Morgunblaðið - 14.11.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1976
15
Þessi skrftni skapnaður er gerður úr mörgum dýrum. Rann-
sakaðu hann nákvæmlega og athugaðu, hvort þú getir séð
HVAÐ DVRIN ERU MÖRG og HVAÐA DÝR það eru. Lausn-
in er á öðrum stað á sfðunni.
'-'AÍ'ír,.
Hannes með hamarinn
5. Hannes gekk hugsandi út á götuna. Hann gleymdi alveg
að lfta til hægri og vinstri. Uff! Nú var nærri farið illa.
Hannes hrökk f kút, þegar hann heyrði bifreið hemla rétt hjá
sér. Bflstjórinn kallaði til hans út um gluggann: „Já, drengur
minn. Mundu það næst, að göturnar eru hættulegur leikvöllur
fyrir börn.“ Og Hannesi fannst bflstjórinn keyra af stað
miklu hraðar en fyrr.
*-/ o
/o°SS
6. Hannes hélt nú áfram ferð sinni. En hann vissi ekki,
hvert hann átti að fara. Honum fannst hann alls staðar vera
fyrir. Honum fannst húsin vera að hrynja ofan á sig eða ætla
að gleypa sig — garðarnir voru alltof ffnir til þess að leika sér
f þeim, og fólk þoldi ekki lengur börn með hamarshögg og
hávaða. Hann ákvað því að fara heim aftur og ræða um þetta
við foreldra sfna.
7. Hann settist nú hjá þeim inni f stofu og sagði: „Eg má
ekki vera inni að leika mér og ég má ekki vera við garðinn hjá
Pétri og ekki á gangstéttinni. Og svo ætla bflarnir alveg að
keyra yfir mann. Ég hlýt bráðum að deyja, ef ég fæ ekki að
smíða!“
Svo ræddu þau málið fram og aftur, þangað til pabbi hans
kom með góða tillögu.
„Við tökum vandlega til f geymslunni í kjallaranum. Og þar
geturðu fengið að smfða.“
Hannes litli ljómaði af gleði og vildi strax fara niður f
geymslu til þess að taka til.
Barna- og
fjölskyldusíða
Morgunblaðsins
Umsjón: Rúna Gfsladóttir og Þórir S. Guðbergsson.
Fjölskyldufundur
Við mynntum á það sfðastliðinn sunnudag, hvað við teljum
nauðsynlegt, að ÖLL fjölskyldan geti verið saman öðru
hverju. Nú leggjum við til, að fjölskylda þfn reyni að halda
fund. Mörgum finnst það ef til vill hálfskrýtið, og sumir
segjast eflaust ekki þekkja neitt til fundasköpunar o.s. frv.
En mörgum lákar fundaform, bæði börnum og fullorðnum. Og
allir hafa þörf fyrir félagsskap þar sem vinátta og gagnkvæmt
traust getur aukist.
Reynið þetta. Ræðið ákveðin mál og skiptist öll á skoðun-
um. Það tekur tfma að þjálfast og æfast f þvf eins og öðru. En
HAFIÐ FUNDINA SAMT EKKI OF OFT!
UM HVAÐ GETUM VIÐ RÆTT?
1. Allir hafa þörf fyrir að vera með öðrum, en bæði ungir og
gamlir þurfa lfka stundum að vera einir (læra, lesa, hvfla sig,
t.d. í veikindum). Ræðið um tillitssemi við aðra, hvert við
annað. Hvað getum við gert til þess að hjálpa hvert öðru?
2. Fjarmál fjölskyldunnar; um innkaup, vasapeninga, hvern-
ig vasapeningum skuli varið o.s.frv.
3. Skipulagning ferða, leyfa, hátfðisdaga o.s.frv.
4. Vmis vandamál.
Hljóðvarp — Sjónvarp
Efni fyrir börn og unglinga í hljóðvarpi:
Sunnudagar kl. 17.30: útvarpssaga barnanna (Óli frá
Skuld).
