Morgunblaðið - 07.11.1976, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1976
Skotið að fólki á götum Reykjavíkur
Engan sakaði - en 47
tóm skothylki fundust
í slóð byssumannanna
TVEIR piltar, 21 og 19 ára að aldri, brutust í gærmorgun
inn í verzlunina Sportval ofarlega við Laugaveg. Tóku
þeir traustataki nokkrar byssur og hófu að skjóta af
þeim. Fyrst skutu þeir mörgum skotum inni í verzlun-
inni og ollu miklum spjöllum. Síðan barst leikurinn út á
Grettisgötu, Snorrabraut og Egilsgötu og héldu piltarnir
þar skothríðinni áfram, vopnaðir fjórum byssum og
umvafðir skotbeltum. Skutu þeir mörgum skotum að
lögreglunni, sem hafði elt þá frá Sportvali og einnig
skutu þeir að bifreið, sem átti leið um Snorrabraut.
Komu tvö högl í bifreiðarstjórann, en hann sakaði ekki
frekar en aðra, sem skotum var beint að. Þegar leikurinn
hafði borizt upp á gatnamót Egilsgötu og Barónsstfgs tók
Magnús Einarsson aðalvarðstjóri þá ákvörðun að aka á
annan piltanna. Felldi hann piltinn með lögreglubifreið-
inni og stukku lögreglumenn út og afvopnuðu hann.
Gafst hinn pilturinn þá upp.
Pilturinn, sem ekið var á, hand-
leggsbrotnaði, en meiddist lítið að
öðru leyti. I gærmorgun hafði lög-
reglan fundið 15 tóm haglabyssu-
skot og 32 tóm riffilskot eftir pilt-
ana. Þykir mesta mildi að ekki
skyldi hljótast stórslys af þessu
framferði piltanna. Annar pilt-
anna hefur margsinnis komizt i
kast við lögin. Meðal annars brauzt
hann inn í Sportval i april í vetur
og tók þar byssur traustataki og
hóf skothríð, en var yfirbugaður af
lögreglunni eftir að táragas-
„Þetta var
örþrifaráð”
„ÞETTA var örþrifaráð," sagði
Magnús Einarsson aðalvarðstjóri
lögreglunnar i viðtali við Mbl. i
gær, en Magnús stjórnaði eftir-
förinni og tók þá ákvörðun að aka
annan piltinn niður.
„Við vorum búnir að reyna að
fá piltana til að leggja vopnin
niður með góðu, en einu svörin
sem við fengum voru hagladrffur.
Höglin komu I okkur og brutu
rúður i bilnum. Þegar Ijóst var,
að piltarnir Iétu ekki segjast og
hætta var á þvf, að þeir gætu orðið
fólki að tjóni, ákvað ég að aka
lögreglubílnum á annan piltinn.
Eftir á að segja, er ég glaður yfir
þvi að pilturinn skyldi ekki meið-
ast meira. En það er vist, að þessa
skothrfð varð að stöðva, hún gat
ekki haldið áfram lengur," sagði
Magnús að lokum.
Hvorugur lögreglumannanna
meiddist að ráði, þrátt fyrir að
nokkur högl hittu þá.
sprengjum hafði verið skotið inn f
verzlunina. Ennfremur hefur pilt-
ur þessi á samvizkunni 1M milljón
króna þjófnað úr bæjarskrifstof-
unum f Kópavogi fyrir tveimur
árum. Piltarnir voru báðir f haldi
lögreglunnar f gær, og var búizt
við þvf að þeir yrðu úrskurðaðir f
gæzluvarðhald og lfklega geðrann-
sókn einnig, seinnipartinn f gær.
Rannsóknarlögreglumennirnir
Njörður Snæhólm og Hellert
Jóhannesson og Bjarki Elíasson
yfirlögregluþjónn almennu lög-
reglunnar sögðu blaðamanni Mbl.
frá atburðarásinni f gærmorgun,
en hún var f sem skemmstu máli á
þessa leið.
Piltarnir brutust inn f verzlun-
ina einhvern tfma milli klukkan 6
Framhald á bls. 30
Einar Brynjólfsson við sundurskotinn Moskvitchinn sinn.
Ljósm. Friðþjófur.
„Gleri og höglum
rigndi yfir mig”
„Ég REYNDI að vera eins rólegur og ég gat og
gætti þess að sýna ekki neinn æsing,“ sagði Einar
Brynjólfsson, Teigagerði 4, við Mbl. f gær, en
hann varð fyrir þeirri Iffsreynslu I gærmorgun að
verða fyrir skotirás piltanna tveggja. Einar fékk
tvö högl f sig, annað f enni og hitt f eyra, en
skrámaðist aðeins en bifreið hans er töluvert
skemmd eftir skothrfðina.
