hann lét þá báða fá mikla fjárupphæð og sagði, að þeir skyldu kaupa fyrir hana það, sem gæti fyllt upp í stærsta salinn í höllinni. Sá eldri fór strax af stað að leita. Hann leitaði að einhverju, sem væri létt og ódýrt, svo að hann gæti fengið nógu mikið fyrir upphæðina til að fylla allan salinn. Á torginu hitti hann mann, sem var að selja hálm. — Hann er bæði ódýr og tekur rúm, hugsaði hann. Því næst keypti h'ann hálminn, en þá kom í ljós, að það var langt frá þvf, að hann fyllti salinn. Þegar yngri sonurinn hafði tekið við peningunum, fór hann inn í herbergi sitt, settist niður og fór að brjóta heilann um, hvað gera skyldi. Eftir stutta stund datt honum ráð í hug. Hann keypti stóran lampa, og þeg- ar dimmt var orðið, kveikti hann á lampanum og bar hann inn í salinn. Myrkrið varð að vfkja og ljósið af lampanum fyllti allan sal- inn. Furstinn gaf honum rík- ið eftir sinn dag. Þegar Jesús Kristur kom til jarðarinnar varð myrkrið að vfkja. Hann er ljós heims- ins. V j

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.