Mánudagar kl. 8.00: morgunstund barnanna, alla morgna
nema sunnudaga
Kl. 17.30: tónlistartími barnanna og „ungir pennar“ til
skiptis
Þriðjudagar kl. 17.30: litli barnatíminn
Kl. 20.40: frá ýmsum hliðum og ,,að skoða og skilgreana“
Miðvikudagar kl. 17.30: útvarpssaga barnanna
Fimmtudagar kl. 17.30: lagið mitt
Föstudagar kl. 17.30: útvarpssaga barnanna
Laugardagar kl. 10.25: barnatími með efni sem skiptist
þannig:
1) þetta erum við að gera,
2) svipast um,
3) bókahornið og 4) kaupstaðir á Islandi.
Kl. 17.30: lestur úr nýjum barnabókum fram til jóla.
Barna- og unglingaþættir í sjónvarpi:
Sunnudagur kl. 18.00: Stundin okkar
Miðvikudagur kl. 18.00: Þúsund dyra húsið
kl. 18.20: Skipbrotsmennirnir
kl. 18.45: Fræðsluþáttur um lungun
Laugardagur kl. 18.35: Haukur í horni.
Lausn: Hani, krabbi, skjaldbaka, api, hestur, tlgrisdýr.
Strúturinn
SAGT er, að strúturinn
stingi höfðinu inn f runna
eða feli það á annan hátt,
þegar hann verður hræddur,
en það er alls ekki rétt.
Hann leggst flatur á jörðin,
eins og mörg önnur dýr, ef
hann verður var við að hætta
er á ferðum. Annars getur
strúturinn hlaupið með 65
km hraða á klukkustund.
Verði hann fyrir árás, verst
hann með sterkbyggðum fót-
unum, sem hann sparkar þá
með f sffellu.
Litla sagan:
Hetjudáð
ARIÐ 1943 varð liðsflutn-
ingaskip fyrir sprengjuárás
f Norður-Atlantshafi. Skipið
tók þegar.að sökkva, og her-
mennirnir leituðu til björg-
unarbátanna. En þá kom f
ljós, að ekki voru til björg-
unarbelti handa öllum.
Með skipinu voru fjórir
herprestar. Þeir höfðu allir
fengið björgunarbelti og
voru komnir f þau. En þegar
þeir sáu að nokkrir her-
mannanna höfðu engin
björgunarbelti, fóru þeir úr
sfnum og létu hermennina
fá þau. Sfðan tókust þeir f
hendur og báðu Guð saman
innilega um að taka að sér
þessa ungu menn.
Skipið hélt áfram að
sökkva. En prestarnir héld-
ust stöðugt f hendur. Að sfð-
ustu hurfu þeir niður f djúp-
ið.
Hermennirnir björguðust,
en þeir gátu ekki gleymt
myndinni af prestunum
fjórum, sem héldust í hend-
ur á hinu sökkvandi skipi.
Sú sjón hafði haft mikil
áhrif á þá.
Arið 1948 gáfu Banda-
rfkjamenn út frfmerki með
mynd af prestunum fjórum
og hinu sökkvandi skipi. —
Þessir menn minna okkur á
hann, sem gaf lff sitt fyrir
okkur mennina, Jesúm
Krist.
v_
"V
„Litli prinsinn”
í Þjóðleikhúsinn
ÞJÓÐLEIKHUSIÐ sýnir nú
á Stóra sviðlnu á sunnudög-
um klukkan 15 leikritiö
Litla prinsinn eftir hinni
þekktu sögu Exupérys, en
sýning þessi er flutt af leik-
brúðum, sem stúlkur úr
Leikbrúðulandi stjórna og
leakurum Þjóðleikhússins,
sem tala fyrir brúðurnar.
Leikritið var frumsýnt á
Listahátíð í vor og vakti
mikla hrifningu og hlaut
ágætar undirtektir. Segja
má, að sýningin sé bæði
fyrir börn og fullorðna enda
hafa foreldrar sótt mjög sýn-
ingarnar ásamt börnum sín-
um.
J,