En gefum Einari orðið: „Eg hafði ekið konu
minni vinnu í smurbrauðstofuna Björninn við
Njálsgötu. Eg ók Njálsgötuna og beygði inn á
Snorrabraut. A móts við Osta- og smjörsöluna
mætti ég tveimur piltum á hlaupum með byssur í
höndum, og varð ég að vonum undrandi. Annar
þeirra vinkaði til mín og bað mig að stoppa. Ég
hægði á bifreiðinni og horfði framan f piltana.
Þegar ég sá að ég þekkti þá ekki, ók ég áfram. En
ég hef ekki verið kominn lengra en 4—5 metra
frá þeim þegar þeir hleyptu af haglabyssunni, 2
skotum, á bílinn og mölbrutu rúðurnar og yfir
mig rigndi glerbrotum og höglum. Mér brá
auðvitað en það var mesta furða hvað ég var
rólegur, lfklega vegna þess hve rólegur ég er að
eðlisfari. Ég steig út úr bflnum, leit á piltana og
sagði að þeir væru nú aldeilis léttlyndir. Ég talaði
rólega við þá en þeir sögðu mér að pilla mig burtu
og skilja lyklana eftir f bílnum. Þetta gerði ég
enda sögðu þeir að þeir myndu skjóta mig ella. Ég
gekk sfðan niður Snorrabrautina og hitti lög-
regluna. Ég er vissulega glaður að ekki skyldi
fara verr en þetta hefur verið mikil lífsreynsla."
Þrír skátar slasast
alvarlega í Þórsmörk
ÞRlR menn slösuðust
alvarlega í Þórsmörk í gær
er þeir hröpuðu í Gígjökli,
einum af skriðjöklum
Guðrún Tómasdóttir
„Skutu íyrir fram-
an mig
„ÞEGAR ég kom inn f Sportval til að þrffa
klukkan 7 um morguninn, kom annar piltanna á
móti mér með byssu f hönd. Hann sagði að ég
mætti ekki hringja f lögregluna og til að sýna að
honum væri alvara, hleypti hann af einu skoti
fyrir framan mig,“ sagði Guðrún Tómasdóttir,
Laugavegi 53B, f samtali við Mbl. f gær, en hún
kom að piltunum tveimur f verzluninni.
Og Guðrún heldur áfram: „Eg sagði þeim að ég
myndi ekki hringja f lögregluna. Sfðan gekk ég
innar f verzlunina og reyndi að vera róleg. Ég
bauðst til að hita fyrir þá kaffi og gaf þeim
- til að sýna mér að
alvaraværi á ferðum”
sfgarettur. Þeir voru inni f búðinni einar 15—20
mfnútur á meðan ég var þar. Þeir sýndu mér
ekkert ofbeldi, enda var ég hin rólegasta og það
tel ég að hafi hjálpað mikið. Piltarnir töluðu um
að fara f rfkið að ná f flösku og svo fóru þeir. Ég
var svo örmagna á eftir, að ég treysti mér ekki
eínu sinni til að ganga heim. Það er fyrst núna að
ég er farín að átta mig á þessu og núna fyrst geri
ég mér grein fyrir þvf hversu hrædd ég var innst
inni. Ég vorkenna mest þessum ólánsömu piltum,
þetta eru hvortveggja myndarpiltar,“ sagði Guð-
rún að lokum.
Eyjafjallajökuls. Mennirn-
ir eru f Hjálparsveit skáta
í Vestmannaeyjum og var
þyrla af Keflavfkurflug-
velli send austur með
lækni.
Beiðni barst Flug-
björgunarsveitinni
klukkan 14.10 vegna þessa
slyss, en fregnir af því
hvers eðlis slysið var og
hve meiðsli mannanna
voru mikil voru mjög
óljósar sfðdegis í gær, er
Morgunblaðið fór f prent-
un.
Skátar úr öðrum hjálpar-
sveitum voru einnig við
æfingar í Þórsmörk f gær
og hljóp einn þeirra að
Stóru-Mörk og tilkynnti
um slysið.
Fýrstu húsin fá vatn frá
hitaveitunni í Svartsengi
FYRSTA AFANGA Hitveitu Suð-
urnesja átti að taka f notkun sfð-
degis I gær og var ráðherrum,
þingmönnum og öðrum gestum
boðið. að vera viðstaddir athöfn-
ina f Svartsengi og sfðar f hófi f
samkomuhúsinu Festi. Það eru
nokkur hús f Grindavfk, sem nú
fá vatn frá hitaveitunni, en stefnt
er að þvf að um áramót verði
mestur hluti húsa f Grindavfk bú-
inn að fá vatn frá Svartsengi.
Jóhann Einvarðsson, bæjar-
stjóri f Keflavík, sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gær að lfkja mætti
hitaveatunni við snjóbolta. Nú
væri búið að hnoða boltann, sem á
Framhald á bls. 30